27. desember 99/HS
Keilarar ársins 1999
Solla og Freyr eru keilarar ársins 1999
Stjórn Keilusambands Íslands hefur valið þau Sólveigu Guðmundsdóttur og Frey Bragason keilara ársins 1999. Sólveig og Freyr hafa bæði skarað framúr á árinu, hafa verið í fremstu röð keilara undanfarin ár og eru góðar fyrirmyndir ungra og upprennandi keilara.
Stjórnir sérsambanda ÍSÍ velja árlega þann íþróttamann sem talinn er hafa staðið sig best á árinu, hver fyrir sitt sérsamband. Í fyrstu var eingöngu valinn einn íþróttamaður úr karla- eða kvennaflokki en frá 1998 hefur verið valinn bæði karl og kona.
Sjáið meira um keilara ársins 1999 og fyrri ára.
26. desember 99/HS
Rangt skráðar fellur og stjörnur hjá KR-a í 1. deild karla
Björn G. Sigurðsson og Kristján Sigurjónsson í KR-a hafa verið úrskurðaðir í 6 seríu leikbann, fellur strokaðar út hjá fjórum leikmönnum og stjörnur strokaðar út hjá KR-a í 11. umferð.
Sjáið úrskurð Aganefndar og frétt DV
22. desember 99/HS
Bikarkeppni KLÍ
8-liða úrslit í Bikarkeppni KLÍ verða 29. janúar en dregið verður kl. 21:15 þann 10. janúar í Keilu í Mjódd. Sjáið 16 liða úrslit.
13. desember 99/HS
Solla sló Íslandsmet kvenna frá 1987
Sólveig Guðmundsdóttir og Halldór Ásgeirsson urðu Reykjavíkurmeistarar para 1999
Sólveig Guðmundsdóttir frá Keilufélagi Reykjavíkur sló tólf ára gamalt Íslandsmet einstaklinga í kvennaflokki þegar hún lék 279 leik í úrslitum í Reykjavíkurmóti para en mótinu lauk í gær, sunnudag 12. desember, í Keilu í Mjódd. Fyrra metið, 278, sem var það langelsta í keilunni, setti Ásdís Steingrímsdóttir í Keiluhöllinni 24. október 1987.
Sólveig Guðmundsdóttir og Halldór Ásgeirsson urðu Reykjavíkurmeistarar para 1999 eftir að hafa komist áfram í úrslitum með aðeins tveggja pinna mun. Í öðru sæti urðu Jóna Gunnarsdóttir og Jón Helgi Bragason. Í þriðja sæti urðu Elín Óskarsdóttir og Freyr Bragason.
Þrjú efstu pör kepptu til úrslita og var fyrsti leikurinn mjög jafn..
Elín 144
Freyr 224 368
Solla 157
Dóri 213 370
Í úrslitaleiknum má segja að Solla hafi gert út um leikinn með glæsilegri spilamennsku.
Solla 279
Dóri 165 444
Jóna 143
Jón H. 171 314
Desember 99/HS
Heimsmeistaramótið í Abu Dhabi
Sjáið fréttir frá Heimsmeistaramótinu - Official Results , einnig er upplýsingar að finna á heimasíðu Bowlers Journal , og á heimasíðu FIQ.
Fréttir eru frá Hollendingum
og eitthvað ætti að vera á heimasíðu mótsins: World Championships in Abu Dhabi 1999
Niðurstöður eldri heimsmeistaramóta: World Championships 1954 - 1999
22. nóvember 99/HS
Bikarkeppni liða - dregið í 16 liða úrslit
Dregið hefur verið í16 liða úrslit Bikarkeppni KLÍ, karla flokki. Keppni fer fram laugardaginn 11. desember kl. 13:00. Þar sem lið eiga eftir að keppa vegna frestana er líklegt að keppt verði 11. des kl. 10:00 en leiktími verður staðfestur um leið og úrslit liggja fyrir.
Varúlfarnir - ÍR-a Keila í Mjódd 1 – 2
Keiluböðlar - ÍA Keila í Mjódd 3 – 4
HK-T/HR-c - Keilugarpar Keila í Mjódd
Keilulandssv. - KSSÁ/PLS Keila í Mjódd
Þröstur - Ísmenn Keila í Mjódd 5 – 6
Lærlingar - Keflavík-a Keila í Mjódd 7 – 8
KR-a - KR-b Keila í Mjódd 9 – 10
Sveitamenn - Keflavík-c Keilus. Keflav.
21. nóvember 99/HS
Bikarkeppni liða 1999 - 2000
Dregið verður í 16 liða riðil Bikarkeppni KLÍ mánudaginn 22. nóvember kl. 21:15 í Keilu í Mjódd.
Úrslit í þeim leikjum sem lokið er í 32 liða riðli:
Þröstur 2118 - JP-kast 1977 Mjódd
Keiluvinir 1958 - Keilugarpar 2241 Mjódd
Keilulandssv. 2202 - Egilsliðið 2002 Mjódd
Varúlfarnir 2041 - Úlfarnir 2035 Mjódd
ÍR-a 2250 - ÍR-L 1839 Mjódd
ÍA 2140 - HK 2015 Mjódd
ET 1989 - Keiluböðlar 2096 Mjódd
Ísmenn 1837 - Olís liðið 1830 Mjódd
Stormsveitin 2040 - Sveitamenn 2174 Keflavík
Sveigur 0 - Keflavík c Sigur Keflavík
Lávarðarnir 2002 - Keflavík a 2286 Keflavík
Rennubanar - Lærlingar Mjódd
Keflavík d - KR a Keflavík
HK-T - KR c Mjódd Frestað
Stórskotaliðið - KR b Mjódd Frestað
KSÁÁ - PLS Öskjuhlíð Frestað
21. nóvember 99/HS
Heimsmeistaramótið í Abu Dhabi
Keppnisfyrirkomulag karla:
Föstudaginn 19. og laugardaginn 20. nóv. - einstaklingar - 6 leikir
Mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. nóv. - tvímenningur - 6 leikir
Fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. nóv. - þrímenningur - 6 leikir
Laugardaginn 27. til mánudagsins 29. nóv. - 5-manna lið - 6 leikir
Þriðjudaginn 30. nóvember, undanúrslit 16 efstu
Miðvikudaginn 1. desember, úrslit 3ja efstu
66 þjóðir taka þátt í Heimsmeistaramótinu, 345 karlar og 258 konur auk 182 fararstjóra og þjálfara. Í Reno 1995 voru 612 keppendur en þjóðirnar eru fleiri nú, voru 61 í Reno.
Búist er við 60.000 áhorfendum á opnunarhátíðina sem verður laugardaginn 20. nóvember. Undirbúningi er að ljúka en kostnaðurinn hefur hækkað úr 1,3 í 1,7 milljón Bandaríkjadali.
Svíar með 940 kg af kúlum. Sænska landsliðið "the Striking Vikings" sendi kúlurnar, aðeins 940 kíló, í vörugámi til Abu Dhabi. Senda þurfti sérstakan vörubíl út á flugvöll eftir kúlunum.
15. nóvember 99/HS
Heimsmeistaramótið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Íslenska karlalið er komið til Abu Dhabi og er það þannig skipað:
Björn Birgisson, KFR 196,1
Björn Sigurðsson, KR 191,4
Freyr Bragason, KFR 198,2
Ívar Jónasson, KFR 181,3
Jón Helgi Bragason, ÍR 192,4
Steinþór G. Jóhannsson, KR 192,5
Með liðinu er Valgeir Guðbjartsson, formaður KLÍ en hann sækir þing alþjóðasamtakanna og þjálfararnir Mats Wetterberg og Theódóra Ólafsdóttir.
18. nóvember 99/HS
Antonio Samaranch afboðar komu á mótið
Antonio Samaranch afboðar komu sína á mótið vegna mikilvægs fundar sem á að vera í byrjun desember í Olympíunefndinni. IOC sports director, Gilbert Felli, veður fulltrúi IOC við opnunina í staðinn.
30. september 99/HS
Antonio Samaranch verður við opnun Heimsmeistaramótsins í Abu Dhabi
Antonio Samaranch, forseti Alþjóða Ólympíunefndarinnar hefur þegið boð um að verða við opnunarhátíð Heimsmeistaramótsins í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, UAE, 20. nóvember næstkomandi. Samaranch upplýsti að hann gæti þegið boðið ef flugsamgöngur væru hentugar 20. nóvember. Dr. Abdulla A. Kareem, framkvæmdastjóri FIQ og aðstoðarformaður undirbúningsnefndar, bauðst þá til að senda einkaþotu til þess að flytja Samaranch og aðra fulltrúa Alþjóða Ólympíunefndarinnar til Abu Dhabi. Daginn eftir opnunarhátíðina mun Samaranch leika tvo leiki við Jerry Koenig forseta FIQ, hann mun einnig hitta forseta UAE og aðra fursta í UAE.
Til þess að gera þetta Heimsmeistaramót sögulegt hefur Krónprinsinn í Abu Dhabi samþykkt 3,5 milljón dollara fjárveitingu fyrir mótið. Hann lét einnig færa opnunarhátíðina frá 20.000 manna íþróttaleikvangi yfir í leikvang sem rúmar 70.000 áhorfendur í sæti. Sagt er að opnunarhátíðin verði söguleg og full af óvæntum uppákomum.
6. nóvember 99/HS
GULL OG SILFUR – Ragna Matt og Anna Dögg eru gullstúlkurnar 1999
Gull- og silfurmótinu lauk í Keilu í Mjódd í dag en keppni hófst miðvikudaginn 3. nóvember. Keppt var í tveim flokkum, með og án forgjafar. Ragna Matthíasdóttir var greinilega á gull-línunni í þessu móti en hún lék fystu átta leikina á 202,6 að meðaltali eða 1621 stig í átta leikjum, Jóna Gunnarsdóttir var með 1500 stig og Sólveig Guðmundsdóttir var með 1378 stig. Í flokki með forgjöf var efst eftir forkeppnina Bára Ágústsdóttir með 1729 stig, Anna Dögg Hermannsdóttir var með 1721 stig og Anna Kristín Óladóttir var með 1692 stig.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Flokkur án forgjafar
1. leikur:
Jóna Gunnarsdóttir (2) 167 3. sæti
Sólveig Guðmundsdóttir (3) 190
2. leikur:
Sólveig Guðmundsdóttir 173 2. sæti
Ragna Matthíasdóttir 182 1. sæti
Flokkur með forgjöf
1. leikur:
Anna Dögg Hermannsdóttir (2) 223 með forgjöf
Anna Kristín Óladóttir (3) 211 " 3. sæti
2. leikur:
Bára Ágústsdóttir 220 með forgjöf 2. sæti
Anna Dögg Hermannsdóttir 231 " 1. sæti
3. nóvember 99/HS
Ballmaster Open
30th Ballmaster Open verður í Finnlandi 6. - 9. janúar 2000. Þetta er fyrsta stórmótið í Evrópu sem gefur stig á Heimslistanum. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu Ballmaster Open
25. október 99/HS
Bikarkeppni liða 1999 - 2000
Dregið hefur verið í 32 liða Bikarkeppni KLÍ, karla flokki. Keppni fer fram laugardaginn 20. nóvember kl. 10:00 og 13:00
Laugardaginn 20. nóvember kl. 10:00
Þröstur - JP-kast Keila í Mjódd 1 – 2
Keiluvininir - Keilugarpar Keila í Mjódd 3 – 4
Keilulandssv. - Egilsliðið Keila í Mjódd 5 – 6
Stórskotaliðið - KR b Keila í Mjódd 7 – 8
Varúlfarnir - Úlfarnir Keila í Mjódd 9 – 10
Laugardaginn 20. nóvember kl. 13:00
ÍR-a - ÍR-L Keila í Mjódd 1 – 2
ÍA - HK Keila í Mjódd 3 – 4
ET - Keiluböðlar Keila í Mjódd 5 – 6
Ísmenn - Olís liðið Keila í Mjódd 7 – 8
HK-T - KR c Keila í Mjódd 9 – 10
Laugardaginn 20. nóvember kl. 13:00
Rennubanar - Lærlingar Keila í Mjódd x – x frestun
Laugardaginn 20. nóvember kl. 13:00
Stormsveitin - Sveitamenn Keilus. í Keflavík 1 – 2
Sveigur - Keflavík c Keilus. í Keflavík 3 – 4
Keflavík d - KR a Keilus. í Keflavík 5 – 6 frestun
Lávarðarnir - Keflavík a Keilus. í Keflavík 5 – 6
Laugardaginn 20. nóvember kl. 13:00
KSÁÁ - PLS Keiluhöllin í Öskjuhlíð 3 – 4 frestun
24. október 99/HS
Dregið í Bikarkeppni KLÍ
Dregið verður í Bikarkeppni KLÍ – 32 liða – mánudagskvöldið 25. október. Dregið verður í Keilu í Mjódd strax að lokinni keppni í kvennadeild, um kl. 21:15.
20. október 99/HS
AMF World Cup 2000 í Portúgal
Fyrsta Heimsbikarmót einstaklinga á nýrri öld verður haldið í Lissabon í Portúgal 15. - 21. október 2000. Mótið verður haldið í nýjum 30 brauta sal sem verið er að ganga frá og verður opnaður í desember á heimssýningarsvæðinu, World Expo 1998, í Lissabon.
Sjáið síðustu fréttir af Heimsbikarmótinu, AMF World Cup 1999 í Las Vegas, frá
Bowlers Journal
1. september 99/HS
298 leikur hjá Steinþóri
Steinþór G. Jóhannsson setti Íslandsmet í 1. flokki unglinga, 17 - 18 ára, þegar hann lék 298 leik í tvímenningi deildarliða.
1. september 99/HS
PLS Íslandsmeistarar í tvímenningi deildarliða 1999
PLS frá keiludeid ÍR urðu Íslandsmeistarar í tvímenningi deildarliða sem lauk í Keilu í Mjódd um helgina. KR-a varð í öðru sæti og Lærlingar í þriðja sæti.
11. ágúst 99/HS
ÍSLANDSMÓT DEILDARLIÐA
hefst 4. OKTÓBER
21.ágúst 99/HS
MEISTARAKEPPNIN 1999
Meistarakeppni KLÍ verður laugardaginn 2. október
í Keilu í Mjódd.
Sjá nánar
á döfinni
25.ágúst 99/HS
ÚRSLIT Í UMSPILINU - KR-b í 2. deild
KR-b vann keppnina um sætið í 2. deild og fékk 28 stig, Keflavík-b fékk 20 og Keflavík-c kom án stiga út úr keppninni.
26.ágúst 99/HS
Mats kemur í september
Mats Wetterberg verður hér á landi næst 13.-19. september og verður þá með landsliðið og landsliðshópana í þjálfun.
26.ágúst 99/HS
Opna hjóna- og paramót KFR
Opna hjóna- og paramót KFR verður fyrsta sunnudag í hverjum mánuði í vetur og hefst kl. 20:30. Keppendum verður boðið upp á kaffi og meðlæti eftir keppni. Fyrsta umferð verður sunnudaginn 3. október í Keilu í Mjódd.
21.ágúst 99/HS
Pauliina Aalto fer í amerísku atvinnumannakeiluna
Finnska landsliðskonan Pauliina Aalto hefur tilkynnt að hún muni fara yfir í atvinnumennsku í keilu og ætlar hún að taka þátt í keppnisröð atvinnumanna, "the Professional Women´s Bowling Association Tour", sem hefst nú í september.
meira um Pauliina Aalto
|
22. ágúst 99/HS
Deildarliðin 1999 - 2000
Sjá nánar
deildarliðin í vetur, töfluröð
18. ágúst 99/HS
Freyjumótið 1999
Freyjumótið verður 10. – 12. september í Keilu í Mjódd.
Sjá nánar auglýsingu
20.ágúst 99/EÍ
Sumarmót kvennalandsliðsins
Sumarmóti kvennalandsliðsins lauk í Keilu í Mjódd 18. ágúst. Mótið hófst 2. júní og var leikið á miðvikudagskvöldum í allt sumar, leiknar voru 14. umferðir. Mótið er opið tvímenningsmót liða og tóku sjö lið þátt í mótinu í hvorum flokki. Afturgöngurnar frá Keilufélagi Reykjavíkur sigruðu í kvennaflokki og KR-a í karlaflokki.
Sjá nánar úrslit sumarmóts kvennalandsliðsins - kvennaflokkur
Sjá nánar úrslit sumarmóts kvennalandsliðsins -karlaflokkur
20.júlí 99/HS
TVÍMENNINGUR DEILDARLIÐA 1999
Tvímenningur deildarliða fer fram 25. til 29. ágúst.
Sex lið keppa í karlaflokki en það eru Lærlingar og JP-kast frá KFR, Keilulandssveitin, PLS og ÍR-a frá ÍR og KR-a.
Sjá nánar auglýsingu
18. ágúst 99/HS
Met þátttaka á AMF World Cup í Las Vegas
Sjá nánar
á döfinni
26.júlí 99/HS
Keilusalurinn í Keflavík tengist netinu
Keilusalurinn í Keflavík er að setja upp heimasíðu og er komin upp hugmynd af síðunni en hún verður uppfærð daglega.
Eftir að tölvuskorið verður formlega sett í gang þá getur hver sem er
skoðað úrslit og leiki sem eru í gangi á heimasíðunni.
Tölvuskorið verður mjög líklega tekið í notkun eftir prófanir, strax eftir
Verslunarmannahelgi.
Slóð heimasíðunnar er keflavik.is/keila
22. ágúst 99/HS
Íslandsmót para hefst 21. janúar 2000
22. ágúst 99/HS
Íslandsmót einstaklinga hefst 17. febrúar 2000
|