Á miðvikudaginn kemur þann 17. september hefst keppnistímabilið í keilu 2025 til 2026 með Meistarakeppni KLÍ. Þar eigast við í kvennaflokki ÍR TT sem varð bæði Íslands- og bikarmeistarar 2025 við KFR Afturgöngurnar sem urðu í 2. sæti bikarkeppninnar í ár. Karla megin eigast síðan við Íslandsmeistararnir 2025 ÍR PLS gegn Bikarmeisturum 2025 ÍR KLS. Stefnt verður að því að streyma frá Meistarakeppninni á Facebook síðu KLÍ.
Sem fyrr markar þetta mót upphaf keppnistímabilsins og strax um næstu helgi verða fyrstu deildarleikirnir leiknir upp á Skaga en svo hefst deildarkeppnin í Egilshöll á mánudaginn í næstu viku.
Deildarkeppnin í keilu 2025 til 2026
Í deildarkeppninni þetta tímabilið eigast við 6 lið í 1. deild kvenna og 5 lið í 2. deild kvenna. Í 1. deild karla leika 11 lið þetta tímabilið, 12 lið í 2. deild og sömu leiðis 12 lið í 3. deild, alls eru því skráð til leiks 48 lið á komandi tímabili.
Fjöldi liða skiptist á félögin með þessum hætti þetta tímabilið:
- ÍA 7 lið eða 15% af heildarfjölda liða
- ÍR 28 lið eða 58%
- KFR 6 lið eða 13%
- KR 1 leið eða 2%
- Þór 2 lið eða 4%
- Öspin 4 lið eða 8%
Dagskrá keppnistímabilsins í keilu
Sjá má dagskrá vetrarins á vef Keilusambandsins.
Niðurröðun deildarkeppni í keilu
Sjá má niðurröðun deilda hér í valmynd fyrir ofan, Mót á vegum KLÍ – deildir – viðkomandi deild