Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Lau, 18. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn
Fréttasafn: Apríl 2009

Fimmtudagur, 30. Apríl 2009 kl. 09:26 | HIJ
Olíuburður í kvöld

í kvöld verður 3 og síðasti leikur um Íslandsmeistaratitilinn í liðakeppni og verður olíuburður svona:

Á 9 og 10 verður Beaten path.: KFR-Valkyrjur - KFR-Afturgöngurnar

 

Á 11 og 12 verður Route 66. : ÍR-PLS - ÍR-KLS

 

 




Miðvikudagur, 29. Apríl 2009 kl. 09:07 | HIJ
ÚRSLITALEIKIR Í DEILD

2 umferð í úrslitakeppninni fór fram í gær og fóru leikar eftirfarandi:

KFR-Afturgöngurnar  -  KFR-Valkyrjur  7:13

ÍR-KLS                        -  ÍR-PLS              7:13

staðan er núna: KFR-Valkyrjur 26 stig  -  KFR-Afturgöngurnar  14 stig

                            ÍR-PLS   18 stig  -  ÍR-KLS  22 stig

það þarf 30,5 stig til að verðaÍslandsmeistari og verða seinustu leikirnir á fimmtudagskvöld kl. 19:00.  það verða hörkuviðureignir í báðum leikjum svo það er gott fyrir alla sem áhuga hafa á keilu að koma í Öskjuhlíð og horfa á flotta keilu.




Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 kl. 21:38 | ÞI
Nýr landsliðsþjálfari

KLÍ hefur ákveðið að ganga til samninga við Hörð Inga Jóhannsson að hann taki að sér þjálfun landsliðanna.  Hans fyrsta verkefni verður Evrópumót karla í Álaborg í byrjun júní.  Við óskum honum velfarnaðar í starfi.




Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 kl. 15:36 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningi

VIÐ VILJUM MYNNA Á :

Íslandsmót í tvímenningi verður helgina 9.-10. mai

nánar auglýst hér

skráning þið þurfið að skrá svona: nafn/nafn

olíuburður




Þriðjudagur, 28. Apríl 2009 kl. 11:57 | HIJ
ÚRSLITALEIKIR Í DEILD

Í gær voru fyrstu leikir í úrslitakeppninni og fóru leikar þannig:

KFR-Valkyrjur  -  KFR-Afturgöngurnar  13:7

ÍR-PLS            -  ÍR-KLS                           5:15

í kvöld verður 2 umferð  og olíuburður verður Route 66 á báðum settum.




Mánudagur, 27. Apríl 2009 kl. 10:35 | HIJ
Olíuburður í kvöld

Hér eru þeir olíuburðir sem heimaliðin hafa valið.

 

 Á 1 og 2 verður  Beaten path.

 Á 5 og 6 verður Route 66.




Mánudagur, 27. Apríl 2009 kl. 09:07 | HIJ
Meistarakeppni Ungmenna

5 og síðasta umferð í Meistaramóti ungmenna ver leikin í gær (sunnudag) og eru úrslitin hér


Meira



Laugardagur, 25. Apríl 2009 kl. 16:44 | HIJ
Brautarskipan í Úrslitum

Mánudagur. 27-04-09.

 KFR-Valkyrjur -  KFR-Afturgöngurnar.    Brautir 1 og 2.

ÍR-PLS  -  ÍR-KLS.                                   Brautir 5 og 6.

 

 Þriðjudagur. 28-04-09.

 ÍR-KLS  -  ÍR-PLS.                                 Brautir 1 og 2.

KFR-Afturgöngurnar - KFR-Valkyrjur.     Brautir 5 og 6. 

 

 Fimmtudagur. 30-04-09.

 KFR-Valkyrjur -  KFR-Afturgöngurnar.    Brautir 9 og 10.

ÍR-PLS  -  ÍR-KLS.                                   Brautir 11 og 12.

 ATH. ATH. ATH.

brautir 3-4 hafa verið bilaðar um stund og þess vegna er ekki notað það sett í úrslitunum.

 




Laugardagur, 25. Apríl 2009 kl. 10:22 | ÞI
Sollumótið 2009

Guðmundur Óli Magnússon sigraði á Sollumótinu sem lauk núna áðan.  Hann vann Arnar Davíð Jónsson í úrslitum 204 - 184.  Áður hafði Arnar Davíð sigrað Jón Inga Ragnarsson 210 - 192. Í fjórða sæti varð Karólína Geirsdóttir og Herdís Gunnarsdóttir í því fimmta.  Lokastaðan úr mótinu hér.




Föstudagur, 24. Apríl 2009 kl. 09:55 | ÞI
Sollumótið 2009

Þá er lokið fyrri degi í Sollumótinu, og seinni hluti spilaður kl 9 í fyrramálið.  32 keppendur eru í mótinu og er staðan hér.  Það má til gamans geta að 5 af 6 efstu í mótinu eru að spila 20 pinnum yfir meðaltali og Guðmundur Óli sem vermir fyrsta sætið er á 40 pinnum yfir meðaltali.




Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 kl. 15:15 | HIJ
ÚRSLITALEIKIR Í DEILD

AFSAKIÐ-AFSAKIÐ, ég hef verið eitthvað ruglaðri heldur en venjulega þegar ég ákvað að úrslitaleikirnir ættu að vera mánudag,þriðjudag og miðvikudag, þetta er EKKI alveg rétt heldur er leikið MÁNUDAG,ÞRIÐJUDAG OG FIMMTUDAG í næstu viku.

Ég biðst forláts á þessum ruglingi

Hörður Ingi




Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 kl. 11:21 | HIJ
Róbert Dan með húsmet á Akranesi

Róbert Dan ÍR-PLS setti húsmet á Skaganum í gær er hann spilaði 298 leik, samkvæmt frétt frá Guðmundi staðarhaldara keilusalarins á hann nú met í 1 leik, 2 leikjum og 3 leikjum.




Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 kl. 09:53 | HIJ
MUNIÐ ÁRSHÁTÍÐ KLÍ 01. MAI

gott myndband  frá Róbert Dan til að mynna okkur á árshátíðina hér




Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 kl. 09:47 | HIJ
Íslandsmót liða

Nú er það ljóst hverjir spila til úrslita á Íslandsmótinu í liðakeppni en það eru:

KFR-Valkyrjur -  KFR-Afturgöngurnar

ÍR-PLS            -  ÍR-KLS

leikirnir verða á mánudag, þriðjudag og fimmtudag(ef þarf) en það þarf 30,5 stig til að verða íslandsmeistari.




Miðvikudagur, 22. Apríl 2009 kl. 09:45 | HIJ
ÍR Íslandsmeistari Unglingaliða

um helgina urðu ÍR Íslandsmeistarar unglingaliða 2009 er þeir sigruðu lið KFR í úrslitum og þurfti oddaleik til að knýja fram sigurvegara.




Þriðjudagur, 21. Apríl 2009 kl. 22:24 | ÞI
Sollumótið 2009

Sollumótið hefst á sumardaginn fyrsta kl 17.  Leiknir eru 4 leikir á fimmtudag og aðrir 4 á laugardag kl 9.  Hér er listi yfir þá sem eru skráðir.  KFR hefur ákveðið að framlengja skráningu til kl 22 annað kvöld (miðvikudag).




Þriðjudagur, 21. Apríl 2009 kl. 08:41 | HIJ
Úrslitakeppnin

Úrslitakeppnin er byrjuð, leikið var í liðakeppni  kvenna og karla í gær og fóru leikar eftirfarandi:

KFR-Valkyrjur - KFR-Skutlurnar   16:4

ÍR-TT  - KFR-Afturgöngurnar        5,5:14,5

ÍR-PLS  -  KFA-ÍA-W    14:6

ÍR-KLS  -  KFR-Lærlingar   14,5:5,5

seinni leikirnir verða í kvöld.




Mánudagur, 20. Apríl 2009 kl. 20:50 | ÞI
Hafþór í Lublijana

Í sambandi við frétt hér á síðunni um árangur Hafþórs Harðarsonar á Evróputúrnum, langar okkur að benda á að þetta er besti árangur sem Íslandingur hefur náð á mótaröðinni.  Við óskum honum hjartanlega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með honum og strákunum í landsliðinu í Álaborg í júní.




Mánudagur, 20. Apríl 2009 kl. 20:18 | ÞI
Hjónamót KFR og Morande

 

Hjóna og parmóti KFR lauk í gærkvöldi, og unnu Bára og Tóti úrslitin sem voru mjög spennandi.  Hér er mynd af pörunum sem léku í úrslitum.  Sjá nánar hér


Meira



Mánudagur, 20. Apríl 2009 kl. 00:16 | HIJ
Addi Sæbergs AMF meistari

Arnar Sæbergsson ÍR varð í dag AMF meistari er hann vann Árna Geir Ómarsson í úrslitum nokkuð sannfærandi.

lokastaða     allir við alla




Sunnudagur, 19. Apríl 2009 kl. 18:36 | HIJ
Hafþór endaði í 2 sæti

Hafþór Harðarson ÍR endaði í 2 sæti á móti í Evrópumótaröðinni í Ljubijana í Slóveníu, en Hafþór spilaði mjög vel í dag og í úrslitaleiknum spilaði hann 234 og 216 en andstæðingur hans 233 og 225 svo Hafþór tapaði einungis með 8 pinnum.

lokastaða




Sunnudagur, 19. Apríl 2009 kl. 13:57 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningi

Íslandsmót í tvímenningi verður helgina 9.-10. mai

nánar auglýst hér

skráning þið þurfið að skrá svona: nafn/nafn




Sunnudagur, 19. Apríl 2009 kl. 13:39 | HIJ
árshátíð KLÍ

gott myndband  frá Róbert Dan til að mynna okkur á árshátíðina hér




Föstudagur, 17. Apríl 2009 kl. 13:12 | HIJ
Sollumótið

ATHUGIÐ - ATHUGIÐ

Sollmótið hefst eftir rúma viku.  Sjá auglýsingu hér.




Föstudagur, 17. Apríl 2009 kl. 13:11 | HIJ
Hjóna og paramót KFR

ATHUGIÐ-ATHUGIÐ

Næsta og síðasta umferð hjónamótsins verður sunnudaginn 19. apríl og hefst kl 18.  Strax að lokinni umferðinni verða leikin úrslit.  Teknar eru þrjár hæstu seríur og fjögur efstu pörin leika til úrslita. 




Föstudagur, 17. Apríl 2009 kl. 09:51 | HIJ
Undanúrslit í deild Brautarskipan

Brautarskipan í undanúrslitum í deildarkeppninni verður sem hér segir:

mánudagur 20. apríl kl. 19:00

KFR-Valkyrjur - KFR-Skutlurnar.   Brautir 1 og 2.

ÍR-TT - KFR-Afturgöngurnar.       Brautir 3 og 4.

 

ÍR-PLS - KFA-ÍA-W.       Brautir 5 og 6.

ÍR-KLS - KFR-Lærlingar.  Brautir 7 og 8.


Meira



Föstudagur, 17. Apríl 2009 kl. 09:25 | HIJ
Undanúrslit í bikar

Undanúrslit í bikarkeppni liða var leikin í gærkveldi fóru leikar þannig að KFR-Valkyrjur og KFR-Afturgöngur unnu sínar viðureignir og eru komnar í úrslit og ÍR-KLS og ÍR-PLS unnu sínar viðureignir og eru einnig komnir í úrslit.  Úrslitaleikurinn verður leikinn 01. mai. kl. 12:00

 




Föstudagur, 17. Apríl 2009 kl. 09:19 | HIJ
AMF world cup 3. umferð

mynni á mótið í kvöld og á morgun, enn er hægt að skrá sig

skráning




Fimmtudagur, 16. Apríl 2009 kl. 16:36 | HIJ
Landsliðsþjálfari hættur

Núna áðan tilkynnti Sigurður Lárusson að hann segði upp sem landsliðsþjálfari í keilu, við þökkum honum fyrir þau störf sem hann innti af hendi.  Æfingar sem voru boðaðar nú um helgina falla niður og mun stjórn KLÍ tilkynna um framhaldið strax eftir helgi.




Miðvikudagur, 15. Apríl 2009 kl. 22:29 | HIJ
Æfingaferð til Svíþjóðar

Keiludeild ÍR ætlar í æfingaferð til Svíþjóðar eins og í fyrra.

sjá nánar í auglýsingu




Miðvikudagur, 15. Apríl 2009 kl. 22:10 | HIJ
Deildarbikar

Í gær var leikið til úrslita í Deildarbikarnum og urðu ÍR-KLS deildarbikarmeistarar.  Annars urðu úrslitin eftirfarandi:

1. ÍR-KLS               12 stig

2. ÍR-PLS                  6 stig

3. KFK-Keiluvinir     4 stig

4. ÍR-L                       2 stig

hæsta leik kvöldsins átti Jón Ingi Ragnarsson 279




Miðvikudagur, 15. Apríl 2009 kl. 17:49 | ÞI
Sollumótið 2009

Sollmótið hefst eftir rúma viku.  Sjá auglýsingu hér.




Laugardagur, 11. Apríl 2009 kl. 13:32 | HIJ
Nóa-Síríus páskamót

Leikið var í morgun í Páskamóti Nóa-Síríus og ÍR, þátttaka var mjög góð.

úrslit eru hér




Föstudagur, 10. Apríl 2009 kl. 08:12 | HIJ
AMF world cup ÚRSLIT

AMF World cup úrslit verða leikin á sunnudag 19.

sjá nánar í auglýsingu hér




Föstudagur, 10. Apríl 2009 kl. 08:09 | HIJ
AMF world cup 3. umferð

3. umferð í AMF-World cup verður leikin næstu helgi.

sjá nánar auglýsingu hér

skráning

Staðan í mótinu er hér

olíugraf




Þriðjudagur, 7. Apríl 2009 kl. 10:34 | HIJ
Nóa-Síríus páskamót

á laugardaginn kl. 10:00 verður Nóa-Síríus páskamót í keilu í Keiluhöllinni.  Mótsfyrirkomulag er að það er flokkaskipt (4 flokkar, sama skipting og í Pepsi Max mótunum á sunnudagskvöldum) og við spilum 3 leiki ( 1 sería) og efsti eftir það vinnur.  Verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki.  Verð í mótið er kr. 1500

nánari uppls. Sigurbjörn s. 849 5000

Það er fullt í mótið




Mánudagur, 6. Apríl 2009 kl. 19:46 | HIJ
Íslandsmót í tvímenningi

Íslandsmótið í tvímenningi verður 9. og 10. mai.  Nánar auglýst síðar




Sunnudagur, 5. Apríl 2009 kl. 14:23 | HIJ
Silla og Addi Sæbergs meistarar

Sigurlaug Jakobsdóttir og Arnar Sæbergsson úr ÍR urðu meistarar í Sjóvá mótinu 2009.  Addi spilaði mjög vel í dag og vann nokkuð örugglega, Silla vann í síðasta ramma og var nokkuð spennandi undir það síðasta, Silla fékk glennu í 10 ramma og Lísa fellu í fyrra skoti og þurfti aðra fellu en fékk 9 svo Silla vann með 2 pinnum.  Róbert Dan lenti í 2 sæti og spilað 299 leik í undanúrslitum.


Meira



Sunnudagur, 5. Apríl 2009 kl. 13:19 | HIJ
Pepsi Max í kvöld

það er pepsi max mót í kvöld




Laugardagur, 4. Apríl 2009 kl. 13:39 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

búið er að draga í 8 manna úrslit í Sjóvá mótinu í karla og kvenna flokki.

spilað verður á morgun kl. 09:00

nánar um dráttinn hér fyrir neðan


Meira



Föstudagur, 3. Apríl 2009 kl. 17:47 | ÞI
Hjónamót KFR

Næsta og síðasta umferð hjónamótsins verður sunnudaginn 19. apríl og hefst kl 18.  Strax að lokinni umferðinni verða leikin úrslit.  Teknar eru þrjár hæstu seríur og fjögur efstu pörin leika til úrslita.  Staðan fyrir síðustu umferð er hér




Föstudagur, 3. Apríl 2009 kl. 14:20 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

16manna úrslit karla verður á morgun laugardag kl. 10:00 og strax á eftir verður dregið í 8 manna úrslit bæði karla og kvenna.  8 manna úrslit í karla og kvenna verður leikin á sunnudag kl. 09:00, strax á eftir undanúrslit og úrslit í kjölfarið.




Föstudagur, 3. Apríl 2009 kl. 11:51 | HIJ
Deildarmeistarar kvenna

KFR-Valkyrjur urðu deildarmeistarar hjá konunum í fyrradag mjög verðskuldað




Fimmtudagur, 2. Apríl 2009 kl. 16:12 | HIJ
Unglingamót

Nýjar dagsetningar hafa verið ákveðnar vegna þeirra unglingamóta sem ekki tókst að klára vegna bilunar á olíuvél.
Íslandsmót unglingaliða             laugardagur       18.04.2009        kl. 9:00  í Öskjuhlíð

Meistarakeppni Ungmenna         sunnudagur       26.04.2009        kl. 9:00  í Öskjuhlíð

 




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 22:48 | HIJ
KFR-Valkyrjur hætta ekki

Fréttin um að Valkyrjur væru að hætta var að sjálfsögðu sett hér á síðuna vegna þess að 1. apríl var í dag, það skal taka fram að fréttin var algjör uppspuni og vona ég að þeir sem trúðu mér fyrirgefi þennan litla hrekk




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 22:46 | HIJ
Bikarkeppni liða

búið er að draga í 4 liða úrslitum í bikarkeppni liða hjá konum og fór dráttur svona:

KFR-Valkyrjur    -    ÍR-TT'

ÍR-KK                 -    KFR-Afturgöngurnar

 




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 12:23 | HIJ
KFR-Valkyrjur hættar

Fyrirliði KFR-Valkyrja sendi meil og tjáði að liðið mundi hætta í keilu vegna eftirfarandi:  Lísa að verða Skólastjóri Lindaskóla og hefði mikið að gera, Dagný ætlaði að helga sig fjölskyldunni og fjölga þar, Magna væri að klára stúdentinn og síðan flytja til Noregs, Bára að fara í ÍR, Dóra og Unnur ætluðu að hætta öllum afskiptum af keilu.

Meilið sagði að best væri að hætta strax og snúa sér að öðru.  þetta er leitt að heyra og verður söknuður í þessu góða liði.




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 09:34 | HIJ
Deildarmeistarar karla

Í gær urðu ÍR-PLS deildarmeistarar í 1.d. ka




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 08:06 | HIJ
Bikarkeppni liða

Dregið var í gær í 4 liða úrslit bikarkeppni liða hjá körlum og lentu þessi lið saman

ÍR-KLS    -    ÍR-L

ÍR-PLS   -    KFR-Þröstur

dregið verður hjá konum í kvöld




Miðvikudagur, 1. Apríl 2009 kl. 00:03 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

Dregið var í 16 manna úrslitum í Sjóvá bikarnum í kvöld, leikið verður á laugardaginn 04.04. kl. 10:00.  þessir drógust saman:

Magnús s. Magnússon -  Björn G. Sigurðsson

Atli Þór Kárason             -  Kristján Þórðarson

Hörður Ingi Jóhannsson  -  Róbert Dan Sigurðsson

Bjarki Gunnarsson         -  Magnús Magnússon

Þórarinn Már Þorbjörnsson   -  Ársæll Björgvinsson

Arnar Sæbergsson   -   Steinþór Geirdal

Einar Már Björnsson    -   Ingi Geir Sveinsson

Magnús Sigurjón Guðmundsson   -   Jón Ingi Ragnarsson