|
Fréttasafn: Desember 2010
Fimmtudagur, 30. Desember 2010 kl. 00:06 | TÓL
JólaballJólaball fyrir lítil börn/barnabörn keilara er haldið á Rúbín fimmtudaginn 30. desember kl. 16:00 - 18:00 Ballið er í boði Keiluhallarinnar. Þeir sem hafa áhuga á að koma hafið samband við Dóru í síma 6619585 eða dora@kli.is Mánudagur, 27. Desember 2010 kl. 20:50 | TÓL
Kampavínsmót KFRKampavínsmótið verður haldið á gamlársdag og byrjar klukkan 11. Opið öllum keilurum og mótið er C-mót. Olíuburðurinn er sami og í jólamótinu - Stone Street. Nánar hér, og síðan eru það úrslitin. Föstudagur, 24. Desember 2010 kl. 11:27 | TÓL
Gleðleg jól Keilusamband Ísland óskar keilurum nær og fjær, sem og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. Fimmtudagur, 23. Desember 2010 kl. 13:15 | ŢI
Keilufólk ársins 2010Keilusamband Íslands hefur valið eftirfarandi aðila sem Íþróttamann og Íþróttakonu ársins í keilu árið 2010. Þau munu svo taka við viðurkenningum frá ÍSÍ, þann 5. janúar 2011. Kvenn keilari ársins: Dagný Edda Þórisdóttir, Keilufélagi Reykjavíkur. Dagný hefur lagt stund á keilu í 18 ár og leikið bæði með unglingalandsliði og kvennalandsliði Íslands. Á árinu varð hún Íslandsmeistari einstaklinga og lék einngi fyrir Íslands hönd á Evrópumóti landsmeistara. Laugardagur, 18. Desember 2010 kl. 17:51 | TÓL
Jólamót KFR og NettóJólamót KFR og Nettó verður að venju haldið á annan í jólum. Nánar hér. Olíuburður: STONE STREET Úrslit hér. Föstudagur, 17. Desember 2010 kl. 08:45 | TÓL
Reykjavíkurmót unglingaÍ gærkveldi lauk Reykjavíkurmóti unglinga. Mikil og góð þátttaka var í mótinu. Reykjavíkurmeistarar urðu. Piltar 1. flokk pilta Guðlaugur Valgeirsson KFR 2. flokk pilta Daníel Gottskálksson ÍR 3. flokk pilta Þórður Örn Reynisson KFR 4. flokk pilta Samúel Jói Björgvinsson KFR Stúlkur 2. flokk stúlkna Hafdís Pála Jónasdóttir KFR 3. flokk stúlkna Katrín Fjóla Bragadóttir ÍR 4. flokk stúlkna Joanna Walicka KFR 5. flokkur pilta og stúlkna allir fengu viðurkenningu. Nánar um úrslit hér Meira Miđvikudagur, 15. Desember 2010 kl. 20:45 | ŢI
Reykjavíkurmót unglingaÍ dag var fyrri dagurinn á Reykjavíkurmóti unglinga, alls taka 28 unglingar þátt í mótinu. Staðan í mótinu er hér. Miđvikudagur, 15. Desember 2010 kl. 14:18 | HIJ
Flugeldamót ÍRFlugeldamót ÍR verður á milli jóla og nýárs, skráning hafin. Miđvikudagur, 15. Desember 2010 kl. 14:15 | HIJ
Jólamót ÍR og NettóLeikið verður á laugardaginn 18.12 seinni 2 riðlana sem voru frestaðir s.l. sunnudag og er brautarskipan hér að neða Mánudagur, 13. Desember 2010 kl. 14:00 | ŢI
OlíuvélinOlíuvélin er kominn í gang og verður því leikið í deilunum í kvöld. Sunnudagur, 12. Desember 2010 kl. 16:17 | ŢI
Olíuvélin í ÖskjuhlíðEins og fram hefur komið hér á síðunni kom upp bilun í olíuvélinni í Keiluhöllinni. Panta þarf varahlut að utan, en einnig á að reyna að fá gert við bilaða hlutinn á morgunn. Við biðjum ykkur því að fylgjast með á síðunni, því ef ekki tekst að lagfæra vélina verður ekki leikið í deildunum annað kvöld. Sunnudagur, 12. Desember 2010 kl. 16:12 | ŢI
Jólamót ÍR og NettóMótið verður ekki leikið í kvöld, þar sem ekki hefur tekist að gera við olíuvélina. Riðlarnir sem áttu að leika í morgunn leika á laugardagsmorguninn 18. desember kl 09:00 og 10:30. Skráningarnar frá því í morgunn gilda á laugardaginn. Þeir sem ekki geta leikið á laugardaginn eru beðnir að hafa samband við Þórarinn (thorarinn@ir.is - GSM 820-6404) eða Reyni (reynirth@postur.is - GSM 825-1213). Sunnudagur, 12. Desember 2010 kl. 13:13 | ŢI
Jólamót ÍR og NettóFresta þurfi mótinu í morgun vegna bliunar í olíuvél. Það á að reyna að halda mótið í kvöld, kl 18, og verður tilkynnt hér eigi síðar en klukkan fjögur hvort það tekst. Laugardagur, 11. Desember 2010 kl. 17:33 | ŢI
Jólamót ÍR og NettóHér er staðan í Jólamóti ÍR og Nettó. Fimmtudagur, 2. Desember 2010 kl. 13:04 | HIJ
Jólamót ÍR og NettóHið árlega Jólamót ÍR og Nettó verður í Keiluhöllinni 11. og 12. desember, veglegt happadrætti verður að sjálfsögðu einnig til staðar. sjá nánar um mótið hér fyrir neðan. Miđvikudagur, 1. Desember 2010 kl. 13:11 | TÓL
Reykjavíkurmót Unglinga 2010Reykjavíkurmót unglinga verður haldið 15. og 16. desember n.k. kl. 17:00 báða daganna. Leikið skal í eftirtöldum flokkum: 1. flokkur 17 - 18 ára 2. flokkur 15 - 16 ára 3. flokkur 13 - 14 ára 4. flokkur. 11 - 12 ára 5. flokkur – 10 ára
|