Keilusamband Íslands


18. desember 2002/eí
Jólamót KFR
Jólamót KFR verður haldið í Keilu í Mjódd 26. desember 2002 kl. 14:00,
sjáið nánar á auglýsingu um jólamótið

18. desember 2002/eí
Kampavínsmót KFR
Kampavínsmót KFR verður haldið í Keilu í Mjódd 31. desember 2002 kl. 12:00,
sjáið nánar á auglýsingu um Kampavínsmótið

4. desember 2002/eí
Íslandsmót unglingaliða
Íslandsmót unglingaliða - 3. umferð var spiluð 30. nóvember. sjáið stöðuna eftir 3. umferð.

4. desember 2002/hs
Fréttir frá KLÍ
Sjáið hér nýjan fréttapistil frá KLÍ um það sem er að gerast í keilunni.

19. nóvember 2002/hs
Reykjavíkurmót liða 2002
Reykjavíkurmót liða 2002 í karla- og kvennaflokki verður haldið í Keilu í Mjódd og Öskjuhlíð dagana 25. nóvember til 1. desember n.k. Sjáið nánar auglýsingu um Reykjavíkurmótið

19. nóvember 2002/hs
Fréttir frá KLÍ
Sjáið hér nýjan fréttapistil frá KLÍ um það sem er að gerast í keilunni.

19. nóvember 2002/sk
Meistarakeppni ungmenna
Meistarakeppni ungmenna - 2. umferð var spiluð um helgin, sjáið stöðuna eftir 2. umferð.

18. nóvember 2002/sk
Keilusamband Íslands hlýtur kr. 500.000
Á heimasíðu ÍSÍ er ný frétt sem sem segir frá skiptingu rekstrarhagnaðar ÍSÍ árið 2001. Þar á meðal er sagt frá því að Keilusamband Íslands hlýtur kr. 500.000 í styrk vegna átaksverkefnisins Konur í keilu.

Sjáið nánar á heimasíðu ÍSÍ, klikkið á ÍSÍ merkið.


15. nóvember 2002/uv
Meistarakeppni KFR
Meistarakeppni KFR verður haldin í Keilu í Mjódd dagana 21. nóvember til 24. nóvember næst komandi. Sjáið auglýsingu hér.

14. nóvember 2002/th
Deildarbikarinn staðan eftir 2. umferð
Lærlingar og KLS eru efst eftir 2. umferð í deildarbikarnum. Sjáið stöðuna eftir 2. umferð.

11. nóvember 2002/th
Deildarbikarinn
Önnur umferð í deildarbikarnum verður í dag og á morgun, 11. og 12. nóvember. Sjáið brautarskipun fyrir a riðil, 11. nóv. og brautarskipun fyrir b riðil, 12. nóv.

11. nóvember 2002/tó
Reykjavíkurmót unglinga
Reykjavíkurmóti unglinga lauk um helgina og hér eru úrslit í hverjum flokki, sjá nánar hér. Reykjavíkurmeistarar unglinga Sigurvegarar í stúlknaflokki sigurvegarar í piltaflokki











1.fl.pilta                                                                    
Eiríkur Arnar Björgvinssson   KFR
Gústaf Smári Björnsson        KFR
Jakob Björgvin Þorsteinsson   KFR 
 
2.fl.pilta                                  2.fl stúlkna
 
Hafþór Harðarsson             KFR           Kristín Magnúsdóttir        KFR                 
Egill Sigþórsson              KFR
Sigurður Ingi Pálsson         KFR
 
3.fl.pilta                                  3.fl stúlkna
 
Bjarni Páll Jakobsson         KFR           Kristín Ása Brynjarsdóttir  KFR
Jón Ingi Ragnarsson           ÍR            Magna Ýr Hjálmtýrsdóttir    ÍR
Ásgeir Erlendsson             KFR           Sigríður Sigmarsdóttir      KFR
 
4.fl.pilta                                  4.fl stúlkna
 
Andri Már Ólafsson            KFR           Ástrós Pétursdóttir        ÍR
Daníel Hauksson               KFR           Linda Björk Gunnarsdóttir  ÍR
Hafliði Ólafsson              ÍR



8. nóvember 2002/tó
MEISTARAKEPPNI UNGMENNA
Meistarakeppni ungmenna, 2. umferð verður haldin í Keilu í Mjódd laugardaginn 16. nóvember 2002 kl. 9:00 og sunnudaginn 17. nóvember kl. 9:00. Sjá nánar auglýsingu um mótið

8. nóvember 2002/sk
Fréttir frá KLÍ
Dregið hefur verið í 16 liða úrslit karla í Bikarkeppninni. Sjáið meira um Bikarkeppnina ofl. hér

8. nóvember 2002/tó
Reykjavíkurmót unglinga - Íslandsmet hjá Andra
Reykjavíkurmót unglinga fer nú fram í Keilu í Mjódd. Þátttaka er mjög góð, en 27 unglingar taka þátt í mótinu. Andri Már Ólafsson KFR setti Íslandsmet í 3 leikjum í 4.flokki pilta þegar hann spilaði 568, 170-221-177.
Í dag kl. 16:30 heldur keppnin svo áfram og síðasta umferðin er á morgun laugardaginn og hefst þá keppni kl. 9:00. Úrslit fara fram strax að lokinni keppni á morgun. Hvetjum við alla keilara til að mæta á staðinn og fylgjast með unglingunum okkar.

7. nóvember 2002/tó
Ella setti met í einum leik, 286
Elín Óskarsdóttir setti Íslandsmet í einum leik kvenna í gærkveldi. Hún spilaði 286 en fyrra metið átti Solla 279. Leikin var frestuð umferð í deildinni og áttust við ÍR-TT og Flakkarar og lauk þeim leik með sigri Flakkara 8-0.

7. nóvember 2002/tó
Landsliðshópar hefja æfingar fyrir Norðurlandamótin
Landsliðshópar eru að hefja æfingar um helgina fyrir Norðurlandamótin sem verða næsta vor. Norðurlandamót unglinga verður haldið í Stockhólmi 6. - 9. febrúar og Norðurlandamótið, sem nú takmarkast við 18 - 23 ára leikmenn, verður haldið í Tampere í Finnlandi 28. febrúar til 2. mars 2003.

Landsliðshópur 18 ára og yngri er skipaður eftirfarandi leikmönnum Ásgeir Erlendsson, Andri Már Ólafsson, Atli Annelsson, Bjarni Jakobsson, Egill Sigþórsson, Magnús Guðmundsson, Hafþór Harðarson, Róbert Dan Sigurðsson, Sigurður Ingi Pállsson, Sigurður Guðmundsson.

Landsliðshópur 18 - 23+ Árni Geir Ómarsson, Ásgeir Símon Halldórsson, Andri Ólafsson, Eiríkur Björgvinsson, Konráð Ólafsson, Steinþór Geirdal Jóhannsson, þórhallur Hálfdánarson

Landsliðshópur kvenna með fyirvara þar sem ekki hafa allar gefið staðfestingu á þátttöku.
Alda Harðardóttir, Dagný Edda Þórisdóttir, Matthildur Gunnarsdóttir? Jóna K. Þórisdóttir, Sigríður Hilmarsdóttir? Súsanna Kristín Knútsdóttir.

5. nóvember 2002/hs
Keilumyndir til sölu
Í tilefni af 10 ára afmæli KLÍ og til fjáröflunar vegna verkefna okkar fengum við Hildi Harðardóttur myndlistarkonu til að mála vatnslitamyndir af keilurum. Myndirnar eru mjög vandaðar og eigulegar og tilvaldar tækifærisjafir fyrir alla keilara og verða eingöngu til sölu hjá KLÍ. Hægt er að fá myndir af keilukonu eða keilukarli í þremur stærðum og eru engar tvær myndir eins. Nánari upplýsingar og pantanir eru hjá Sigríði gjaldkera KLÍ, sigridur@kli.is.
Sjá auglýsingu og sýnishorn hér.

5. nóvember 2002/hs
Reykjavíkurmót para 2002
Reykjavíkurmót para 2002 verður haldið í Keilu í Mjódd, dagana 9. til 10. nóvember n.k. Sjáið auglýsingu um mótið hér.

4. nóvember 2002/hs
Íslandsmót unglingaliða
Önnur umferð í Íslandsmóti unglingaliða fór fram í Keilu í Mjódd um helgina, sjá niðurstöður hér.

31. október 2002/hs
Bikarkeppni KLÍ 2002 - 2003
32 liða úrslit bikarkeppni KLÍ fóru fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 27. október. Úrslitin voru eftirfarandi: Þrestir - KR-b 0-3, KGB-DL - Keilugarpar 2 - 2 og þá var leikinn 9 og 10 rammi í bráðabana og Keilugarpar unnu hann 153 - 132, KGB-SS - Stormsveitin 1 - 3. Það voru því KR-b, Keilugarpar og Stormsveitin sem komust áfram í 16 liða úrslit sem fara fram helgina 7. - 8. desember n.k.
Sjáið fréttir frá KLÍ hér.