|
Fréttasafn: Ágúst 2008
Föstudagur, 29. Ágúst 2008 kl. 13:28 | HIJ
Lokakeppnisdagur í Bankok
Þá or okkar þátttöku lokið á þessu heimsmeistaramóti,
Meira Miðvikudagur, 27. Ágúst 2008 kl. 12:43 | HIJ
Dagur 6 í Bankok
Fréttir frá Bankok eru að keppni í 5 manna liða keppninni lauk í dag. Í gær léku strákarnir í langri olíu og spilaðist þannig að Andrés spiæ‘laði 505, Maggi 550, Steini 553, Addi 573, Hafþór 542 og Andrés 548. Addi var sá eini sem sýndi einhvern lit þennan dag. Í dag var spilað í stuttri olíu og var skor eftirfarandi: Andrés 599, Maggi 581, Steini 593, Addi 579, Hafþór 604 og Andrés 597, nú skiluðu allir þokkalegu skori. Okkar besta skor í liðakeppninni var 1125, sem var bara nokkuð gott. Á morgun sila strákarnir í einstakling í langri olíu. Það er mikið talað um olíuburðinn á meðal bestu spilaranna, í gær í 3 leik þurfti að spila alveg upp á 6 pílu og það er ekki auðveltVið ætlum að reyna að komast á markað núna í vikulok og helst að komast á strönd á sunnudag, því við förum ekki fyrr en um nóttina heim.
Ég kveð að sinni
Hörður Ingi
Þriðjudagur, 26. Ágúst 2008 kl. 23:47 | ÞI
Reykjavíkurmótin í keiluNú styttist í Reykjavíkurmótin í keilu. Fyrsta mótið er einstaklingur með forgjöf og er það leikið 6. og 7. september. Búið er að fjölga leikjunum en verðið helst óbreytt. Sjá nánar á auglýsingu um mótið. Meira Mánudagur, 25. Ágúst 2008 kl. 16:07 | HIJ
Dagur 4 í BankokVið heilsum úr Austri. Lokaleikirnir í þriggjamanna liða fóru fram í dag og spilaðist nú misjafnlega eins og gengur, en Andrés spilaði 173-233-149 = 555, Maggi spilaði 203-182-192 = 577 og Addi spilaði 225-193-181 = 599, og í seinna hollinu Árni Geir 186-193-205 = 584, Steini 182-188-183 = 553 og Hafþór 191-213-192 = 597. Eins og sést á þessu var ekki alslæm spilamennska en strákarnir geta mun miklu meira og vonandi hitta þeir á það á morgun í 5 manna liðakeppninni. Okkur líður öllum vel og er mórallinn mjög góður, strákarnir eru ekkert að meiða mig eða hvorn annan. látum þessar litlu uppl. duga að sinni og kveðjum Hörður Ingi Sunnudagur, 24. Ágúst 2008 kl. 16:15 | ÞI
Ágústa Þorsteinsdóttir er látin
Ágústa Þorsteinsdóttir, afrekskona í íþróttum lést á gjörgæsludeild Landspítala Íslands 21. ágúst sl. Útförin fer fram í Áskirju, fimmtudaginn 28. ágúst kl 13:00 Meira Sunnudagur, 24. Ágúst 2008 kl. 13:01 | HIJ
Dagur 3 í BankokJæja þá var leikið í þrímenning í morgun og eftir hádegi. Það gekk á ýmsu í spilamennsku hjá all flestum, en okkar menn spiluðu þannig: Árni Geir 211-201-182 = 594, Steini 172-199-200 = 571 og Hafþór 236-188-190 = 614. Samtalls spiluðu þeir 1779 sem er 197 í meðaltal. Eftir hádegi spiluðu svo Andrés 138-193-159 =490, Maggi 179-168-188 =535 og Addi 178-218-123 =519 samtalls 1544 171,5 í meðaltal. Þetta voru mjög skrítnar aðstæður eftir hádegið. Í öðrum leik voru 2 lið með yfir 600 önnur lið undir. á morgun verður spilað í stuttri olíu í þremenning og vonandi verður skorað meira á morgun, þangað til kveðjum við og um leið sendum við Gaua og fjölskyldu okkar innilegustu samúðarkveðjur vegna fráfalls Ágústu Þorsteinsdóttur. Hörður Ingi Laugardagur, 23. Ágúst 2008 kl. 11:12 | HIJ
Heimsmeistaramótið í BankokDagur 2. Addi og maggi spiluðu í dag og gekk ekki nógu vel, Addi spilaði 199-174-200-158-187-202 = 1120 og Maggi 150-197-192-180-210-212 = 1141. Eftir þetta fórum við að borða og fórum síðan á markað og skoðuðum allskonar drasl og líka skemmtilegar vörur. Núna er bara verið að slappa af og safna kröftum fyrir þrímenning á morgun. veðrið er heitt og mollulegt annars er bara fínt hér. kveð að sinni Hörður Ingi Föstudagur, 22. Ágúst 2008 kl. 12:30 | HIJ
Heimsmeistaramótið í BankokNú er draumurinn orðinn að veruleika, Heimsmeistaramótið er hafið með tvímenning í dag. Hafþór og Steini byrjuðu í fyrsta holli og stóðu sig vel, Hafþór spilaði 191-235-169-176-279-234 = 1285 og Steini spilaði 201-202-235-189-170-219 =1216 og svo voru Andrés og Árni Geir að klára rétt í þessu, Andrés spilaði 199-153-173-190-253-157 = 1125, Árni Geir spilað frábæra keilu 224-225-229-224-199-204 = 1305. Addi og Maggi spila í fyrramálið kl. 09:00 að staðartíma, munurinn á isl.tíma og Bankok tíma eru +7 tímar. Það gengur allt mjög vel hérna, staðsetningin á hótelinu er ekki beint í neinu túristahverfi, okkur er ráðlagt að fara ekkert út á kvöldin labbandi, við erum ca. 40 mín í rútu á leiðinni í keilusalinn, þannig að það er ekkert hægt að skjótast í salinn á sjá aðra spila því þá þarf maður að stoppa í 3-4 klst. það gengur annars mjög vel hérna og allir eru ánægðir með dvölina hér. Þetta er gott að sinni, skrifa aftur á morgun. Kveðja til allra frá okkur strákunum. Hörður Ingi Fimmtudagur, 14. Ágúst 2008 kl. 21:51 | ÞI
BronsverðlaunahafarBronsverðlaunahöfunum frá Heimsmeistarmóti ungmenna var í gær veittar viðurkenningar fyrir árangurinn. Viðurkenningar voru veittar af Keilusambandinu, ÍR og ÍBR. Einnig ræddi blaðamaður frá Morgunblaðinu/24 stundir við þá félaga. Myndin er af þeim Hafþóri Harðarsyni (t.h.) og Róberti Dan Sigurðssyni, ásamt þjálfurum sínum Theódóru Ólafsdóttur og Herði Inga Jóhannssyni. Miðvikudagur, 6. Ágúst 2008 kl. 22:05 | ÞI
Meistarkeppni og byrjun deildaMeistarakeppni KLÍ verður leikin 9. september 2008 og deildin byrjar að öllum líkindum mánudaginn 15. september (leikur á Skaganum 14/9). Nánari dagskrá kynnt síðar í mánuðinum.
|