Um síðustu helgi var keppt í Danmerkurmeistari ungmenna í Óðinsvéum þar í landi. Var það lokamót tímabilsins en ungmennin hafa keppt og safnað stigum allt tímabilið. Systkinin Alexandra Erla og Svavar Steinn sem búa ytra voru efst í sínum aldursflokkum fyrir lokamótið og spennan því eðlilega mikil fyrir keppnishelgina.
Úrslitakeppnin var á endanum afskaplega spennandi allt fram í síðasta leik hjá þeim. Endaði það svo að Alexandra Erla sigraði U15 flokk stúlkna þar sem sigurinn hafðist í loka römmum leiksins. Alexandra er því danskur meistari í U15 flokki stúlkna 2026 hvorki meira né minna.
Svavar Steinn endaði síðan í 2. sæti á eftir liðsfélaga sínum í Brasilia liðinu eftir hörku keppni þeirra á milli.
Sænskur U16 meisari með íslenskar rætur
Ekki nóg með það að íslenskir unglingar væru að gera það gott í Danmörku heldur náði Julia Lindén að sigra U16 keppni stúlkna á sænska landsmeistaramótinu. Julia byrjaði mótið ekki eins og hún hefði sjálf kosið en það sannast enn og aftur að mót er ekki búið fyrr en í síðasta leik. Hún vann sig örugglega upp sætaröðunina og endar sem sænskur meistari í U16 stúlkna.
Klárlega eru hér afskaplega efnilegir ungir keilarar á ferð sem við í samfélaginu hér vitum að verður spennandi að fylgjast með í framtíðinni.
Til hamingju Alexandra Erla, Svavar Steinn og Julia Lindén !






