Evrópumót – úrslit

Facebook
Twitter

Arnar Davíð lék í kvöld í fyrstu tveim riðlunum.  Hann byrjaði að keppa við Lukas Hurych frá Tékklandi.  Hann vann hann 2 – 0, spilaði 241 og 204 gegn 159 og 167.  Næst fékk hann Saku Konttila frá Finlandi en hann er einn af mörgum hér sem kasta með báðum höndum (3 af 16 í úrslitum).  Fyrsta leikinn vann hann 230 – 227 og kláraði hann leikinn í restina.  Fininn byrjaði sterkur í öðrum leik með átta fellur en Arnar opnaði þrjá ramma og Fininn vann 269 gegn 207.  Þriðji leikurinn var einnig mjög spennandi Saku opnaði tvo ramma og tengdi inní 10 og kláraði á 202, en það kom ekki að sök því okkar maður opnaði ekki ramma og kláraði á 213.  Það er því ljóst að Arnar Davíð er kominn í 8 manna úrslitin á morgun.

Nýjustu fréttirnar