|
Fréttasafn: Janúar 2010
Laugardagur, 30. Janúar 2010 kl. 14:27 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf.Staðan í forkeppni. Laugardagur, 30. Janúar 2010 kl. 10:26 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöfBrautaskipan riðill 2 Mánudaginn 1. febrúar kl. 19:00 Föstudagur, 29. Janúar 2010 kl. 13:07 | TÓL
Skráningar frestur.Mótanefnd hefur ákveðið að framlengja skráningu til kl. 20:00 í kvöld föstudaginn 29. janúar. Það er orðið fullt í riðil 1 en þrjú pláss eftir í riðill 2 Þeir sem hafa áhuga hafi samband við mótanefnd. motanefnd@kli.is Fimmtudagur, 28. Janúar 2010 kl. 11:52 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf.Brautaskipan, riðill 1 laugardaginn 30. jan. kl. 09:00 Mánudagur, 25. Janúar 2010 kl. 22:47 | TÓL
Íslandsmet Linda Magnúsdóttir í ÍR- TT setti glæsilegt Íslandsmet í tveimur leikjum í kvöld þegar hún spilaði 258 - 256 samtals 514. Hún endaði síðan með 717 í seríu.
Mánudagur, 25. Janúar 2010 kl. 16:32 | TÓL
Olíugraf í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf.Tækninefnd hefur ákveðið þann olíuburð sem notaður verður í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf. Olíugraf hér. Mánudagur, 25. Janúar 2010 kl. 12:00 | TÓL
KarlalandsliðiðLandsliðsnefnd hefur valið eftirtalda leikmenn til að leika fyrir Íslands hönd á HM sem fram fer í München í Þýskalandi 11. til 22. ágúst n.k. Arnar Sæbergsson ÍR Árni Geir Ómarsson ÍR Hafþór Harðarsson ÍR Jón Ingi Ragnarsson KFR Magnús Magnússon ÍR Róbert Dan Sigurðsson ÍR og til vara Stefán Claessen ÍR Laugardagur, 23. Janúar 2010 kl. 16:00 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf
Minnum á að skráningu lýkur miðvikudaginn 27. Nánar í auglýsingu hér Föstudagur, 22. Janúar 2010 kl. 19:51 | TÓL
LandsliðsfréttirLandsliðsnefnd hefur ákveðið að senda ekki kvennalið á Evrópumeistaramót sem haldið er í Riga Lettlandi í júní. Einnig hefur verið ákveðið að tilkynna karlaliðið sem valið hefur verið til þátttöku á HM sem fram fer í München í ágúst hér á heimasíðu KLÍ á mánudaginn 25. janúar kl 12.00. Stefnt er að því að senda á HM U - 21 árs sem fram fer í Helsinki í júlí. Ekki liggja fyrir neinar ákvarðanir varðandi þátttakendur ennþá. Landsliðsnefnd.
Miðvikudagur, 20. Janúar 2010 kl. 14:55 | TÓL
Meistarakeppni Ungmenna3. umf. í Meistarakeppni Ungmenna fer fram n.k. laugardag 23. janúar. 1.2.og 3. flokkur leikur sína leiki í Keiluhöllini en 4. flokkur á Akranesi. Það verða ekki lausar brautir til æfinga á laugardag. Mánudagur, 18. Janúar 2010 kl. 10:17 | HIJ
RIG10 efstu í RIG (ljósmynd:Arnar Ólafsson) það er hægt að nálgast öll úrslit á www.irsida.is
Laugardagur, 16. Janúar 2010 kl. 22:09 | HIJ
RIGNú er ljóst hverjir komast áfram í RIG mótinu en 20 komast áfram, 16 (5-20) spila á morgun kl. 10, þeir spila 6 leiki og 6 efstu halda áfram og koma þá þeir 4 efstu eftir forkeppnina inní og spila round robin. Föstudagur, 15. Janúar 2010 kl. 21:58 | HIJ
Reykjavík International GamesÍ kvöld var 2 riðill leikinn og komu nokkrir hörku leikir og Mattías Möller gerði harða hríð að fyrsta sæti en tókst ekki alveg. Föstudagur, 15. Janúar 2010 kl. 11:25 | HIJ
Reykjavík International Games1. riðill í RIG mótinu var leikinn í gær og var hörku spilamennska á sumum spilurum, aðrir voru að þreifa fyrir sig og ætla að gera eflaust betur í kvöld. Laugardagur, 9. Janúar 2010 kl. 16:52 | TÓL
Eftirlitsdómarar.Keilusamband Íslands mun nú í n.k. umferðum Íslandsmóts liða vera með eftirlit á klæðnaði liða. Stjórn KLÍ .
18. grein Búningar Allir leikmenn liðs skulu vera í keppnistreyjum af sama lit og sömu tegund. Karlar skulu vera í síðbuxum af sama lit, en konur mega vera í síðbuxum, pilsum eða stuttbuxnadressi af sama lit. Dómari skal veita hverjum þeim leikmanni áminningu sem ekki fylgir þessu ákvæði. Í A-mótum, sem og öllum mótum sem sjónvarpað er frá, er óheimilt að leika í gallabuxum. Sé einhver þannig klæddur að ósæmilegt megi teljast, getur mótstjóri/dómari bannað honum að keppa, nema ráðin sé bót á því. Miðvikudagur, 6. Janúar 2010 kl. 23:22 | HIJ
RIGRIG mótið verður haldið helgina 14.-17. jan 2010, það verða nokkrir frægir erlendir leikmenn sem spila á mótinu svo það er upplagt að spila við þá og læra af þeim bestu. Miðvikudagur, 6. Janúar 2010 kl. 18:19 | ÞI
Hjónamót KFRFremur fátt var í fyrsta hjónamóti ársins og fengu 2/3 þátttakenda verðlaun. Án forgjafar voru Freyr og Dóra í fyrsta sæti (ekki slæmt eftir 5 ára fjarveru úr mótinu), í öðru sæti Berglind og Sigurbjörn og Unnur og Valgeir í því þriðja. Með forgjöf voru Soffía og Bjarki í fyrsta, Anna og Atli í öðru og Dóra og Tóti í þriðja. Meira Þriðjudagur, 5. Janúar 2010 kl. 22:39 | TÓL
300 leikur.Magnús Magnússon ÍR - KLS spilaði sinn fjórða 300 leik þegar KLS lék á móti KFR Stormsveitinni nú í kvöld. Laugardagur, 2. Janúar 2010 kl. 21:20 | TÓL
Hjónamót KFRKFR vill minna á 4. umferð hjónamótsins sem fer fram sunnudaginn 3. janúar kl. 20:00. Föstudagur, 1. Janúar 2010 kl. 21:28 | TÓL
NýárskveðjaKeilusamband Íslands óskar keilurum og öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs og þökkum árið sem var að líða. Föstudagur, 1. Janúar 2010 kl. 20:25 | TÓL
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf.Minnum á að skráningu lýkur miðvikudaginn 27. Nánar í auglýsingu hér |