Verðlaunaafhending vetrarins verður laugardaginn 5. júní

Facebook
Twitter

Laugardaginn 5. júní verður haldin verðlaunaafhending vetrarins 2020 til 2021. Þar verða afhent öll verðlaun úr deildarkeppni KLÍ í öllum deildum svo sem gull, silfur og brons í deildum, einstaklings og liðaverðlaun ásamt því sem við á. Verður athöfnin haldin í húsakynnum ÍSÍ á Café Easy sem er á 1. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar Laugardal og hefst athöfnin kl. 14:00 að loknum úrslitaleikjum Bikarkeppni KLÍ.

Á síðum deildanna má sjá árangur vetrarins og eru þeir sem verðlaun hljóta hvattir til að mæta í Café Easy. Boðið verður upp á léttar veitingar í athöfninni. Húsið verður annars opið á meðan húsrúm leifir.

Stjórn KLÍ – JÁJ

Nýjustu fréttirnar