Reglugerð fyrir Aganefnd KLÍ

1. grein

Aga­nefnd skal skipuð þremur mönnum og tveimur til vara. KLÍ sér um skipun þeirra, og skal formaður nefndarinnar skipaður sér­stak­lega.

2. grein

Aganefnd skal fjalla um brot leikmanna, forystumanna og aðstoðarmanna á leikstað, í A- eða B-mótum, sem koma fram á dómaraskýrslu.

Ef dómaraskýrsla berst frá öðru liðinu í Íslandsmóti liða skal hinu liðinu gefin kostur á að skila inn skýrslu áður en aganefnd tekur málið fyrir, og hefur liðið 48 tíma til þess. Skal afhending seinni skýrslunnar ráða tímamörkum aganenfndar til úrskurðar samkvæmt 13. og 14. grein um aganefnd.

3. grein

Úrskurði aga­nefndar verður ekki áfrýjað.

4. grein

Veita skal refsi­stig fyrir brot sem hér segir:

  1. 2 refsi­stig fyrir:
    1. reykingar, aðra tóbaksnotkun og notkun rafretta
    2. notkun hvers­kyns dufts undir keilu­skó í keppni
    3. notkun hvers­kyns dufts í gryfjunni, nema hvað nota má „svita­poka“
    4. önnur minniháttar óprúð­mann­leg fram­koma að mati aga­nefndar
    5. áreiti gagnvart fulltrúum KLÍ
  2. 4 refsi­stig fyrir:
    1. meiðandi um­mæli um leik­menn, áhorfendur eða starfs­fólk
  3. 6 refsi­stig fyrir:
    1. gagnrýni á ákvarðanir móts­stjóra/dómara
    2. grófa óíþrótta­manns­lega fram­komu
  4. 10 refsi­stig fyrir:
    1. endur­tekna óíþrótta­manns­lega fram­komu
    2. endur­tekið áreiti gagnvart fulltrúum KLÍ
  5. 16 refsi­stig fyrir:
    1. ofbeldi utan eða innan leik­staðar
    2. að hafa vís­vit­andi rangt við
    3. mis­notkun lyfja eða áfengis í keppni
    4. ólög­mæta þátt­töku í leik
    5. önnur brot sem leiða til brott­vikningar af leiks­tað.

5. grein

Refsing skal vera að lágmarki sem hér segir:

  • Fyrir   4 refsi­stig –   1 sería í bann
  • Fyrir   6 refsi­stig –   2 seríur í bann
  • Fyrir 10 refsi­stig –   4 seríur í bann
  • Fyrir 16 refsi­stig – 10 seríur í bann

Aganefnd er heimilt að ákveða annað form á refsingu, t.d. tímabundið keppnisbann.

Með seríu er átt við 3 leiki eða fleiri sem leiknir eru sama dag, eftir fyrir­komu­lagi móts. Hafi leik­maður fengið einnar seríu bann vegna 4 refsi­stiga, og nær síðan 6 refsi­stigum skal hann hljóta tveggja seríu bann til við­bótar. Nái hann 10 refsistigum kemur 4 seríu bann til við­bótar. Nái hann 16 refsistigum kemur 10 seríu bann til við­bótar.

Refsingu er aðeins hægt að taka út í mótum sem haldin eru af KLÍ og skal aganefnd ákvarða í hvaða mótum leikmaður skal taka út leikbann.

6. grein

Fyrir brott­vikningu eða brot sem framið er utan leik­mannasvæðis þannig að brott­vikningu verði ekki komið við, eða önnur brot alvar­legs eðlis að mati aga­nefndar, meðal annars öll brot sem fallið geta undir íslenska hegningar­lög­gjöf, gagnvart leik­manni, starfs­manni, dómurum eða áhorfendum, skal heimilt að refsa leik­manni með tíma­bundnu banni. Ítrekun getur, ef brot er mjög alvar­legs eðlis, varðað allt að 12 mánaða banni. Slíkt bann nær til allra móta á vegum KLÍ.

7. grein

Ef leik­menn liðs leika ekki allir í eins búningum, eins og kveðið er á um í reglu­gerð um keilumót, er aga­nefnd heimilt að dæma félagið í allt að 5.000,- kr. sekt.

8. grein

Ef leik­maður sem er í banni, skiptir um lið og/eða félag, skal refsingin fylgja honum.

9. grein

Ef lið og/eða félag notar leik­mann sem er í banni, skal um­rædd viður­eign dæmd því liði/félagi töpuð.

10. grein

Refsi­stig sem leitt hafa til refsingar bætast við ný áunnin refsi­stig á sama leik­ári og leiða til aukinnar refsingar. Áunnin refsi­stig hafa einungis áhrif á því leikári sem þau eru unnin á, en refsing þar til hún er tekin út.

11. grein

Heilt lið brýtur af sér ef það yfir­gefur leiks­tað í mót­mæla­skyni, neitar að hefja leik, halda leik áfram eða mætir ekki til leiks án þess að hafa fyrir því gilda ástæðu. Refsing við því getur orðið brott­rekstur úr keppni, stiga­tap, bann á alla leik­menn liðsins og/eða sektir.

12. grein

Dómarar/móts­stjórar skulu koma skrif­legri skýrslu um brot til aga­nefndar innan 48 klukku­st. frá lokum viður­eignar eða lokum móts. Sé skýrslan póst­lögð skal til­kynna það sér­stak­lega.

Nefndin leggur þær skýrslur til grundvallar þegar hún tekur af­stöðu til mála sem varða viður­lög. Þó skal nefndin gefa kost á munn­legum eða skrif­legum mál­flutningi ef mál eru alvar­legs eðlis og varða þyngstu viður­lögi.

13. grein

Brot skulu tekin til meðferðar innan 7 sólar­hringa frá því skýrsla dómara berst aga­nefnd. Úrskurð aga­nefndar um refsingu skal til­kynna strax að lokinni umfjöllun nefndarinnar og tekur hann gildi kl. 12:00 á há­degi næsta dag. Óheimilt er að taka út refsingu áður en úr­skurður aganefndar tekur gildi. Úr­skurð sinn skal aga­nefnd til­kynna viðkomandi félagi með sannanlegum hætti.

14. grein

Hafi aga­nefnd ekki kveðið upp úr­skurð 14 sólar­hringum eftir að skýrsla dómara barst, teljast brot samkvæmt 4. grein a) til d) fyrnd en brot samkvæmt 4. grein e), 6. grein og 11. grein fyrnast að refsingu lokinni.

15. grein

Aga­nefnd skal halda fundargerðir og skrá þar ákvarðanir sínar.

 

Breytt á formannafundi 11. apríl 2012
Breytt á formannafundi þann 28. desember 2016