|
Fréttasafn: Febrúar 2009
Laugardagur, 28. Febrúar 2009 kl. 14:40 | HIJ
Islandsmót einstaklingaÞá er seinni riðillinn byrjaður með 6 leikjum og seinni 6 leikirnir verða á morgun og byrja kl. 09:00 staðan er hér Laugardagur, 28. Febrúar 2009 kl. 13:02 | HIJ
Hafþór með 300Hafþór Harðarson spilaði 300 með liði sínu Pergamon í morgun og 1032 í 4 leikjum
Sunnudagur, 22. Febrúar 2009 kl. 14:03 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga Þá er fyrri riðli lokið og hafa verið spilaðir 12 leikir. Seinni riðillinn verður leikinn næstu helgi. Staða úr fyrri riðli eru hér Laugardagur, 21. Febrúar 2009 kl. 14:26 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga Þá er Íslandsmót einstaklinga farið af stað og er leikið í tveimur hollum, fyrra hollið núna um helgina og seinna hollið næstu helgi. Nú er lokið 6 leikjum af 12 hjá körlum og konum,á morgun verða leiknir seinni 6 leikir. Mánudagur, 16. Febrúar 2009 kl. 22:45 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga án forgjafarÉg vil minna á að lokadagur fyrir skráningu í Íslandsmót án forgjafar er n.k. föstudagur 20.02. kl. 22.00 (ath. lokafrestur hefur verið framlengdur um 2 daga miðað við auglýstan tíma). Setjið í gír og skráið ykkur strax til að forðast biðraðir. Mánudagur, 16. Febrúar 2009 kl. 00:45 | HIJ
Íslandsmót unglinga
Þá er lokið Íslandsmóti unglinga, úrslitin voru leikin í gær (15.feb.2009) og voru leikir skemmtilegir og spennandi. Ástrós Pétursdóttir, ÍR, og Skúli Freyr Sigurðsson, KFA, unnu opna flokkinn. Við óskum öllum vinningshöfum til hamingju með sigurinn (úrslit hér). Meira Fimmtudagur, 12. Febrúar 2009 kl. 16:02 | ÞI
Félagakeppni KLÍÞriðja umferð félagakeppni KLÍ var leikin á þriðjudag. ÍR spilaði afar vel og þá sérstaklega Jón Ingi og Magnús. Meðaltal liðsins var 223,6 en Jón Ingi spilaði 973 í 4 leikjum en Magnús bætti um betur og spilaði 1016 sem er 17 pinnum frá núverandi Íslandsmeti. Arnar Davíð átti mjög gott kvöld og spilaði 879 í 4 leikjum eða 219,7 í meðaltal. KFK sótti í sig veðrið og tók 18 stig sem er helmingi meira en þeir náðu samanlagt úr fyrstu 2 umferðunum. KFA náði einungis í 7 stig þrátt fyrir að vera með þriðja hæsta pinnafallið en spilamennskan gegn þeim var um 200 pinnum hærra en gegn næsta liði sem á eftir kom. Staðan í keppninni er hér. {RÞ}
Miðvikudagur, 11. Febrúar 2009 kl. 17:49 | ÞI
Deildarbikar liðaSíðast umferð í deildarbikar liða var í gærkvöldi og er lokastaðan hér. Úrslitin eru svo 14. apríl n.k. og leika tvö efstu liðin úr hvorum riðli um titilinn. Sunnudagur, 8. Febrúar 2009 kl. 18:28 | ÞI
Íslandsmót unglingaÞá er lokið fyrri helgi í Íslandsmóti unglinga. Staðan í mótinu er hér. Keppni lýkur svo næsta sunnudag í Keiluhöllinni. Sunnudagur, 8. Febrúar 2009 kl. 11:31 | ÞH
Nýtt meðaltalNú hefur verið birt nýtt meðaltal, miðað við þann 31. janúar 2009. Allt sem við kemur meðaltalinu má sjá undir Tölfræði hér til vinstri; heildarlistann má finna undir Meðaltal, og síðan má skoða leiki á bakvið meðaltal einstakra leikmanna og þróun meðaltals þeirra undir Leikmenn. Miðvikudagur, 4. Febrúar 2009 kl. 00:03 | ÞI
Guðrún og Magnús Íslandsmeistarar
Íslandsmóti einsaklinga með forgjöf lauk í kvöld og tiltlana hlutu Guðrún Arnarsdóttir, Keilufélagi Reykjavíkur og Magnús S. Guðmundsson, Keilufélagi Akranes, og er þetta í fyrsta sinn hjá þeim báðum. Meira Mánudagur, 2. Febrúar 2009 kl. 23:51 | ÞI
Íslandsmót einstaklinga með forgjöfÞá er milliriðlinum lokið í mótinu, en á morgun verða leikin undanúrslit - allir við alla, og úrslit strax á eftir. Staðan í mótinu er hér. Sunnudagur, 1. Febrúar 2009 kl. 14:44 | HIJ
Íslandsmót unglingaÍslandsmót unglinga verður háð 7.og 8. feb og 14. og 15. feb. sjá nánar í auglýsingu Sunnudagur, 1. Febrúar 2009 kl. 14:14 | HIJ
Íslandsmót einstaklinga m. forgjöfÞá er forkeppninni í Íslandsmóti með forgjöf lokið og er staða efstu manna hér fyrir neðan |