21. júní 2001/HS
Kvennaliðið náð 8. sæti og karlaliðið 13. sæti
Íslensku keppendurnir hafa nú lokið keppni. Kvennaliðið náði 8. sæti í liðakeppninni en karlaliðið endaði í 13. sæti.
Hvorki Magnúsi eða Elínu tókst að komast inn í 16 manna úrslitin en Magnús endaði í 21. sæti með 212 í meðaltal og Elín endaði í 27. sæti með 199 í meðaltal.
Nánari úrslit er að finna á
heimasíðu mótsins.
21. júní 2001/HS
Endaspretturinn erfiður
Það hallar heldur undan hjá toppspilurunum okkar, Magnús berst nú um að halda sig inn í 16 efstu eftir að hafa dottið niður í 17. sæti í samanlögðu skori einstaklinga í fyrri hluta liðakeppninnar. Elín er í 24. sæti eftir fyrri umferðina í liðakeppninni og það verður erfitt að komast í topp 16.
Það eru þrír leikir eftir fyrir einstaklingskeppni 16 efstu, málin ráðast í dag.
20. júní 2001/HS
Elín í baráttunni um 16. sætið
Það gekk ekki nógu vel hjá toppspilurnum okkar í seinni hluta þrímenningsins í gær. Elín er nú í 17. sæti einstaklinga, einum pinna á eftir 16. sætinu en 16 efstu komast í úrslitakeppnina. Magnús spilaði á 202 að meðaltali í þrímenningnum og er kominn í 8. sæti.
Kvennaliðin náðu 13. og 21. sæti. Jóna Gunnarsdóttir, Dagný Edda og Elín spiluðu á 192 að meðaltali og Jóna Kristbjörg, Sólveig og Sigfríður spiluðu 183 að meðaltali.
Karlaliðin náðu 27. og 36. sæti. Björn, Magnús og Freyr spiluðu á 196 að meðaltali og Ívar Steinþór og Árni Geir spiluðu á 189. Freyr átti besta leik í þrímenningi, 210 að meðaltali.
Nú er eftir keppni fimm manna liða, 6 leikir og verður spennandi að fylgjast með í dag og á morgun.
18. júní 2001/HS
Elín er í 9.-12. sæti eftir fyrri umferð í þrímenningi
og Magnús heldur áfram, nú með 663 seríu
Elín Óskarsdóttir er efst okkar leikmanna í kvennaflokki en hún er í 9.-12. sæti af 107 keppendum.
Magnús hélt áfram með frábæra spilamennsku og spilaði 663 í seríu í fyrri umferð í þrímenningi, hann lék 225, 202 og 236.
Staða efstu einstaklinga í kvennaflokki eftir 15 leiki:
1 SWE Jessica Olsson 1220 1364 683 0 218 3267
2 FIN Leena Pulliainen 1338 1345 570 0 217 3253
3 DEN Iben Tchu 1195 1344 704 0 216 3243
10 ICE Elin Oskarsdottir 1296 1255 599 0 210 3150
54 ICE Dagny Edda Thorisdottir 1127 1123 561 0 187 2811
55 ICE Jona Gunnarsdottir 1152 1124 533 0 187 2809
68 ICE Sigfridur Sigurdardottir 986 1121 622 0 182 2729
71 ICE Solveig Gudmundsdottir 1110 1016 583 0 181 2709
17. júní 2001/HS
Evrópumeistaramótið - Magnús í 3. sæti eftir 12 leiki.
Staða efstu einstaklinga í karlaflokki eftir 12 leiki:
1 FIN Mika Luoto 1445 1469 0 0 2914 243
2 FIN Sami Konsteri 1372 1414 0 0 2786 232
3 ICE Magnus Magnusson 1402 1304 0 0 2706 226
4 AUS Thomas Gross 1334 1354 0 0 2688 224
5 SWE Anders Öhman 1432 1237 0 0 2669 222
6 FIN Petteri Salonen 1368 1300 0 0 2668 222
Tvímenningur karla, 6 leikir
21 Freyr Bragason 174 202 191 213 146 236 1162 194
Magnús Magnússon 154 226 224 209 212 279 1304 217
328 428 415 422 358 515 2466 206
35 Steinþór G. Jóhannsson 211 197 189 179 213 165 1154 192
Björn Birgisson 212 233 189 213 214 178 1239 206
423 430 378 392 427 343 2393 199
62 Ívar G. Jónasson 156 158 161 179 208 158 1020 170
Árni Geir Ómarsson 187 203 212 183 190 164 1139 190
343 361 373 362 398 322 2159 180
Nánari úrslit og dagskrá mótsins er að finna á
heimasíðu mótsins.
17. júní 2001/HS
Evrópumeistaramótið - Maggi heldur áfram með stórleiki.
Freyr og Magnús í 5. sæti í tvímenningi þegar eitt holl er eftir
Magnús Magnússon er í toppbaráttunni. Eftir að hafa átt lélegan fyrsta leik í tvímenningnum þá hefur Magnús spilað alla leiki yfir tvöhundruð og endaði á 279 leik. Þegar síðasta hollið er eftir í tvímenningi þá er Magnús í öðru sæti einstaklinga en hann fékk 1304 stig út úr sex leikjum í tvímenningnum.
Næstbesta leik í dag átti Björn Birgisson en hann fékk 1239 stig í sex leikjum.
Tvímenningur kvenna, 6 leikir
21 Jóna Gunnarsdóttir 180 181 183 189 179 212 1124 187
Elín Óskarsdóttir 198 189 211 215 233 209 1255 209
378 370 394 404 412 421 2379 198
26 Jóna Kr. Þórisdóttir 203 184 203 160 195 176 1121 187
Sigfríður Sigurðardóttir 149 171 182 180 185 254 1121 187
352 355 385 340 380 430 2242 187
37 Sólveig Guðmundsdóttir 173 203 151 177 155 157 1016 169
Dagný Edda Þórisdóttir 222 198 175 180 170 178 1123 187
395 401 326 357 325 335 2139 178
16. júní 2001/VG
Evrópumeistaramótið - Magnús á verðlaunapall !!!
Magnús Magnússon náði þeim frábæra árangri að ná 3ja sæti í
einstaklingskeppni á Evrópumeistaramótinu í keilu sem fram fer í Álaborg
þessa dagana.
Magnús spilaði frábærlega eða 1402 í 6 leikjum og urðu aðeins þeir Mika
Luoto, Finnlandi (1445) og Anders Öhman, Svíþjóð (1432) hærri að stigum. En
samtals kepptu 135 keppendur.
Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur keilari kemst á verðlaunapall í
alþjóðlegu keilumóti.
Aðrir íslenskir keppendur hafa staðið sig vel þó ekki hafi þeir unnið til
verðlauna, t.d. varð Elín Óskarsdóttir í 9-10 sæti i einstaklingskeppni
kvenna.
Einstaklingskeppni kvenna, 6 leikir
10 Elín Óskarsdóttir 196 196 215 196 277 216 1296 216
44 Jóna Gunnarsdóttir 194 197 184 168 215 194 1152 192
52 Dagný Edda Þórisdóttir 181 212 160 198 204 172 1127 188
62 Sólveig Guðmundsdóttir 137 189 135 269 171 209 1110 185
84 Jóna Kr. Þórisdóttir 173 154 183 188 171 170 1039 173
94 Sigfríður Sigurðardóttir 164 162 188 155 168 149 986 164
Einstaklingskeppni karla, 6 leikir
1 Mika Luoto, Finnlandi 201 269 289 216 257 213 1445 241
2 Anders Öhman, Svíþjóð 279 222 235 192 225 279 1432 239
3 Magnús Magnússon 268 213 268 267 185 201 1402 234
33 Freyr Bragason 177 245 202 224 193 227 1268 211
43 Steinþór G. Jóhannsson 199 192 224 220 193 215 1243 207
48 Björn Birgisson 171 198 186 213 215 256 1239 206
72 Ívar G. Jónasson 138 258 199 214 194 174 1177 196
117 Árni Geir Ómarsson 133 200 173 233 181 143 1063 177
Landslið Íslands skipa eftirfarandi leikmenn:
Kvennalandsliðið:
Dagný Edda Þórisdóttir KFR
Elín Óskarsdóttir KFR
Jóna Gunnarsdóttir KFR
Jóna Kristbjörg Þórisdóttir KFR
Sigfríður Sigurðardóttir KR
Sólveig Guðmundsdóttir KFR
Karlalandslidid:
Árni Geir Ómarsson ÍR
Björn Birgisson KFR
Freyr Bragason KFR
Ívar G. Jónasson KFR
Magnús Magnússon KR
Steinþór G. Jóhannsson KR
Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir og liðstjóri og fararstjóri er Valgeir
Guðbjartsson
Á mótinu eru um 300 keppendur frá 25 löndum, 17 lönd innan Evrópusambandsins
(ETBF) sendu ekki keppendur að þessu sinni. Keppt er bæði i karla- og
kvennaflokki, keppt er í einstaklings-, tvímennings-, þrímennings- og
liðakeppni (5 manna lið).
10. maí 2001/hs
Íslandsmót liða
Ætlar þú að vera með í deildarkeppninni næsta vetur ?
Hvernig væri að stofna lið með vinnufélögunum og taka þátt í skemmtilegri keppni ?
Keppt er í Keilu í Mjódd, Keiluhöllinni í Öskjuhlíð og í keilusalnum á Akranesi.
Samkvæmt reglum KLÍ þarf að skrá eldri lið fyrir 31. maí og ný lið ekki síðar en 31. júlí.
10. maí 2001/hs
Ársþing KLÍ 2001
Nú hefur borist þinggerðin frá ársþinginu en þar koma m.a. fram allar breytingar sem gerðar voru á reglugerðum KLÍ. Einnig birtum við hér skýrslu síðustu stjórnar og afreksstefnu KLÍ sem unnin var af stjórn á síðasta ári.
Sjáið nánari Þinggerð 8. þings KLÍ , - skýrslu stjórnar og
afreksstefnu KLÍ.
5. maí 2001/sk
Ársþing KLÍ 2001
Áttunda ársþing KLÍ var haldið föstudaginn 27. apríl s.l. Þingið var frekar fámennt þar sem það sóttu eingöngu fulltrúar frá KFR, ÍA og KR, en engir fulltrúar mættu frá ÍR, KGB, Fylki eða Keflavík.
Sjáið nánari fréttir af ársþinginu.
2. maí 2001/hs
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra 2001 - úrslitin
Bikarmeistarar Sjóvá-Almennra 2001 eru Steinþór G. Jóhannsson og Theódóra
Ólafsdóttir
Sjáið nánar úrslitaleikina og 4ra, 8 og 16 manna úrslit.
23. apríl 2001/HS
AMF - World Cup í Tælandi 2001
Heimsbikarmót einstaklinga, AMF-World Cup verður haldið í Tælandi 4. til 10. nóvember 2001.
Heimsbikarmót einstaklinga er eitt stærsta alþjóða íþróttamót í heiminum en á síðasta móti í Portúgal voru keppendur frá áttatíu og átta þjóðum. Halldór Ragnar Halldórsson keppti fyrir Ísland á síðasta móti og stóð sig mjög vel, hann endaði í 17. sæti eftir 40 leiki með 212,5 í meðaltal. Keppt er um þátttökuréttin í Heimsbikarmótinu í Freyjumótinu á hverju hausti.
Sjáið nánar upplýsingar um
AMF-World Cup í Tælandi 2001
20. apríl 2001/hs
Á döfinni næstu daga
Hvað er að gerast á næstunni í keilunni; Árshátíð KLÍ aflýst, Bikarúrslit,
Verðlaunaafhending vegna Íslandsmóts liða og kaffihlaðborð, Tvímenningur Keiluálfa,
16 manna úrslit í Sjóvá-Almennar og Ársþing KLÍ.
Sjáið nánar á döfinni.
11. apríl 2001/SK
Bikarúrslitin og verðlaunaafhending í Íslandsmótinu
Bikarúrslitin fara fram í Keilu í Mjódd laugardaginn 21. apríl og hefjast kl. 12:00.
Til úrslita keppa Flakkarar við Afturgöngur og Keiluböðlar við Keilugarpa.
Að lokinni bikarkeppninni, kl. 14:30, verður verðlaunaafhending í Bikarnum og síðan verðlaunaafhending í Íslandsmóti liða, 1. deild kvenna og 1. og 2. deild karla.
Íslandsmeistarar liða 2001 urðu í karlaflokki KLS frá ÍR og í kvennaflokki Flakkarar frá KFR.
Landsliðið býður upp á kaffi og krásir gegn hóflegu gjaldi sem rennur í ferðasjóð landsliðsins vegna Evrópumótsins í sumar.
11. apríl 2001/SK
ÁRSHÁTÍÐ KLÍ
Árshátíð KLÍ sem vera átti 7. apríl var frestað til laugardagsins 21. apríl
n.k. og verður hún haldin í Tannlæknasalnum Síðumúla 35. Húsið opnar kl.
19:00 og borðhald hefst kl. 20:00. Fjölbreytt dagskrá verður um kvöldið
m.a. verðlaunaafhending, skemmtiatriði, pakkauppboð landsliðsins, diskótek
og að vanda verður góður matur og vínveitingar á góðu verði. Miðasala hjá
Jóni Braga í Keilu í Mjódd. Miðaverð er kr. 3.500, en athugið að aðeins eru
100 miðar í boði.
11. apríl 2001/SK
Úrslitakeppni Íslandsmóts liða
Flakkarar og Afturgöngurnar úr KFR leika um
1. sætið í 1. deild kvenna og KRa og ÍR-KLS leika um 1. sætið í 1. deild
karla. Nú þegar tveimur leikjum er lokið er staða 1 - 1 í báðum
viðureignunum, þannig að ljóst er að úrslitakeppnin verður æsispennandi og
fer a.m.k í fjóra leiki.
Næsti leikur er í Keilu í Mjódd í kvöld,
miðvikudaginn 11. apríl kl. 19:20.
Í 3. sæti í 1. deild kvenna urðu Valkyrjur og í 4. sæti Keiluálfar einnig
úr KFR, og í 3. sæti í 1. deild karla urðu Lærlingar úr KFR og í 4. sæti
urðu svo ÍR-PLS .
27. mars 2001/HS
Gösta Zellen minningarmót
Gösta Zellen mótið verður haldið í Mjóddinni um næstu helgi. Það eru góð peningaverðlaun í boði, sjáið nánar auglýsingu um Gösta-mótið.
27. mars 2001/HS
Evrópumót landsliða í Álaborg
Keilusamband Íslands hefur valið landslið karla og kvenna til þátttöku á Evrópumóti landsliða í keilu sem fram fer í Álaborg í Danmörku dagana 11.-24. júní 2001.
Nokkrir af okkar reyndustu spilurum gáfu ekki kost á sér í þetta mót af ýmsum
persónulegum ástæðum.
Sjáið nánar landsliðin fyrir Evrópumótið í Álaborg. og upplýsingar um
Evrópumótið 2001
26. mars 2001/HS
Íslandsmót unglinga
Íslandsmóti unglinga í keilu lauk með úrslitum í Keilu í Mjódd sunnudaginn 25. mars 2001.
Alls kepptu 19 unglingar í fjórum flokkum pilta og stúlkna. Eiríkur Arnar Björgvinsson átti hæsta leik mótsins 276 stig. Sjáið nánar sigurvegara í hverjum flokki.
23. mars 2001/HS
Ársþing KLÍ
Ársþing KLÍ er boðað föstudaginn 27. apríl kl. 18:00 í sal Íþróttabandalags Reykjavíkur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Sjá nánar boðun á ársþing KLÍ.
23. mars 2001/HS
ÁRSHÁTÍÐIN
Árshátið KLÍ verður í Tannlæknasalnum í Síðumúla. Sjá nánar auglýsingu um árshátíðina.
8. febrúar 2001/HS
NORÐURLANDAMÓT UNGLINGA - BRONZE í liðakeppni
Norðurlandamót unglinga hófst í Kaupmannahöfn í morgun með liðakeppni pilta
og stúlkna.
Íslenska piltalandsliðið stóð sig frábærlega og endaði í 3. sæti í
liðakeppninni. Liðið skipuðu þeir Atli Þór Annelsson Keflavík, Árni Þór
Finnsson KFR, Björgvin Harðarson KFR, Eiríkur Arnar Björgvinsson Keflavík,
Gústaf Smári Björnsson KFR og Magnús Magnússon KFR.
Lokastaða í liðakeppninni var þessi:
1. Danmörk 16,5 stig
2. Noregur 15,0 stig
3. Ísland 11,0 stig
4. Svíþjóð 9,5 stig
5. Finland 8,0 stig
Að þessu sinni var ekki tekið þátt í liðakeppni stúlkna þar sem eingöngu er
einn keppandi frá Íslandi í stúlknaflokki en það er Dagný Edda Þórisdóttir
KFR.
Fylgist með Norðurlandamóti unglinga í Kaupmannahöfn
7.-11.mars
Áfram Ísland!
4. mars 2001/HS
Magnús Magnússon Íslandsmeistari karla 2001
Íslandsmóti karla lauk í Keilu í Mjódd í kvöld og hafa úrslit sjaldan verið jafn spennandi, leika þurfti tvöfaldan bráðabana þegar Steinþór og Freyr kepptu um annað sætið og aðeins munaði fjórum pinnum í tvöföldum úrslitaleik hjá Magnúsi og Frey. Úrslitaleikir voru sem hér segir:
2-3 sæti: Freyr 233+38+50 - Steinþór 233+38+36
1-2 sæti: Magnús 210+192=402 og Freyr 206+192=398
Það var því Magnús Magnússon, KR, sem hreppti Íslandsmeistaratitilinn og farseðilinn til Moskvu í haust og endanleg röð efstu manna varð:
1. Magnús Magnússon, Íslandsmeistari 2001
2. Freyr Bragason
3. Steinþór Geirdal Jóhannsson
Fyrir úrslit var staðan sem hér segir:
1. Magnús 6756 / 210,5 meðaltal
2. Freyr 6589 / 205,91 meðaltal
3. Steinþór 6496 / 202,22 meðaltal
4. Ásgeir 6488 / 202,75 meðaltal
5. Halldór Ragnar 6453 / 201,50 meðaltal
6. Árni Geir 6403 / 199,31 meðaltal
Ásgeir Þór Þórðarson setti 2 íslandsmet í
forkeppni mótsins þ.e. í 6 leikja blokk = 1428 og 8 leikja blokk = 1852
25. febrúar 2001/HS
Elín Óskarsdóttir Íslandsmeistari kvenna 2001
Íslandsmóti kvenna lauk í gær í Keilu í Mjódd og tryggði Elín Óskarsdóttir sér Íslandsmeistaratilinn og farseðilinn til Moskvu í haust, úrslitin urðu sem hér segir:
1. Elín Óskarsdóttir
2. Jóna Gunnarsdóttir
3. Dagný Edda Þórisdóttir
Í úrslitum var fyrst keppt um annað sætið og sigraða Jóna Dagnýju með 176 stigum á móti 162. Jóna keppti síðan til úrslita við Elínu sem sigraði með töluverðum yfirburðum, Elín 184+198=382 - Jóna 137+140=277.
Þess má geta að fyrir stöðuleikinn (þ.e. síðasta leik f. úrslit) var
staðan svona:
1. Ella
2. Ragna
3. Jóna
4. Solla
5. Dagný
6. Lísa
En í stöðuleiknum þá vann Ella Rögnu (Ragna spilaði 167), Jóna vann
Sollu, og Dagný vann Lísu og spilaði 214 og fékk að auki 25 í bónus og fór
þar með uppfyrir Rögnu á 4 pinnum.
20. febrúar 2001/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA 2001 - Hverjir fara til Moskvu í haust ?
Íslandsmót einstaklinga í kvennaflokki verður haldið 22. til 25. febrúar og í karlaflokki 1. til 4. mars næstkomandi, keppt verður í flokkum með og án forgjafar.
Sjáið nánar auglýsingu um Íslandsmót kvenna 2001
Sjáið nánar auglýsingu um Íslandsmót karla 2001
Sigurvegarar í flokkum án forgjafar vinna sér inn þátttökurétt á Evrópubikarmóti landsmeistara sem á að fara fram í Moskvu 2. - 9. september.
Norðurlandamótið - Tvöfaldur sigur Norðmanna
Mette Hansen og Tore Torgersen urðu Norðurlandameistarar 2001
10. febrúar 2001
Steinþór sigraði Tore Torgersen og endaði í áttunda sæti.
Steinþór byrjaði mjög vel í undanúrslitunum, hann lenti á móti efsta manni mótsins í fyrsta leik, keilara ársins á heimslistanum Tore Torgersen. Þetta var hörku leikur og sigraði Steinþór með 2 pinnum, 220 á móti 218. Í næsta leik má segja að það hafi orðið spennufall og Steinþór tapaði næsta leik. Leikir Steinþórs voru: 220, 154, 218, 215, 188, 160, 226 og 176. Þegar keppt er við átta efstu keilarana í mótinu þá er það svipaður styrkleiki og á heimsmeistaramóti og ekkert gefið eftir. Steinþór endaði í áttunda sæti með 195 í meðaltal í úrslitakeppninni. Þetta er frábær árangur hjá okkar unga landsliðsmanni.
NIÐURSTÖÐUR NM-2001
5-manna lið
Parakeppni, blokk 1
Parakeppni, blokk 2
Tvímenningur kvenna
Tvímenningur karla
Einstaklingskeppni kvenna
Einstaklingskeppni karla
Undanúrslit kvenna og karla
ÚRSLITIN
SIGURVEGARARNIR
Fylgist með Norðurlandamótinu í Sarpsborg
7.-10. febrúar
Dagskrá Norðurlandamótsins.
9. febrúar 2001
Steinþór er í 5. sæti einstaklinga og kominn í undanúrslit.
Steinþór G. Jóhannson, KR, hefur leikið mjög vel og er með 212 í meðaltal eftir 16 leiki. Steinþór þarf 79 pinna til að jafna þriðja sætið og það eru 137 pinnar upp í fyrsta sætið.
Úrslit átta efstu verða á morgunn, hefjast kl. 8:00 (ísl. tími) og síðan hefjast úrslit þriggja efstu kl. 12:45.
9. febrúar 2001
Ragna og Steinþór í 6. sæti í parakeppninni.
Rangna Matthíasdóttir og Steinþór Jóhannsson náðu 6. sæti í parakeppninni og voru aðeins 41 pinna frá verðlaunasæti.
Steinþór er að spila frábærlega en hann fékk 1760 pinna í 8 leikjum eða 220 að meðaltali. Steinþór er nú í 3. sæti einstaklinga og aðeins 23 pinnum frá efsta sæti.
Ragna spilaði einnig mjög vel, hún fékk 1522 pinna í 8 leikjum eða 190,25 að meðaltali.
Bronsverðlaun í liðakeppninni.
Karlalandsliðið komst á pall í dag, 8. febrúar, þegar við náðum þriðja sæti í keppni 5-manna liða. Þetta er annar verðlaunapeningurinn sem fullorðinsliðið vinnur í Norðurlandamóti en við fengum einnig bronsverðlaun liða í Norðurlandamótinu 1992.
Úrslitin í liðakeppni karla urðu, Svíþjóð, Finnland, Ísland, Noregur og Danmörk.
Kvennalandsliðið spilaði reyndar betur en karlaliðið, fékk 179 að meðaltali á meðan karlaliðið fékk 177. Þetta dugði þó ekki í verðlaunasæti hjá konunum sem enduðu í 5. sæti en konurnar eru almennt að spila betur en karlarnir í mótinu.
30. janúar 2001/HS
NORÐURLANDAMÓT FULLORÐINNA 2001
Norðurlandamótið fer fram í Sarpsborg í Noregi en landsliðið heldur utan miðvikudaginn 7. febrúar.
Úrdráttur úr dagskrá mótsins:
Miðvikudagur: Koma, kúlutékk, fundur fararstjóra, æfing og opnunarathöfn.
Fimmtudagur: Liðakeppni karla og kvenna 20 leikir og
parakeppni hópur 1, 8 leikir.
Föstudagur: Parakeppni hópur 2, 8 leikir,
tvímenningur kvenna 8 leikir,
tvímenningur karla 8 leikir og verðlaunaafhending.
Laugardagur: Undanúrslit 8 efstu einstaklingar karla og kvenna 8 leikir Allir við alla (7 leikir+stöðuleikur),
úrslit 3 efstu með tvöföldum úrslitaleik.
Verðlaunaafhending, lokaathöfn og lokahóf.
Sunnudagur: Heimferð
Kvennalandsliðið skipa eftirtaldir keilarar:
Dagný Edda Þórisdóttir, Elín Óskarsdóttir, Jóna Gunnarsdóttir, Jóna K. Þórisdóttir, Ragna Matthíasdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir, allar úr KFR. Þjálfari kvennalandsliðsins er Theódóra Ólafsdóttir.
Karlalandsliðið skipa eftirtaldir keilarar:
Ásgeir Þór Þórðarson ÍR, Freyr Bragason KFR, Halldór Ragnar Halldórsson ÍR, Jón Helgi Bragason ÍR, Jónas Gunnarsson KR og Steinþór Geirdal Jóhannsson KR. Þjálfari karlalandsliðsins er Halldór Ragnar Halldórsson.
Fararstjóri er Sigríður Klemensdóttir og liðsstjóri og aðstoðamaður þjálfara karlalandsliðsins er Hjálmtýr Ingason.
Sjáið meira um Norðurlandamótið
30. janúar 2001/HS
Nýjar heimasíður um keilu
Nú eru komnar þrjár nýjar keilusíður á vefinn. Þessar síður eru frá
keiludeild KR og liðunum
PLS í ÍR og
Keiluböðlum í KFR. Við óskum aðstandendum síðanna til hamingju og vonandi eigum við eftir að sjá fjölbreyttar fréttir og góðar greinar á vefnum í komandi framtíð.