Reykjavíkurmót unglinga 2012 – úrslit

Facebook
Twitter

Alls tóku 25 keppendur þátt í Reykjavíkurmóti unglinga sem fram fór í Keiluhöllinni Öskjuhlíð dagana 9. og 10. janúar s.l. Keppt var í fjórum flokkum stúlkna og fimm flokkum pilta og Reykjavíkurmeistarar unglinga 2012 eru Andri Þór Goethe ÍR, Hafdís Pála Jónasdóttir KFR, Guðmundur Ingi Jónsson ÍR, Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR, Þorsteinn Henning Kristinsson ÍR, Sunneva Sól Sigurðardóttir ÍR, Jökull Byron Magnússon KFR og Helga Freysdóttir KFR. Í 5. flokki pilta fengu allir þátttakendur gullverðlaun fyrir þátttökuna, en þeir voru Lárus Björn Halldórsson ÍR, Sölvi Steinn Bjarkason ÍR, Benóný Svanur Sigurðsson ÍR og Einar Máni Daníelsson KFR. Sjá nánar úrslit mótsins

 

Myndir frá Þórarni Má Þorbjörnssyni af keppendum í yngstu flokkunum

Nýjustu fréttirnar