Fréttapistill Sigríðar Klemensdóttur

 

Meistarakeppni KLÍ 2002

Meistarakeppnin fór fram í Keilu í Mjódd miðvikudaginn 11. september s.l. Úrslitin voru þau að Íslands- og bikarmeistar Flakkarar úr KFR urðu að láta í minni pokann fyrir Valkyrjum úr KFR, með 1922 stigum gegn 1957. Hjá karlaliðunum unnur bikarmeistar ÍR-PLS Íslandsmeistarana úr KR með 2240 stigum gegn 2121.

Freyjumótið 2002 og AMF World Cup 2002

Freyjumótið var haldið í Keilu í Mjódd dagana 12. - 14. september s.l. Sigurvegari í Freyjumótinu var Ásgeir Þór Þórðarson ÍR, í 2. sæti var Jón Helgi Bragason ÍR og í 3. sæti var Magnús Magnússon KR. Í AMF World Cup móti kvenna fóru úrslit þannig að í 1. sæti var Solla Guðmundsdóttir KFR, í 2. sæti Elín Óskarsdóttir KFR og í 3. sæti Sigríður Klemensdóttir ÍR. Þar sem Ásgeir Þór og Jón Helgi gáfu frá sér keppnisréttinn á AMF World Cup mun Magnús Magnússon taka þátt í mótinu ásamt Sollu Guðmundsdóttur. AMF World Cup fer fram í Toss Bowling hall í borginni Riga í Lettlandi dagana 19. - 22. október n.k.

Íslandsmót liða 2002 - 2003

Fyrsta umferðin í Íslandsmóti liða fór fram í vikunni. Hægt verður að fylgjast með úrslitum og stöðunni á heimasíðu KLÍ www.kli.is og íslensku keilusíðuna www.keila.is.

Reykjavíkurmót liða 2002

Skráning er hafin í Reykjavíkurmót liða sem fer fram í Keilu í Mjódd dagana 26. - 29. september n.k. Sjá nánari upplýsingar í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum.

Utandeild KLÍ 2002 - 2003

Vegna fjölda liða verður keppt í tveimur riðlum Utandeild KLÍ í vetur. Keppnin fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og fer 1. umferðin í a-riðli fram fimmtudaginn 26. september og 1. umferðin í b-riðli fimmtudaginn 3. október. Sjá nánari upplýsingar um deildina á http://www.keila.is/Mot/2003/utandeild/fyrirtaekjadeild.htm

Íslandsmót unglingaliða 2002 - 2003

Skráningu í Íslandsmót unglingaliða lýkur föstudaginn 27. september kl. 22:00 og fer fyrsta umferðin fram laugardaginn 5. október n.k. ef næg þátttaka fæst. Allar nánari upplýsingar og skráning í mótið fer fram hjá Unglinganefnd KLÍ.