Keilusamband Íslands
13. maí 2000/EÍ
Íslandsmót í tvímenningi
Íslandsmóti í tvímenningi lauk í dag í Keilu í Mjódd. Mjög góð spilamennska var í keppninni. Ásgeir Þór Þórðarson og Halldór Ragnar Halldórsson gerðu Íslandsmet í einum leik, 524 pinna, Ásgeir spilaði 247 og Halldór Ragnar 277 pinna. Í dag náði Magnús Magnússon KR þeim áfanga að spila 300 leik og er hann fjórði maðurinn hér á landi sem nær því. En úrslitin urðu sem hér segir:
1. sæti Jón Helgi Bragason og Hjálmtýr Ingason
2. sæti Ásgeir Þór Þórðarson og Halldór Ragnar Halldórsson
3. sæti Árni Geir Ómarsson og Ívar G. Jónasson


4. maí 2000/EÍ
Sumarmót kvennalandsliðs 2000
Keppt verður í tvímenningi karla- og kvennaliða í Keilu í Mjódd á miðvikudögum kl. 19:00. Mótið hefst 7. júní og lýkur um miðjan ágúst. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Þátttaka tilkynnist til Unnar í síma 565-3246 eða 699-3246.
Meira um sumarmótið


28. apríl 2000/EÍ
Landslið KLÍ valið
Karla- og kvennalandslið Keilusambandsins hefur verið valið fyrir Evrópubikarmótið í Ísrael.
Meira um val landsliðsins


18. apríl 2000/EÍ
Ársþing KLÍ 2000
Ársþing KLÍ var haldið um helgina. Á þinginu voru m.a. samþykktar verulegar breytingar á Íslandsmóti einstaklinga. Við birtum nánari fréttir mjög fljótlega.
Meira um Ársþing KLÍ 2000


8. apríl 2000/EÍ
BIKAR- OG ÍSLANDSMEISTARAR deildarliða 2000
Flakkarar og Lærlingar úr Keilufélagi Reykjavíkur















Flakkarar og Lærlingar BIKARMEISTARAR
Spennan var mjög mikil í bikarleikjunum í dag. Lærlingar kepptu við KR-a og spiluðu þeir 774+730+818 sem gerðu 2322, en KR-a spiluðu 763+815+713 sem gerðu 2291. Úrslitin réðust í tveimur síðustu römmunum og urðu ekki ljós fyrr en Bjössi í Lærlingum hafði tengt frá áttunda ramma yfir í þann tíunda, en Steini var með glennu og opnaði síðasta rammann.

Flakkarar unnu alla sína leiki eða 685+692+728 sem gera 2105, en Tryggðatröll léku 657+632+640 sem gerði 1929.

Flakkarar og Lærlingar ÍSLANDSMEISTARAR DEILDARLIÐA 2000
Meira um úrslitakeppni deildarliða


LOKAHÓF KLÍ LAUGARDAGINN 8. APRÍL
Lokahófið var haldið í Stjörnuheimilinu í Garðabæ.

Jón Helgi Bragason ÍR og Sólveig Guðmundsdóttir KFR voru valdir keilarar keppnistímabilsins af keilurum.


2. apríl 2000/hs
Hver er bestur ?
Sjáið meira um Opna meistaramót Keilu í Mjódd. Niðurstöður úr fyrstu umferð eru komnar.

Sjáið niðurstöður í Opna meistaramóti Keilu í Mjódd.

31. mars 2000/EÍ
Gösta mótið - 12.000 fyrir fyrsta sætið
Strax að mótinu loknu voru spiluð úrslit, 5-4-3-2-1.
1. sæti Gústaf Smári Björnsson
2. sæti Jóhannes Ragnar Ólafsson
3. sæti Ívar G. Jónasson
4. sæti Jón Helgi Bragason
5. sæti Björgvin Harðarson
Sjáið meira um minningarmót Gösta Zellen.

Sjáið niðurstöður í Gösta Zellen

30. mars 2000/HS
Úrslitakeppnin
Það var rosaleg spenna í Mjóddinni í kvöld og sigur vannst með aðeins tveim pinnum, 2250 á móti 2248.

Sjáið meira um úrslitakeppni deildarliða

28. mars 2000/HS
Flakkarar Íslandsmeistarar kvenna
Flakkarar urðu Íslandsmeistarar kvenna í deildarkeppninni þegar þær sigruðu Afturgöngurnar í kvöld með 2309 stigum á móti 2179.

21. mars 2000/HS
Keila sem Ólympíuíþrótt
Ólympíunefnd Bandaríkjanna stendur nú fyrir könnun á heimasíðu sinni þar sem gestum er boðið að greiða atkvæði um hvaða íþrótt þeir vildu bæta við á Ólympíuleikunum. Það eru boðnir fimm valmöguleikar: keila, racquetball, rollerskating, squash racquets, and water skiing.

Smellið á Ólympíumerkið og greiðið atkvæði.

19. mars 2000/HS
Íslandsmót unglinga - Dagný Edda með Íslandsmet í tveim leikjum

Íslandsmóti unglinga lauk í dag í Keilu í Mjódd. Magnús Magnússon KFR og Dagný Edda Þórisdóttir KFR sigruðu í opna flokknum. Dagný Edda setti Íslandsmet í 1. flokki stúlkna þegar hún fékk 425 stig í tveim leikjum í úrslitakeppninni.
Meira um úrslitin í Íslandsmóti unglinga

18. mars 2000/HS
Íslandsmót unglinga 2000
Úrslit í Íslandsmóti unglinga verða á morgun sunnudag 19. mars í Keilu í Mjódd. Úrslit í 2. flokki pilta hefjast kl. 11:00 en þar á eftir hefjast úrslit í 3. flokki pilta og opnum flokki pilta og stúlkna.

18. mars 2000/HS
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra 2000
Fylgist með úrslitum í FRÉTTA dálknum.

18. mars 2000/HS
Skagamenn og ÍR-P í 2. deild að ári
ÍA sigraði örugglega í 3ju deild í liðakeppninni með 118 stig, ÍR-P varð í öðru sæti með 97 stig og Rennubanar frá Keilufélagi Garðabæjar urðu í þriðja sæti með 87 stig. Keppni er nú lokið 3ju deild og eru niðurstöðurnar á deildarsíðunni.

14. mars 2000/HS
Nýr landsliðshópur valinn
Jón Helgi Bragason hefur valið nýjan 17 manna landsliðshóp vegna æfinga fyrir Evrópubikarmót landsliða sem haldið verður í Israel 29. maí til 6. júní.

Landsliðshópurinn.

14. mars 2000/HS
KR-a og Flakkarar eru deildarmeistarar í ár
Flakkarar tryggðu sér deildarmeistaratitlinn í gær þegar þær sigruðu Valkyrjurnar 8-0. Flakkarar enduðu deildina fyrir úrslitakeppnina með 130 stig en Afturgöngurnar sem voru næstar enduðu með 128 stig.
KR-a hefur þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn þó svo að ein umferð sé eftir. Baráttan í fyrstu deild karla stendur um fjórða sætið en Lærlingar eru í 3. sæti með 106 stig, Keflavík-a í 4. sæti með 100 stig, ÍR-a er í 5. sæti með 96 stig og Keilulandssveitin er með 92 stig í 6. sæti en stendur vel í pinnafalli og á því ennþá möguleika inn í 4ra liða úrslitin.
Það verður ekki minni spenna hjá neðstu liðunum en ET með 60 stig keppir við Þröst sem er með 52 stig um hvort liðið fellur. Úlfarnir hafa þegar tryggt sér ferð niður í aðra deild.

13. mars 2000/HS
Nýr landsliðsþjálfari, Jón Helgi Bragason
Jón Helgi Bragason, ÍR, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari karlalandsliðsins. Jón Helgi hefur þegar tekið til starfa og mun tilkynna nýjan landsliðshóp mjög fljótlega. Þar sem Jón Helgi hefur nú tekið við landsliðinu mun hann ekki verða á meðal keppenda í Evrópubikarmóti landsliða í Israel í vor en Jón hefur verið einn af sterkustu mönnum landsliðsins undanfarin ár.

9. mars 2000/HS
Sjóvá - Almennar
Forkeppninni í Sjóvá-Almennar mótinu lauk í gærkvöldi. Alls spiluðu 86 karlar og 25 konur í forkeppninni. Það var góð sigling á þeim Jóni Helga sem fékk 704 í seríu, 235 í meðaltal, í forkeppninni og Davíð Löve sem fékk 680 seríu, meðaltal 227.
Sjáið nánar um mótið í niðurstöðum mótsins.

7. mars 2000/HS
Siggi Lár hættir með landsliðið
Sigurður Lárusson tilkynnti stjórn KLÍ í gærkveldi að hann væri hættur með þjálfun karlalandsliðsins. Ástæðan mun vera sú að hann væri að drukkna í vinnu og sæi ekki að hann gæti gert þetta almennilega fyrr en í maí eða jafnvel síðar.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun með framhaldið en Theódóra Ólafsdóttir hefur verið þjálfari unglinga- og kvennalandsliðsins.

1. mars 2000/HS
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra 2000
Bikarkeppni Sjóvá-Almennra er hafin og er hægt að fylgjast með úrslitum í FRÉTTA dálknum.

26. febrúar 2000/HS
Elín og Steinþór Íslandsmeistarar einstaklinga 2000
Steinþór G. Jóhannsson frá KR varð Íslandsmeistari einstaklinga í karlaflokki í dag, í öðru sæti varð Freyr Bragason, KFR og Jón Helgi Bragason, ÍR varð í þriðja sæti.

Elín Óskardóttir frá KFR varð Íslandsmeistari einstaklinga í kvennaflokki, í öðru sæti varð Jóna Gunnarsdóttir, KFR og í þriðja sæti Ágústa Þorsteinsdóttir einnig í KFR.

Á mynd eru sigurvegarar í meistaraflokki.
Fremst eru Íslandsmeistararnir Elín Óskarsdóttir og Steinþór G. Jóhannsson. Aftari röð: Ágústa Þorsteinsdóttir, Jóna Gunnarsdóttir, Freyr Bragason og Jón Helgi Bragason.

25. febrúar 2000/HS
Íslandsmót einstaklinga
Ágústa Þorsteinsdóttir er enn á toppnum í kvennaflokki og Steinþór og Freyr eru nánast jafnir og efstir í karlaflokki.

Undanúrslit hefjast kl. 12:00 á morgun laugardag og úrslitin verða kl. 16:00

Það er búin að vera hörku spilamennska í undanúrslitunum og menn hafa orðið að játa sig sigraða þrátt fyrir frábæra spilamennsku. Þannig sigraði Jón Helgi Steinþór með 260 á móti 256. Jón sigraði einnig Frey með 245 á móti 224 stigum. Á morgun, laugardag kl. 12:00 hefst keppni í undanúrslitum karla og kl. 14:00 í undanúrslitum kvenna.

Staðan er nú eftirfarandi:

Karlaflokkur
				Skor	mism frá 1. sæti

Steinþór G. Jóhannsson	KR	8581	  0
Freyr Bragason		KFR	8574	  7
Jón Helgi Bragason	ÍR	8414	168
-----------------------------------------
Hjálmtýr Ingason	ÍR	7965	616
Björn Birgisson		KFR	7917	664
Magnús Magnússon	KR	7877	704
Kvennaflokkur

Ágústa Þorsteinsdóttir	KFR	5481	  0
Elín Óskarsdóttir	KFR	5382	 99	
Jóna Gunnarsdóttir	KFR	5286	195
-----------------------------------------
Ólafía Sigurbergsdóttir	KEF	5253	228	
Sólveig Guðmundsdóttir	KFR	5205	276
Heiðrún Bára Þorbjörnsd	KFR	5153	328
-----------------------------------------
 


24. febrúar 2000/ÞH
300 LEIKUR HJÁ JÓNI HELGA !!!
Jón Helgi Bragason, ÍR-PLS, spilaði rétt í þessu 300 leik á brautum 3-4 í Keilu í Mjódd, og jafnaði þar með Íslandsmet í einum leik karla, en fyrir hafa þeir Ásgeir Þór Þórðarson (tvívegis) og Sigurður Lárusson náð þessum árangri hér á landi.

23. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Ársæll Björgvinsson frá KR er Íslandsmeistari í 1. flokki karla. Eiríkur Arnar Björgvins frá Keflavík varð í öðru sæti og Karl Eiríksson, KR, varð í þriðja sæti. Sjáið hverjir eru tólf efstu í mfl. karla og sex efstu í mfl. kvenna, einnig nánar um stöðu einstakra leikmanna.

20. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Freyr og Steinþór eru efstir í meistarflokki karla með um 208 í meðaltal og Ágústa Þorsteinsdóttir er efst í kvennaflokki. Ársæll Björgvinsson er efstur í 1. flokki karla. Sjáið nánar um stöðu einstakra leikmanna.

19. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMET
Skrá með Íslandsmetum hefur nú verið uppfærð fyrir heimasíðuna. Íslandsmet í keilu.

18. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Keppni í meistaraflokk karla hófst í kvöld með fyrstu sex leikjunum í forkeppninni. Magnús Magnússon spilaði sig upp í efsta sæti þegar hann lék 287 í síðasta leiknum. Magnús er með 217,2 í meðaltal eftir sex leiki en jafnir í 2.- 3. sæti eru Freyr Bragason og Steinþór Jóhannsson með 213,7 í meðaltal.

17. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Ágústa Þorsteinsdóttir er efst í kvennaflokki eftir fyrstu sex leikina með 194,3 en fast á hæla hennar kemur Ragna Matthíasdóttir með 191,8. Ársæll Björgvinsson er nú efstur í 1. flokki karla eftir átta leiki.

14. febrúar 2000/HS
Bikarkeppni KLÍ
Dregið var í 4ra liða úrslit í kvöld 14. febrúar. KR-a keppir við KR-c, Tryggðatröll við Keilusystur, Lærlingar við ÍR-a og Skutlurnar við Flakkara. Keppt verður 4. mars.

14. febrúar 2000/HS
Sænska kvennalandsliðið ekki með í alþjóðamótum !
Sænska keilusambandið hefur fallist á tillögur landsliðsþjálfarans, Peter Engström, um að stokka algjörlega upp spilin varðandi kvennalandsliðið. Það hefur því verið ákveðið að sænska kvennalandsliðið verður ekki með í Evrópubikarkeppni landsliða í Ísrael í júní. En Svíar hafa ekki alveg afskrifað kvennalandsliðið, þeir ætla að nota tímann og byggja upp nýtt landslið með öflugu æfingakerfi og reikna með að koma aftur með sterkt lið á Evrópumótið 2001 og Heimsmeistaramótið 2003.

13. febrúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Kominn er listi yfir keppendur og endurskoðuð dagskrá fyrir Íslandsmót einstaklinga 2000.

13. febrúar 2000/HS
Nýtt allsherjarmeðaltal
Nýtt allsherjarmeðaltal er komið út en það miðast við 100 síðustu leiki hjá hverjum keppenda. Við höfum hér meðaltal keppenda í Íslandsmóti einstaklinga 2000 og heildarmeðaltalið verður birt hér fljótlega.

9. febrúar 2000/HS
Hverjir eru bestir ? - Topp 10 í deildarmeðaltali
Það er áhugavert að skoða hverjir hafa náð besta árangri í deildarkeppni liða í vetur. Sjáið hverjir eru bestir

31. janúar 2000/HS
ÍSLANDSMÓT EINSTAKLINGA
Íslandsmót einstaklinga hefst 16. febrúar og úrslitin verða laugardaginn 26. febrúar. Skráningu lýkur föstudaginn 11. febrúar. Sjáið meira um Íslandsmót einstaklinga 2000, dagskráin er komin.

31. janúar 00/HS
Bikarkeppni KLÍ
Dregið verður í 4ra liða úrslit 14. febrúar. Keppni í átta liða úrslitum fór fram 29. janúar. Sjáið meira um 8 liða úrslitin.

28. janúar 2000/HS
Allt um Evrópukeiluna
Þeir sem hafa áhuga á upplýsingum um Evrópukeiluna ættu að skoða bowlingdigital.com

25. janúar 2000/HS
Ella og Freyr urðu Íslandsmeistarar para árið 2000
Elín Óskarsdóttir og Freyr Bragason spiluðu frábærlega í Íslandsmóti para og stóðu uppi sem sigurvegarar. Sjáið meira um Íslandsmót para

10. janúar 00/HS
Bikarkeppni liða - dregið í 8 liða úrslit
Dregið hefur verið í8 liða úrslit kvenna og karla í Bikarkeppni KLÍ. Keppni fer fram laugardaginn 29. janúar.
Sjáið meira um bikarkeppnina og hverjir leika í 8 liða úrslitum.