|
Fréttasafn: Maí 2009
Föstudagur, 29. Maí 2009 kl. 09:21 | HIJ
Pepsi Max á sunnudagskvöldÁ sunnudaginn 31. mai verður síðasta Pepsi max mót vetrarins og munum við nota miðlungs olíuburð eða 40 fet. Sunnudagur, 24. Maí 2009 kl. 15:24 | HIJ
Pepsi Max í kvöldPepsi Max mót er í kvöld og verður olíuburður 44 fet Laugardagur, 16. Maí 2009 kl. 10:06 | HIJ
Ásgeir Þórðar og Hafþór meistararÁsgeir þórðar og Hafþór Harðar urðu landsmeistarar með liðum sínum í síðustu viku, Geiri Tékkneskur meistari 2 árið í röð og Hafþór Sænskur meistari líka 2 árið í röð (Team Pergamon lið Hafþórs varð Sænskur meistari 7. árið í röð) Laugardagur, 16. Maí 2009 kl. 10:03 | HIJ
Hafþór með 300Hafþór sigraði í vetrarmóti í Gautaborg núna á föstudaginn og spilaði 300 leik í leiðinni. Miðvikudagur, 13. Maí 2009 kl. 21:14 | ÞI
Tillögur til ársþings KLÍÁrsþing KLÍ verður haldið n.k. þriðjudag. Hér eru þær tillögur sem verða lagðar fyrir þingið. Það sem er undirstrikað í rauðu er viðbætur, en það sem flellur út er yfirstrikað. Ég hvet sem flesta að kynna sér tillögurnar og hafa samband við ykkar félög ef þið hafið áhuga að sjá tillögurnar samþykktar eða felldar. Miðvikudagur, 13. Maí 2009 kl. 11:59 | HIJ
Pepsi Max á sunnudagskvöldÞað verður spilað í PEPSI MAX móti á sunnudagskvöld kl. 20:00 og verður spilað í stuttum olíuburði. Mánudagur, 11. Maí 2009 kl. 13:45 | HIJ
KvennalandsliðiðLandsliðsnefnd og landsliðsþjálfari hafa ákveðið að senda 3 konur fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramót landsliða kvenna (W W C) í Lsas Vegas frá 24. júlí til 03. ágúst, þessar konur eru: Alda Harðardóttir KFR, Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Guðný Gunnarsdóttir ÍR Sunnudagur, 10. Maí 2009 kl. 14:29 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningi
Laugardagur, 9. Maí 2009 kl. 23:13 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningiÍ dag lauk forkeppni og milliriðli í Íslandsmóti í tvímenningi og er staða 6 efstu tvímenninga sem leika til úrslita á morgun kl. 09:00 hér Laugardagur, 9. Maí 2009 kl. 16:24 | HIJ
Jón Ingi með 300Í morgun smellti Jón Ingi Ragnarsson ÍR einum 300 leik í ferilsskránna sína. þetta var í 4 leik í Íslandsmóti í tvímenning. Jón Ingi til hamingju. Föstudagur, 8. Maí 2009 kl. 22:34 | HIJ
Æfingaferð til SvíþjóðarUPPSELT er í æfingaferð til Svíþjóðar á vegum ÍR í ágúst. Tekið er núna við pöntunum í bið og skýrist það fyrir lok mai hvort einhverjir detta út. ef viljið senda biðpöntun þá sendið á hud@simnet.is Sunnudagur, 3. Maí 2009 kl. 23:24 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningi
VIÐ VILJUM MYNNA Á : ÍSLANDSMÓTIÐ Í TVÍMENNINGI Skraningarfrestur hefur verið framlengdur til fimmtudagskvölds kl. 22:00 Íslandsmót í tvímenningi verður helgina 9.-10. mai nánar auglýst hér skráning þið þurfið að skrá svona: nafn/nafn
Sunnudagur, 3. Maí 2009 kl. 13:30 | HIJ
Hafþór í 8 sæti á Super SixHafþór Harðarson endaði núna áðan í 8 sæti í Super Six móti í Gautaborg með 222 í meðaltal. 269 þátttakendur voru í mótinu og voru allir sterkustu spilarar Svía með í mótinu nema Robert Andersson sem var að spila á Ítalíu.
Föstudagur, 1. Maí 2009 kl. 17:14 | HIJ
Pepsi Max á sunnudagskvöldPepsi max mót verður á sunnudagskvöld 03.05. kl. 20. Olíuburður verður sá sami og verður notaður í Íslandsmóti tvímenning. Föstudagur, 1. Maí 2009 kl. 12:13 | ÞI
Bikarkeppni liða - konurKFR-Valkyrjur eru bikarmeistarar liða 2009. Leikur KFR-Valkyrja og KFR-Afturgangna fór 3 - 0 fyrir Valkyrjum.
Ég vona að einhverjir hafi haft gaman að fylgjast með þessu á netinu. Föstudagur, 1. Maí 2009 kl. 12:09 | ÞI
Bikarkeppni liða - karlarÍR-PLS eru bikarmeistarar 2009. Þeir unnu ÍR-KLS í bráðabana 185 -173. Jafnt var að lokum fjórða leik 2 - 2.
Ég vona að einhverjir hafi haft gaman að fylgjast með þessu á netinu.
Föstudagur, 1. Maí 2009 kl. 00:47 | HIJ
Íslandsmót liðaÍ kvöld lauk Íslandssmóti liða og Íslandsmeistarar urðu KFR-Valkyrjur og ÍR-PLS. KFR-Valkyrjur unnu KFR-Afturgöngurnar nokkuð sannfærandi en leikur ÍR-PLS og ÍR-KLS varð gríðalega spennandi og vannst í síðasta kasti hjá PLS, en í þeim leik spilaði Steini 279 og skipti það sköpum fyrir PLS. Við óskum báðum þessum liðum til hamingju. Föstudagur, 1. Maí 2009 kl. 00:43 | HIJ
Bikarkeppni liða Á morgun kl. 12,00 verður spilað í bikarkeppninni og er brautarskipan hér:
KFR-Valkyrjur - KFR-Afturgöngurnar. Brautir 5 og 6. ÍR-KLS - ÍR-PLS. Brautir 7 og 8. |