23. apríl 2003/hs
Deildarbikarinn
Úrslitakeppni í deildarbikar fer fram þriðjudaginn 29. apríl næstkomandi í Keilu í Mjódd
og hefst klukkan 19:00
Tvö efstu liðin úr A riðli, ÍR a og Lærlingar, og tvö efstu liðin úr B riðli,
ÍR-KLS og KR-a, leika tvöfalda umferð allir við alla, alls sex leiki.
Stig í viðureignum eru gefin eins og í forkeppni, þ.e. 2 fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli.
Stigahæsta liðið að loknum þessum leikjum stendur uppi sem sigurvegari.
Ef tvö eða fleiri lið eru jöfn að stigum gildir pinnafall liðsins.
23. apríl 2003/hs
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra
32 manna úrslit karla og kvenna fara fram sunnudaginn 27. apríl og mánudaginn
28. apríl.
Sjáið keppnistíma og niðurröðun í riðla hér.
Vinsamlega kynnið ykkur tímana og staðfestið mætingu sem allra fyrst við
gg@sjova.is eða sigga@sjova.is
11. apríl 2003/hs
Verðlaunaafhending á laugardag - fréttir frá KLÍ
Verðlaun vegna liða- og einstaklingskeppni í deildum Íslandsmóts liða 2002
- 2003 fer fram í Keilu í Mjódd að loknum bikarúrslitum laugardaginn 12.
apríl kl. 12:00 . Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir þátttöku í
unglingamótum vetrarins.
Sjáið nánar fréttir og á döfinni frá KLÍ
11. apríl 2003/hs
Bikarkeppni KLÍ 2003 - fréttir frá KLÍ
Úrslit í Bikarkeppni KLÍ fara fram í Keilu í Mjódd laugardaginn 12. apríl
og hefst keppni kl. 9:00. Í úrslitunum mætast hjá konunum
KFR-Afturgöngurnar og KFR-Flakkarar og hjá körlunum KFR-Lærlingar og KRa.
Það er því ljóst að um hörkuspennandi keppni verður að ræða og hvetjum við
alla keilara til að koma og fylgjast með bikarúrslitunum og
verðlaunaafhendingunni á eftir.
Sjáið nánar fréttir og á döfinni frá KLÍ
11. apríl 2003/TÓ
Pákamót Flakkara
Flakkarar standa fyrir páskamótum, bæði fyrir fullorðinna, 13. apríl
og unglinga 15. apríl, sjáið nánar auglýsingar um mótin.
10. apríl 2003/vg
Flakkarar og PLS Íslandsmeistarar liða, tvö Íslandsmet sett
Íslandsmóti liða í karlaflokki lauk í gærkveldi, 9.04.2003,
Íslandsmeistararliða árið 2003 urðu eftir mjög góðan leik lið PLS úr ÍR, í
öðru sæti KR og í þriðja sæti lið Lærlinga úr KFR.
Í lokaleiknum settu ennfremur leikmenn PLS tvö Íslandsmet, þ.e. í
2 leikjum liðs: 1828 stig og í 3 leikja seríu liðs: 2755 stig, einnig setti
Halldór Ragnar Halldórsson úr liði ÍR-PLS 2 íslandsmet, þ.e. í 2 leikjum
einstaklings: 575 stig og í 3ja leikja seríu einstaklings: 818 stig.
Meðf. er mynd af Íslandsmeisturunum, ÍR - PLS, leikmenn er sem hér segir:
efri röð frá vinstri: Sigurður E. Ingason, Jón Helgi Bragason, Matthías
Helgi Júlíusson - fremri röð frá vinstri: Halldór Ragnar Halldórsson og
Hjálmtýr I. Ingason
Í kvöld fór svo fram síðasta umferð í Íslandsmóti liða í kvennaflokki, í
stuttu máli sagt þá urðu úrslit þau að Íslandsmeistarar kvennaliða í keilu
2003 urðu KFR Flakkarar eftir jafna og tvísýna keppni - þær hlutu 46 stig
en í öðru sæti urðu KFR Valkyrjur með 44 stig, í þriðja sæti urðu síðan KFR
Afturgöngurnar.
Þess má geta að þetta er sjötta árið í röð sem KFR Flakkarar verða
Íslandsmeistarar kvenna, meðf. er mynd af Íslandsmeisturunum, KFR
Flökkurum, leikmenn eru sem hér segir: efri röð frá vinstri: Guðný Helga
Hauksdóttir, Elín Óskarsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir - fremri röð frá
vinstri: Theodóra Ólafsdóttir og Guðrún Bára Ágústsdóttir.
7. apríl 2003/þh
Stigamót KLÍ
Fjórða stigamót KLÍ verður haldið í Keilu í Mjódd þann 13. apríl kl. 9:00
Sjáið auglýsingu um stigamótið.
7. apríl 2003/þh
Bikarkeppni KLÍ
Úrslit í Bikarkeppni KLÍ fara fram í Keilu í Mjódd næst komandi laugardag, 12. apríl, klukkan 9:00.
Til úrslita í kvennaflokki leika Afturgöngurnar og Flakkarar, en í Karlaflokki leika Lærlingar og KR-a.
2. apríl 2003/þh
Flakkarar efstar
Úrslitakeppni kvenna hófst í Mjóddinni í kvöld með leikjum Flakkara og ÍR-TT og Valkyrja og Afturgangnanna. Breytingar voru gerðar á úrslitakeppninni á síðasta Ársþingi, og taka liðin nú með sér stig inní úrslitakeppnina sem hér segir:
1. sæti = 12 stig - Flakkarar
2. sæti = 8 stig - Afturgöngurnar
3. sæti = 4 stig - Valkyrjur
4. sæti = 0 stig - ÍR-TT
Úrslitakeppnin er síðan allir við alla, tvöföld umferð.
Flakkarar og Valkyrjur unnu sína leiki í kvöld 8-0, og eru Valkyrjur því komnar fjórum stigum upp fyrir Afturgöngurnar. Flakkarar og Valkyrjur mætast síðan annað kvöld.
Stöðu eftir fyrstu umferð úrslitakeppninngar má sjá í heild sinni hér.
1. apríl 2003/þh
Úrslitakeppni
Í kvennadeildinni er leikið allir við alla, tvöföld umferð, og leika fjögur efstu liðin úr deildinni.
Hjá körlunum leika tvö efstu liðin. ÍR-PLS hafa þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en ekki fyrr en í kvöld hvort það verði ÍR-KLS, KR-a eða Lærlingar sem mæta þeim í úrslitum.
Úrslitakeppnin hefst því annað kvöld með tveimur leikjum í Keilu í Mjódd. Dagskráin hjá konunum er sem hér segir:
Miðvikudagur 2. apríl, Keila í Mjódd
1-2 Afturgöngurnar - Valkyrjur
3-4 ÍR-TT - Flakkarar
Fimmtudagur 3. apríl, Keila í Mjódd
1-2 Valkyrjur - Flakkarar
3-4 Afturgöngurnar - ÍR-TT
Mánudagur 7. apríl, Keila í Mjódd
1-2 Flakkarar - Afturgöngurnar
3-4 Valkyrjur - ÍR-TT
Þriðjudagur 8. apríl, Keila í Mjódd
1-2 Flakkarar - ÍR-TT
3-4 Valkyrjur - Afturgöngurnar
Miðvikudagur 9. apríl, Keila í Mjódd
1-2 ÍR-TT - Afturgöngurnar
3-4 Flakkarar - Valkyrjur
Fimmtudagur 10. apríl, Keila í Mjódd
1-2 ÍR-TT - Valkyrjur
3-4 Afturgöngurnar - Flakkarar
Úrslitakeppni hjá körlum hefst á mánudag.
28. mars 2003/hs
Nýtt á döfinni
Meistarakeppni ungmenna verður á morgun, laugardag í Öskjuhlíðinni, Konur í keilu verður næst á Akranesi.
Sjáið nánar í fréttum frá KLÍ
28. mars 2003/hs
Sjóvá-Almennra, úrslit
Hér eru úrslit frá fimmtudeginum 27. mars, sjáið niðurröðun hér.
25. mars 2003/hs
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra
64 manna úrslit karla fara fram fimmtudaginn 27. mars frá kl. 18-22 og
sunnudaginn 30. mars frá kl. 19-22, sjáið niðurröðun hér.
Vinsamlega kynnið ykkur tímana og staðfestið mætingu sem allra fyrst við
gg@sjova.is
23. mars 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga
Spennan var mikil í Keilu í Mjódd í dag, þegar undanúrslit og úrslit í Ísandsmóti einstaklinga fóru fram. Elín, Sigfríður og Dagný Edda héldu sínum efstu þremur sætum, en Sigfríður átti mjög góðu gengi að fagna, og sló þrjú Íslandsmet; 922 í 4 leikjum, 1.159 í 5 leikjum og 1.385 í 6 leikjum, eða 230,9 í meðaltal.
Enn meiri hasar var þó hjá körlunum. Jón Helgi náði efsta sætinu af Birni þegar þeir mættust í fyrsta leik og var ekki á þeim buxunum að láta það eftir. Hann lék mjög vel í dag, og spilaði 2.183 í 10 leikjum. Í 9 leikjum var hann með 1.970, sem er aðeins 10 pinnum frá Íslandsmeti Magnús Magnússonar. Miklar hrókeringar voru í næstu fjórum sætum, en á þeim skiptust Halldór Ragnar Halldórsson, Magnús Magnússon, Steinþór Jóhannsson og Björn Birgisson. Niðurstaðan varð þó að Björn og Magnús náðu inn í úrslit, en Magnús hrifsaði sæti í úrslitum af Halldóri Ragnari í stöðuleiknum, þegar hann sigraði með 256 stigum gegn 247.
Í úrslitunum sigraði Magnús síðan Björn með 177 gegn 159 stigum. Úrslitaleikinn háðu því Magnús og Jón Helgi, og stóð Magnús uppi sem sigurvegari, sigraði með 415 (222+193) gegn 392 (202+190).
Dagný Edda sigraði Sigfríði með 207 gegn 187, og mætti Elínu því í Úrslitum. Dagný var hærri eftir fyrri úrslitaleikinn, 180 gegn 158, en Elín sigldi framúr í síðari leiknum, sem endaði í 257 hjá henni. Niðurstaðan varð því að Elín sigraði með 415 gegn 352 stigum Dagnýjar.
Íslandsmeistararnir öðlast þátttökurétt á Evrópubikarmóti einstaklinga sem fram fer í Vín í Austurríki í október.
22. mars 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga
Nokkrar breytingar urðu á röð efstu manna í dag, en Björn Birgisson (KFR) náði forystunni af Jóni Helga. Þá náði Magnús Reynisson (KR) inn í 10 manna undanúrslitin á kostnað Ásgeir Þórs (ÍR), og Dagný Edda í 6 manna undanúrslit kvenna á kostnað systur sinnar Jónu.
Undanúrslit eru leikin í Keilu í Mjódd; konur hefja keppni klukkan 10:00 og karlar klukkan 14:00. Úrslit verða leikin að loknum undanúrslitum hjá körlum.
Staðan eftir milliriðil
21. mars 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga
Enginn náði að hrifsa efsta sætið af þeim Jóni Helga eða Elínu í kvöld, þrátt fyrir góða spilamennsku í kvöld. Meðaltal kvöldsins var 195,4, en það var 199,825 hjá körlunum 15.
Bjarni Páll Jakobsson (KFR) spilaði hreint frábærlega í kvöld, 1704 í 8 leikjum eða 213 í meðaltal, og setti hann þrjú Íslandsmet í flokki 13-14 ára; 660 í 3 leikjum, 1104 í 5 leikjum og 1330 í 6 leikjum, en ekki eru skráð met í fleiri leikjum í unglingaflokkum. Einungis einn leikmaður spilaði betur en Bjarni í kvöld, Björn Birgisson (KFR), en hann spilaði 1762, eða 220,25 í meðaltal.
Staðan eftir forkeppni
21. mars 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga
Jón Helgi Bragason (ÍR) lék á 205,75 meðaltali í gærkvöldi, og er því með 3.492 eða 218,25 meðaltal eftir forkeppnina, og er efstur þeirra sem lokið hafa keppni í forkeppni. Elín Óskarsdóttir (KFR) hélt einnig forystunni meðal þeirra sem lokið hafa keppni, en hún endaði á 3.040 eða 190 meðaltali.
A hópurinn hefur keppni í Keilu í Mjódd klukkan 19:30 í kvöld, og hefst milliriðill karla í fyrramálið klukkan 9:00, og milliriðill kvenna klukkan 12:00. Keppni fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð.
Staðan eftir annan leikdag
20. mars 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga
Jón Helgi Bragason (ÍR) lék manna best í gærkvöldi, á fyrsta leikdegi Íslandsmóts einstaklinga, en hann spilaði 1.846 í 8 leikjum, gera 230,75 í meðaltal. Elín Óskarsdóttir (KFR) er efst hjá konunum með 1.577, eða 197,13 í meðaltal.
Seinni 8 leikir í forkeppni eru leiknir í dag klukkan 17:30 í Öskjuhlíð, 19:30 í Keilu í Mjódd, og annað kvöld klukkan 19:30 í Keilu í Mjódd.
Staðan eftir fyrsta leikdag
18. mars 2003/sk
Nýtt á döfinni
Fréttir frá KLÍ
18. mars 2003/vg
Stigamótið 3. umferð
Spilamennskan var góð í þriðju umferð stigamóts KLÍ sem fram fór um helgina.
Úrslit urðu þau að Björn Birgisson, KFR, sigraði með 1776 stig eða
222 að meðaltali, Sigurður Lárusson, ÍR, varð í öðru sæti með 1685 eða 211
meðaltal og Sveinn Þrastarson, KR, varð í því þriðja með 1647 stig eða 206
meðaltal.
Sigurður Lárusson, ÍR, er en efstur í mótinu með 24 stig, Björn
Birgisson, KFR, sækir að honum með 22 stig og síðan er Halldór Ragnar
Halldórsson, ÍR, með 19 stig.
Sjáið úrslitin úr 3. umferð hér og stöðuna hér.
10. mars 2003/vg
Íslandsmót einstaklinga 2003
Íslandsmót einstaklinga verður haldið dagana 19. til 23. mars næstkomandi í Keilu í Mjódd og Keiluhöllinni Öskjuhlíð.
Sjáið auglýsingu um Íslandsmótið.
10. mars 2003/vg
Stigamót KLÍ
Þriðja stigamót KLÍ verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð þann 16. mars kl. 9:00
Sjáið auglýsingu um stigamótið.
10. mars 2003/eí
Íslandsmót unglinga
Kristín Magnúsdóttir KFR og Magnús S. Guðmundsson KFA eru Íslandsmeistarar í opnum flokki unglina.
Sjáið sigurvegara og lokastöðuna í öllum flokkum hér.
10. mars 2003/vg
Bikarkeppni KLÍ - undanúrslit
Undan´urslit í Bikarkeppni KLÍ fór fram 8 mars. Bræðurnir Jón og Freyr áttu mjög góða leiki og var Freyr með einn 280 leik.
Sjáið meira um undanúrslitin hér.
9. mars 2003/eí
Íslandsmót unglinga
Forkeppni er lokið, úrslit verða kl. 17:00 í dag og opni flokkurinn strax á eftir.
sjáið stöðuna eftir 4. umferð.
8. mars 2003/eí
Íslandsmót unglinga
Nú er aðeins ein umferð eftir í Íslandsmóti unglinga,
sjáið stöðuna eftir 3ju umferð.
3. mars 2003/eí
Íslandsmót unglinga
Íslandsmót unglinga er nú í fullum gangi,
sjáið stöðuna hér.
28. mars 2003/sk
Sjóvá-Almenna
Sjáið úrlitin úr forkepninni,
úrslit í kvennaflokki og úrslit í karlaflokki.
3. mars 2003/sk
Konur í keilu
Næsta námskeið, Konur í keilu, verður í Keilu í Mjódd 13. og 15. mars n.k.
Keilusamband Íslands býður öllum stúlkum og konum, 11 ára og eldri, á frítt
byrjendanámskeið í keilu. Hver stúlka/kona mun á námskeiðinu fá tveggja tíma
tilsögn í undirstöðuatriðum keiluíþróttarinnar undir handleiðslu leiðbeinenda.
Fyrsta námskeiðið var haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 22. febrúar s.l.
og mættu þar um 200 stúlkur og konur á öllum aldri og skemmtu sér vel.
Nú er komið að næsta námskeiði sem verður haldið í Keilu í Mjódd, Þönglabakka 1
(sama hús og Nettó) fimmtudaginn 13. mars og laugardaginn 15. mars.
Tímarnir eru fimmtudaginn 13. mars kl. 18:00 og 20:00 og laugardaginn 15. mars
kl. 12:00, 14:00 og 16:00.
Skráning á námskeiðið fer fram í gegnum netfangið namskeid@kli.is og í
síma 697 3691 (Lísa) eða 821 0711 (Valgeir). Munið að skrá nafn, síma og á hvaða
tíma þið óskið eftir að mæta á námskeiðið.
Þetta er tilvalið tækifæri til að gera eitthvað öðruvísi með vinkonum,
skólafélögum, vinnufélögum, saumaklúbbnum, spilaklúbbnum, frænkuhópnum o.s.frv.
Hvetjum við því allar konur til að nota tækifærið til að kynnast þessari
íþrótt og eiga skemmtilega stund í góðum félagsskap.
28. febrúar 2003/hs
Norðurlandamótið 2003
Norðurlandamóti fullorðinna haldið í Tampere í Finnlandi 2003
Kvennalandsliðið skipa eftirtaldir keppendur:
Alda Harðardóttir KFR, Dagný Edda Þórisdóttir KFR, Jóna Kristbjörg Þórisdóttir KFR,
Súsanna Kristín Knútsdóttir KFR og Sigfríður Sigurðardóttir KR.
Karlalandsliðið skipa eftirtaldir keppendur:
Andri Ólafsson KFR, Árni Geir Ómarsson ÍR, Ásgeir Símon Halldórsson ÍR,
Eiríkur Arnar Björgvinsson KFR, Steinþór G. Jóhannsson ÍR og Þórhallur Hálfdánarson KFR.
Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir og fararstjóri er Sigfríður Sigurðardóttir.
Sjáið nánar um mótið.
Sjáið dagskrá mótsins og
niðurstöður leikja.
26. febrúar 2003/eí
Íslandsmót unglinga
Íslandsmót unglinga verður haldið í Keilu í Mjódd 1. & 2. MARS og 7. & 9. MARS
Sjáið auglýsingu um mótið.
24. febrúar 2003/sk
Nýtt á döfinni
Fréttir frá KLÍ
17. febrúar 2003/hs
KENNSLA HJÁ PETER ENGSTRÖM (PEPPE)
Keilusamband Íslands stendur fyrir námskeiðum í keilu fyrir leiðbeinendur
og annað námskeið ætlað konum daganna
20.- 22. febrúar.
Sjáið nánar.
15. febrúar 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf - milliriðill
Bjarni Páll Jakobsson (KFR) setti stórglæsilegt Íslandsmet í einum leik í flokki 13-14 ára pilta, en hann spilaði 299 leik.
Spilamennska hans kom honum í fyrsta sætið, en Davíð, sem var efstur fyrir daginn, er í öðru sæti. Sama var uppi á teningnum þar, Ástrós sem var efst eftir forkeppnina er nú í öðru sæti, en Helga Sigurðardóttir (KFR) náði efsta sætinu af henni.Staðan eftir milliriðla
Undanúrslit og úrslit fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð á morgun. 10 efstu karlarnir leika klukkan 9.00, og 6 efstu konurnar klukkan 12.00, og leika allir við alla. Úrslit eru strax að loknum undanúrslitum kvenna.
13. febrúar 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf - forkeppni lokið
Í kvöld var seinni helmingur forkeppni í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf. Þau Ástrós og Atli sem voru efst eftir fyrri leikdaginn féllu bæði niður í annað sætið, en Jónína Magnúsdóttir (ÍA) og Davíð Guðnason (KR) skutust upp fyrir þau. Staðan eftir forkeppni
Milliriðlar hefjast í Keilu í Mjódd á laugardag, og keppa konurnar klukkan 9.00 og karlarnir klukkan 12.00. Úrslit fara svo fram í Keiluhöllinni á sunnudag.
12. febrúar 2003/þh
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf hófst í kvöld í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Í kvennaflokki er Ástrós Guðmundsdóttir (ÍR) efst með 1.227, en í karlaflokki er Atli Þór Kárason (KR) efstur með 1.285. Staðan eftir fyrsta leikdag
Keppni heldur áfram í Keilu í Mjódd á morgun; fyrri hópurinn leikur klukkan 18.30 en sá síðari klukkan 21.00.
10. febrúar 2003/eí
Meistarakeppni ungmenna
4. umferð í Meistarakeppni ungmenna verður haldin í Keilu í Mjódd
laugardaginn 22. febrúar og sunnudaginn 23. febrúar næstkomandi.
Sjáið auglýsingu um mótið.
10. febrúar 2003/vg
Stigamót KLÍ
Halldór Ragnar sigraði í 2. umferð og er nú jafn Arnari Ólafssyni í 2 - 3ja sæti en Sigurður Lárusson er er efstur að stigum.
sjáið úrslit úr 2. umferð og
stigatöfluna.
5. febrúar 2003/sk
Norðurlandamóti unglinga
Norðurlandamót unglinga verður haldið 6.-9. febrúar í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Sjáið meira um Norðurlandamótið.

Sjáið niðurstöður leikja.
6. febrúar 2003/vg
Stigamót KLÍ
Annað stigamót KLÍ verður haldið í Keilu í Mjódd þann 9. febrúar kl. 9.00
sjáið auglýsingu um Stigamótið. og
reglur um Stigamótið.
5. febrúar 2003/sk
Nýtt á döfinni
Fréttir frá KLÍ
5. febrúar 2003/sk
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf verður haldið dagana 12. til 16. febrúar
næstkomandi í Keiluhöllinni Öskjuhlíð og Keilu í Mjódd.
Sjáið auglýsingu um mótið.
31. janúar 2003/sk
Konur í keilu
Keilusamband Íslands býður öllum stúlkum og konum, 11 ára og eldri,
á frítt byrjendanámskeið í keilu.
Fyrsta námskeiðið verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 22. febrúar n.k.
Hver stúlka/kona mun á námskeiðinu fá tveggja tíma tilsögn í undirstöðuatriðum
keiluíþróttarinnar undir handleiðslu leiðbeinenda. Tímarnir byrja kl. 10:00, 12:00, 14:00 og 16:00.
Skráning á námskeiðið fer fram í gegnum netfangið
namskeid@kli.is og í síma 697 3691
(Lísa) eða 821 0711 (Valgeir). Munið að skrá nafn, síma og á hvaða tíma þið óskið eftir
að mæta á námskeiðið.
Þetta er tilvalið tækifæri til að gera eitthvað öðruvísi með vinkonum,
skólafélögum, vinnufélögum, saumaklúbbnum, spilaklúbbnum, frænkuhópnum o.s.frv.
Hvetjum við því allar konur til að nota tækifærið til að kynnast þessari íþrótt
og eiga skemmtilega stund í góðum félagsskap.
23. janúar 2003/sk
Leiðbeinendanámskeið KLÍ
Keilusamband Íslands býður til leiðbeinendanámskeiðs fyrir konur og karla.
Námskeiðið verður haldið dagana 20. - 22. febrúar næstkomandi og er ætlað fyrir íþróttakennara, kennara, starfsmenn félagsmiðstöðva og keilusala og aðra áhugasama
Sjáið meira um leiðbeinendanámskeiðið.
23. janúar 2003/sk
Konur í keilu
Keilusamband Íslands stendur á næstu mánuðum fyrir átaksverkefninu "Konur í keilu". Í tengslum við verkefnið verður gefinn út kynningarbæklingur um keilu, haldið námskeið fyrir leiðbeinendur og boðið upp á frítt byrjendanámskeið fyrir stúlkur og konur, 11 ára og eldri.
Sjáið meira um átaksverkefnið "Konur í keilu"
23. janúar 2003/sk
Birnumótið 2003
Birnumótið verður haldið í Keilu í Mjódd um helgina í tólfta sinn, mótið hefst föstudaginn
24. janúar kl. 19:00.
Mótið er kvennamót og leikið er með forgjöf 80% af mismun á meðaltali og 200 stigum.
Sjáið auglýsingu um mótið.
23. janúar 2003/sk
Nýtt á döfinni
Fréttir frá KLÍ
20. janúar 2003/sk
Sjóvá-Almennar mótið 2003
Forkeppni í Sjóvá-Almennar mótinu, bikarkeppni einstaklinga 2003,
fer fram í Keilu í Mjódd á eftirtöldum tímum:
Fimmtudaginn 30. janúar kl. 18:00, 19:00, 20:00 og 21:00;
Laugardaginn 1. febrúar kl. 10:00, 11:00, 12:00 og 13:00;
Fimmtudaginn 6. febrúar kl. 18:00, 19:00, 20:00 og 21:00;
Laugardaginn 8. febrúar kl. 10:00, 11:00, 12:00 og 13:00.
Mótið er opið öllum keilurum, keppt er í karla- og kvennaflokki og spilaðir eru 3 leikir í seríu í hverri umferð.
Leyfilegt er að spila fleiri en eina seríu í forkeppninni og gildir hæsta serían þá inn í útsláttarkeppnina.
Verð í forkeppnina er kr. 1.000 fyrir fyrstu seríuna í forkeppninni og kr. 800 fyrir hverja seríu eftir það.
Sjá nánar í dreifibréfi og á auglýsingum í keilusölunum og á keilusíðunum.
Skráningarblöð í forkeppnina liggja frammi í Keilu í Mjódd.
20. janúar 2003/vg
Íslandsmót para
Íslandsmóti para sem fram fór nú um helgina, lauk í dag í Keilu í Mjódd,
úrslit urðu æsispennandi en Lísa og Böddi stóðu að lokum uppi sem
íslandsmeistarar Para 2003.
Birgitta Þura Birgisdóttir, ÍA, setti Íslandsmet í
sínum flokki stúlkna (fædd 89) í 5 og 6 leikjum eða 795 og 945 - þessi met
setti hún í undankepninni sem fram fór í Öskjuhlíð, þann 18. janúar -
jafnframt var hún að bæta eigin met sem hún hafði sett deginum áður á
fyrsta degi í forkeppninni.
Sjáið úrslitaleikina, einnig lokastöðuna og einstaka leiki.
16. janúar 2003/þh
Íslandsmót para
Böddi og Lísa efst eftir tvo daga, Birgitta setti Íslandsmet í sínum flokk (13-14 ára) í 5 og 6 leikjum.
Sjáið stöðuna hér og einstaka leiki.
16. janúar 2003/vg
Siggi Lár efstur í stigamótinu
Fysrta umferð í Stigamóti KLÍ fór fram í gærkveldi.
Sjáið niðurstöður hér.
16. janúar 2003/þh
Deildarbikarinn
ÍR-KLS er efst í A-riðli með 34 stig en jafnræði er hjá Lærlingum og ÍR-a í efstusætum í B-riðli.
Sjáið stöðuna eftir 3. umferð hér.
15. janúar 2003/sk
MEISTARAKEPPNI UNGMENNA
3. umferð í Meistarakeppni ungmenna verður haldin í Keilu í Mjódd
laugardaginn 25. janúar 2003.
Sjáið auglýsingu um mótið.
11. janúar 2003/sk
Nýtt á döfinni
Fréttir frá KLÍ
7. janúar 2003/eí
Íslandsmót unglingaliða
Fjórða um ferð í Íslandsmóti unglingaliða fór fram um helgina, sjáði niðurstöðurnar hér.
7. janúar 2003/hs
Íslandsmót para 2003
Íslandsmót para 2003 verður haldið dagana 17.-19. janúar 2003.
Sjáið auglýsingu um mótið
6. janúar 2003/þh
Bikarkeppni KLÍ
Raðað hefur verið niður fyrir 8 liða úrslit í Bikarkeppni KLÍ.
Nánar um niðurröðun leikja.
6. janúar 2003/hs
Stigamót KLÍ
Fyrsta Stigamót KLÍ verður haldið í Keilu í Mjódd 15. janúar kl. 20.00.
Sjáið nánar auglýsingu um mótið og reglur mótsins.
6. janúar 2003/hs
Norðurlandamót unglinga
Theódóra Ólafsdóttir landsliðsþjálfari hefur valið unglingalandsliðið sem fer til Svíþjóðar 6.febrúar til að taka þátt í Norðurlandamóti.
Atli Þór Annelsson (KFR), Bjarni Páll Jakobsson (KFR), Egill Sigþórsson (KFR), Hafþór Harðarson (KFR), Magnús Guðmundsson (KFA),
Sigurður Guðmundsson (KFA). Heimavaramaður er Sigurður Ingi Pálsson (KFR).
4. janúar 2003/vg
Keilarar ársins 2002
Keilusamband Íslands hefur valið eftirfarandi aðila sem Íþróttamann og
Íþróttakonu ársins í keilu árið 2002.
Karlkeilari ársins:
Ásgeir Þ. Þórðarsson , Íþróttafélagi Reykjavíkur (ÍR). Ásgeir er
Íslandsmeistari einstaklinga árið 2002. Ásgeir tók þátt í Evrópubikarkeppni
einstaklinga á árinu og náði þar ágætis árangri. Ásgeir hefur verið í
fjölda ára í allra fremstu röð keilara á Íslandi og verið fyrirmynd ungra
og upprennandi keilara.
Kvenkeilari ársins:
Elín Óskarsdóttir, Keilufélagi Reykjavíkur (KFR). Elín er Íslandsmeistari
einstaklinga og para árið 2002. Elín varð einnig í 12 sæti í
Evrópubikarkeppni einstaklinga. Elín varð Íslands- og bikarmeistari með
liði sínu árið 2002. Elín hefur verið í fremstu röð kvenn keilara á
Íslandi undanfarin ár m.a. verið fasta manneskja í landsliði Íslands frá
upphafi eða í 14 ár og verið fyrirmynd ungra og upprennandi keilara.