|
Fréttasafn: Júní 2009
Föstudagur, 26. Júní 2009 kl. 10:58 | HIJ
Stelpurnar okkar í Barcelonahér má sjá árangur stelpnanna okkar á boðsmóti í Barcelona núna í júní, en í þessu móti voru auk okkar Frakkar og að sjálfsögðu heimaþjóðin Katalónía. Meira Fimmtudagur, 18. Júní 2009 kl. 10:04 | HIJ
Stelpurnar okkar í Barcelonaskoðið myndbrot og viðtöl við stelpurnar okkar í Barcelona, þær stóðu sig mjög vel. sjá nánar hér
Laugardagur, 13. Júní 2009 kl. 09:43 | HIJ
emc 2009 dagur 8nuna adan lauk Hafthor sinni keppni tegar hann spiladi vid Tore Torgersen fra Noregi en Hafthor tapadi 2-1 og voru leikirnir svona. Haffi : 202-243-201 = 646 Tore : 222-184-210 = 616 Haffi var ad kasta vel en var oheppinn med hvad stod tegar boltinn small i vasann og oft stod attan eda nian. Annars var tetta godur arangur hja honum og godur arangur hja lidinu i heild. tetta er a rettri leid hja okkur og vid munum eiga betra mot naest. lokakvedja fra Aalaborg (lokahof i kvold og heim a morgun:) ) Hordur Ingi Föstudagur, 12. Júní 2009 kl. 18:50 | HIJ
EMC 2009 dagur 7
Róbert : Jón Ingi : Stefán : Arnar : Hafþór : Hafþór komst með þessu í topp 24 og spilar hann í fyrramálið í úrsláttakeppni og lendir hann á móti liðsfélaga sínum frá Noregi Tore Torgersen, fyrirkomulagið er þannig að vinna þarf 2 leiki þannig að þetta getur farið í 3 leiki og velur Tore hvaða olía verður notuð í fyrri leiknum, síða hinn olíuburðurinn og ef þarf þriðja leikinn þá aftur sami og í fyrsta leiknum. Fimmtudagur, 11. Júní 2009 kl. 13:16 | HIJ
EMC 2009 dagur 6í morgun var leikið í 5 manna liðakeppni og stóðum við okkur alveg ágætlega en það var spilað í stuttri olíu. Strákarnir léku annars svona: Róbert: 213-171-186 = 570 Jón Ingi : 196-244-168 = 608 Stefán : 172-196-207 = 575 Arnar : 196-193-171 = 560 Hafþór : 215-190-226 = 631 Hafþór er núna 109 pinnum yfir (205 meðaltal), það eru búnir 21 leikur og 3 eftir og við höldum að hann sé í 25 sæti (seinna hollið er að leika núna), 24 komast í úrslit svo hann verður að spila vel á morgun í löngu olíunni. látum þetta vera gott í bili, núna ætlum við að skjótast í bæinn kv. frá Álaborg Hörður Ingi Miđvikudagur, 10. Júní 2009 kl. 21:13 | HIJ
EMC 2009 dagur 5jæja þessi dagur reyndist vera nokkuð spennandi fyrir okkur, fyrst byrjuðu Róbert og Stebbi og gekk ekki sem skildi en kl. 16 byrjuðu hinir þrír og eftir 2 leiki sáum við að við áttum raunhæfan séns á að komast í 4 liða úrslit við þurftum að spila 690 til að ná þessu en við spiluðum 624 og enduðum í 7 sæti sem er bara mjög góður árangur. Það var soldið skrítið að frétta á eftir að fólk var komið á bakvið okkur til að athuga hvort okkur tækist þetta og var að reikna út hvað við þyrftum að gera til að komast inn. annars spiluðu strákarnir svona í dag: Róbert:168-165-181, Stefán: 185-142-207, Jón Ingi: 212-238-167, Addi: 179-210-202, Hafþór: 206-173-255. Hafþór er núna sá eini sem á möguleika á að komast í masterinn en hann er í 27. sæti yfir alla í einstakling, það eru 24 sem komast áfram. Gull í þremenning fengu Svíar, silfur fengu Norðmenn og brons Svíar og Englendingar. Við spilum í liðakeppninni í stuttri olíu á morgun kl. 9 (7 isl) Ţriđjudagur, 9. Júní 2009 kl. 18:53 | HIJ
EMC 2009 dagur 4Jæja þá er dagur 4 búinn og við kláruðum fyrrihlutann af þrímenningi og byrjuðu Jón Ingi, Addi og Hafþór. Jón Ingi átti frábæran dag og spilaði eins og sá sem valdið hefur og gaf þessum stjörnum í salnum ekkert eftir en hann spilaði 190-205-267 = 662, Addi spilaði alveg ágætlega en engan veginn ánægður, eða 178-195-210 og Hafþór spilaði að hans áliti ekki vel eða 186-191-206 = 583 og nú seinnipartinn spiluðu Róbert og Stebbi, Róbert átti alveg afleitan dag hann spilaði 138-196-143 = 477, en Stebbi skilaði góðum degi eða 198-145-257 = 600. Staðan eftir fyrri hlutann (stutta olíu ) Svíar í 1. og 2. sæti, við í 9 sæti Í tvímenning lenntum við í 20. sæti og 64. sæti af 86, en Finnar unnu , Svíar í 2 sæti og Englendingar og Norðmenn í 3 sæti, 3 norðurlandaþjóðir í topp 4 kv. frá Álaborg Hörður Ingi
Mánudagur, 8. Júní 2009 kl. 21:09 | HIJ
EMC 2009 dagur 3Það gekk ekki alveg hreint fyrir sig að komast í salinn í morgun því rútan gat ekki farið af stað vegna bilunnar, okkur fannst að bílstjórinn gæti ekki sett rútuna í gír en tókst þetta allt saman að lokum og töfðumst við um 15 mín og komum í salinn 20 ín áður en við byrjuðum. Stebbi byrjaði í morgun og spilaði nú betur en í stuttu olíunni en hann spilaði 166-181-191-168-168-184 =1058. Róbert og Jón Ingi byrjuðu svo kl. 13.30 og byrjaði Jón Ingi bara nokkuð vel en svo komu erfileikarnir og þingra að spila en hann spilaði 177-201-223-178-160-161 = 1100, en hjá Róbert gekk ekkert upp og hann spilaði 167-139-171-188-199-134 = 998. Á morgun kl. 9 (7isl) spila Jón Ingi, Addi og Hafþór í Þrímenning og Róbert og Stebbi kl. 16. Víð fórum nokkuð flott út að borða í kvöld og gerðum okkur glaðan dag og buðum Adda í mat því hann (kallinn) varð 40 ára í dag, þessi dagur endaði því mjög vel og allir glaðir kv. frá Álaborg Hörður Ingi Sunnudagur, 7. Júní 2009 kl. 21:04 | HIJ
EMC 2009 dagur 2Núna áðan luku Hafþór og Addi tvímenningnum sínum og átti Hafþór ekki góðan dag, hann kastaði illa og fékk þess vegna mikið af glennum en hann spilaði 173-179-212-177-176-206 = 1123 og eftir þessa 12 leiki er hann með 2461. Addi átti betri dag heldur en Hafþór þó hann hafi ekki náð góðum degi, hann spilaði 197-211-203-195-202-171 = 1179 og eftir 12 leiki með 2291. Það varð fljótt þurt og strax í öðrum leik voru menn farnir að spila milli 4 og 5 pílu. í fyrramálið kl. 9(7 ísl) spilar Stebbi og kl. 13.30 Róbert og Jón Ingi kv. frá Álaborg Hörður Ingi Sunnudagur, 7. Júní 2009 kl. 13:21 | HIJ
EMC 2009 dagur 2Morguninn byrjaði á tvímenning og voru Róbert Dan og Jón Ingi í þessu skoti, Róbert byrjaði vel og var a' kasta vel en lenti svo í basli og var frekar erfitt hjá honum eftir fyrsta leikinn, hann spilaði 236-178-185-190-156-193 =1138. Jón Ingi ekki eins vel en fór batnandi fram í 4 leik þá fór að síga á ógæfuna, hann spilaði 160-204-213-171-158-167 =1073. Þessi stuttu olíuburður er bara skít erfiður og sést það best á skori þeirra bestu en nokkrir voru að höndla þetta eins og Hafþór og er hann í 3 sæti eftir stutta olíuburðinn. Núna kl. 6 (4 isl.) hefst langi olíuburðurinn í tvímenning hjá Hafþóri og Adda. meira í kvöld eftir tvímenninginn kv. frá Álaborg Hörður Ingi Laugardagur, 6. Júní 2009 kl. 20:59 | HIJ
EMC 2009 dagur 1Í dag byrjuðum við að spila og Hafþór og Addi byrjuðu, Hafþór spilaði 247-215-237-221-215-203 =1338 sem er mjög gott og er hann í 3ja sæti yfir allt eftir 3 skot. Addi spilaði 180-181-207-189-190-165 =1112 sem er ekki nógu gott og var Addi mjög svekktur með spilamennskuna sérstaklega einfaldar leifar sem hann átti að ná. Stebbi endaði svo núna í kvöld og gekk honum ekki vel og var hund svekktur en hann spilaði 148-161-181-157-189-126 = 962 Róbert Dan og Jón Ingi spila kl. 9 (7 isl.tíma) kv. frá Álaborg Hörður Ingi Föstudagur, 5. Júní 2009 kl. 16:11 | HIJ
EMC 2009Í dag var offical practice og gekk hún nokkuð vel, Addi og Hafþór byrja á morgun kl. 13.30 og Stebbi spilar kl. 18, á sunnudagsmorgun kl. 9 leika svo Róbert og Jón Ingi. Mórallinn í liðinu er mjög góður og vonandi smitar það í spilamennskuna en mannskapurinn er orðinn mjög spenntur að byrja. Núna erum við í smá afslöppun en eftir klukkutíma verður svo opnunar hátíðin með inngöngu með fánann(allir voða spenntir!!!!!!!). Við höfum það gott og hótelið er fínt en allt er mjög dýrt hérna. kveðja frá Aalborg Hörður Ingi Föstudagur, 5. Júní 2009 kl. 10:31 | ÁGÓ
EMC 2009Nú hafa 5 af bestu keilurum Íslands komið sér fyrir í Álaborg og munu þar á næstu dögum keppa á Evrópumeistaramóti landsliða í keilu. Á morgun og sunnudag verður spilaður tvímenningur í stuttum og löngum olíuburði. Þeir sem að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru, Arnar Sæbergsson, Hafþór Harðarson, Jón Ingi Ragnarsson, Róbert Dan Sigurðsson og Stefán Claessen. Þjálfari í ferðinni er Hörður Ingi Jóhansson. Nánar má fylgjast með mótinu á heimasíðu mótsins. Vert er að geta þess að á síðunni er hægt að fylgjast með strákunum í beinni útsendingu þegar að þeir eru að spila. |