|
Fréttasafn: September 2009
Miđvikudagur, 30. September 2009 kl. 10:31 | HIJ
DeildarbikarÞá er keilan byrjuð á þessum vetri og er staðan eftir 1 umferð í deildarbikar hér Sunnudagur, 27. September 2009 kl. 14:58 | HIJ
Deildarbikar riðlaskiptingKomin er út dagsskrá og brautarskipting í Deildarbikarnum og er hún hér. Sunnudagur, 27. September 2009 kl. 10:49 | HIJ
Evrópukeppni landsmeistara
Okkar fólk kláraði sinn leik í gær, Lísa endaði eins og fyrr er sagt í 24 sæti með 191 í meðaltal og Steini endaði í 15 sæti með 215 í meðaltal, nokkur rómur er um að mótið spilist með hærra skori en hefur sést í langann tíma, en tæknimenn vilja þakka það því að húsið er með þeim betri sem þeir hafa tekið út lengi, muna reyndar bara eftir 2 húsum sem hafa verið með jafnari og flatari brautir; Tali í Helsinki og húsið sem Evrópumót unglinga var haldið í árið 2007 – einnig í Grikklandi (Thessaloniki). Með bestu kveðju frá Krít, Valgeir Laugardagur, 26. September 2009 kl. 14:12 | HIJ
Evrópukeppni landsmeistara
Í dag lauk leik hjá bæði Lísu og Steina á Evrópumótinu, Lísa byrjaði í morgun og náði 1518 í blandaða olíuburðinum ( stutt hægra megin og löng vinstra megin) eða 189,5 í meðaltal, samtals lauk hún leik á 191 í meðaltal og í 24. Sæti. Með bestu kveðju frá Krít, Valgeir, Lísa og Steini. Laugardagur, 26. September 2009 kl. 12:16 | ŢI
Evrópukeppni landsmeistaraSteinþór byrjar daginn vel - fyrsti leikur 300. Frekari fréttir að leik loknum. Laugardagur, 26. September 2009 kl. 00:24 | HIJ
TæknimálTækninefnd kom saman á fundi í gær(miðvikudag) og ákvað eftirfarandi: Allar deildir verða spilaðar í sama olíuburð 1DKK, 1DKVK og 2DKK
Tímabilið verður þrískipt fram að úrslitakeppni og miðað verður við umferðirnar hjá konunum. Þ.e.a.s. eftir hverja umferð hjá konunum verður skipt um olíuburð í húsinu.
Miðað verður við dagsetningar í dagskrá en ekki lok umferða ef að leikjum verður frestað.
Oliuburðirnir verða allir úr challenge seríunni frá Kegel. Þ.e.a.s. þeir eru ekki of erfiðir eða of léttir
Í fyrsta þriðjung verður spilað í Route 66
Í öðrum þriðjung verður spilað í Broadway
Í síðasta þriðjung verður spilað í Beaten path
Í úrslitakeppni fær heimaliðið að velja einn af þremur ofangreindum olíuburðum sem að búið er að spila í um veturinn.
Í deildarbikar verður spilað Middle road
Í íslandsmótum verða valdir olíuburðir úr PBA seríunni eða Sport seríunni frá Kegel (tilkynnt í október)
Stefnt er að því að unglingamótin muni fylgja deildarolíuburðinum nema að aðrar óskir komi frá unglinganefnd
Arnar Sæbergsson mun áfram starfa sem tengiliður tækninefndar við keiluhöllina og munu allar óskir tækninefndar fara í gegn um hann.
Föstudagur, 25. September 2009 kl. 09:43 | HIJ
Evrópukeppni landsmeistara
Í gær lauk degi 2 í keppni hjá Lísu , keppt var í löngum olíuburði og gekk Lísu illa. Endaði með 1412 í skor eða 176,5 í meðaltal. Núna áðan lauk Steini sínum leikjum í löngu olíunni og gekk illa, var í basli og fékk ekki nema 1640 eða 205 í meðaltal, reyndar voru allir nema einn í riðlinum að spila illa… Með bestu kveðju frá Krít. Miđvikudagur, 23. September 2009 kl. 21:20 | HIJ
Evrópukeppni landsmeistara
Þá hafa bæði Lísa og Steini lokið leik í stuttu olíunni, Lísu gekk mjög vel spilaði 1652 eða 206,5 í meðaltal og er í 15 sæti af 37 keppendum. Steini spilaði 1699 eða 212,38 í meðaltal og var ósáttur – er í 7 sæti af þeim 18 sem hafa lokið 8 leikjum, aðrir 18 leika sína 8 leiki í stuttu olíunni í fyrramálið. Lísa leikur síðan sína 8 leiki í löngu olíunni seinni partinn á morgun en Steini á frí. Bestu kveðjur frá Krít. Valgeir Ţriđjudagur, 22. September 2009 kl. 13:02 | HIJ
Evrópukeppni landsmeistara
Í dag var "official practice" og gekk vel hjá Lísu og Steina. Hótelið og keilusalurinn eru mjög flott en þau eru í frekar mikilli einangrun á hótelinu því það er ekki gsm eða tölvusamband á herbergjum en annars láta þau(öll 3) vel að öllu og senda góðar kveðjur heim. hér getið þið farið inn á heimasíðu mótsinsSunnudagur, 20. September 2009 kl. 14:03 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf
Nú er lokið Reykjavíkurmóti einstaklinga með forgjöf og urðu Halldóra Íris Ingvarsdóttir (ÍR) og Andrés Haukur Hreinsson (KDK) Reykjavíkurmeistarar með forgjöf. lokastaðan eftir forkeppni Laugardagur, 19. September 2009 kl. 16:04 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöfNúna í morgun voru leiknir 6 leikir í Reykjavíkurmótinu og verða 3 leikir leiknir í fyrramálið og úrslitin þar á eftir. staðan eftir 6 leiki er hér Ţriđjudagur, 15. September 2009 kl. 11:24 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöfReykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf verður haldið helgina 19. og 20. sept. Skráning hefur verið sett upp á netinu. Forgjöfin er 80% af 200 í báðar áttir þ.e. að sá aðili sem er með yfir 200 í meðaltal fær mínus forgjöf. Skráningu lýkur fimmtudaginn 17.09. kl. 21:00 auglýsing um mótið er hér skráning Mánudagur, 14. September 2009 kl. 11:26 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklingaÍ gær lauk Reykjavíkurmóti einstaklinga og var spilamennskan í þessu móti upp og ofan, það sást kanski best á mótinu að þetta er fyrsta mót vetrarins og keilarar frekar riðgaðir en áttu margir hverjir fína spretti. Úrslit urðu þau að Reykjavíkurmeistarar einstaklinga eru Sigfríður Sigurðardóttir(KFR) og Arnar Sæbergsson(ÍR). lokastaðan: nánar um úrslitin hér
Laugardagur, 12. September 2009 kl. 16:44 | HIJ
Deildarbikar riðlaskiptingÍ morgun var dregið í riðla í deildarbikar liða og verður 1 umferð spiluð 28. sept. Hér getið þið séð riðlaskiptinguna. Laugardagur, 12. September 2009 kl. 14:02 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklingaReykjavíkurmótið hófst í morgun með 6 leikjum og var spilamennskan ansi brokkgeng hjá sumum spilurum og sést best á þessu að þetta er fyrsta mót vetrarins. staðan hjá konum staðan hjá körlum á morgun verða leiknir 3 leikir og komast 4 efstu í úrslit eftir þessa 9 leiki Ţriđjudagur, 8. September 2009 kl. 17:34 | HIJ
UtandeildinNúna er tilbúin auglýsingin fyrir utandeildina og nú er um að gera að mynda hópa og skrá sig í skemmtilaga keppni. sjá auglýsingu Mánudagur, 7. September 2009 kl. 13:09 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöfReykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf verður haldið helgina 19. og 20. sept. Skráning verður sett upp á netinu eftir að skráningu lýkur í Reykjavíkurmóti einstaklinga á fimmtudaginn 10.09.09. Skráningu lýkur fimmtudaginn 17.09. kl. 21:00 auglýsing um mótið er hér skráning Föstudagur, 4. September 2009 kl. 11:19 | HIJ
Keilumót kvennaAlþjóðamót í keilu kvenna verður haldið í Barcelona núna í Október, fín verðlaun í boði. sjá nánar í auglýsingu hér Fimmtudagur, 3. September 2009 kl. 11:48 | HIJ
Dagsskrá vetrarinsþá er dagsskráin byrjuð að koma á heimasíðuna og verður unnið í henni áfram næstu daga. Deildirnar byrja með Meistarakeppninni 01.okt kl. 19:00 og svo helgina á eftir byrjar deildarkeppnin, annars verður 1d.kv og 2d.ka. á mánudögum og 1d.ka. á þriðjudögum, skagaleikir á sunnudögum Miđvikudagur, 2. September 2009 kl. 13:57 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklingaÞá er keilan hafin og fyrsta mótið verður núna 12 september og er það Reykjavíkurmót einstaklinga, skráning er á netinu og lýkur skráningu fimmtudaginn 10 sept. kl. 21.00 sjá nánar auglýsingu hér skráning hér Þegar verður búið að leika á laugardaginn verður dregið í riðla í deildarbikarnum |