Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Lau, 18. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn
Fréttasafn: Júlí 2008

Fimmtudagur, 24. Júlí 2008 kl. 16:40 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmenna

Fjórir pinnar - það var allt sem Hafþóri vantaði til að komast í úrslitin í einstaklingskeppninni.  Hafþór endaði í 18. sæti með 211 í meðaltal, sem er frábær árangur.  Róbert Dan stóð sig einnig glæsilega endaði í 52. sæti með 201 í meðaltal.  Stefán varð svo í 138. sæti með 186 í meðaltal og Jón Ingi í 146. sæti með 185 í meðaltal, sem er yfir alsherjarmeðaltali hjá báðum.

Strákarnir enduðu svo í 26. sæti í liðakeppninni.

Stelpurnar enduðu svo í 95. og 125. sæti.  Magna Ýr með 179 í meðaltal og Karen Rut með 153.  Magna er yfir sínu alsherjarmeðaltali en Karen aðeins undir.

Hópurinn fer svo á lokahófið á morgun, en það er haldið í Universal Studios og koma svo til landsins á sunnudagsmorgun.




Ţriđjudagur, 22. Júlí 2008 kl. 19:00 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmenna

Hér er mynd af bronsverðlaunahöfunum sem tekin er af Seiju Lankinen frá finnska keilusambandinu.

Aldeilis frábær árangur hjá strákunum.

 


Meira



Ţriđjudagur, 22. Júlí 2008 kl. 14:40 | ÁGÓ
Heimsmeistaramót ungmenna

Í hádegisfréttum stöðvar 2 var fjallað um árangur þeirra Hafþórs og Róberts og má sjá myndbrotið hér. Klippan er alveg síðast í fréttatímanum.




Mánudagur, 21. Júlí 2008 kl. 22:57 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmenna

Í dag var leikið í tvimenning pilta og náðu íslendingarnir Hafþór Harðarson og Róbert Dan Sigurðsson fjórða sæti í undankeppninni og þar með sæti í undanúrslitum.  

 Efstu liðin í undankeppninni voru:
 
1.       England (Matt Hann og Dominic Barret) 2790 stig – Dominc Barret setti heimsmet í 6 leikja seríu uppá 1.490 stig
2.       Svíþjóð ( Kim Bolleby og James Gruffman) 2.735 stig
3.       Singapore (Gregory Gan og Mark Wong) 2.688 stig
4.       Ísland (Róbert Dan Sigurðsson og Hafþór Harðarson) 2.663 stig – Hafþór setti næst hæstu seríu sem leikin hefur verið á HM unglinga uppá 1.422 stig.
5.       England 2  2.621 stig – komust ekki í undanúrslit.

Meira



Sunnudagur, 20. Júlí 2008 kl. 22:36 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmenna

Keppendurnir okkar hafa lokið einstaklingskeppninni á heimsmeistaramótinu í Orlando.  Stefán Claessen var með hæsta skorið eftir daginn 1202 og endaði í 41. sæti.  Róbert endaði með 1192, Hafþór 1167, og Jón Ingi með 1136.  Alls eru 194 keppendur í mótinu.  Það þurfti 1310 til að ná í úrslit og endaði Dominic Barrett frá Englandi sem heimsmeistari.

Hjá stelpunum var Magna með 984 og Karen með 941, en það þurfti 1271 í úrslit.  Heimsmeistari hjá stúlkunum var Park Mi Ran, Korea.




Ţriđjudagur, 15. Júlí 2008 kl. 22:39 | ŢI
Heimsmeistaramót ungmenna

Heimsmeistaramót ungmenna 2008 verður haldi í Orlando USA. 16. til 26. júlí n.k. Fyrir Íslands hönd keppa þar fjórir piltar og tvær stúlkur.  Piltaliðið er þannig skipað: Hafþór Harðarson ÍR, Jón Ingi Ragnarsson ÍR, Róbert Dan Sigurðsson ÍR, og Stefán Claessen ÍR.  Stúlknaliði er þannig skipað: Karen Rut Sigurðardóttir ÍR og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR.

Þjálfarar liðanna og farastjórar eru Hörður Ingi Jóhannsson og Theódóra Ólafsdóttir.

 

 

 

Heimasíða mótsins er www.2008wyc.com.

 


Meira