28. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Shannon Pluhowsky og Mika Luoto sigruðu
Shannon Pluhowsky frá USA sem var lang efst kvenna í forkeppninni, endaði sem sigurvegari kvenna, en í karlaflokki sigraði Mika Luoto frá Finnlandi, en hann var lægsti maður inn í átta-manna úrslitin og vann sig upp í fyrsta sætið.
Sjáið lokastöðuna, myndir o.fl. á heimasíðu AMF um mótið
28. október 2002/hs
Meistarakeppni ungmenna
Niðurstöður úr
1. umferð í Meistarakeppni ungmenna.
25. október 2002/hs
Íslandsmót unglingaliða
Íslandsmót unglingaliða - 1. umferð var spiluð í Mjódd nýlega -
Niðurstaða er hér.
25. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - 32 efstu
Paul Trotter frá Australíu leiðir karlaflokkinn með 234.15 í meðaltal og Shannon Pluhowsky frá USA leiðir kvennaflokkinn með 232.31 í meðaltal.
Staðan eftir 32 leiki, hér eru þeir sem komast í 8 manna úrslit en þar á meðal er aðeins einn Norðurlandabúi, Mika Luoto frá Finnlandi.
24. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Solla endaði í 31. sæti
Nú liggur fyrir staðan eftir forkeppni kvenna. Solla endaði í 31. sæti af 72 keppendum, hún náði 3758 pinnum í tuttugu leikjum eða 187,9 að meðaltali og var 162 pinnum frá 24 manna úrslitunum. Sjáið nánar skor kvenna eftir forkeppni.
23. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Maggi í 27. sæti
Nú liggur fyrir staðan eftir forkeppni karla. Þrátt fyrir mjög góðan endasprett hjá Magnúsi þá náði hann ekki inn í 24 manna hópinn en endaði í 27. sæti, hann náði 4236 pinnum í 20 leikjum eða 211,8 að meðaltali. Maggi var aðeins 28 pinnum frá því að komast í 24 manna úrslit.
Sjáið nánar skor karla eftir forkeppni.
23. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Maggi áfram á uppleið
Magnús Magnússon lék vel í morgun, en hann lék að meðaltali á 220,4 í fimm leikjum. Nú þegar fyrra hollið í karlaflokki hefur lokið 20 leikja forkeppni þá er Maggi í 16. sæti en staða hans verður ekki ljós fyrr en að lokinni keppni hjá seinna hollinu.
Sjáið nánar skor eftir fyrra holl karla.
23. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Solla í 33. sæti
Solla spilaði í gær síðustu fimm leiki á 183,8 að meðaltali og er nú í 33. sæti og vantar 141 pinna til að komast inn í 24 manna úrslit. Síðustu fimm leikirnir áður en skorið verður niður í 24 manna hópa, karla og kvenna, verða spilaðir í dag. Sjáið nánar skor kvenna.
22. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga - Maggi á fljúgandi uppleið
Magnús Magnússon átti frábæran leik í dag en í síðustu fimm leikjunum fékk hann 232,2 að meðaltali og hefur hækkað sig úr 48. sæti í það 30. og er nú aðeins 60 pinnum frá 24 manna úrslitum.
Sjáið nánar skor karla. Dagskrá mótsins.
22. október 2002/hs
AMF World Cup í Riga
Solla er í 30 sæti eftir 10 leiki með 186,9 í meðaltal og hún var aðeins 50 pinnum frá því að komast í 24 manna úrslit. Magnús er 48. sæti með 197,3 í meðaltal og 150 pinnum frá því að komast í 24 manna úrsalitin.
Ahmed Shaheen frá Qatar leiðir karlaflokkinn og Shannon Pluhowsky frá USA leiðir kvennaflokinn.
Sjáið nánar skor kvenna og skor karla
13. október 2002/ÞH
Bikarkeppni KLÍ - 32 liða úrslit
Dregið hefur verið í 32 liða úrslitum Bikarkeppni KLÍ veturinn 2002-2003.
19 lið eru skráð til þátttöku í karlaflokki og eru því leiknir 3 leikir í 32 liða úrslitum.
Eftirtalin lið drógust saman:
Þröstur - KR-b
KGB-DL - Keilugarpar
KGB-SS - Stormsveitin
Allir leikirnir fara fram í Keilu í Mjódd sunnudaginn 27. október klukkan 9.00.
2. október 2002/hs
Íslandsmót unglingaliða - Meistarakeppni ungmenna
Íslandsmót unglingaliða - 1. umf. - verður haldið í Keilu í Mjódd
laugardaginn 5. október og hefst kl. 9:00. Sex lið hafa skráð sig til keppni, KFR með 3, ÍR með 2 og ÍA með 1.
Meistarakeppni ungmenna, verður haldin 12. og 13. október næstkomandi, sjá nánar
auglýsingu um Meistarakeppnina
25. september 2002/hs
Mótaskráin komin út
Mótaskráin er nú komin út, en vegna breytinga fram yfir síðasta dag varð seinkun á útgáfunni. Mótabókin fer í prentun í dag en hægt er að skoða mótaskránna undir liðnum dagskrá KLÍ í vinstri dálknum hér á síðunni.
23. september 2002/sk
Nýtt í fréttum
Sjáið það nýjasta í keilunni í fréttapistli Sigríðar Klemensdóttur
Magnús Magnússon fer á AMF World Cup í stað Ásgeirs ásamt Sollu Guðmundsdóttur, Reykjavíkurmót liða 2002,
Íslandsmót unglingaliða 2002 - 2003 o.fl.
16. september 2002/hs
AMF World Cup 2002
Ásgeir Þór Þórðarson og Sólveig Guðmundsdóttir unnu sér inn keppnisrétt á heimsbikarmótinu, AMF World Cup, fer fram í Toss Bowling hall í borginni Riga í Lettlandi dagana 19. - 22. október. Sjáið nánar af Freyjumótinu á keila.is
11. september 2002/hs
AMF World Cup - Freyjumótið 2002
Freyjumótið 2002 fer fram í Keilu í Mjódd dagana 12. - 15. september. Að þessu sinni verður keppt bæði í karla- og kvennaflokki og vinna sigurvegararnir sér rétt til þátttöku á 38. AMF World Cup sem fer fram í Toss Bowling hall í borginni Riga í Lettlandi dagana 19. - 22. október n.k. Nú þegar Rúmenía hefur tilkynnt þátttöku er fjöldi þátttökuþjóða í AMF World Cup 2002 orðin 90.
7. september 2002/hs
Nýtt í deildarkeppninni
Nú þegar deildin fer að hefjast er rétt að minna menn á breytingar sem voru gerðar á síðasta þingi og menn þurfa að vita af áður en þeir fylla út leikskýrslurnar. Eftirfarandi er úr reglugerð um Íslandsmót liða:
Í 7. grein stendur m.a.:
Veitt eru aukastig þannig að einnig er innbyrðiskeppni leikmanna er leika í sömu röð,
þannig að leikmaður sem er með hærra skor fær 2 stig fyrir unninn leik. Stigin færast á hvern leikmann fyrir sig og getur leikmaður fengið sex stig úr hverri viðureign.
Ef skorið er jafnt hjá leikmönnum er veitt eitt stig til hvors um sig. Engin aukastig færast á liðið.
Uppröðun leikmanna skal koma fram á leikskýrslu og óheimilt er að breyta henni, hún skal staðfest af mótherja. Þurfi að breyta röð áður en mótherji kvittar á leikskýrslu skal gerð ný leikskýrsla. Fyrstu fjórir liðsmenn á leikskýrslu eru leikmenn í fyrsta leik, aðrir eru varamenn.
7. september 2002/hs
Evrópumótið - Elín og Ásgeir bæði yfir 190 að meðaltali
Bæði Elín og Ásgeir náðu ágætu skori í Evrópumótinu, Elín endaði í 12. sæti með 192,8 pinna að meðaltali í 24 leikjum, heildarskor hennar var 4627 pinnar og vantaði aðeins 156 pinna til að komast í 8 manna úrslitin. Ásgeir byrjaði síðasta daginn mjög vel, hann spilaði fyrstu fimm leikina á 219,8 að meðaltali og hefði náð 13. sæti með því að halda því meðaltali, en einhverra hluta vegna náði hann aðeins 483 pinnum í þrem síðustu leikjunum og endaði í 21. sæti með 4754 pinna heildarskor eða 198,1 í meðaltal.
Nánar á heimasíðu hollenska keilusambandsins
Sjáið einstaka leiki 1. lota kvenna
2. lota kvenna
1. lota karla
5. september 2002/hs
Evrópumótið eftir 2. lotu - Elín í 11. sæti, Ásgeir byrjar á 247 leik
Elín lék að meðaltali á 188 pinnum í dag og er nú í 11. sæti eftir 16 leiki með 194,1 í meðaltal. Ásgeir var að hefja keppni og byrjaði á 247 leik og færðist við það upp um tvö sæti og er nú í 15. sæti. Eins og sjá má á hollensku heimasíðunni þá endaði Ásgeir leikinn með fimm fellum og níu pinnum. Nú bíðum við bara eftir því að sjá framhaldið.
4. september 2002/hs
Evrópumótið eftir 1. lotu - Elín í 7. sæti, Ásgeir í 17. sæti
Þegar fyrstu lotu er lokið í kvennaflokki á Evrópumótinu þá er Elín Óskardóttir í 7. sæti af 30 keppendum. Leiknir hafa verið 8 leikir og er Elín með 200 í meðaltal.
Fyrstu umferð í karlaflokki er lokið og er Ásgeir í 17. sæti með 200 í meðaltal eftir 8 leiki.
Konurnar byrja aftur kl. 8:00 í fyrramálið og karlarnir kl. 13:00
2. september 2002/sk
Evrópubikar landsmeistara verður 2.-8. september
Evrópubikarmót landsmeistara í keilu fer fram í Sciedam í Hollandi dagana 2. til 8. september 2002. Fulltrúar Íslands eru Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu 2002, þau Elín Óskarsdóttir úr Keilufélagi Reykjavíkur (KFR) og Ásgeir Þór Þórðarson úr keiludeild ÍR og landsliðsþjálfari og fararstjóri er Theódóra Ólafsdóttir.
Hægt verður að fylgjast með fréttum af mótinu á
heimasíðu hollenska keilusambandsins og keila.is
Sjáið dagskrá mótsins hér.
30. ágúst 2002/ÞH
Fyrirliðafundur
Fyrirliðafundur var haldinn í Keilu í Mjódd í gærkveldi og mættu fulltrúar 15 liða á hann.
Meistarakeppni KLÍ
Meistarakeppnin fer að þessu sinni fram 11. september kl. 19:00 í Keilu í Mjódd
Við eigast Flakkarar og Valkyrjur, og KR-a og ÍR-PLS
Skráningargjöld
Eins og fram kom á kynningarfundi vegna reglugerðabreytinga sem haldinn var 6. maí eru skráningargjöld eftirfarandi, en þau voru ákveðin af stjórn Keilusambandsins í vor. Íslandsmót liða, 30.000, en 25.000 ef greitt er fyrir 1. nóvember. Deildabikar, 5.000, en 3.000 ef greitt er fyrir 1. nóvember
Íslandsmót liða
Alls eru 29 lið skráð til keppni; 8 í 1. deild kvenna, 12 í 1. deild karla og 9 í 2. deild karla. Nýjar skorbækur verða afhentar við byrjun tímabilsins.
Mismunandi brautarleiga
Verð eru komin frá bæði Mjódd og Öskjuhlíð, en ekki frá Akranesi. Í Mjódd mun serían kosta 4.500 kr.
Í Öskjuhlíð mun serían kosta 3.500 kr. fyrir þau lið sem eru með heimavöll þar, en 4.500 fyrir önnur lið.
Ákveðið hefur verið að gefa liðum kost á að færa heimavöll sinn og þurfa tilkynningar um það að berast fyrir klukkan 13:00 næstkomandi laugardag, 31. ágúst. Tilkynningar þurfa að vera skriflegar og berast til Þórhalls Hálfdánarsonar formanns mótanefndar (tolli@kli.is) eða Valgeirs Guðbjartssonar formanns KLÍ (valgeir@kli.is).
Deildabikar
15 lið eru skráð til keppni og er því skipt í A riðil (8 lið) og B riðil (7) lið.
Leikið verður 6 sinnum í vetur, allir við alla í hverri umferð. Verð er kr. 7.000 fyrir umferð í A riðli, en 8.000 í B riðli í Mjódd, en verð í Öskjuhlíð verður tilkynnt við fyrsta tækifæri.
Úrslitakeppni verður þannig að tvö efstu lið úr hvorum riðli spila tvöfalda umferð allir við alla.
A riðill:
Fellurnar
ÍR a
ÍR-L
ÍR-TT
KR b
Keila.is
Keiluvinir
Lærlingar
B riðill:
ÍA
ÍR-KLS
JP-Kast
Keilugarpar
KR (kvenna)
KR a
Þröstur
A riðill mun leika á mánudögum og B riðill á þriðjudögum.
26. ágúst 2002/SK
Fréttir frá KLÍ
Ágætu keilarar.
Vonandi hafið þið öll haft það gott í sumar og eruð öll byrjuð að gera ykkur klár fyrir komandi keppnistímabil. Keppnistímabilið hefst óvenjusnemma nú í ár og það er mikið um að vera á næstu vikum og mánuðum og því ekki seinna vænna en að fara að draga fram skóna og byrja að æfa.
Undirbúningur fyrir keppnistímabilið
Nú er undirbúningur fyrir keppnistímabilið í fullum gangi, m.a. verið er að leggja lokahönd á keppnisdagatalið, mótabókin er komin í vinnslu, viðræður við keilusalina standa yfir og verið er að uppfæra heimasíðu KLÍ. Helsta vandamálið er það að, eins og svo oft áður, gengur erfiðlega að manna nefndir sambandsins. Hvetjum við því alla þá keilara sem hafa áhuga, tíma, skoðanir og metnað til þess að vinna íþróttinni sinni til framdráttar að hafa samband við Valgeir Guðbjartsson formann KLÍ valgeir@kli.is eða aðra stjórnarmenn KLÍ.
Fyrirliðafundur KLÍ
Stjórn KLÍ og mótanefnd héldu í gær fund með fyrirliðum/fulltrúum allra deildarliða vegna keppnistímabilsins 2002 - 2003. Á fundinum var afhent dagskrá fyrstu umferðanna í Íslandsmóti liða og deildarbikar liða og kynntar breytingar á reglugerðum sem samþykktar voru á síðasta þingi, m.a. breytingar á dómaraskyldu. Sjá nánar á keilusíðunum.
Evrópumót landsmeistara 2002
Evrópumót landsmeistara fer fram í Sciedam í Hollandi dagana 2. til 8. september n.k. Fulltrúar okkar á mótinu eru núverandi Íslandsmeistarar í keilu, þau Elín Óskarsdóttir KFR og Ásgeir Þór Þórðarson ÍR og landsliðsþjálfari er Theódóra Ólafsdóttir. Hægt verður að fylgjast með fréttum af mótinu á heimasíðu hollenska keilusambandsins www.bowlingnbf.nl og á íslensku keilusíðunum.
Meistarakeppni KLÍ 2002
Meistarakeppni KLÍ 2002 fer fram í Keilu í Mjódd miðvikudaginn 11. september kl. 19:00. Að þessu sinni keppa til úrslita í kvennaflokki Íslands- og bikarmeistarnir KFR-Flakkarar og KFR Valkyrjur sem urðu í öðru sæti í bikarkeppninni og Íslandsmótinu. Í karlaflokki eru það svo Íslandsmeistarar KR a sem keppa til úrslita á móti bikarmeisturum ÍR-PLS.
Freyjumótið fer fram í Keilu í Mjódd og að þessu sinni verður keppt bæði í karla- og kvennaflokki og vinna sigurvegararnir sér rétt til þátttöku á AMF World Cup sem fer fram í Toss Bowling hall í borginni Riga í Lettlandi dagana 19. - 22. október n.k. Keppni í karlaflokki fer fram dagana 12. - 14. september og keppni í kvennaflokki fljótlega eftir það. Nánar auglýst síðar. Sjá nánari upplýsingar um mótið í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum.
Íslandsmót og Bikarkeppni liða 2002 - 2003
Keppni í Íslandsmóti liða hefst með 1. umferðinni í 1. deild kvenna mánudaginn 16. september n.k. Keppni í 1. deild karla hefst svo þriðjudaginn 17. september og í 2. deild karla miðvikudaginn 18. september. Til keppni eru að þessu sinni skráð 8 kvennalið og 21 karlalið, 12 lið í 1. deild karla og 9 lið í 2. deild. Ný lið eru að þessu sinni kvennalið ÍA í 1. deild kvenna og lið ÍA b, HK-d og KFR hl í 2. deild karla. Bjóðum við þessi lið velkomin til keppni.
Afmælismót KLÍ
Í tilefni af 10 ára afmælisári KLÍ verður haldið afmælismót dagana 19. - 22. september n.k. Mótið munu sækja 4 - 6 erlendir keppendur og er nú verið að fá staðfesta komu þeirra og ganga frá öðrum undirbúningi mótsins. Vonandi verður þetta mót vísir að árlegu alþjóðlegu móti hérlendis.
Utandeild KLÍ 2002 - 2003
Keilusamband Íslands mun aftur standa fyrir liðakeppni "utan deilda" á næsta keppnistímabili með örlítið breyttu sniði. Ákveðið hefur verið að binda þátttöku ekki við fyrirtæki að þessu sinni og geta því allir sem áhuga hafa og geta myndað þriggja manna lið tekið þátt í keppninni. Er þetta tilvalið tækifæri fyrir vinnufélaga, vinahópa, saumaklúbba, spilaklúbba, veiðifélaga og aðra að vera með í skemmtilegri keppni. Skráning í mótið er hjá Ásgrími Helga Einarssyni aki@keila.is og lýkur skráningu liða í deildina 10. september n.k. Auglýsinga vegna utandeildarinnar birtist á íþróttasíðum Morgunblaðsins í gær. Sjá nánari upplýsingar um mótið á keilusíðunum.
Árgjald í Keilu í Mjódd
Keila í Mjódd býður keilurum nú upp þá nýbreytni að greiða árgjald kr. 45.000 fyrir keiluæfingar. Gegn þessu árgjaldi geta keilarar komið og æft hvenær sem er vikunnar nema á laugardögum og sunnudögum milli kl. 14:00 og 18:00. Boðið er upp á að dreifa greiðslum á greiðslukort. Allar nánari upplýsingar í Keilu í Mjódd.
Fimmfaldur pottur í Lottóinu
Að lokum viljum við minna á að það er fimmfaldur pottur í Lottóinu næsta laugardag, en greiðslur frá Lottóinu er ein mikilvægasta tekjulind Keilusambandsins. Ef þú ert ein(n) af þeim sem gleymir alltaf að kaupa miða þá er áskrift að Lottóinu rétta leiðin fyrir þig. Sjá nánar á .
Kveðja
Stjórn KLÍ
4. júlí 2002
Evrópubikarkeppnin
Landsliðin við setningarathöfnina
Kvennaliðið er í 12. sæti eftir 18 leiki og eru þær með 175,4 í meðaltal. Karlaliðið er í 21. sæti eftir 31 leik með 177,6 í meðaltal.
Nánari niðurstöður frá mótinu.
3. júlí 2002
Evrópubikarkeppnin
Kvennaliðið er í 11. sæti eftir 12 leiki og eru þær með 176,8 í meðaltal. Karlaliðið er í 22. sæti með 176,1 í meðaltal.
2. júlí 2002
Evrópubikarkeppnin - kvennaliðið í 7. sæti
Kvennaliðið er nú í 7. sæti af 16 eftir 6 leiki og hafa stelpurnar spilað að meðaltali á 184,7 pinnum meðan karlaliðinu hefur ekki gengið eins vel en strákarnir eru í 18. sæti af 26 með 175,3 í meðaltal.
30. júní 2002
Evrópubikarkeppni landsliða 2002
Evrópubikarkeppni landsliða keilu haldin í Mülheim í Þýskalandi 2002
Nánari upplýsingar frá Sigríði Klemensdóttur um Evrópumótið og dagskrána.
Heimasíða þýska keilusambandsins sem sér um mótið er www.dbu-bowling.com
Hér er farið beint inn á heimasíðu mótsins
10. maí 2002
Bikarmeistarar í Sjóvá Almennra 2002
Steinþór Jóhannsson og Jóna Guðmundsdóttir urðu bikarmeistarar í Sjóvá Almennra.
Sjáið nánar um úrslitin og hvernig úrslitaleikirnir fóru,
8 manna úrslit og út.
8. maí 2002
Kynningarfundur KLÍ
Stjórn KLÍ hélt kynningarfund með fyrirliðum 6. maí, vegna reglugerðabreytinga sem gerðar voru á þingi KLÍ 19.04.2002. Sjáið nánar helstu atriðin sem fjallað var um.
3. maí 2002
Íslandsmót í Tvímenningi
Ákveðið hefur verið að bæta við auka riðli, C riðli, í Íslandsmót í Tvímenningi, kl. 10 að morgni 9. maí að því gefnu að 3 eða fleiri tvímenningar skrái sig til þáttöku.
Þeir sem skrá sig í riðilinn verða að velja milli A og B riðils á föstudagskvöld.