Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Lau, 18. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn
Fréttasafn: Mars 2009

Ţriđjudagur, 31. Mars 2009 kl. 14:48 | HIJ
Olíuvélin margumrædda

Núna rétt í þessu var verið að tilkynna að vélin væri komin í lag og væri búið að prufukeyra hana.

það verður deild í kvöld




Ţriđjudagur, 31. Mars 2009 kl. 14:05 | HIJ
Olíuvélin margumrædda

Núna kl. 14:00 eru engar fréttir aðrar en að það er verið að setja vélina saman og á eftir að prófa hana.  Næstu fréttir kl. 15:00




Ţriđjudagur, 31. Mars 2009 kl. 12:30 | HIJ
1 deild kvenna og 2 deild karla

Ákveðið hefur verið að lokaumferð í 1. deild kv. og 2. deild ka. verður leikin á morgun miðvikudag kl. 19:00 það er að segja að olíuvélin verði komin í lag.

 




Ţriđjudagur, 31. Mars 2009 kl. 12:00 | HIJ
Olíuvélin margumrædda

Núna kl. 12:00 er vélin ekki komin í lag og ekki vitað um framhaldið.  Nánar verður sagt frá hér á vefnum kl. 14:00




Mánudagur, 30. Mars 2009 kl. 17:28 | ŢI
Olíuvélin

Viðgerðin á olíuvélinni dugði ekki og hún bilaði eftir tvær brautir.  UMFERÐINNI Í KVÖLD ER ÞVÍ FRESTAÐ.  Fylgist með kli.is fyrir nýjustu fréttir.




Mánudagur, 30. Mars 2009 kl. 15:28 | ŢI
Olíuvélin

Góðar fréttir - olíuvélin er komin í lag.  Síðasta umferðin í deildunum ætti því að geta farið fram.




Mánudagur, 30. Mars 2009 kl. 10:56 | HIJ
Karlalandsliðið á EM

Karlalandsliðið sem fer á EM í Álaborg í júní hefur verið valið af Sigurði Lárussyni landsliðsþjálfara.   Liðið er  skipað eftirtöldum leikmönnum:

Arnar Sæbergsson            ÍR

Hafþór Harðarson              ÍR  fyrirliði

Jón Ingi Ragnarsson         ÍR

Róbert Dan Sigurðsson    ÍR

Stefán Claessen                ÍR




Sunnudagur, 29. Mars 2009 kl. 11:12 | HIJ
Pepsi Max í kvöld

það verður ekki Pepsi Max mót í kvöld vegna þess að olíuvélin er biluð




Laugardagur, 28. Mars 2009 kl. 22:32 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

þá er það á hreinu að það verða ekki fleiri riðlar í Sjóvá mótinu og verður dregið í 16 manna úrslit á þriðjudagskvöld fyrir lokaumferð í 1. deild.  16 manna úrslit verða leikin n.k. laugardag.




Laugardagur, 28. Mars 2009 kl. 17:21 | HIJ
Sjóvá bikarinn 3 riðill

3. riðill var leikinn í morgun og var spilamennska fín.  Það kemur út tilkynning síðar í kvöld hvort riðill verður á morgun(sunnudag) en það þarf 12 þátttakendur til að riðill verði leikinn.

staðan er hér í karlaflokki

engar konur spiluðu í 3 riðli svo að staðan eftir 2 riðil er hér




Föstudagur, 27. Mars 2009 kl. 20:59 | HIJ
Sjóvá bikarinn 2 riðill

2 riðill var leikinn í kvöld og verður 3 riðill leikinn í fyrramálið (laugardag) kl. 09:00

staðan eftir 2 riðla: karlar

konur




Föstudagur, 27. Mars 2009 kl. 15:54 | HIJ
Dagsetningar í Apríl

Nokkrar dagsetningar sem við viljum mynna á í Apríl sem vert er að taka frá:

14. apríl....úrslit í Deildarbikar

16. apríl....undanúrslit í bikarkeppni liða

20. apríl....undanúrslit í deildarkeppninni 1. Leikur

21. apríl....undanúrslit í deildarkeppninni 2. Leikur

27. apríl....úrslit í deildarkeppninni 1. Leikur

28. apríl....úrslit í deildarkeppninni 2. Leikur

29. apríl....úrslit í deildarkeppninni 3. Leikur (ef þarf)

01. mai.... úrslit í bikarkeppni liða

01. mai..... um kvöldið Árshátíð KLÍ á Rúbin í Öskjuhlíð




Föstudagur, 27. Mars 2009 kl. 15:04 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

Mótsstjórn  keiludeildar ÍR áskilur sér rétt til að aflýsa skotunum á morgun (laugardag) og sunnudag ef ekki nást 12 manns í hvort skot

keiludeild ÍR




Föstudagur, 27. Mars 2009 kl. 08:55 | HIJ
Sjóvá bikarinn 1 riðill

1 riðill í Sjóvá bikarnum var leikin í gær og er staðan karlar hér

konur hér

 




Fimmtudagur, 26. Mars 2009 kl. 09:21 | HIJ
Bikarkeppni liða

8 liða úrslit í bikarkeppninni er lokið í karla en einum leik í kvenna er ólokið sem var frestaður það er  ÍR-KK - KFA-ÍA og verður leikinn í kvöld kl. 19:00. ÍR- KLS spilaði hörku keilu og sáust leikir t.d. hjá Adda Sæbergs 290 og Árna Geir 280, tveir leikir fóru í framleingingu og á Akranesi setti Róbert Dan PLS húsmet er hann spilaði 759, þau lið sem komust áfram eru : KFR-Þröstur, ÍR-L, ÍR-KLS og ÍR-PLS.  Hjá konum fór einn leikur í fjórar viðureignir en hinir tveir í þrjár, þau lið sem eru komin áfram eru: KFR-Valkyrjur, KFR-Afturgöngur og ÍR-TT

nánar á síðunni Bikarkeppni liða




Ţriđjudagur, 24. Mars 2009 kl. 16:46 | HIJ
Meistarakeppni ungmenna

Sunnudaginn 29. mars kl. 09:00 verður leikin 5 og síðasta umferðin í meistarakeppni ungmenna, leikið verður í Keiluhöllinni.




Mánudagur, 23. Mars 2009 kl. 23:38 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

Ákveðið hefur verið að spila Sjóvá bikarkeppnina svona, forkeppni: fimmtudag,föstudag,laugardag og sunnudag.  úrslit næstu helgi þar á eftir.

Nánar auglýst hér

Skráning




Mánudagur, 23. Mars 2009 kl. 23:27 | HIJ
8 liða úrslit bikar

brautarskipan fyrir 8 liða úrslit í bikar

ÍR-L - KFK-Keiluvinir.         Brautir 3 og 4.

 KR-A - ÍR-KLS.                    Brautir 5 og 6.

 ÍR-A - KFR-Þröstur.            Brautir 7 og 8.

 KFR-Afturgöngur - KFK-GK.        Brautir 9 og 10.

 KFR-Valkyrjur - ÍR-BK.                  Brautir 11 og 12.

 ÍR-TT - KFR-Skutlurnar.                Brautir 13 og 14.

KFA-ÍA-B - ÍR-PLS á Akranesi

ÍR-KK - KFA-ÍA  FRESTAÐ

 




Sunnudagur, 22. Mars 2009 kl. 01:16 | HIJ
Pepsi Max í kvöld

Það var að berast að olíuvélin væri komin í lag og verður því pepsi max mót í kvöld (sunnudag) eins og venjulega . 




Laugardagur, 21. Mars 2009 kl. 15:48 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu og Pepsi Max

Á morgun sunnudag verður ekki 2 riðill í Sjóvá né Pepsi Max mót um kvöldið vegna bilaðar olíuvélar.  Samkvæmt samtali við vélarmenn í Keiluhöllinni verður ekki hægt að laga vélina fyrr en í fyrsta lagi á mánudag.  Auglýst verður í byrjun viku um framhald Sjóvár mótsins.

stjórn ÍR




Laugardagur, 21. Mars 2009 kl. 10:29 | HIJ
Frestanir i Öskjuhlíð

Það þurfti að fresta úrslitum í Íslandsmóti unglingaliða og 1. riðli í forkeppni Sjóvá vegna þess að olíuvélin bilaði.

Úrslit í Íslandsmóti unglingaliða verður sett á eftir páska og mun unglinganefndin auglýsa það nánar.

Forkeppni Sjóvá er verra með því það á að vera riðill á morgun og munu ÍR auglýsa hér á síðunni eftir kl. 15:00 í dag hvernig verður með framhaldið




Föstudagur, 20. Mars 2009 kl. 01:13 | HIJ
Íslandsmót unglingaliða

Úrslit í Íslandsmóti unglingaliða fer fram í Keiluhöllinni næsta laugardag kl. 09:00

staðan fyrir úrslit er hér




Fimmtudagur, 19. Mars 2009 kl. 10:21 | HIJ
Aðalfundur keiludeildar ÍR

Aðalfundur keiludeildar ÍR verður miðvikudaginn 25. mars í ÍR heimilinu í Mjódd.

Auglýsing




Ţriđjudagur, 17. Mars 2009 kl. 13:14 | HIJ
Félagakeppnin

Félagakeppninni er lokið með sigri ÍR og í 2. sæti varð KFR og 3. sæti KFA

lokastaða  á myndina vantar Guðnýju Gunnarsdóttur

 


Meira



Ţriđjudagur, 17. Mars 2009 kl. 10:55 | HIJ
Sjóvá bikarinn í keilu

þá er komið að hinni árlegu Sóvá bikarkeppni í keilu.  Olíuburður: Deildarolíuburður sem er í gangi núna.  Þegar þið skráið ykkur, þar sem stendur team setjið kennitölu en ekki félag eða lið.

Auglýsing

Skráning




Föstudagur, 13. Mars 2009 kl. 15:04 | ŢI
Félagakeppni KLÍ

Lokaumferð í félagakeppni KLÍ fer fram á morgun, laugardag, og hefst kl 9.  Stöðuna í keppninni má sjá hér.




Sunnudagur, 8. Mars 2009 kl. 17:55 | HIJ
Meðaltal

Komið er út nýtt meðaltal fyrir febrúar 2009.

meðaltal




Föstudagur, 6. Mars 2009 kl. 13:05 | HIJ
Keppnisskírteini

 

 

Keilusamband Íslands hefur nú gefið út keppnisskírteini líkt og önnur Keilusambönd í nágrannalöndum okkar. Kortunum hefur nú þegar verið dreift til aðildarfélaga KLÍ og munu félögin sjá um dreifingu til sinna félagsmanna.

 

Keppnisskírteinin veita keilurum eftirfarandi fríðindi:

 

Keiluhöllin:     20 % afsláttur í sjoppu og veitingasölu.

Keiluhöllin:     30 % afsláttur af einstökum leikjum.

 

Afsláttur gildir aðeins fyrir þann sem kortið er gefið út á

Keilusamband Íslands hefur nú gefið út keppnisskírteini líkt og önnur Keilusambönd í nágrannalöndum okkar. Kortunum hefur nú þegar verið dreift til aðildarfélaga KLÍ og munu félögin sjá um dreifingu til sinna félagsmanna.
 
Keppnisskírteinin veita keilurum eftirfarandi fríðindi:
Keiluhöllin:  20 % afsláttur í sjoppu og veitingasölu.
Keiluhöllin:  30 % afsláttur af einstökum leikjum.
Afsláttur gildir aðeins fyrir þann sem kortið er gefið út á.

 




Föstudagur, 6. Mars 2009 kl. 10:41 | HIJ
Æfingatímar um helgar

Á laugardögum og sunnudögum byrja æfingar kl. 10:00 og við höfum einnig fækkað brautum.  N.k. laugardag er meistarakeppni ungmenna og eru því fáar brautir til æfinga en allar lausar á sunnudag.




Fimmtudagur, 5. Mars 2009 kl. 13:41 | HIJ
Meistarakeppni Ungmenna

4. umferð í Meistarakeppni ungmenna verður leikin um næstu helgi og lýkur skráningu núna í kvöld kl. 22

auglýsing




Miđvikudagur, 4. Mars 2009 kl. 20:11 | ŢI
Aðalfundur KFR

Aðalfundur Keilufélags Reykjavíkur verður haldinn 18. mars n.k.  Nánar hér.




Miđvikudagur, 4. Mars 2009 kl. 00:29 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga

Íslandsmeistarar 2009

Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Steinþór Geirdal Jóhannsson  ÍR       

maður á mann konur

maður á mann karlar

lokastaða konur

lokastaða karlar


Meira



Mánudagur, 2. Mars 2009 kl. 23:56 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga

Milliriðli í karla og kvenna flokki lauk í kvöld og var um tvísýna keppni að ræða.  Jón Ingi setti einn 279 leik.  Á morgun leika 8 efstu í karla og kvenna Round robin (maður á mann) það verða spilaðir 7 leikir og verða bónusstig í boði fyrir unninn leik þannig að það eru mörg stig í pottinum þannig að allt getur gerst.

endanleg staða úr milliriðli er hér

konur

karlar




Sunnudagur, 1. Mars 2009 kl. 14:29 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga

Nú er forkeppninni lokið í Íslandsmóti einstaklinga lokið og röð efstu manna ljós.  Milliriðill verður leikinn á morgun og verður spennandi að fylgjast með hverjir komast áfram, þetta virðist vera mjög flókinn olíuburður og meiga menn/konur ekki missaboltan neitt of mikið út þá er voðinn vis.  annars er staðan hér

konur

karlar