|
Fréttasafn: Júlí 2009
Föstudagur, 31. Júlí 2009 kl. 21:08 | HIJ
WWC í Las Vegas dagur 5Við heilsum úr sólinni, það er alveg á hreinu að veðrið breytist ekkert en spilamennskan breytist í staðinn. Við vorum að ljúka við seinni þrjá í tríos og gekk sæmilega, miðolíuburðurinn refsar ef ekki er hitt nokkuð nákvæmlega og við fengum aðeins að kinnast því í dag. Annars spiluðu stelpurnar svona: Alda: 159-171-202 = 532 Guðný: 170-181-161 = 512 Lísa: 183-184-164 = 531 Á morgun er seinasti dagur okkar í þessari keppni og hefur ferðin verið mjög skemmtileg, keilulega hefði mátt ganga betur suma daga. Kveðjum að sinni Hörður Ingi Las Vegas Föstudagur, 31. Júlí 2009 kl. 01:52 | HIJ
WWC í Las Vegas dagur 4Núna áðan kláruðum við fyrri seríuna í trios og eru batamerki á þessu hjá okkur, Lísa átti í vandræðum með fyrsta leikinn en síðan var allt mikið betra. Alda náði að enda með 12 yfir pari og við leikum seinni seríuna (mið olía) í fyrramálið kl. 9. Við vorum í sólbaði og það er betra að vera í sólinni seinnipartinn þá er bara 34-5 gráður. stelpurnar spiluðu svona: Alda: 217-193-202 = 612 Guðný: 176-195-200 = 571 Lísa: 125-206-170 = 501 byðjum að heilsa öllum Hörður Ingi Las Vegas Fimmtudagur, 30. Júlí 2009 kl. 02:32 | HIJ
WWC í Las Vegas dagur 3þá er nýlokið að spila tvímenninginn og í heildina stóðum við okkur betur en í gær en vorum ekki beint heppin, Alda og Lísa fengu t.d. 3 fellur(samanleagt) í 5 0g 6 leik(já 4 leikjum) en margir boltar hefðu dottið á öðrum dögum. Stelpurnar spiluðu svona: Alda: 202-217-163-217-187-153 = 1139 Guðný: 154-221-236-167-152-185 = 1115 Lísa: 214-191-153-159-188-152 = 1057 Við spilum þrímenning á morgun kl. 13.30(st.timi) í stuttri olíu. kveðja frá öllum í svakalegri sól Hörður Ingi Las Vegas Miđvikudagur, 29. Júlí 2009 kl. 05:53 | HIJ
WWC í Las Vegas dagur 2Við heilsum frá Vegas, keppnin hófst í dag og áttu stelpurnar misjafnan dag, Guðný átti góðan dag, Alda sæmilegan og Lísa átti ekki góðan dag. Veðrið er samt alveg eins og það hitnar bara frekar en að kólna!!!!! Annars er allt gott og tóku stelpurnar þessu eins og stórar stelpur og ætla að vinna með þennan dag sem nesti inn í næsta dag sem er tvímenningur á morgun. stelpurnar spiluðu svona: Alda: 214-168-185-179-158-172 = 1076 Lísa: 190-134-161-155-148-175 = 962 Guðný: 235-204-199-189-163-185 = 1175 Við látum þessu hér með lokið og kveðjum. Hörður Ingi Las Vegas Mánudagur, 27. Júlí 2009 kl. 22:49 | HIJ
WWC í Las Vegas dagur 1komið þið sæl, við vorum að klára official practice í algjörlega klikkuðum sal, 60 brautir og hefur salurinn verið í notkun í 6 mánuði og verður tekinn niður strax eftir að mótið er búið(svona er nú lífið í henni Ameríku). Æfingin gekk bara nokkuð vel og voru stelpurnar ánægðar. Við erum að fara á opnunar hátíðina núna eftir klukkutíma. Á morgun kl. 13.30 byrjar Alda á einstaklingskeppninni og Guðný og Lísa byrja svo kl. 18.00(staðartími) spilað verður í stuttri olíu,. Á miðvikudaginn verður svo spilaður tvímenningur í mið olíu. Það er enn svaka heitt og varla hægt að vera úti. meira seinna og það byðja allir að heilsa Hörður Ingi Las Vegas Laugardagur, 25. Júlí 2009 kl. 18:55 | HIJ
WWC í Las VegasVið heilsum héðan frá Vegas og það fer mjög vel um okkur hér, við höfum verið að skoða okkur um og versla smá og liggja í sólbaði( það er rosalega heitt). Hótelið er mjög glæsilegt, risaspilavíti, 7 veitingastaðir, 8 bíósalir og 72 brauta keilusalur(þvímiður er ekki kept í honum heldur í 20 km. fjarlægð). Við förum á æfingu í fyrramálið og þá fer þetta nu alveg að byrja. ég mun senda pistil frá mér daglega frá og með þessum degi. það biðja allir að heilsa Hörður Ingi Las Vegas Fimmtudagur, 23. Júlí 2009 kl. 18:55 | ŢI
Heimsmeistaramót kvennaKvennalandsliðið tekur þátt í Heimsmeistarmóti kvenna sem haldið er í Las Vegas, daganna 25. júlí til 3. ágúst og er liðið þannig skipað: Alda Harðardóttir, KFR; Guðný Gunnarsdóttir, ÍR og Sigfríður Sigurðardóttir, KFR. Þjálfari og farastjóri er Hörður Ingi Jóhannsson. Hægt er að fylgjast með gengi þeirra og mótinu á heimsíðu mótsins - http://www.2009wwc.com. ÁFRAM ÍSLAND Mánudagur, 20. Júlí 2009 kl. 17:04 | ŢI
Keila á EurosportVið vorum að fá tilkynninu um að Eurosport 2 muni sýna úrslitin úr móti í Barcelona, sem lauk í gær. Sýnt er klukkan 21:00 (væntanlega að dönskum tíma) í kvöld, mánudaginn 20. júlí. Búist er við að sýnt verði aftur, en ekki eru komnar upplýsingar um hvenær það verður. Laugardagur, 11. Júlí 2009 kl. 12:47 | ŢI
Á landsmótinuÞá er keppni lokið hér á landsmótinu á Akureyri. Alls voru13 keppendur á mótinu. Guðmundur Sigurðsson varð í fyrsta sæti, Róbert Dan í öðru og Guðlaugur í þriðja eftir bráðabana við Freyr. Nú eru Dóra og Hörður byrjuð að leiðbeina áhugasömum keilurum. Meira Mánudagur, 6. Júlí 2009 kl. 19:55 | ŢI
Landsmót UMFÍLandsmót UMFÍ verður haldið á Akureyri um næstu helgi. Í fyrsta sinn verður keila á landsmótinu en hún verður sýningargrein þar. Þetta er í samstarfi við UMFÍ, Keilufélag Akureyrar og keilusalinn á Akureyri. Við verðum að frá 12 til 16 á laugardeginum, byrjum á keppni og síðan verður kennsla. Meira |