|
Fréttasafn: Febrúar 2012
Miðvikudagur, 29. Febrúar 2012 kl. 09:49 | SSV
Viltu aðstoða við íslandsmót einstaklinga m/forgj.Kæru keilarar Það væri vel þegið ef einhverjir keilarar gætu séð af nokkrum tímum til að aðstoða við mótið sem fer fram dagana 10-15 mars. Þeir sem hafa áhuga og tíma hafi samband við mótanefnd á motanefnd(hjá)kli.is eða ssv(hjá)kli.is
Mánudagur, 27. Febrúar 2012 kl. 09:35 | SSV
Íslandsmót unglinga
Meira Mánudagur, 20. Febrúar 2012 kl. 13:01 | SSV
Íslandsmót unglinga
Föstudagur, 17. Febrúar 2012 kl. 09:19 | SSV
Íslandsmót einstaklinga m/forgjöf.
Miðvikudagur, 15. Febrúar 2012 kl. 00:08 | ÞI
Íslandsmót einstaklinga
Íslandsmeistarar einstaklinga 2012 eru Karen Rut Sigurðardóttir, ÍR og Hafþór Harðarson, ÍR. Karen bar sigurorð af Mögnu Ýr Hjálmtýsdóttur í úrslitum og Ragna Matthíasdóttir varð þriðja. Hjá körlunum vann Hafþór Róbert Dan Sigurðsson í úrslitum en Steinþór Jóhannsson varð þriðji. Þriðjudagur, 14. Febrúar 2012 kl. 21:50 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÞá eru að hefjast úrslitin á Íslandsmóti einstaklinga. Til úrslita keppa Karen Rut Sigurðardóttir og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir og Hafþór Harðarson og Róbert Dan Sigurðsson. Hér að neðan mun koma úrslitin úr leikjunum um leið og þeim er lokið. Til að hljóta titilinn þá þurfa Karen og Hafþór að vinna tvo leiki en Magna og Róbert þrjá leiki.
Þriðjudagur, 14. Febrúar 2012 kl. 20:12 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÞá eru undanúrslitin hafin. Við getum ekki sett þetta beint á netið en ég mun reyna að uppfæra þessa frétt með stöðunni. Leiknir verða 7 leikir, þ.e. 8 leikmenn allir við alla. Konurnar hafa lokið leik og hér er lokastaðan í undanúrslitunum. Þá hafa karlarnir einnig lokið leik og hér er lokastaðan. Þriðjudagur, 14. Febrúar 2012 kl. 00:49 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÞá er lokið milliriðllinum í Íslandsmóti einstaklinga. Hér er lokastaðan og skorið í kvennaflokk og karlaflokk. Undanúrslitin fara svo fram klukkan 19 í dag og úrslitin strax á eftir. Mánudagur, 13. Febrúar 2012 kl. 21:30 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÞá er lokið forkeppni karla og allir í startholunum að byrja milliriðilinn. Hér er lokastaðan og leikirnir hjá körlunum. Sunnudagur, 12. Febrúar 2012 kl. 14:42 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÍ morgun var leikið seinni hluti forkeppninnar á Íslandsmótinu. Konurnar náðu að ljúka leik en vegna bilunnar náðu karlarnir því ekki. Hér er lokastaðan hjá konum og eftir 8 leiki hjá körlum. Karlarnir ljúka svo forkeppninni kl 19 á morgun og milliriðlarnir hefjast svo að því loknu. Leikir kvenna og karla. Laugardagur, 11. Febrúar 2012 kl. 12:23 | SSV
Íslandsmót einstaklingaFyrri dagur á Íslandsmóti einstaklinga var leikinn í morgun. Hér er staðan, og leikir karla og kvenna. Föstudagur, 10. Febrúar 2012 kl. 12:42 | ÞI
Áskorun til KLÍStjórn KLÍ barst í fyrradag áskorun varðandi olíuburði. Stjórn svaraði í gær en þar sem ekki voru allir þeir sem skrifuðu undir afritaðir í póstinum var ákveðið að birta svar stjórnar einnig hér. Meira Föstudagur, 10. Febrúar 2012 kl. 12:25 | ÞI
Íslandsmót unglingaÍslandsmót unglinga verður haldið seinni hluta febrúar. Nánar hér. Skráning fer fram hjá þjálfurum. Föstudagur, 10. Febrúar 2012 kl. 10:39 | SSV
Íslandsmótið brautarskipan.Fært verður um eitt sett í einu, oddatölur færast niður og heilar tölur færast upp. Meira Fimmtudagur, 9. Febrúar 2012 kl. 22:36 | SSV
Æfing fyrir ÍslandsmótiðHægt verður að æfa í olíuburðinum fyrir Íslandsmót einstaklinga föstudaginn 10/02 frá kl: 17-19 Vegna tímarammans er beðið um að tekið verði tillit á milli þeirra sem taka æfingu, svo allir geti prufað báða olíuburði. Mótanefnd. Miðvikudagur, 8. Febrúar 2012 kl. 19:28 | SSV
Athugið breyttur tími.Við viljum benda þeim keilurum á sem eiga að spila um helgina í Íslandsmóti einstaklinga að mótið byrjar kl. 08:30 en ekki kl. 09:00 Mótanefnd.
Miðvikudagur, 1. Febrúar 2012 kl. 08:45 | SSV
Bikarkeppni liða.Dregið var í undanúrslit hjá körlunum í gær, bikarmeistarar ÍR-KLS komu fyrstir upp úr pottinum og munu þeir annað hvort mæta KFA-ÍA eða KR-A en þeim leik var frestað í 8. liða og verður hann spilaður 2. febrúar á Akranesi . Þriðja liðið úr pottinum var KR-B og munu þeir mæta annað hvort ÍR-PLS eða KFR-Lærlingum en þeim leik var einnig frestað og verður hann spilaður laugardaginn 4. febrúar kl. 15:00, þarna eru spennandi viðureignir í gangi og hvet ég fólk til að mæta og styðja sitt lið. Undanúrslitin verða svo spiluð þriðjudaginn 10. apríl kl. 19:00 og fara allir leikirnir fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. |