1. janúar 2000/HS
Annáll ársins - helstu viðburðir keilunnar árið 1999
Norðurlandamót unglinga
FYRSTA GULLIÐ Í LANDSKEPPNI
Norðurlandamót unglinga í keilu, sem fram fór í Reykjavík 9. - 13. mars, er án efa stærsti viðburðurinn sem var í keilunni á liðnu ári en þá náðu íslenskir unglingar árangri sem við höfum aldrei áður náð en piltarnir okkar komust þrisvar á verðlaunapall, við unnum gull, silfur og brons.
Þetta er fyrsti Norðurlandatitill íslenskra keilumanna og fyrsti gullpeningur í landskeppni, en einu sinni áður hafa keilumenn unnið til verðlauna í landskeppni. Það var 1992 þegar karlaliðið vann bronsverðlaun í fimm manna liðakeppni á Norðurlandamóti í Helsinki.
Á myndinni eru Norðurlandameistarar unglinga í tvímenningi, Hjörvar Ingi Haraldsson og Steinþór Geirdal Jóhannsson, með þjálfurum íslenska liðsins þeim Mats Wetterberg frá Svíþjóð og Theódóru Ólafsdóttur.
Hjörvar Ingi Haraldsson Keilufélagi Reykjavíkur og Steinþór Geirdal Jóhannsson KR sigruðu í tvímenningi á Norðurlandamóti unglinga. Strax eftir annan leik náðu þeir forystu og héldu henni út alla sex leikina. Undir lokin háðu þeir harða baráttu við sænsku leikmennina Lars Lundahl og og Magnus Zachrisson en höfðu betur undir geysilegri pressu og óhemju fagnaðarlátum áhorfenda. Þeir Hjörvar Ingi og Steinþór náðu vel saman í þessum leikjum og voru ótrúlega jafnir, Hjörvar Ingi fékk 1231 stig og Steinþór fékk 1230 stig og báðir fengu þeir 35 fellur í þessum sex leikjum.
EINSTAKLINGSKEPPNIN - SILFUR og BRONS
Við áttum þrjá leikmenn í átta efstu í piltaflokki í einstaklingskeppninni en það voru þeir Steinþór, Ívar G. Jónasson og Hjörvar Ingi. Steinþór og Ívar komust í úrslit þriggja efstu og svo fór að Steinþór keppti til úrslita við Robert Andersson frá Svíþjóð og náði að jafna skorið í seinni leiknum með því að fella út í 9. og 10. ramma.
Robert vann síðan í bráðabana. Steinþór fékk silfur og Ívar brons.
PARAKEPPNIN
Matthildur Gunnardóttir og Steinþór Jóhannsson náðu frábærum árangri þegar þau komust í 4. sæti af tuttugu og fjórum og voru aðeins fjórum pinnum frá verðlaunasæti í parakeppninni.
LIÐAKEPPNIN - Baker format
Liðakeppni pilta var mjög jöfn og vorum við aðeins einni lokun frá því að komast í annað sætið en lánið lék ekki við okkur og þrír af okkar leikmönnum opnuðu í síðustu lotu. Við enduðum því í 4. sæti, einu stigi undir Noregi og Finnlandi sem voru jöfn í 2. og 3. sæti en Svíar sigruðu.
Undirbúningur og framkvæmd mótsins var unnin af mótsstjórn en hana skipuðu: Haraldur Sigursteinsson, Þórir Ingvarsson, Valgeir Guðbjartsson, Sigríður Klemensdóttir, Erla Ívarsdóttir, Sesselja Unnur Vilhjálmsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Theódóra Ólafsdóttir.
Þjálfarar voru þau Mats Wetterberg og Theódóra Ólafsdóttir og liðstjóri Erla Ívarsdóttir.
Unglingalandsliðið var þannig skipað:
Dagný Edda Þórisdóttir KFR
Jóna Kristbjörg Þórisdóttir KFR
Karen Rúnarsdóttir Keflavík
Matthildur Gunnarsdóttir KFR
Sigurborg Haraldsdóttir Keflavík
Súsanna Knútsdóttir KFR
Björgvin Harðarson KFR
Hjörvar Ingi Haraldsson KFR
Ívar G. Jónasson KFR
Magnús Magnússon KFR
Steinþór Geirdal Jóhannsson KR
Þórhallur Hálfdánarson KFR
Fimmtíu og fjórir keppendur tóku þátt í mótinu en auk Íslands voru keppendur frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Hver þjóð sendi 6 manna landslið pilta og stúlkna nema Noregur sem ekki sendi stúlknalið til keppni.
Norðurlandamótið í Kaupmannahöfn
Norðurlandamót fullorðinna í fór fram í Kaupmannahöfn 4.-7. febrúar. Freyr Bragason náði bestum árangri íslensku keppendanna og komst í 16 manna úrslit einstaklinga.
Valgeir Guðbjartsson var fararstjóri og þjálfarar voru Mats Wetterberg og Theódóra Ólafsdóttir. Landsliðið var skipað eftirtöldum leikmönnum: Karlaflokkur: Arnar Sæbergsson, Ásgeir Þór Þórðarson, Björn Sigurðsson, Freyr Bragason, Jón Helgi Bragason og Magnús Magnússon. Kvennaflokkur: Ágústa Þorsteinsdóttir, Dagný Edda Þórisdóttir, Elín Óskarsdóttir, Heiðrún Þorbjörnsdóttir, Ragna Matthíasdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir.
Freyjumótið og AMF World Cup í Las Vegas
Jón Helgi Bragason tryggði sér keppnisrétt á AMF World Cup í Freyjumótinu og fór til Las Vegas.
Jón endaði í 18. sæti og er þetta besti árangur sem við höfum náð hingað til í AMF World Cup.
Í heildina fékk Jón 8420 stig eða 210,5 að meðaltali í fjörutíu leikjum og náði 18. sæti af 78.
Evrópubikarkeppni Landsmeistara í Ísrael
Íslandsmeistararnir Sólveig Guðmundsdóttir og Freyr Bragason kepptu fyrir hönd Íslands í Evrópubikarmóti landsmeistara sem fór fram í Ísrael 1.- 5. september 1999 en Keilusambandið greiddi þar allan kostnað vegna ferðar og gistingar.
Heimsmeistaramótið í Abu Dhabi
Eingöngu var sent karlalið á Heimsmeistaramótið í Abu Dhabi sem stóð sig með ágætum, en þar náðum við þeim frábæra árangri að ná 14. sæti í liðakeppninni af 59 liðum, 25. sæti í þrímenningi, 33. sæti í tvímenningi og 62. sæti í samanlögðu skori einstaklings. Alls tóku 345 keppendur þátt í karlaflokki. Í töflunni hér á eftir er borinn saman árangur einstakra manna við meðaltal í deildarkeppninni hér heima.
Deild- Meðaltal í Heimsmeistaramótinu, 6 leikir í fl.
meðalt. Heild einst. tvím. þrím. liðak.
62 Jón Helgi Bragas., ÍR 192,4 205,08 205,0 199,2 206,7 209,5
135 Björn Sigurðsson, KR 191,4 197,46 191,1 189,3 207,7 201,7
136 Ívar G. Jónasson, KFR 181,3 197,29 184,3 208,2 192,2 204,5
152 Björn Birgisson, KFR 196,1 194,58 184,5 200,5 195,7 195,7
156 Steinþór Jóhannss, KR 192,5 194,25 179,0 208,8 197,8 191,3
162 Freyr Bragason, KFR 198,2 193,46 184,1 191,0 196,5 196,5
Með liðinu voru Valgeir Guðbjartsson, formaður KLÍ og þjálfararnir Mats Wetterberg og Theódóra Ólafsdóttir.
Íslandsmót einstaklinga
Íslandsmóti einstaklinga í keilu lauk í Keilu í Mjódd laugardaginn 20. febrúar með úrslitum í meistaraflokki, en úrslit í 1. flokki voru föstudaginn 19 febrúar. Mótið hófst 10. febrúar og var keppt í tveim flokkum karla, meistaraflokki og 1. flokki, og í einum flokki kvenna, meistaraflokki. Alls tóku 49 keppendur þátt í mótinu, 38 í karlaflokki og 11 í kvennaflokki.
Íslandsmeistarar einstaklinga í keilu 1999 urðu þau Sólveig Guðmundsdóttir og Freyr Bragason bæði frá Keilufélagi Reykjavíkur. Íslandsmeistari í 1. flokki karla varð Höskuldur Höskuldsson frá KR.
Sigurvegarar í einstaka flokkum voru eftirtaldir:
Meistaraflokkur kvenna
1. sæti Sólveig Guðmundsdóttir KFR
2. sæti Elín Óskarsdóttir KFR
3. sæti Ragna Matthíasdóttir KFR
Meistaraflokkur karla
1. sæti Freyr Bragason KFR
2. sæti Jón Helgi Bragason ÍR
3. sæti Jónas Gunnarsson KR
1. flokkur karla
1. sæti Höskuldur Höskuldsson KR
2. sæti Halldór Halldórsson KFR
3. sæti Þorleifur J. Hreiðarsson HK
Íslandsmót para
Mótið var haldið í janúar 1999 og tóku 16 pör þátt í mótinu.
1. sæti Ágústa Þorsteinsdóttir KFR og Björn Birgisson KFR - Íslandsmeistarar para '99
2. sæti Elín Óskarsdóttir KFR og Freyr Bragason KFR
3. sæti Theódóra Ólafsdóttir KFR og Valgeir Guðbjartsson KFR
Íslandsmót deildarliða
Flakkarar urðu Íslandsmeistarar liða kvennaflokki og PLS frá ÍR í karlaflokki.
Úrslit í liðakeppninni urðu eftirfarandi:
1. deild kvenna:
1. sæti Flakkarar KFR Íslandsmeistarar liða
2. sæti Afturgöngurnar KFR
3. sæti Keilusystur KFS
4. sæti Tryggðatröll ÍR
Deildarmeistarar 1. deildar: Flakkarar KFR
1. deild karla:
1. sæti PLS ÍR Íslandsmeistarar liða
2. sæti Lærlingar KFR
3. sæti Keilulandssveitin ÍR
4. sæti KR a
Deildarmeistarar 1. deildar: PLS ÍR
Úr 1. deild féllu Keiluböðlar KFR (11. sæti) og Keiluvinir Fylkir (12. sæti).
2. deild karla:
1. sæti ÍR a Íslandsmeistarar 2. deildar
2. sæti Þröstur KFR
3. sæti Sveitamenn KFS
Úr 2. deild féllu Keflavík b KEF (11. sæti) og KR b (12. sæti).
3. deild karla:
1. sæti KR c Íslandsmeistarar 3. deildar
2. sæti HK-T
3. sæti Strákarnir KGB
4. sæti Keflavík d
Í 3. deild voru tveir riðlar með 15 liðum alls. Til úrslita kepptu KR c (1. sæti í 3. deild a-riðill)
og Strákarnir KGB (2. sæti í 3. deild a-riðill) og HK-T (1. sæti í 3. deild b-riðill) og Keflavík d
(2. sæti í 3. deild b-riðill).
Bikarkeppni KLÍ
Afturgöngurnar urðu Bikarmeistarar í kvennaflokki og KR a í karlaflokki.
Tvímenningur deildarliða
PLS frá keiludeild ÍR urðu Íslandsmeistarar í tvímenningi deildarliða 1999. PLS fékk 22 stig, Lærlingar frá KFR urðu í 2. sæti með 20 stig og KR-a varð í 3. sæti með 18 stig.
Meistarakeppni KLÍ
Meistarakeppni KLÍ fór fram 2. október en þar kepptu meistaraliðin frá síðasta keppnistímabili, Íslandsmeistarar liða kepptu við Bikarmeistara liða.
Flakkarar og KR a sigruðu og eru Meistarar meistaranna 1999.
Reykjavíkurmót einstaklinga
Freyr Bragason og Sólveig Guðmundsdóttir urðu Reykjavíkurmeistarar einstaklinga 1999.
Tólf ára gamalt Íslandsmet slegið í kvennaflokki
Sólveig Guðmundsdóttir sló tólf ára gamalt Íslandsmet í kvennaflokki þegar hún lék 279 leik í Reykjavíkurmóti para.
Reykjavíkurmót para
Sólveig Guðmundsdóttir og Halldór Ásgeirsson urðu Reykjavíkurmeistarar para 1999.
Solla og Freyr voru valin keilarar ársins 1999
Stjórn Keilusambands Íslands valdi þau Sólveigu Guðmundsdóttur og Frey Bragason keilara ársins 1999
UNGLINGAMÓTIN
Íslandsmót unglingaliða 1998-1999
Íslandsmóti unglingaliða í keilu lauk með úrslitum í Keilusalnum föstudaginn 16. apríl 1999.
Alls tóku 5 lið þátt í mótinu eða 33 unglingar, piltar og stúlkur. Fjögur lið komu frá Keflavík og eitt frá ÍA. Leiknar voru 6 umferðir frá októberbyrjun og eftir það voru spiluð úrslit.
Í úrslitum spilaði Keflavík 1 við ÍA og sigraði ÍA. Keflavík 2 spilaði við Keflavík 4 og sigraði Keflavík 2. ÍA og Keflavík 2 kepptu síðan til úrslita og sigraði Keflavík 2, sem þar með urðu Íslandsmeistararnir. Í leik um 3. sætið kepptu Keflavík 1 við Keflavík 4 og sigraði Keflavík 1.
Meistarakeppni ungmenna 1998-1999
Meistarakeppni ungmenna hófst í október. Leiknar voru 5 umferðir og eru veitt verðlaun fyrir hverja umferð en jafnframt eru gefin stig eftir því í hvaða sæti keppandi lendir. Leikmaður safnar stigum og eftir allar umferðirnar kemur í ljós hver verður „Meistari ungmenna“ í hverjum flokki.
Keppt var í þremur aldurshópum,
1. flokkur: 19 - 20 - 21 - 22 ára (6 leikir)
2. flokkur: 15 - 16 - 17 - 18 ára (6 leikir)
3. flokkur: 11 - 12 - 13 - 14 ára (3 leikir)
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. fl. pilta (1976-1979) 1. fl. stúlkna (1976-1979)
1.sæti Sigfús Ö. Guðmundsson KFR 1.sæti Camilla M. Björnsdóttir Ernir
2.sæti Helgi Þór Þórsson KFR
2. fl. pilta (1980-1983) 2. fl. stúlkna (1980-1983)
1.sæti Hjörvar Ingi Haraldsson KFR 1.sæti Dagný Edda Þórisdóttir KFR
2.sæti Magnús Magnússon KFR 2.sæti Jóna Kr. Þórisdóttir KFR
3.sæti Steinþór G. Jóhannsson KR 3.sæti Súsanna Knútsdóttir KFR
3. fl. pilta (1984-1987) 3. fl. stúlkna (1984-1987)
1.sæti Eiríkur A. Björgvinsson K 1.sæti Íris Dröfn Bjarnadóttir K
2.sæti Ágúst Ingi Brynjarsson K 2.sæti Sigurborg Haraldsdóttir K
3.sæti Atli Þór Annelsson K 3.sæti Erla Lind Gunnarsdóttir K
Íslandsmót unglinga
Íslandsmóti unglinga lauk með úrslitum í Keilu í Mjódd sunnudaginn 31. janúar 1999.
Alls kepptu 36 unglingar í fjórum flokkum pilta og stúlkna.
1. og 2. flokkur lék 18 leiki í forkeppni en 3. og 4.flokkur lék 12 leiki. Í yngsta flokkunum, 4. flokki, réðust úrslit samkv. heildarskori (ekki úrslitakeppni). Í 1.-3. flokki voru spilaðir úrslit þriggja efstu í hverjum flokki, úrslitaleikurinn er tvöfaldur. Keppt var í opnum flokki unglinga strax á eftir úrslitum í Íslandsmóti unglinga.
Úrslit urðu eftirfarandi:
PILTAR:
1. fl. Þórhallur Hálfdánarson KFR
Steinþór G. Jóhannsson KR
Gunnar Einar Annelsson K
2. fl. Magnús Magnússon KFR
Eiríkur Arnar Björgvinsson K
Atli Þór Annelsson K
3. fl. Hafþór Harðarson KFR
Ólafur G. Jónsson K
Felix Felixson KFR
4. fl. Árni Þór Finnsson KFR
Baldvin Örn Ólason KR
Sindri Þór Steingrímsson KR
STÚLKUR:
1. fl. Matthildur Gunnarsdóttir KFR
Jóna Kr. Þórisdóttir KFR
Dagný Edda Þórisdóttir KFR
2. fl. Íris Dröfn Bjarnadóttir K
Sigurborg Haraldsdóttir K
3. fl. Erla Lind Gunnarsdóttir K
Ingibjörg Eva Þórisdóttir KFR
Sóley Bára Betony K
OPINN FLOKKUR - PILTAR
Steinþór G. Jóhannsson KR
Þórhallur Hálfdánarson KFR
Gunnar E. Annelsson K
OPINN FLOKKUR - STÚLKUR
Íris Dröfn Bjarnadóttir K
Sigurborg Haraldsdóttir K
Matthildur Gunnarsdóttir KFR