|
Fréttasafn: Júlí 2010
Föstudagur, 30. Júlí 2010 kl. 20:10 | HIJ
WYC í Helsinki lokadagurnúna í kvöld ljuku strákarnir sinni keppni og var spilamennskan ekkert spes en Mummi spilaði best. í gær spiluðu strákarnir í stuttu olíunni og í dag löngu, en þeir spiluðu svona: Guðmundur Óli:164-215-210 =589/187-189-180 = 556 = 1145 Jón Ingi:189-158-207 = 554/187-172-165 = 524 = 1078 Skúli:202-169-203 = 574/157-151-194 = 502 = 1076 Þetta er búið að vera áhugavert mót og lærdómsríkt, ég er búinn að setja strákunum fyrir með hvaða æfingar þeir eiga að gera næstu vikur, en nú taka við úrslitaleikir sem við ætlum að skoða á morgun og sunnudag fara svo í lokahófið og koma heim á mðánudag, þessu er hér með lokið hjá okkur. kveðja frá Helsinki Hörður Ingi kveður Miđvikudagur, 28. Júlí 2010 kl. 19:12 | HIJ
WYC í Helsinki dagur 3Í dag spiluðu strákarnir tvímenning í löngum olíuburði og gekk það svona upp og ofan en þannig spiluðu þeir: Jón Ingi:199-185-237-214-206-197 = 1238 Skúli:205-136-193-164-181-167 = 1046 og Guðmundur Óli spilaði með strák frá Kazakstan og er hann rétt orðinn 9 ára(engin prentvilla) Mummi: 202-204-141-154-214-153 = 1068 Það byrjaði mjög vel hjá strákunum í morgun en eftir 1 leik datt Skúli úr kontakt og feikti mjög illa þ.e. hann klippti einar 6 leifar og skildi stakar eftir nokuð sem ég hef ekki séð Skúla gera mikið fyrr, en Jón Ingi spilaði nokkuð jafnt og vel. Mummi byrjaði vel en fékk síðan magapest og þurfti að skerppa frá eftir 3 og 4 leik og það fór eiginlega með hann því hann var alltaf að hugsa um þetta, Mummi kastaði samt mjög vel og hefði undir öðrum kringustæðum spilað töluvert hærra. Á morgun er liðakeppnin og fáum við Belga sem heitir Mats Magg og spilaði hann í dag 1476 í 6 leikjum 743-733 (í seinni seríunni var hann með 189 leik í miðjunni ) það verður því fjör að spila með honum, hann er efstur eftir 12 leiki. meira á morgun kveðja fræa Helsinki Hörður Ingi Mánudagur, 26. Júlí 2010 kl. 20:17 | HIJ
WYC í Helsinki dagur 2þar lauk fyrsta degi og strákarnir hefðu viljað spoila betur en best spilaði Skúli: 210-203-202-192-209ö213 = 1229 Jón Ingi: 158-180-156-214-191-215 = 1114 Guðmundur Óli: 182-162-190-145-178-144 = 1001 Í morgun byrjuðu Jín Ingi og Skúli, Jón Ingi gerði sér miklar vonir og sprengdi hugsununina og ofhugsaði leikinn og eftir 158 leikinn var ekkert sem gekk upp, hann hitti illa var út um alla braut og eftir 3 leiki tókum við okkur tak og ræddum aðeins saman og alt var miklu betra eftir það, Skúli spilaði flotta keilu og við tókum ákvörðun í byrjun um hvar hann mundi spila og gekk það eftir með smá breytingum þegar á leið í leikinn. Guðmundur Óli átti erfitt, etta er hans fyrsta mót með stressi og öllu sem fylgir því en hann var að kasta vel upphafsboltum og hefði átt að skora betur og svo missti hann nokkra staka pinna. Á endanum stóðu strákarnir sig vel og voru fljótir að vinna sig útúr svekkjelsinu. sigurinn í singles var: nr. 1 England nr.2 Ástralía nr.3 -4 Kórea og Canada (ég man ekki hvað strákarnir heita) við í fríi á morgun kveðja frá Helsingi Hörður Ingi Sunnudagur, 25. Júlí 2010 kl. 17:37 | HIJ
wyc í Helsinkiþá er dagur 1 að kvöldi kominn og kláruðu stelpurnar singles í dag og vann Korea, 2 sæti USA og 3-4 Holland og Lettland. Linkurinn fyrir web tv er: www.bambuser.com/channel/wyc2010 það er sýnt frá undan og úrslitum í singles,doubles og liða. við byrjum á morgun og þurfum við að vakna kl. 06:15 í fyrramálið og finnst strákunum það ansi árla en komust að því áðan að Norðmenn vakna alltaf snemma á morgnana og fara út að hlaupa í svona 1/2 tíma og fara svo í morgunmat, þeta gaf mér fína hugmynd um framtíðina... þetta er gott að sinni kv. frá Helsinki Hörður Ingi Laugardagur, 24. Júlí 2010 kl. 18:24 | HIJ
WYC í HelsinkiÍ dag tóku strákarnir æfingu og gekk hún nokkuð vel, það gekk frekar erfilega að finna vasann í fyrstu en þegar hann fannst var allt miklu afslappaðara. Jón og Skúli eiga að byrja að spila á mánudaginn kl. 9 en Mummi kl. 17 (staðartímar), við ætlum að fara í salinn á morgun og horfa á stelpurnar og kanski sjá hvar þær eru að setja boltana á brautina. það er sýnt frá keppninni live á netinu og ég held að linkur sé á heimasíðu mótsins. linkur: www.keilailu.fi/wyc ég fæ uppl. um linkinn fyrir web tv á morgun og skrifa það hér svo að þið getið fylgst með. kv. frá Helsink Hörður Ingi
|