Íslandsmót unglingaliða 3. umferð

Facebook
Twitter

Þriðja umferðin á Íslandsmót unglingaliða fer fram í Keiluhöllinni Öskjuhlið laugardaginn 7. desember n.k. og hefst keppni kl. 9:00.

Staðan er nú þannig að lið ÍA 1 hefur tekið forystu og er í 1. sæti með 14 stig, ÍR 1 er í 2. sæti með 11 stig, KFR 1 er í 3. sæti með 10 stig. Sjá stöðuna og skor umferðar

Á Íslandsmóti unglingaliða eru spilaðar 5. umferðir á keppnistímabilinu og síðan keppa fjögur efstu liðin til úrslita. Keppt er í þriggja manna liðum og þátttökurétt hafa unglingar sem eru félagar í keilufélagi og eru í 5. – 10. bekk grunnskóla. Að þessu sinni eru fimm lið skráð til leiks, tvö lið frá ÍA, tvö lið frá ÍR og eitt lið frá KFR. Í hverri umferð er spiluð einföld umferð allir við alla, eða 4 leikir. Sjá nánar um Íslandsmót unglingaliða og dagskrá unglingamóta í vetur.

Nýjustu fréttirnar