|
Fréttasafn: Janúar 2011
Mánudagur, 31. Janúar 2011 kl. 13:24 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaÞar sem olíuvélin er komin í lag byrjar mótið í kvöld klukkan 19:00. Sunnudagur, 30. Janúar 2011 kl. 17:09 | TÓL
Arnar Davíð NoregsmeistariArnar Davíð Jónsson KFR varð í dag Noregsmeistari unglinga í sínum flokk. (classe: eg) Hann spilaði 217 í meðaltal. Sjá nánar hér
Sunnudagur, 30. Janúar 2011 kl. 13:48 | HIJ
Pepsi mótaröðinEkki verður spilað í Pepsi mótinu í kvöld vegna þess að olíuvélin er biluð Sunnudagur, 30. Janúar 2011 kl. 13:17 | TÓL
Ekki spilað í dagEkki verður hægt að spila Riðil 1 í Íslandsmóti einstaklinga í dag. Olíuvélin fer ekki í gang í dag en við reiknum með að viðgerð verði lokið á morgun. Það sem er í stöðunni núna er að allar konur spili kl. 19:00 á morgun og þriðjudag. Karlar úr riðli 1 spili eftir að riðli 2 lýkur á morgun og þriðjudag. Þeir sem ekki sjá sér ekki fært að spila á þessum tímum hafi samband við Sigurbjörn í síma 8495000
Laugardagur, 29. Janúar 2011 kl. 19:38 | TÓL
Olíuvélin enn biluðÞað er útséð að það verður ekki spilað í fyrramálið í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf. Vélin er enn biluð en við erum að gæla við að geta spilað kl. 17:00 og þá seinni hlutann annaðhvort seinna um kvöldið eða eftir að riðill 2 líkur keppni á mánudagskvöld ca. kl. 21:00 Við gerum okkur alveg grein fyrir því að það er ekki víst að allir þeir sem eru skráðir geti spilað á þessum tímum en því miður sjáum við ekki aðra lausn á þessu leiðinda máli.
Laugardagur, 29. Janúar 2011 kl. 11:02 | TÓL
Olíuvélin biluðEkki var hægt að hefja Íslandsmót einstaklinga með forgjöf í morgun vegna bilunar í olíuvélinni. Áformað er að spila tvisvar á morgun kl. 09:30 og aftur kl. 17:00 að því gefnu að vélin verði komin í lag. Miðvikudagur, 26. Janúar 2011 kl. 16:29 | TÓL
Rikke Holm Agerbo sigraði RIGDanska landsliðskonan Rikke Holm Agerbo sigraði með glæsibrag RIG mótið. Sjá nánar úrslit hér Miðvikudagur, 26. Janúar 2011 kl. 12:05 | TÓL
Athugið breyttur tími.Við viljum benda þeim keilurum á sem eiga að spila um helgina í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf að mótið byrjar kl. 09:30 en ekki kl. 09:00 Mótanefnd.
Miðvikudagur, 26. Janúar 2011 kl. 12:00 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöfÞað losnuðu tvö pláss fyrir karla í riðli 2 sem spilar mánudag og þriðjudag. Vinsamlegast hafið samband við Sigurbjörn í síma 8495000 Þriðjudagur, 25. Janúar 2011 kl. 22:56 | TÓL
Bikarkeppni KLÍ 8 liða karla.Dregið var í kvöld í Bikarkeppni KLÍ 8 liða karla. Leikirnir fara fram 15. febrúar. kl. 19:00 KFR Stormsveitin - ÍR - PLS ÍR - KLS - KR - A KFR Lærlingar - KR - B ÍR - L - ÍR - M Mánudagur, 24. Janúar 2011 kl. 23:09 | ÞI
Bikarkeppni KLÍ 8 liða.Dregið var í kvöld í Bikarkeppni KLÍ 8 liða Leikirnir fara fram 15. febrúar kl: 19:00 KFR Valkyrjur - ÍR Buff KFR Afturgöngur - KFA ÍA KFR Skutlurnar - KDK GK ÍR TT - ÍR BK Mánudagur, 24. Janúar 2011 kl. 13:02 | TÓL
Evrópsku fyrirtækjaleikarnir í Hamburg 22. – 26. júní 2011 Dagana 22. - 26. júní 2011 fara Evrópsku fyrirtækjaleikarnir fram í 18. sinn í Hamburg í Þýskalandi. Búist er við um 8.000 keppendum frá yfir 20 löndum. Hægt er að skrá sig til leiks til 31. janúar næstkomandi með því að senda skráningarblað á netfangið registration@ecsghamburg2011.de. Allar upplýsingar um leikana má nálgast á heimasíðu þeirra, http://www.ecsghamburg2011.de. Keppt er í
eftirfarandi íþróttagreinum: Badminton, körfuknattleik, strandblaki, Keilu, Bridge, pílukasti, knattspyrnu, golfi, Handknattleik, Frjálsum, minigolfi, Boccia, Hjólreiðum, skotfimi, skvassi, skák, sundi, siglingum, tennis, borðtennis og blaki.
Laugardagur, 22. Janúar 2011 kl. 14:04 | HIJ
RIGÞá er lokið forkeppninni í RIG og verður leikið í milliriðli á morgun kl. 10. sjá nánar hér Föstudagur, 21. Janúar 2011 kl. 21:58 | HIJ
RIG3. riðillinn í RIG var leikinn í kvöld og komu útlendingarnir fyrst inn núna og voru þeir áberandi og hafa tekið forystuna, það eru 4 spilarar yfir 1300 og er 1 riðill eftir og verður leikinn kl. 09 á morgun(laugardag) Föstudagur, 21. Janúar 2011 kl. 10:45 | ÞI
Keilari ársins 2011Stjórn KLÍ hefur ákveðið að nota stigagjöf til að aðstoða við að ákvarða um keilara ársins 2011. Við höfum sett upp skilgreingar fyrir mótin sem talin verða með og stigatöflur fyrir mótin. Fyrsta mótið sem telur er RIG, þar sem fyrstu 10. sætin gefa stig, og næsta mótið er Íslandsmót einstaklinga, sem haldið verður í mars. Við munum síðan setja upp töflu á heimasíðunni þar sem hægt verður að fylgjast með stigasöfnuninni. Föstudagur, 21. Janúar 2011 kl. 00:32 | HIJ
RIGÞað hefur verið ákveðið að hækka viðmiðið á þeim sem komast í milliriðil, það komast 20 manns áfram úr forkeppninni, þannig að 4 efstu komast beint í Round Robin en sæti 5-20 þurfa að spila 6 leiki og eftir það fara 6 efstu frá þessum leikjum áfram í Round Robin. það er enn laus pláss á laugardag kl. 09:00 Miðvikudagur, 19. Janúar 2011 kl. 19:11 | TÓL
Bikarkeppni KLÍDregið verður í Bikarkeppni KLÍ 8 liða mánudaginn 24. janúar í kvenna og þriðjudaginn 25. janúar í karla. 8 liða úrslit fara síðan fram þriðjudaginn 15. febrúar. Miðvikudagur, 19. Janúar 2011 kl. 10:04 | TÓL
Nýtt ÍslandsmetÍ gærkveldi settu Árni Geir Ómarsson og Arnar Sæbergsson báðir úr ÍR nýtt Íslandsmet þegar þeir spiluðu 2426 í fimm leikjum í tvímenningi. Gamla metið áttu þeir Róbert Dan Sigurðsson og Steinþór Geirdal Jóhannsson 2376 sem sett var 26. apríl 2007 Sunnudagur, 16. Janúar 2011 kl. 13:24 | HIJ
RIG2 riðill í RIG var leikinn í morgun og var betur spilað heldur en í gær og eru nú 7 yfir 200 í meðaltal. Laugardagur, 15. Janúar 2011 kl. 14:27 | HIJ
RIG1 riðill í Reykjavík International Games var leikinn í morgun og enduðu aðeins 2 yfir 200 í meðaltal. Þriðjudagur, 11. Janúar 2011 kl. 15:54 | TÓL
Reykjavik International Games 2011Framundan eru Reykjavíkurleikarnir 2011 Opnunarhátíð 14. janúar Sjá nánar dagskrá leikanna hér Mánudagur, 10. Janúar 2011 kl. 20:17 | ÞI
Íslandsmót einstaklingaSkráning er hafin í Íslandsmót einstaklinga með forgjöf. Skráning er hér. Sjá nánar í auglýsingu. Notaðir verða tveir olíuburðir einn langur og einn stuttur. Útfærslan á mótinu er eftirfarandi: Forkeppni: Mánudagur, 10. Janúar 2011 kl. 15:03 | TÓL
Unglingalandsliðið U-18Landsliðsnefnd hefur valið það lið sem keppir fyrir Íslands Sunnudagur, 9. Janúar 2011 kl. 15:49 | HIJ
RIGRIG mót ÍR fer fram núna á 2 helgum í stað einnar helgar í fyrra, vegleg verðlaun eru fyrir sigur og einnig peningaverðlaun. sjá nánar í auglýsingu hér að neðan olíuburður sá sami og í flugeldamótinu Fimmtudagur, 6. Janúar 2011 kl. 10:09 | TÓL
Frestanir á AkranesiVegna framkvæmda við keilusalinn á Akranesi hefur mótanefnd ákveðið að fresta þeim leikjum sem áttu að fara fram um helgina.
KFA-ÍA-W - KDK-A KFA-ÍA - ÍR-PLS. Leikjunum verður komið á við fyrsta tækifæri.
Miðvikudagur, 5. Janúar 2011 kl. 21:03 | TÓL
Hjóna og Paramót KFR og ÖlgerðarinarNæsta umferð í Hjóna og Paramóti KFR og Ölgerðarinar fer fram n.k sunnudag 9. janúar kl. 19:00 |