Skráningarfrestur í deildir

Facebook
Twitter

Á morgun, 15. maí, er síðasti dagur fyrir lið sem leika í öðrum deildum en þeim neðstu til að skrá lið til keppni á komandi keppnistímabili.

Stjórn KLÍ hefur veitt Þór og ÍA frest til 15. júní til að skila inn tilkynningum vegna óvissu með aðstöðumál á Akureyri og Akranesi.  Ný lið og lið í neðstu deild karla og kvenna hafa til 31. júlí til að skrá lið til keppni.

Rafrænt skráningarform er að finna hér. 

Nýjustu fréttirnar