Íslandsmót í tvímenningi 2003

Íslandsmót í tvímenningi 2003 fór fram í Keilu í Mjódd dagana 5. - 11. maí. Eftir harða keppni og spennandi úrslitaleiki vörðu Jón Helgi Bragason ÍR og Hjálmtýr Ingason ÍR titilinn þegar þeir tryggðu sér Íslandsmeistarartitilinn í tvímenningi 2003 í fjórða skiptið í röð. Í öðru sæti urðu Halldór Ragnar Halldórsson ÍR og Sigurður Lárusson ÍR, en þeir leiddu keppina þegar kom að úrslitum, og í þriðja sæti voru Arnar Sæbersson ÍR og Steinþór G. Jóhannsson ÍR. 10 tvímenningar tóku þátt í mótinu að þessu sinni og var spilamennska mjög góð eins og sjá má á fjölda meta sem sett voru þessa daga og talin eru upp hér á eftir. Sjá nánar um úrslit mótsins á keilusíðunum.

Íslandsmet

Fjöldi Íslandsmeta var settur í nýafstöðnu Íslandsmóti í tvímenningi. Á fyrra degi forkeppninnar byrjaði Hafþór Harðarson KFR á því að setja fjögur glæsileg Íslandsmet í 1. flokki pilta, 17 - 18 ára þegar hann spilaði 945 í 4 leikjum, 1.166 í 5 leikjum og 1.360 í 6 leikjum sem er 226, 7 að meðaltali í leik. Á á seinna degi forkeppninnar bætti Hafþór við einu meti þegar hann spilaði 482 í 2 leikjum. Á Hafþór nú öll metin í þessu flokki nema í einum leik. Í milliriðli mótsins voru Halldór Ragnar Halldórsson ÍR og Sigurður Lárusson ÍR í miklum ham og settu fimm met þegar þeir spiluðu 923 í 2 leikjum, 1.425 í 3 leikjum, 1.842 í 4leikjum, 2.264 í 5 leikjum og 2.693 í 6 leikjum. Í fyrri umferð undanúrslitanna bættu Jón Helgi Bragason ÍR og Hjálmtýr Ingason ÍR um betur þegar þeir og slógu dagsgamalt met Halldórs Ragnars og Sigurðar í 2 leikjum 929, 4 leikjum 1.850 og 5 leikjum 2.319.

Sjóvá-Almennar mótið 2003

16. manna úrslit karla og kvenna fóru fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 4. maí voru margir hörkuspennandi leikir þar á dagskránni. Sjá nánari upplýsingar um úrslit leikja í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum. 8 manna úrslit mótsins fara fram mánudaginn 19. maí og 4 manna úrslit og úrslit þriðjudaginn 20 maí n.k. Upplýsingar um leiki er að finna í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum.

Landslið KLÍ 2003

Búið er að velja sjö manna landsliðshóp vegna þátttöku í heimsmeistaramótinu í keilu sem fram fer í Kuala Lumpur í Malasíu í september og skipa hann eftirtaldir keilarar: Arnar Sæbergsson ÍR, Björn Birgisson KFR, Freyr Bragason KFR, Jón Helgi Bragason ÍR, Magnús Magnússon KR, Sigurður Lárusson ÍR og Steinþór Geirdal Jóhannsson ÍR. Þessir landsliðsmenn hafa nú gert áætlanir um þjálfun á komandi mánuðum og skrifað undir samning við KLÍ þess efnis að þeir hafi gefið kost á sér í þetta verkefni. Árangur liðsins á síðasta heimsmeistaramóti fyrir fjórum árum var mjög góður, en þá náði karlalandsliðið 14. sæti af 52 í liðakeppni 5 manna liða. Því miður gáfu of fáar konur kost á sér og því reyndist ekki unnt að senda kvennalandslið að þessu sinni.

SÍB keilumót 2003

Keilumót SÍB 2003 fer fram í Keilu í Mjódd dagana 12. - 19. maí. Metþátttaka er í mótinu að þessu sinni og eru 13 kvennalið og 13 karlalið skráð og í fyrsta sinn í sögu mótsins keppa fleiri konur en karlar í mótinu. Vegna fjölda liða var dregið í riðla í forkeppninni og keppir A-riðill karla mánudaginn 12. maí, A-riðill kvenna þriðjudaginn 13. maí, B-riðill karla miðvikudaginn 14. maí og B-riðill karla fimmtudaginn 15. maí. Spilaðir eru 5 leikir í forkeppninni og hefst keppni kl. 18:00 alla dagana og lýkur um kl. 22:30. Tvö efstu liðin riðlinum keppa síðan til úrslita mánudaginn 19. maí þar sem spilaðir verða tveir leikir og hefst úrlitakeppnin kl. 18:00 og er reiknað með verðlaunaafhendingu um kl. 21:00. Hvetjum við alla keilara til að fylgjast með þessari keppni.

Formannafundur KLÍ

Stjórn KLÍ boðaði formenn allra keilufélaga og keiludeilda til fundar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal þriðjudaginn 22. apríl s.l. Á fundinum var m.a. farið yfir helstu mál á dagskrá ársþingsins og undirbúningur fyrir næsta keppnistímabil.

Íslandsmót liða, Deildarbikar, Bikarkeppni liða 2003 - 2004

Við minnum á að skráningarfrestur félaga fyrir eldri lið vegna þátttöku í Íslandsmóti liða, Bikarkeppni KLÍ og Deildarbikar liða rennur út fimmtudaginn 15. maí n.k., en skráningarfrestur vegna nýrra liða er til 1. ágúst n.k. Skráningargjald vegna þátttöku í Íslandsmóti liða á næsta keppnistímabili er kr. 30.000 en lækkar í kr. 25.000 sé þátttökugjaldið greitt fyrir 1. nóvember. Skráningargjald vegna þátttöku í Deildarbikar liða sem á næsta ári er tvímenningur er kr. 5.000 en lækkar í kr. 3.000 sé þátttökugjaldið greitt fyrir 1. nóvember. Ekki er innheimt sérstakt skráningargjald vegna þátttöku í Bikarkeppni KLÍ.

Kveðja

Stjórn KLÍ