Fréttir
Miðvikudagur, 16. Janúar 2019 kl. 17:23 | SÞE
Íslandsmót Einstaklinga 2019 með forgjöfÍslandsmót einstaklinga 2019 með forgjöf verður haldið dagana 23. til 26. Febrúar í Keiluhöllinni Egilshöll. Skráning hér Íslandsmót einstaklinga 2019 með forgjöf verður haldið dagana 23. til 26. Febrúar í Keiluhöllinni Egilshöll. Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 18:00. Olíuburður í mótinu er: SUNSET STRIP 40fet
Forkeppni 23 & 24 febrúar 2019 Spilaðir eru 8 leikir í tveimur 4 leikja blokkum. Keppni byrjar kl. 11:00 Laugardag og sunnudag Verð í forkeppni kr. 10.000,- ?? efstu karlarnir og ?? efstu konurnar halda áfram í milliriðil. (fer eftir þátttöku) Efstu keppendur í bæði karla- og kvennaflokki skv. upptalningu hér að neðan spila 4 leiki og fylgir skorið úr forkeppninni í milliriðil, 6 efstu eftir milliriðil komast í undanúrslit. 17 þátttakendur eða færri = 10 keilarar áfram í milliriðil. 18 til 19 þátttakendur = 12 áfram í milliriðil. 20 til 21 þátttakendur = 14 áfram í milliriðil. 22 þátttakendur eða fleiri = 16 áfram í milliriðil.
Milliriðill mánudaginn 25.feb kl 19:00 Spilaðir eru 4 leikir. Verð í milliriðil kr. 5.500,- Efstu 6 karlar og 6 konur halda áfram í undanúrslit.
Undanúrslit þriðjudaginn 26.feb kl 19:00 Verð í undanúrslit kr. 5.500. Undanúrslit: Allir keppa við alla, einfalda umferð.
Úrslit spiluð á eftir undanúrslitum Úrslit: Spiluð eru úrslit milli þriggja efstu manna/kvenna sem leika allir einn leik á sama setti Eftir eru tveir keppendur og leika þeir einn leik til úrslita og fær sigurvegarinn titilinn Íslandsmeistari einstaklinga. Sé einhversstaðar í úrslitum jafnir leikir sem verða til þess að ekki sé hægt að skera úr um hvort keppandi detti út eða vinni leik skal útkljá leikinn með því að leikmenn kasta einu kasti og sá vinnur sem fellir flestar keilur.
Skráning fer aðeins fram á netinu og lýkur fimmtudaginn 21. febrúar klukkan 18:00. |
![]() |