|
Fréttasafn: Júní 2010
Þriðjudagur, 22. Júní 2010 kl. 17:59 | ÞI
Alþjóðlegi Ólympíudagurinn
Alþjóðlegi Ólympíudagurinn verður haldinn hátíðlegur um allan heim þann 23. júní. Þennan dag árið 1894 var Alþjóðaólympíunefndin stofnuð.
Þetta er því sérstakur dagur í sögu íþrótta og er markmiðið að bjóða fólki að koma saman, hreyfa sig, læra nýjar íþróttagreinar og kynnast ólympískum hugsjónum og gildum. Ólympísku gildin eru; að ávallt gera sitt besta, sýna vináttu og virðingu.
Í tilefni dagsins standa ÍSÍ og Ólympíufjölskylda ÍSÍ (Sjóvá, Íslandsbanki, Valitor Visa og Icelandair) að dagskrá sem hefst kl:13.00 í Egilshöll og lýkur við Laugardalslaugina kl:22:00 með Miðnæturhlaupinu.
Dagskráin er fjölbreytt; íþróttaþrautir Fjölnis í Egilshöll, stefnt að því að bæta íslandsmetið (500 manns) í að mynda ólympíuhringina, Ólympíufarar verða á staðnum. Síðan verður hægt að hitta upp fyrir Miðnæturhlaupið í Laugardalnum frá kl:20:00 með því að prófa, hafnarbolta, hjólaskíði, skylmingar og sundknattleik (sýningarleikur). Ólympíudagurinn er ætlaður öllum, óháð íþróttalegri getu. Meginþemu í tengslum við daginn eru þrjú – hreyfing, lærdómur og uppgötvun.
Frekari upplýsingar um dagskrána er að finna á heimasíðu ÍSÍ ww.isi.is
Þriðjudagur, 15. Júní 2010 kl. 12:18 | TÓL
Hafþór í Svíþjóð 24. apríl spilaði Hafþór í undankeppni fyrir SM Ranking(einstaklingskeppni
eins og Íslandsmót) og spilaði hann 1861 í 8 leikjum og var efstur eftir
forkeppnina, síðan unnu Hafþór og felagar í Pergamon sænska titilinn í 4 manna
liðakeppni og Hafþór og Kim Bolleby lentu í 2 sæti í tvímenning. ´Núna um
helgina fór svo fram einstaklingskeppnin og fer sigurvegarinn á
Evrópubikarkeppni einstaklinga, þarna eru spilaðir 6 leikir og svo skorið niður
og svo koll af kolli þar til 2 eru eftir til að spila um sigurinn og að komast á
Evrópubikarinn en til úrslita léku Dennis Eklund og Hafþór Harðarson og sigraði
Dennis í 2 leikjum. Hafþóri langaði að vinna mótið til að sá sem lenti í öðru
sæti færi út... En það var smá vesen með féttakerfið hjá okkur. Frétt fengin á www.ir.is
|