Ársþing KLÍ 2003
Ársþing KLÍ var haldið laugardaginn 26. apríl s.l. í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Þingið sátu 14 þingfulltrúar, þingforseti, þingritari, stjórnarmenn KLÍ og formenn nefnda eða alls um 20 manns. Valgeir Guðbjartsson formaður KLÍ flutti skýrslu stjórnar og Sigríður Klemensdóttir lagði fram reikninga sambandsins. Lítilsháttar hagnaður varð á rekstri sambandsins á síðastliðnu ári og gerir áætlun fyrir árið 2003 það líka. Helstu verkefni KLÍ á síðastliðnu starfsári, fyrir utan venjubundið mótahald, var verkefnið "Konur í Keilu" og síðan landsliðsmál. Valgeir Guðbjartsson var endurkjörinn formaður KLÍ, Ómar Kristjánsson og Theodóra Ólafsdóttir voru kjörin í stjórn til 2ja ára, fyrir í stjórn voru þær Sigfríður Sigurðardóttir og Sigríður Klemensdóttir, í varastjórn voru kjörin þau Linda Hrönn Magnúsdóttir, Jónas Gunnarsson og Þórhallur Hálfdánarson. Gunnar Bragason flutti þinginu kveðju frá ÍSÍ, en Gunnar var einnig þingforseti, þingritari var Sigfríður Sigurðardóttir. Þingstörf gengu vel fyrir sig að þessu sinni og setti Valgeir Guðbjartsson formaður KLÍ þingið kl. 9:05 og sleit því kl. 11:25.
Helstu samþykktir þingsins voru þær að breyting var gerð á keppni í 1. deild kvenna sem felur í sér að keppnisfyrirkomulagið verður svipað og í 1. deild karla. Miðað við átta liða deild verða fyrst spilaðar tvær umferðir samtals 14 leikir og deildinni síðan skipt í efri og neðri riðil og spiluð tvöföld umferð samtals 6 leikir. Að lokinni þriðju umferðinni spila svo tvö efstu liðin til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn og verður úrslitakeppnin í 1. deild karla og kvenna spiluð með nýja bikarfyrirkomulaginu.
Deildarbikar var breytt í tvímenning og verða reglur svipaðar og var í tvímenningi á árum áður.
Einnig var samþykkt að heimalið sjái alfarið um greiðslu á heimaleikjum í Íslandsmóti liða í öllum deildum.
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar KLÍ
var haldinn fimmtudaginn 1. maí og skipti stjórnin þá með sér störfum. Skipan stjórnar KLÍ er þannig Valgeir Guðbjartsson formaður KLÍ, Theódóra Ólafsdóttir varaformaður, Sigríður Klemensdóttir gjaldkeri, Ómar Kristjánsson ritari, Sigfríður Sigurðardóttir fundarritari og varamenn eru Linda Hrönn Magnúsdóttir, Jónas Gunnarsson og Þórhallur Hálfdánarson umsjónarmaður tölvumála. Næsti fundir stjórnar KLÍ verður haldinn miðvikudaginn 25. maí kl. 17:30.Íslandsmót í tvímenningi 2003
Athugið leiðréttingu á dagsetningum frá fyrri auglýsingu. Íslandsmót í tvímenningi fer fram í Keilu í Mjódd dagana 5. - 11. maí n.k. Spilaðir verða 2 x 6 leikir í forkeppni á mánudag 5. og þriðjudag 6. maí. Efstu 6 tvímenningarnir komast í undanúrslit á laugardag 10. maí þar sem leiknir spilaðir verða 6 leikir og að lokum verður á sunnudaginn 11. maí spiluð tvöföld umferð allir við alla og síðan úrslit 3-2-1-1. Skráning er í Keilu í Mjódd og á netfangið motanefnd@kli.is og lýkur skráningu sunnudaginn 4. maí kl. 22:00. Nú þegar hafa margir tvímenningar skráð sig til þátttöku í mótinu þannig að útlit er fyrir metþátttöku að þessu sinni. Sjá nánar á auglýsingum í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum.
Sjóvá-Almennar mótið 2003
32 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá-Almennar mótinu bikarkeppni einstaklinga fóru fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 27. og mánudaginn 28. apríl. 16. manna úrslit karla og kvenna fara fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 4. maí kl. 19:00 - 22:00 og eru margir hörkuspennandi leikir þar á dagskránni. Sjá nánari upplýsingar um leiki í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum. Stefnt er að því að 8, 4 manna og úrslit fari fram 12. og 13. maí n.k.
Deildarbikar KLÍ 2002 - 2003
Úrslitakeppnin deildarbikarsins fór fram í Keilu í Mjódd þriðjudaginn 29. apríl. Til úrslita kepptu tvö efstu liðin úr A-riðli, ÍR-A og KFR-Lærlingar og tvö efstu liðin úr B-riðli ÍR-KLS og KR-a og lauk keppninni með sigri KFR-Lærlinga, í öðru sæti var lið ÍR-KLS, í þriðja sæti KR-a og í fjórða sæti ÍR-A.
Utandeild KLÍ 2002 - 2003
Miðvikudaginn 30. apríl fóru fram úrslit Utandeildarinnar í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Þar mættust tvö efstu liðin úr hvorum riðli, Ölgerðin Egill Skallagrímsson og TVG-Ziemsen úr a-riðli og SME&synir&vinir og Landsbanki Íslands úr b-riðli. Lauk keppninni með sigri Landsbanka Íslands, í öðru sæti voru sigurvegarar síðasta árs Ölgerðin Egill Skallagrímsson, í þriðja sæti lið TVG-Ziemsen og í 4. sæti lið Sigurjóns M. Egilssonar SME&synir&vinir. Einnig voru veittar eftirtaldar viðurkenningar Hæsti leikur lið TVG-Ziemsen 624, hæsta sería liðs Landsbanki Íslands 1.661, hæsti leikur kvenna Linda Hrönn Magnúsdóttir Keilukrútt 175, hæsti leikur karla Ágúst Haraldsson TVG Ziemsen 245, hæsta meðaltal karls Gunnar Þorsteinsson Ölgerðin Egill Skallagrímsson 183,4, hæsta meðaltal deildarspilara karla Halldór Ásgeirsson Eykt 193,43 og heiðursverðlaun liðs Keilukrútt fyrir góða mætingu og fjölmenna þátttöku.
Kveðja
Stjórn KLÍ