|
Fréttasafn: Desember 2011
Laugardagur, 31. Desember 2011 kl. 10:15 | ŢI
Reykjavíkurmót unglingaReykjavíkurmót unglinga var leikið nú í vikunni. Reykjavíkurmeistaratitla hlutu: Stúlkur - 2. flokkur Hafdís Pála Jónsdóttir, 4. flokkur Helga Ósk Freysdóttir og 5. flokk Málfríður Jóna Freysdóttir. Hjá piltunum voru það - 1. flokkur Einar Sigurður Sigurðsson, 2. flokkur Andri Freyr Jónsson, 3. flokk Aleksander Halldórsson, 4 flokk Jökull Jóhann Ársælsson og í 5. flokk Ágúst Stefánsson. Nánar um úrslitin hér. Myndir hér að neðan. Meira Föstudagur, 30. Desember 2011 kl. 20:07 | ŢI
KampavínsmótiðBetra er seint en ekki - Kampavínsmótið er á morgun. Auglýsingin hér. Föstudagur, 30. Desember 2011 kl. 16:33 | HIJ
Hafþór með 300 leikNú rétt í þessu spilaði Hafþór Harðarson sinn 10. fullkomna leik (300) í keppni, hann spilaði í móti sem er viðurkennt af Sænska sambandinu og þurfti að spila 12 leiki, hann spilaði 2890 eða 240 meðaltal. Fimmtudagur, 29. Desember 2011 kl. 15:21 | ŢI
Starfsmaður KLÍTheódóra Ólafsdóttir sem hefur verið starfsmaður KLÍ síðast liðin tvö ár hefur sagt starfi sínu lausu og tekur uppsögnin gildi um áramót. Stjórn KLÍ þakkar henni störf hennar og samstarfið á liðnum árum. Hún hefur samþykkt að sjá um skráningu á skori í janúar á meðan leitað verður nýs starfsmanns. Við munum svo auglýsa eftir áramótin, þannig að ef þið vitið að einhverjum góðum kandídat, endilega látið hann vita. Fimmtudagur, 29. Desember 2011 kl. 13:11 | ŢI
Uppfærsla og viðbæturNokkrar viðbætur hafa verið gerðar á heimasíðunni og tengdum skjölum. Tveir nýir liðir eru komnir inn undir "Upplýsingar" en það eru þinggerðir og aganefnd. Undir þinggerðum eru alla ársskýrslur frá upphafi KLí (utan ein) og nokkrar þinggerðir. Ef einhver á ársskýrslu 1998 væri gaman að fá að afnot af henni. Undir aganefnd er nýlegir úrskurðir aganefndar. Þá er búið að uppfæra listann yfir Íslandsmeistara unglinga. Þá er búið að uppfæra almennar keppnisreglur eftir þing WTBA í haust. Breyting var á reglu 2.7 (Leikið á rangri braut) í þá veru að ef leiknir eru fleiri en fjórir stakir rammar á rangri braut heldur leikurinn áfram án leiðréttingar. Regla 2.10 (Keilukúla - Breyting á yfirborði) var flutt yfir í kaflann um heimsmeistarmót og er nú regla 4.10. Reglan átti víst aldrei heima í almennum keppnisreglum og mun verða ákveðið á næsta þingi KLÍ hvort hún verður áfram. Þá varð ein breyting á reglu 4.22 (Hæg spilamennska) sem sem stjórn ákvað að myndi fara fyrir næsta þing. Sú breyting felur í sér að keilari skal gera þegar settin sitt hvoru megin við hann eru auð og annar leikmaður á sama setti má ekki gera fyrr en leikmaður á settum sitt hvoru megin við er búnir að kasta, nema þeir séu ekki tilbúnir, þannig að keilarar verða að fylgjast með tveim brautum til hvorrar handar. Þetta er eins og leikið er á mótum erlendis, enda í kaflanum um mót sem haldin eru af WTBA. Fimmtudagur, 29. Desember 2011 kl. 12:08 | ŢI
Stigagjöf til keilara ársinsNú er liðið eitt ár síðan KLÍ setti upp stigagjöf til að aðstoða við ákvörðun um keilara ársins. Stjórn hefur ákveðið að skoða skilgreiningar og stigatöflur í þeim tilgangi að gera úrbætur, ef þörf þykir. Áhugasömum er velkomið að senda ábendingar eða tillögur á stjórn - stjorn (hjá) kli.is. Miđvikudagur, 28. Desember 2011 kl. 19:05 | ŢI
Hafþór tilnefndur til Íþróttamanns Reykjavíkur 2011
Okkar frábæri keilari Hafþór Harðarson er einn þeirra ellefu íþróttamanna sem hlotið hafa tilnefningu til Íþróttamanns Reykjavíkur 2011. Miðvikudaginn 4. janúar verður tilkynnt um val á Íþróttamanni Reykjavíkur 2011. Þetta er í 33. sinn sem hann er kjörinn. Veittar verða viðurkenningar til ellefu íþróttamanna í reykvískum félögum fyrir frábæran árangur og mun einn þeirra hljóta útnefninguna. Þeir íþróttamenn sem tilnefndir eru: · Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari frá Ármanni · Ásgeir Sigurgeirsson, skotíþróttamaður frá SR · Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona frá Ægi · Hafþór Harðarson, keilari frá ÍR · Hannes Þór Halldórsson, knattspyrnumaður frá KR · Hrafnhildur Skúladóttir, handknattleikskona frá Val · Jón Margeir Sverrisson, sundmaður frá Fjölni og Ösp · María Guðsteinsdóttir, kraflyftingakona frá Ármanni · Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur frá GR · Ragna Ingólfsdóttir, badmintonkona frá TBR · Þormóður Jónsson, júdómaður frá JR Við óskum Hafþóri innilega til hamingju með árangurinn. Stjórn KLÍ
Ţriđjudagur, 27. Desember 2011 kl. 20:09 | ŢI
Jólaball Keiluhallarinnar
Keiluhöllin býður á jólaball á Rúbín fimmtudaginn 29. desember kl. 17:00 Laugardagur, 24. Desember 2011 kl. 08:26 | ŢI
Jólakveðja
Stjórn Keilusamband Íslands óskar öllum gleðilegrar jólahátíðar og gæfuríks komandi árs. Föstudagur, 23. Desember 2011 kl. 13:42 | HIJ
Flugeldamót ÍRMynni á flugeldamót ÍR 27. 28. 29. og 30. des kl. 19, það þarf bara að spila eina seríu til að vinna (ef menn spila það vel) en hægt er að spila 4 seríur ef menn vilja. skráning er hafin skraning her Miđvikudagur, 21. Desember 2011 kl. 20:29 | ŢI
Unglingalandsliðin valinBúið er að velja þá unglinga sem leika fyrir Íslands hönd á Evrópumóti unglinga U - 18 sem fram fer um páskana. EYC
Piltalið.
Andri Freyr Jónsson
Arnar Davíð Jónsson
Guðmundur Ingi Jónsson
Þórður Örn Reynisson
Stúlkur
Hafdís Pála Jónasdóttir
Katrín Fjóla Bragadóttir.
Einnig er búið að velja fyrir U - 21 sem fram fer í Bankok í júní
Arnar Davíð Jónsson
Einar Sigurður Sigurðsson
Guðlaugur Valgeirsson
Skúli Freyr Sigurðsson
Ţriđjudagur, 20. Desember 2011 kl. 09:49 | TÓL
Jólamót KFR og NettóJólamót KFR og Nettó verður á sínum stað 26. desember kl. 14:00 Enginn skráning bara að mæta vel fyrir kl. 14:00 Sjá nánar í auglýsingu Olíugraf Abby Road. Mánudagur, 19. Desember 2011 kl. 21:10 | TÓL
Þjálfaranámskeið ETBF
Hluti af þátttakendum sem sóttu þjálfaranámskeið ETBF Stig 1
Keilusamband Íslands hélt þjálfaranámskeið sem stóð yfir í 4 daga, þátttakendur voru 15 talsins frá flestum deildum og félögum. Juha Maja frá Finnlandi sá um kennsluna. Föstudagur, 16. Desember 2011 kl. 13:53 | HIJ
Jólamót ÍR og Nettóþá er hið árlega jólamót ÍR og Nettó farið af stað og voru fyrstu 2 riðlarnir leiknir í gær og fóru 2 keilarar yfir 700, staðan eftir 2 riðla er hér staðan eftir 4 riðla er hér lokastaðan er hér Miđvikudagur, 14. Desember 2011 kl. 08:34 | TÓL
Bikarkeppni KLÍBúið er að draga í Bikarkeppni KLÍ 8 liða Kvenna ÍR - TT - KFR Valkyrjur KFR Afturgöngur - ÍR Buff KFR Skutlurnar - ÍR BK KFA ÍA - ÍFH DK Karla KFA ÍA - KR A KR B - KFR Stormsveitin ÍR PLS - KFR Lærlingar ÍR L - KFA ÍA B - ÍR KLS
Mánudagur, 12. Desember 2011 kl. 08:54 | TÓL
Bikarkeppni KLÍ Dregið verður í Bikarkeppni KLÍ 8 liða, í kvöld hjá kvennaliðunum og á morgunn hjá karlaliðunum. Sunnudagur, 11. Desember 2011 kl. 19:57 | TÓL
Keilarar ársins 2011
Stjórn KLÍ hefur valið Dagný Eddu Þórisdóttur og Hafþór Harðarson, sem kvenn- og karlkeilara ársins 2011. Hér er umsögnin sem send er til ÍSÍ. Fimmtudagur, 8. Desember 2011 kl. 09:37 | HIJ
Jólamót ÍR og NettóVegna þjálfaranámsskeiðs dagana 15.-18. des höfum við ákveðið að opna fyrir skráningu á fimmtudeginum 15. des kl. 18 og kl. 19:30 í jólamót ÍR og Nettó, við gerum þetta til að þeir sem eru á námsskeiðinu geti spilað ef þeir vilja því þeir eru uppteknir um þessa helgi og ef einhverjir aðrir eru fjarverandi þessa helgi geta þeir líka keppt þá. Mánudagur, 5. Desember 2011 kl. 22:34 | TÓL
AMF World CupNú hafa Árni Geir og Soffía lokið keppni í AMF World Cup. Árni Geir endaði í 20. sæti með 214.5 í meðaltal. Soffía endaði í 58. sæti með 172.7 í meðaltal. Efstur í karlaflokki er Tommy Jones frá USA með 240.68 Efsta konan er með Aumi Guerra frá Dóminikanska lýðveldinu með 243,15 í meðaltal. Spilað er á morgunn 8 efstu og úrslit. Sunnudagur, 4. Desember 2011 kl. 16:22 | TÓL
Árni Geir komin í topp 24 Árni Geir Ómarsson spilaði í dag á AMF World Cup og tryggði sér sæti í 24 manna úrslitum, hann spilaði 1108 í 5 leikjum. Hann spilar kl 12:00 á hádegi á morgunn ath. Íslenskur tími. Endilega að fylgjast með á heimasíðu mótsinns. Soffia spilar í kvöld kl. 22:15 á Íslenskum tíma. Föstudagur, 2. Desember 2011 kl. 20:59 | TÓL
Reykjavíkurmót unglinga 2011Opna Reykjavíkurmót unglinga verður haldið 28. og 29. desember nk. kl 14:00 báða daganna. Sjá nánar í auglýsingu Föstudagur, 2. Desember 2011 kl. 20:55 | TÓL
AMF World CupNú hafa þau bæði lokið við að spila 10 leiki Árni í 22. sæti með 216.6 í meðaltal og Soffía í 43. sæti með 178 í meðaltal Spennandi að fylgjast með á heimasíðu mótsinns. Föstudagur, 2. Desember 2011 kl. 15:22 | TÓL
AMF World Cup Nú fer fram AMF World Cup í Johannesborg í S.Afríku Árni Geir er búin með 10 leiki og er í 22.sæti meðaltal 216.6 Soffía er að spila núna, endilega farið inná heimasíðu mótsinns og fylgist með. Leikirnir hans Árna
Föstudagur, 2. Desember 2011 kl. 11:49 | HIJ
Jólamót ÍR og NettóHið árlega jólamót ÍR og Nettó verður haldið 17. og 18. des í Keiluhöllinni. sjá nánar í auglýsingu hér skraning hér Fimmtudagur, 1. Desember 2011 kl. 10:39 | TÓL
Hjóna og Paramót KFRNæsta umferð í Hjóna og Paramóti KFR er nk. sunnudag 4. desember kl. 19:00 Fimmtudagur, 1. Desember 2011 kl. 09:48 | TÓL
Landsliðs túneringUm helgina verður landsliðs túnering. Mæting kl. 08:30 Olía 44 fet. Landsliðsþjálfarar. |