|
Fréttasafn: Júní 2008
Sunnudagur, 15. Júní 2008 kl. 08:36 | ŢI
Evrópumót kvenna
Evrópumót kvenna.
Íslenska kvennalandsliðið í keilu hefur nú lokið keppni á Evrópumótinu í keilu sem haldið hefur verið í Óðinsvé í Danmörku. Alls tóku 130 konur frá 25 þjóðum þátt. Liðið tók þátt í keppni í tveggja-, þriggja- og fimmmannaliðum og stóðu sig með ágætum.
Samanlagt úr öllum leikunum enduðu þær þannig:
64. sæti Alda Harðardóttir 189.2 meðaltal
66. sæti Magna Ýr Hjálmtýsdóttir 189.0 meðaltal
87. sæti Guðný Gunnarsdóttir 178.9 meðaltal
93. sæti Elín Óskarsdóttir 177.1 meðaltal
96. sæti Dagný Edda Þórisdóttir 175.7 meðaltal
102. sæti Ragna Matthíasdóttir 173.2 meðaltal
Meira Laugardagur, 14. Júní 2008 kl. 07:21 | ŢI
Evrópumót kvennaNú er lokið liðakeppninni á Evrópumótinu og enduðu stelpurnar okkar í 12. sæti af 19. þjóðum sem verður að teljast góður árangur. Þær voru með 186.8 í meðaltal úr liðakeppninni og var umtalað hvað íslenska liðið var að spila vel. Úrslitin voru æsispennandi en þar léku Finnar og Svíar. Svíar höfðu valtað yfir Þjóðverja og Finnar unnið Dani í undanúrslitum. Svíar urðu Evrópumeistarar, en segja má að Finnar hafi gefið þeim titilinn í 10. rammanum. Í dag er leikið í einstaklingskeppni, þar sem 24 efstu unnu sér þátttökurétt. Úrslitin verða spiluð í íþróttahúsi við hliðina á keilusalnum, en þar er búið að koma fyrir tveim keilubrautum. Á undan verða tveir amerískir atvinnumenn með sýningu. Fimmtudagur, 12. Júní 2008 kl. 18:09 | ŢI
Evrópumót kvennaNú er lokið fyrri degi liðakeppninnar hér á Evrópumótinu í Óðinsvé. Stelpurnar okkar spiluðu 2807 og eru í 13. sæti. Alda var efst með 634, Magna Ýr 620, Dagný Edda 529, Elín 519 og Ragna 505. Guðný spilaði svo í seinni riðlinum og spilaði 605. Hún kemur inn fyrir Rögnu í seinni hlutanum á morgun. Danir spiluðu vel í morgun og settu nýtt evrópumet í þrem leikjum 3314, en sænska liðið gerði sér lítið fyrir og sló það eftir hádegi með 3331 og setti einnig evrópumet í einum leik 1207. Liðakeppninni lýkur svo á morgun og spilar íslenska liðið í seinni riðlinum sem byrjar klukkan 13 að staðartíma. Ragna spilar aftur á móti klukkan 8. Magna er sem fyrr efst af stelpunum í meðaltali með 191.1 og Alda fylgir henni fast á eftir með 186.4 Miđvikudagur, 11. Júní 2008 kl. 22:09 | ŢI
Evrópumót kvennaÞá er lokið keppni í þriggja manna liðum. Stelpurnar okkar enduðu í 27. og 34. sæti. Evrópumeistarar urðu gestgjafarnir Danir. Í einstaklingskeppninni er Magna Ýr enn efst af stelpunum með 187.4 í meðaltal. Á morgun hefst svo liðakeppnin og leika okkar stelpur í fyrri riðlinum og byrja að spila klukkan 7 að íslenskum tíma. Mjög gaman er að fylgjast með keppninni í beinni á "online scoring" sem má tengjast í gegnum heimasíðu mótsins www.ewc2008.eu/ Ţriđjudagur, 10. Júní 2008 kl. 16:03 | ŢI
Evrópumót kvennaÍslensku keppendurnir hafa nú lokið tvímenningskeppninni á Evrópumótinu í Ódinsvé.
Efstar urður þær Magna Ýr (188,6 m.tal) og Elín (183,6 m.tal) í 35. sæti, næstar í 45. sæti voru Dagný Edda (173,6 m.tal) og Alda (178,9 m.tal) og síðan Ragna (170,7 m.tal) og Guðný (178,8 m.tal) í 48. sæti. Alls voru 62 tvímenningar í mótinu. Magna er í 64. sæti af 130 keppendum.
Til úrslita léku 2 tvímenningar frá Svíþjóð og einn frá Þýskalandi og einn frá Danmörku og urðu þær Nina Flack og Helén Johnson frá Svíþjóð Evrópumeistarar.
Fimmtudagur, 5. Júní 2008 kl. 10:12 | ÁGÓ
Evrópumót kvennaNú í morgun lagði kvennalandsliðið í keilu upp í ferð til Óðinsvéa til þátttöku í evrópumóti kvennalandsliða. Íslenska liðið skipa Gudný Gunnarsdóttir, Ragna Matthiasdóttir, Dagný Edda Þórisdottir, Alda Harðardóttir, Elín Óskarsdóttir og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir. Þær hefja keppni á laugardagsmorgun og munu þá spila tvímenning. Nánari upplýsingar um mótið má finna á heimasíðu mótsins |