Keilusamband Íslands
16. september 2001/HS
Reykjavíkurmót unglinga
Reykjavíkurmótiunglinga lauk um helgina en 25 unglingar luku keppni í mótinu.
Sjáið nánar niðurstöður úr Reykjavíkurmóti unglingla.

16. september 2001/HS
Meistarakeppni ungmenna
Meistarakeppni ungmenna verður laugardaginn 20. október. 1. og 2. flokkur kl. 9:00 og 3. flokkur kl. 12:00. Sjáið nánar auglýsingu um Meistarakeppnina.

16. september 2001/HS
Nýr tími hjá kvennadeildinni
Tímanum hjá kvennadeildinni hefur verið breytt og hefst keppni nú kl. 20:00. Niðurstaðan í 3ju umferð var sú að Skutlurnar töpuðum fyrir Afturgöngunum 8:0, Flakkarar unnu Tryggðatröll 8:0, og Valkyrjur unnur KR með 8:0, Fellurnar sátu hjá.

12. september 2001/HS
92 þjóðir senda á AMF World Cup
37. árlega Heimsbikarkeppni einstaklinga, AMF World Cup, verður haldið í Lim's PS Bowl í Pattaya í Tælandi 4.- 10. nóvember 2001. 92 þjóðir hafa tilkynnt að þær muni senda fulltrúa sem slær þá út metið frá því í Portúgal í fyrra en þangað komu fulltrúar frá 88 þjóðum.


10. september 2001/HS
Úrslitin í 2. umferð
2.umferð 1.deildar fór fram í gærkveldi og urðu úrslit eftirfarandi:
KR-a    -  Lærlingar  6:2     Keflavík   -  ÍA          6:2
KR-b    -  Þröstur    6:2     Keiluvinir -  Keilugarpar 0:8
Stormsv.-  ÍR-KLS     2:6     ÍR-a       -  ÍR-PLS      0:8

8. september 2001/HS
Lengjan í 2. umferð
Nú verða það fjórir leikir á LENGJUNNI og stuðlarnir eru eftirfarandi:
KR-a - Lærlingar	1,7  4,75  1,9
KR-b - Þröstur	1,4  5,60  2,3
Keflavík - ÍA	1,6  5,05  2,0
Stormsveitin - KLS	2,4  5,70  1,35

4. september 2001/HS
6:2 í 2. deild
Fyrsta umferð í 2. deild fór fram í gær og fóru allar viðureignir 6:2, úrslitin voru eftirfarandi:
ÍR-P – Úlfarnir 6:2, JP-Kast – HK-T 6:2, KGB-SS – ÍR-L 2:6, ET – Stórskotaliðið 6:2.


3. september 2001/HS
Keflavík sigraði Lærlinga og gaf vel á LENGJUNNI
Keflavík gaf vel af sér þegar þeir sigruðu Lærlinga 6-2 en stuðullinn fyrir þessi úrslit var 2,75. Annars var mikið um óvænt úrslit, t.d. Íslandsmeistaranir KLS töpuðu fyrir Keilugörpum og KR-a tapaði fyrir KR-b. Það verður gaman að spila á LENGJUNNI ef framhaldið verður eins óráðið og í fyrstu umferð.
Keflavík - Lærlingar 6 - 2
KLS - Keilugarpar    2 - 6
KR-a - KR-b          0 - 8
Lærlingar - Keflavík 2 - 6
Stormsveitin - PLS   0 - 8
ÍA - ÍR-a	     laugardag


2. september 2001/HS
Á döfinni
Nú þegar allt er komið á fulla ferð í keilusölunum er margt á döfinni, sjáið nýtt yfirlit um komandi atburði á döfinni.

2. september 2001/HS
KEILAN á LENGJUNNI
Nú er deildarkeppnin byrjuð og keilan aftur komin á lengjuna. Nú fá spámennirnir tækifæri og athugið stuðlana. Það getur gefið gott að þekkja til liðanna og hvernig hefur gengið, hvernig er staða liðanna sem keppa, hjá sumum hafa orðið breytingar önnur eru alltaf efnileg.

Liðin sem keppa í kvöld og stuðlarnir sem LENGJAN gefur:
Keflavík - Lærlingar, 2,75  6,00  1,25
Keiluvinir - Þröstur, 1,80  4,50  1,80
PLS - Stormsveitin,   1,70  4,75  1,90
Meira um liðin á LENGJUNNI


14. september 2001/HS
Breytilegt verð í deildinni !
Deildarkeppnin fer að hefjast og nú er orðinn nokkur verðmunur á deildarleikjum eftir því hvar spilað er. Keppnistímar verða kl. 19:00 í Keiluhöllinni Öskjuhlíð, kl. 20:30 í Keilu í Mjódd og kl. 10:00 á laugardögum í keilusalnum á Akranesi. Verð á brautarleigu keilusalanna verður kr. 3.700 fyrir umferðina í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð, kr. 4.000 í Keilu í Mjódd og kr. 2.400 í keilusalnum á Akranesi. Skráningargjald KLÍ er óbreytt frá síðasta ári eða kr. 25.000 fyrir hvert lið. Sjáið nánar um Meistarakeppnina, Íslandsmót liða o. fl. með því að skoða
14. september 2001/sk
Fyrirliðafundur 18. september
Stjórn KLÍ og mótanefnd boða til fundar með fyrirliðum/fulltrúum allra deildarliða vegna keppnistímabilsins 2001-2002. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 18. september kl. 20:00 í kennslusal ÍSÍ á 2. hæð Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Það er mjög mikilvægt að fulltrúar allra liða mæti á fundinn.

7. september 2001/HS
ÍA er komið í 1. deild
ÍA sigraði í umspilinu um sæti í 1. deild þegar þeir unnu Keiluböðla 6-2 í kvöld. Úrslitin urðu þannig að ÍA fékk 22 stig, ET 12 stig og Keiluböðlar 6 stig. Það er því ljóst að liðin í fyrstudeild munu fara spölinn upp á Skaga í vetur og leika í nýja sal keilufélagsins á Akranesi, til hamingju Skagamenn.

7. september 2001/HS
Magnús í 17. sæti
Keppni er nú lokið í forkeppni karla og endaði Magnús í 17. sæti með 195,52 í meðaltal eftir 31 leik. Nú eru eigöngu eftir úrslit 3ja efstu en þar eiga Danir möguleika í báðum flokkum og Norðmenn eiga efsta mann í karlaflokki. Fréttir eru á hollensku síðunni og einnig þeirri dönsku, lítið á "Mors klumme fra Moskva".
Einnig er hægt að sjá niðurstöðurnar beint frá Hollendingum:
niðurstöður karla og niðurstöður kvenna og frá EZ dagskrá mótsins o.fl.

7. september 2001/HS
Maggi með 278 leik
Keppni er nú lokið í forkeppni kvenna og endaði Elín í 12. sæti með 186,7 í meðaltal eftir 29 leiki. Magnús náði sínum besta leik í mótinu þegar hann spilaði 278 leik í dag. Magnús er nú í 16. sæti með 197,8 í meðaltal eftir 27 leiki en 4 leikir eru eftir í karlaflokki.

7. september 2001/HS
ÍA á leið í 1. deild
Línur eru farnar að skýrast í umspilinu um lausa sætið í fyrstu deild. ÍA lék við ET í gærkveldi og sigraði báðar loturnar 8-0 og er því komið með 16 stig en ET er með 12 stig eftir að hafa sigrað Keiluböðla 6-2 í báðum viðureignum þeirra. ÍA keppir við Keiluböðla í kvöld í Mjóddinni.

6. september 2001/HS
Evrópumótið
Okkar fólki gekk ekki sem best í dag, eftir 19 leiki er Magnús í 18. sæti með 193 í meðaltal og Elín er í 12. sæti með 187,6 í meðaltal. Í karlaflokki skiptast þeir á að vera á toppnum, Kim Haugen frá Noregi, (mt. 218,7) og Larsen Oeager (mt. 215) frá Danmörku.

Michaela Goebel frá Þýskalandi er efst í kvennaflokki með 211,4 í meðaltal en hún lék 300 leik í 18. umferð. Bettina Lund frá Danmörku er í öðru sæti. Fréttir eru á hollensku síðunni og einnig þeirri dönsku, lítið á "Mors klumme fra Moskva".
Einnig er hægt að sjá niðurstöðurnar beint frá Hollendingum:
niðurstöður karla og niðurstöður kvenna og frá EZ dagskrá mótsins o.fl.

6. september 2001/HS
Deildarkeppnin - umspil
Nú stendur yfir umspil um laust sæti í 1. deild eftir að HK dró lið sitt úr deildinni. Liðin sem keppa um sætið eru ET, ÍA og Keiluböðlar. Viðureignum ET og Keiluböðla er lokið og vann ET báða leikina 6-2 og er því komið með 12 stig.
Viðureignir ET og ÍA eru báðar í kvöld og gætu úrslitin ráðist í þessum leikjum. Fyrri viðureignin er í Öskjuhlíðinni og hefst kl. 19:00 og sú síðari verður í Mjóddinni og er reiknað með að byrja þar kl. 21:30.

6. september 2001/HS
Evrópumótið
Magnús er nú í 13. sæti með 197,2 í meðaltal eftir 14 leiki og Elín er í 7. sæti með 192,6 í meðaltal.

5. september 2001/HS
Elín komin í 7. sæti
Elín er nú komin í 7. sæti eftir góða spilamennsku í dag en nú stendur yfir keppni í karlaflokki.
Það er ýmislegt öðruvísi í Moskvu en við eigum að venjast og hér koma lítil dæmi; Ella og Dóra lokuðust inni í lyftu á hótelinu en þær er nú komnar þaðan; það mun vera fleira kvikt á herbergjunum en keppendurnir og allt hefur það fleiri en fjórar fætur. Það er margt betra en morgunmaturinn á hótelinu, en það bjargast með góðum mat í keilusalnum.
Rúta með keppendum lenti í árekstri en okkar fólk var ekki í þeirri rútu. Sjáið fróðlega pistla frá dönsku fararstjórunum, þið klikkið bara á númerin undir "Mors klumme fra Moskva" á dönsku síðunni.

Það kemur m.a. fram á dönsku síðunni að í Moskvu búa 10 milljónir, þar eru 59 keilusalir og brautarleigan er um 6.000,- kr. íslenskar á tímann. Hugsanlega er þetta verð bara í keppnissalnum.


5. september 2001/HS
Evrópumótið, Magnús og Elín á fljúgandi uppleið eftir slaka byrjun
Magnús er nú í 9. sæti og Elín í 11. sæti eftir erfiða byrjun í fyrstu fimm leikjunum á Evrópumótinu í Moskvu. Eftir 5 leiki var Magnús í 25. sæti með 181 í meðaltal en með því að spila næstu fjóra leiki á 223,5 að meðaltali þá er hann nú kominn í 9. sæti með slétt 200 í meðaltal eftir 9 leiki. Elín var í 19. sæti með 177,4 í meðaltal eftir fyrstu fimm leikina en vann sig upp í ellefta sæti með því að spila næstu fjóra leiki á 202 að meðaltali.


29. ágúst 2001/HS
Evrópumót landsmeistara í Moskvu hefst 3. september
Íslandsmeistararnir Elín Óskarsdóttir og Magnús Magnússon ásamt landsliðsþjálfaranum, Theódóru Ólafsdóttur, halda til Moskvu um helgina. Sjáið nánar um dagskrá mótsins o.fl.

29. ágúst 2001/HS
Fyrirtækjakeppni í keilu
Keilusamband Íslands (KLÍ) hefur hug á að setja upp "Fyrirtækjakeppni" í keilu keppnistímabilið 2001-2002. Sjáið upplýsingar um keppnisfyrirkomulag o.fl.

29. ágúst 2001/HS
Keiluhöllin í Öskjhlíð tekur breytingum


Búið er að setja upp nýtt og glæsilegt tölvuskor í Keiluhöllinni og unnið er við að setja nýjar plastbrautir í húsið. Fyrstu sex brautirnar hafa þegar verið teknar í notkun eftir breytingar og reiknað er með næstu sex um næstu helgi. Skipt er um stigbrautir, keilubrautir og "pindekk" á öllum 18 brautunum.





31. júlí 2001/HS
Nýr keilusalur á Akranesi
 Þeir vinna nú hörðum höndum Skagamennirnir að koma upp keilusal í kjallara gamla íþróttahússins. Þegar við litum inn fyrir skömmu þá voru þeir Guðmundur og Bjarni á fullu að gera klárt áður en deildin byrjar en þeir vonast til að geta opnað salinn í byrjun september.


Sjáið nánar um keilusalinn á Akranesi


Keiluhöllin í Öskjuhlíð
Nú er verið að byrja á breytingum í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Nýtt tölvuskor er komið í hús og verður byrjað að setja það upp á morgun. Um 12. ágúst verður svo byrjað á að setja nýjar plastbrautir í stað þeirra gömlu.



Evrópumeistaramótið - myndir og endanleg röð