Dagur 4 í Bankok

Facebook
Twitter

Við heilsum úr Austri.  Lokaleikirnir í þriggjamanna liða fóru fram í dag og spilaðist nú misjafnlega eins og gengur, en Andrés spilaði 173-233-149 = 555, Maggi spilaði 203-182-192 = 577 og Addi spilaði 225-193-181 = 599, og í seinna hollinu Árni Geir 186-193-205 = 584, Steini 182-188-183 = 553 og Hafþór 191-213-192 = 597.  Eins og sést á þessu var ekki alslæm spilamennska en strákarnir geta mun miklu meira og vonandi hitta þeir á það á morgun í 5 manna liðakeppninni.  Okkur líður öllum vel og er mórallinn mjög góður, strákarnir eru ekkert að meiða mig eða hvorn annan.

látum þessar litlu uppl. duga að sinni og kveðjum

Hörður Ingi 

Nýjustu fréttirnar