Keilusamband Íslands


30. apríl 2002
Fyrirliðafundur !!!
Kynningarfundur verður haldinn á vegum stjórnar KLÍ mánudaginn 6. maí kl. 20 í kennslustofu 3, 2. hæð, ÍSÍ, Laugardal.
Kynntar verða laga- og reglugerðabreytingar sem fram komu á síðasta Ársþingi KLÍ. Áríðandi er að sem flestir mæti vegna þess að um töluverðar breytingar er að ræða sem snertir lið og liðakeppnir.

26. apríl 2002
Landsliðið valið
Landsliðið sem fer á Evrópubikarmót landsliða í Müllen í Þýzkalandi fyrstu vikuna í júlí var valið í dag. Eftirfarandi leikmenn eru í liðinu:

Landslið kvenna:
Dagný Edda Þórisdóttir, KFR
Elín Óskarsdóttir, KFR
Jóna Gunnarsdóttir, KFR
Jóna Kristbjörg Þórisdóttir, KFR
Sigfríður Sigurðardóttir, KR
Sólveig Guðmundsdóttir, KFR

Landslið karla:
Árni Geir Ómarsson, ÍR
Ásgeir Símon Halldórsson, ÍR
Björn Guðgeir Sigurðsson, KR
Freyr Bragason, KFR
Magnús Magnússon, KR
Þórhallur Hálfdánarson, ÍR


25. apríl 2002
Jóna og Steini sigruðu í Sjóvá-Almennra
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra lauk í gær. Jóna Gunnarsdóttir (KFR) og Steinþór Jóhannsson (KFR) sigruðu en í öðru sæti voru Helga Sigurðardóttir (KFR) og Valgeir Þórisson (KFR).
Kristíana Baldursdóttir (KFR) og Ásgeir Símon Halldórsson (ÍR) fengu verðlaun fyrir hæstu leiki í mótinu.
Jóna og Steinþór sigurvegarar 2002 Kristíana, Helga, Jóna Steinþór, Valgeir og Ásgeir Símon

25. apríl 2002
Íslandsmót í tvímenningi 2002
Íslandsmót í tvímenningi fer fram dagana 9.-12. maí 2002, sjáið nánar á auglýsingu hér.

24. apríl 2002
Sjöfaldur "risa" Lottópottur
Minnum á að það er sjöfaldur risapottur í Lottóinu næsta laugardag, en greiðslur frá Lottóinu er ein mikilvægasta tekjulind Keilusambandsins. Ef þú ert ein(n) af þeim sem gleymir alltaf að kaupa miða þá er áskrift að Lottóinu rétta leiðin fyrir þig. Sjá nánar á sjáið nánar á www.lotto.is

24. apríl 2002
Úrslit Sjóvá-Almennar mótsins
Í gær fóru fram 8 manna úrslit Sjóvá-Almennar mótsins. Voru þar mikið um spennandi leiki og óvænt úrslit. Úrslit einstakra leikja voru eftirfarandi:

Helga Sigurðardóttir 535 - Theódóra Ólafsdóttir 455
Solla Guðmundsdóttir 567 - Kristíana Baldursdóttir 573
Sigfríður Sigurðardóttir 509 - Jóna Kristbjörg Þórisdóttir 479
Ragna Matthíasdóttir 442 - Jóna Gunnarsdóttir 566
Steinþór G. Jóhannsson 659 - Freyr Bragason 585
Ingimundur Helgason 600 - Ásgrímur Helgi Einarsson 597
Ásgeir Símon Halldórsson 599 - Magnús Magnússon 525
Valgeir Þórisson 638 - Björn G. Sigurðsson 542

Sjá nánar um úrslit leikja í Sjóvá-Almennar mótinu á keilusíðunum www.keila.is og www.isisport.is/keila

Undanúrslit og úrslit fara svo fram í kvöld, miðvikudag 24. apríl og hefjast leikirnir í undanúrslitunum kl. 19:00.
Úrslitin fara svo fram að loknu stuttu hléi og hefjast þau um kl. 20:00. Leikirnir í undanúrslitunum eru.

Jóna Gunnarsdóttir - Kristíana Baldursdóttir Helga Sigurðardóttir - Sigfríður Sigurðardóttir Ingimundur Helgason - Valgeir Þórisson Steinþór G. Jóhannsson - Ásgeir Símon Halldórsson
Hvetjum við alla keilara til að koma og fylgjast með spennandi leikjum. Kaffiveitingar í boði Sjóvá-Almennra og Myllunnar.


Jacky Felsenstein er látinn

Jacky Felsenstein

Varaforseti FIQ
Stjórnarmaður í Evrópusambandi keilufélaga
Forseti Belgíska keilusambandsins

Okkur hafa borist þær fréttir að Jacky Felsenstein, hafi látist af hjartaslagi í gær, 17. apríl. Jacky hefði orðið 59 ára í ágúst. Keiluíþróttin hefur hér misst dugmikinn félaga og góðan vin.

Bikarkeppni KLÍ 2002
Úrslit Bikarkeppni KLÍ fóru fram í Keilu í Mjódd laugardaginn 13. apríl s.l. Til úrslita léku að þessu sinni Valkyrjur og Flakkarar úr KFR og ÍR-PLS og ÍR-A. Fóru leikar þannig að Flakkarar unnu Valkyrjur í hörkuspennandi leik 1975 - 1925 en ÍR-PLS vann ÍR-A örugglega 2367 - 2209. Með sigrinum í bikarkeppninni tryggðu Flakkarar sér alla titla vetrarins, en ÍR-PLS varð í 3. sæti í Íslandsmóti liða. Það er því ljóst að það verða Flakkarar og Valkyrjur úr KFR og KR-A og ÍR-PLS sem mætast í Meistarakeppni KLÍ í haust.

Tvíkeila Keiluvina 2002
Tvíkeila Keiluvina fór fram í Keilu í Mjódd helgina 12. - 14. apríl s.l. Alls tóku 10 lið þátt í mótinu og urðu úrslitin þau að liðið Mr. 300 & Co vann mótið, en liðið skipuðu þeir Ásgeir Þór Þórðarson, Sigurður Lárusson og Steinþór G. Jóhannsson. Í 2. sæti varð KR 1, sem var skipað þeim Birni G. Sigurðssyni, Magnúsi Magnússyni og Sigfríði Sigurðardóttur. Og í 3. sæti varð svo ÍA 1, en liðsmenn þess voru þeir Guðmundur Sigurðsson og Halldór B. Sigurðsson. Sjá nánar um úrslit mótsins á www.keila.is.

Sjóvá-Almennar 2002
32 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá-Almennar mótinu bikarkeppni einstaklinga fóru fram í Keilu í Mjódd í vikunni, sjáið nánar hér. Dregið hefur verið í 16 manna úrslit karla og kvenna sem fara fram mánudaginn 22. apríl. sjáið nánar hér. 8 manna úrslitin fara svo fram þriðjudaginn 23. apríl og mótinu lýkur með 4 manna úrslitum og úrslitum miðvikudaginn 24. apríl, sem er jafnframt síðasti vetrardagur. Sjá nánar um leikina, úrslit og tímasetningu á auglýsingum í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum.

Fyrirtækjadeild KLÍ
Næsta umferð í Fyrirtækjadeildinni fer fram fimmtudaginn 18. apríl kl. 18:30. Nú leiðir Ölgerðin með 8 stiga forystu þegar tvær umferðir eru eftir. Baráttan um næstu sæti er mjög hörð og skilja einungis 4 stig liðin í 2. og 8. sæti. Alls hafa 123 keppendur spilað í deildinni í vetur, þar af aðeins 19 keppendur sem taka þátt í Íslandsmóti liða. Þetta þýðir að 104 keppendur eru ekki virkir keppniskeilarar að öðru leyti. Er þetta mjög góð viðbót við þann fjölda sem stundar keilu og vonandi verður þessi hópur stærri næsta ár. Sjá nánar um dagskrá og stöðuna í mótinu á www.keila.is

Ársþing KLÍ 2002
Ársþing KLÍ verður haldið föstudaginn 19. apríl n.k. í fundarsal ÍSÍ á 2. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefjast þingstörf kl. 18:00. Athugið breyttan fundartíma frá mótabók. Rétt til þingsetu á ársþingi KLÍ hafa þingfulltrúar sambandsaðila, stjórn KLÍ, framkvæmdastjórn ÍSÍ, fastráðnir starfsmenn KLÍ og ÍSÍ, formenn nefnda KLÍ og íþróttafulltrúi ríkisins. Formenn nefnda sem ætla að sitja þingið eru beðnir að tilkynna þingsetu til stjórnar KLÍ svo hægt verði að áætla fjölda þátttakenda. Þingboð ásamt þingskjölum og kjörbréfum voru send til héraðssambanda þann 4. apríl s.l. þannig að forráðamönnum félaganna er bent á að snúa sér til síns héraðssambands hafi þau ekki fengið þessi gögn afhent.

9. apríl 2002
Úrslitaleikirnirnir í Bikarnum
Úrslitaleikirnir í Bikarkeppni KLÍ, verða háðir eins og áður hefur verið auglýst í mótabók n.k. laugardag kl. 12.00. Báðir leikirnir verða í Keilu í Mjódd. Brautaskipan er sem hér segir:
1 - 2 PLS - ÍR-a
3 - 4 Valkyrjur - Flakkarar


9. apríl 2002
Flakkarar og KR a eru Íslandsmeistarar 2002
Flakkarar úr KFR og KR a eru Íslandsmeistarar í Íslandsmóti liða árið 2002. Óskum við þeim hjartanlega til hamingju með titilinn. Úrslitakeppninni lauk í gærkvöldi, en fjóra leiki þurfti til að ná fram úrslitum í báðum viðureignum.

Leikur Flakkara og Valkyrjanna úr KFR fór fram í Keilu í Mjódd og réðust úrslitin þar í síðasta ramma og fór leikurinn að lokum 1996 - 1967 fyrir Flakkara. Flakkarar unnu tvo fyrstu leikina í úrslitakeppninni 2164 - 2156 og 2049 - 1969, en Valkyrjurnar unnu þriðja leikinn 1971 - 1960.

Leikur KR a og Lærlinga úr KFR fór fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og var sigurinn nokkuð öruggur hjá KRingum en þar fóru leikar 2400 - 2307 fyrir KR a. Lærlingar unnu fyrsta leikinn í úrslitakeppninni í Keilu í Mjódd 2371 - 2367, en KR a vann síðan næstu þrjá leiki, fóru fyrri leikirnir 2187 - 2169 í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og 2414 - 2406 í Keilu í Mjódd.

Í þriðja sæti í 1. deild kvenna urðu svo Afturgöngurnar úr KFR en þær unnu ÍR-TT örugglega 2160 - 1823. Í þriðja sæti í 1. deild karla urðu ÍR-PLS en þeir unnu ÍR-KLS í jöfnum og spennandi leik þar sem úrslitin réðust í síðasta kasti 2343 - 2315. Sjá nánar um úrslit leikja á keilusíðunum www.isisport/keila og www.keila.is.

Tvíkeila Keiluvina 2002
Tvíkeila Keiluvina verður haldin í Keilu í Mjódd föstudaginn 12. apríl og sunnudaginn 14. apríl. Sjá nánar í auglýsingum á keilusíðunum og í Keilu í Mjódd.

Bikarkeppni KLÍ 2002
Úrslit Bikarkeppni KLÍ fara fram í Keilu í Mjódd laugardaginn 13. apríl kl. 12:00 (athugið rangur tími í fyrri frétt). Til úrslit hjá kvennaliðunum leika Valkyrjur og Flakkarar úr KFR og verður spennandi að sjá hvort Flökkurum tekst að landa síðasta titli tímabilsins eða hvort Valkyrjur mæta tvíefldar til leik eftir ósigurinn í úrslitakeppninni. Hjá karlaliðunum mæta hins vegar ÍR-PLS og ÍR-a og verður það örugglega spennandi leikur enda ÍR-a þekkt fyrir að leggja ÍR-PLS í bikarleikjum. Hvetjum við alla keilara til að mæta og fylgjast með spennandi viðureignum.

Sjóvá-Almennar 2002
32 manna úrslit karla og kvenna í Sjóvá-Almennar mótinu bikarkeppni einstaklinga fara fram í Keilu í Mjódd mánudaginn 15. apríl og þriðjudaginn 16. apríl. Sjá nánar um leikina og tímasetningu á auglýsingum í Keilu í Mjódd og á keilusíðunum. Stefnt er að því að 16 manna úrslit karla og kvenna fara síðan fram mánudaginn 22. apríl, 8 manna úrslit þriðjudaginn 23. apríl og mótinu ljúki síðan með 4 manna úrslitum og úrslitum miðvikudaginn 24. apríl, sem er síðasti vetrardagur.

Ársþing KLÍ 2002
Ársþing KLÍ verður haldið föstudaginn 19. apríl n.k. í fundarsal ÍSÍ 2. hæð í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og hefjast þingstörf kl. 18:00. Rétt til þingsetu á ársþingi KLÍ hafa þingfulltrúar sambandsaðila, stjórn KLÍ, framkvæmdastjórn ÍSÍ, fastráðnir starfsmenn KLÍ og ÍSÍ, formenn nefnda KLÍ og íþróttafulltrúi ríkisins. Formenn nefnda sem ætla að sitja þingið eru beðnir að tilkynna þingsetu til stjórnar KLÍ svo hægt verði að áætla fjölda þátttakenda.

Póstlisti KLÍ
Nú er verið að prófa að senda póstlista KLÍ í fyrsta skipti frá nýrri heimasíðu KLÍ. Vonandi heppnast þessi sending vel! Þessi heimasíða verður svo formlega opnuð í sumar í tilefni af 10 ára afmæli Keilusambands Íslands. Viðtakendur póstlistans munu í framtíðinni geta skráð sig og afskráð sig af póstlistum KLÍ í gegnum heimasíðuna. Vonum við að keilarar kunni að meta þessa breytingu.


5. apríl 2002/þh
Úrslitakeppni deildarinnar - þriðja umferð
Í kvöld voru háðar þriðju viðureignir í úrslitakeppni 1. deildar. Eins og í hinum leikjunum var spennan mikil, og réðust úrslit ekki fyrr en í síðasta ramma. Valkyrjur höfðu nauman sigur á Flökkurum, en þar munaði 11 pinnum (1971-1960), og er staðan því 2-1 Flökkurum í vil. KR-a unnu sinn annan leik í röð gegn Lærlingum með 8 pinnum, 2414 á móti 2406. Fjórðu viðureignir verða háðar á mánudag; KR-a og Lærlingar mætast í Keiluhöllinni klukkan 18.50, en Valkyrjur og Flakkarar etja kappi klukkan 20.30 í Keilu í Mjódd.

4. apríl 2002/þh
Úrslitakeppni deildarinnar
Í gærkvöldi hófst lokasprettur baráttunnar um Íslandsmeistaratitil liða, þegar viðureignir Lærlinga og KR a hófst hjá körlunum og Flökkurum og Valkyrjum hjá konunum. Óhætt er að segja að spennan hafi verið gríðarleg undir lok beggja leikjanna, sem og leiks PLS og ÍR-KLS um þriðja sætið. Að lokum fór svo að Lærlingar höfðu nauman sigur á KR a með aðeins 4 stiga mun (2371-2367), á meðan Flakkarar mörðu Valkyrjur með 8 pinnum (2164-2156) eftir að hafa verið ansi langt undir eftir tvo leiki. Svipaða sögu var að segja hjá PLS og ÍR-KLS, en þar unnu PLS einnig með 8 pinnum (2323-2315) eftir að Hjálmtýr Ingi lokaði glennu í 10. ramma sem tryggði þeim sigurinn. Leiknum um þriðja sætið í kvennadeildinni milli ÍR-TT og Afturgangnanna var frestað þar til í kvöld, en hann fer fram í Keilu í Mjódd kl. 20:30, á sama tíma og annar leikur Flakkara og Valkyrja. KR-a og Lærlingar etja kappi í Keiluhöllinni kl. 18.50 í kvöld.

25. mars 2002/hs
Meistarakeppni ungmenna 2001-2002
Meistarakeppni ungmenna 2001-2002 lauk í Mjóddinni um helgina. Spilaðar voru 5 umferðir yfir veturinn. Alls tóku 64 ungmenni þátt í mótinu sem er metþátttaka. Sjáið niðurstöður úr mótinu hér.

22. mars 2002/hs
Gösta Zellen mótið - 60.000 í verðlaun
Gösta Zellen keilumót verður haldið í Keilu í Mjódd fimmtudaginn 28. mars kl. 14:00 og laugardaginn 30. mars kl. 16:00. Heildarverðlaun eru kr. 60.000,-

20. mars 2002/hs
 Lærlingar eru deildarmeistarar karla 2001-2002
Í gær lauk deildarkeppninni í fyrstu deild karla og eru Lærlingar, KFR, deildarmeistarar 2001-2002. Í úrslitakeppnina sem hefst á sunnudaginn komust, Lærlingar frá KFR, PLS frá ÍR, KR-a og ÍR-KLS.








19. mars 2002/hs
Sjóvá - Almenna, 32 manna úrslit
 Það var allt undir kontrol þegar dregið var í bikarkeppni Sjóvá Almennra í gær. Hér koma leikirnir og tímasetningar í 32 manna úrslitum karla og kvenna. Sjáið nánar hver keppir við hvern og hvenær.









19. mars 2002/hs
Úrslitakeppni deildarliða
Mótanefnd hefur gefið út dagskrá í úrslitakeppni deildarliða en hún hefst sunnudaginn 24. mars. Sjáið nánar niðurröðun liða.

19. mars 2002/hs
MEISTARAKEPPNI UNGMENNA
5. umferð verður haldin í Keilu í Mjódd laugardaginn 23. mars kl. 9:00 og 12:30. Sjáið auglýsingu um mótið

19. mars 2002/hs
 Flakkarar eru deildarmeistarar kvenna 2001-2002
Í gær lauk deildarkeppni kvenna og urðu Flakkarar deildarmeistarar. Fjögur efstu liðin eiga eftir að mætast í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn en það eru: Flakkarar (KFR) sem fengu 126 stig í deildarkeppninni, Valkyrjurnar (KFR) 114 stig, Afturgöngurnar (KFR) 112 stig, og ÍR-TT (ÍR) 54 stig. Sjáið nánar í deildarúrslitum.




11. mars 2002/hs
 Eiríkur Arnar og Hrafnhildur Harðardóttir Íslandsmeistarar í opnum flokki unglinga
Sjáið myndir frá Íslandsmótinu










Birnumótið, kvennamót í minningu um Birnu Þórðardóttur, verður haldið í Keilu í Mjódd miðvikudaginn 13. mars og sunnudaginn 17. mars og hefst kl. 19:00 báða daga. Sjáið auglýsingu um mótið.

11. mars 2002/hs
Sjóvá-Almenna2002
Sjáið úrslit í 64 manna flokknum

11. mars 2002/hs
Bikarkeppni KLÍ 2002
Eftirtalin lið mætast í 4 liða úrslitum í Bikarkeppni KLÍ: Hjá kvennaliðunum mætast fjögur efstu liðin í deildinni. Hjá karlaliðunum mætast annars vegar toppliðin í 1. deild karla ÍR-PLS og ÍR-KLS og hins vegar ÍR-a og 2. deildarlið KFR-JP kast. Leikirnir fram allir fram í Keilu í Mjódd kl. 10:00 laugardaginn 16. mars n.k., brautarskipan er eftirfarandi:

Br. 1-2 Afturgöngurnar-Valkyrjurnar
Br. 3-4 Flakkarar - ÍR TT
Br. 5-6 KLS - PLS
Br. 7-8 ÍR a - JP Kast


11. mars 2002/hs
Eiríkur Arnar og Hrafnhildur Harðardóttir Íslandsmeistarar í opnum flokki unglinga
Eiríkur Arnar Björginsson frá Keflavík og Hrafnhildur Harðardóttir frá Akranesi urðu Íslandsmeistarar í opnum flokki unglinga 2002. Eiríkur spilaði mjög vel í mótinu og var með 196,7 í meðaltal eftir forkeppnina. Þegar hann lék til úrslita við Árna Þór Finnsson, KFR, þá byrjuðu þeir báðir á 224 leik en Eiríkur sigraði síðan í seinni leiknum með 70 pinnum.

Í stúlknaflokknum voru ný andlit en þar léku til úrslita tvær stúlkur frá Akranesi þær Hrafnhildur Harðardóttir og Birgitta Þura Birgisdóttir.

Íslandsmeistarar í einstaka flokkum voru:

Íslandsmeistarar í opnum flokki pilta og stúlkna:
Eiríkur Arnar Björgvinsson KEF og Hrafnhildur Harðardóttir ÍA

Íslandsmeistarar unglinga:
1. fl. pilta Eiríkur Arnar Björgvinsson KEF
1. fl. stúlkna Hrafnhildur Harðardóttir ÍA

2. fl. pilta Hafþór Harðarson KFR
2. fl. stúlkna Kristín Magnúsdóttir KFR

3. fl. pilta Bjarni Páll Jakobsson KFR
3. fl. stúlkna Birgitta Þura Birgisdóttir ÍA

4. fl. pilta Andri Már Ólafsson KFR
4. fl. stúlkna Linda Björk Gunnarsdóttir ÍR

32 unglingar úr fjórum félögum tóku þátt í mótinu sem hófst 2. mars.
Sjáið nánar úrslitaleikina úr Íslandsmóti unglinga og lokaniðurstöðu fyrir úrslit.

9. mars 2002/hs
Íslandsmót unglinga - þriðja umferð
Þriðja umferð í Íslandsmóti unglinga var spiluð í dag, hér er staðan eftir þriðju umferð.

4. mars 2002/hs
Íslandsmót unglinga - önnur umferð
Önnur umferð í Íslandsmóti unglinga var spiluð á sunndudag, hér er staðan eftir aðra umferð.

2. mars 2002/hs
Íslandsmót unglinga - fyrsta umferð
Fyrsta umferð í Íslandsmóti unglinga var spiluð í dag. Árni Þór er efstur í opna flokknum en hér er staðan eftir fyrstu umferð.

1. mars 2002/hs
Sjóvá-Almenna
Nú lokið 19 af 23 leikjum í 64 manna úrslitum í Bikarkeppni Sjóvá-Almennra 2002. Hér koma leikirnir sem lokið er.

1. mars 2002/hs
ÍSLANDSMÓT UNGLINGA 2002 - breyttir tímar
Íslandsmót unglinga 2002 verður haldið í Keilu í Mjódd laugardag og sunnudag 2. og 3. mars og framhaldið viku síðar, laugardag og sunnudag 9. og 10. mars.
Vegna fjölda þátttakenda er búið að breyta tímasetningum í Íslandsmóti unglinga.
Sjáið nánar nýja auglýsingu um mótið.

25. febrúar 2002/sk
Bikarkeppni KLÍ 2002 í dag á Bylgjunni
Í dag kl. 13:00 verður dregið í 4 liða úrslitum bikarkeppni KLÍ í beinni útsendingu í íþróttafréttunum á Bylgjunni. Í pottinum eru eftirtalin lið: Hjá konunum eru það ÍR-TT, KFR-Afturgöngur, KFR-Flakkarar og KFR-Valkyrjur, og hjá körlunum eru það ÍR-A, ÍR-KLS, ÍR-PLS og KFR-JP-kast.


25. febrúar 2002/sk
Árshátíð KLÍ 2002
Í dag mánudag 25. mars eru allra síðustu forvöð að tryggja sér miða á sérkjörum á árshátíðin sem verður haldin á skemmtistaðnum Broadway n.k. laugardaginn 2. mars. Þeir sem vilja kaupa sér miða er bent á að hafa samband við Theódóru Ólafsdóttur í síma 587 5885.
Þetta kvöld er frumsýning á Viva Latino sem er söngva- og danssýning með seiðandi suðrænni sveiflu. Sjá nánar um skemmtunina á www.broadway.is. KLÍ hefur látið taka frá 60 miða á besta stað í húsinu þetta kvöld með gott útsýni yfir sviðið og verðið sem okkur býðst er kr. 4.900 fyrir manninn en fullt verð er kr. 6.400. Innifalið í því er fordrykkur, þriggja rétta máltíð, sýning og ball á eftir. Húsið opnar kl. 19:00, matur er borinn fram milli kl. 19:30 og 20:00 og skemmtunin hefst um kl. 22:00. Ekki verður um verðlaunaafhendingu að ræða eins og vaninn hefur verið á árshátíðum.

22. febrúar 2002/hs
ÍSLANDSMÓT UNGLINGA 2002
Íslandsmót unglinga 2002 verður haldið í Keilu í Mjódd laugardag og sunnudag 2. og 3. mars og framhaldið viku síðar, laugardag og sunnudag 9. og 10. mars.