Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Þri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Maí 2008

Miðvikudagur, 21. Maí 2008 kl. 14:15 | ÁGÓ
RSS á kli.is

Bætt hefur verið við valmöguleikanum á www.kli.is að fá fréttir með RSS streymi inn í forrit sem að meðtaka RSS. Ef að fólk notar t.d. Microsoft Outlook þá er lítið mál að setja slóðina http://www.kli.is/frettir/rss/  inn í RSS möppuna í Outlook og þá kemur tilkynning í hvert skipti sem að ný frétt er skrifuð nánast samtímis og hún er birt á vefnum. Flest póstforrit í dag styðja RSS og ætti því að vera lítið mál fyrir keilara að fylgjast með því sem að er í gangi í keilunni. 




Föstudagur, 16. Maí 2008 kl. 10:50 | ÁHE
GB United sigurvegar Utandeildarinnar 2008

Úrslitakeppnin í Utandeildinni 2008 var leikinn í gær og fyrradag.
Fyrra kvöldið léku tvö efstu liðin í hverjum riðli saman í tveimur riðlum. Í riðli 1 léku Gutterballs, Keflavík 1, 104 B.C. og Landsbankinn. Eftir jafna og spennandi keppni voru 3 lið með 4 stig en aðeins tvö sæti í boði í úrslitum. Það réðst því á heildarskori hvaða lið kæmust áfram og það voru Gutterballs og Keflavík 1.
Í hinum riðlinum léku RB, Mammút, GB United - B og Flytjandi. GB United-B vann alla sína leiki en það rést á heildarskori hver fylgdi þeim áfram því hin þrjú liðin voru öll með tvö stig. Það var RB sem komst áfram, var með 8 stigum meira en Mammút í heildarskor.


Meira



Fimmtudagur, 15. Maí 2008 kl. 16:04 | ÞH
15. Ársþing KLÍ

Í gær fór fram 15. ársþing KLÍ, en það var að þessu sinni háð í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi.  20 fulltrúar af 25 sátu þingið ásamt stjórn KLÍ, Hafsteini Pálssyni úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem var þingforseti, auk Ólafs Rafnssonar, forseta ÍSÍ, sem flutti þinginu kveðju frá ÍSÍ.

Á þinginu sagði Þórhallur Hálfdánarson sig frá formennsku.  Nýr formaður var kjörinn Þórir Ingvarsson, sem hefur um árabil verið formaður Keilufélags Reykjavíkur.  Til eins árs í stjórn var kjörinn Hörður Ingi Jóhannsson, og til tveggja ára Valgeir Guðbjartsson og Þórarinn Már Þorbjörnsson.  Varamenn voru kjörnir Ásgrímur Helgi Einarsson, Guðmundur Sigurðsson og Helga Sigurðardóttir. 

 


Meira



Föstudagur, 9. Maí 2008 kl. 19:53 | SKL
Pepsi Max

Við viljum vekja athygli á að Pepsí Max mótin verða út maí mánuð. Þ.e. 11, 18 og 25 maí. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eru að fara út að spila í sumar, hvort sem er með landsliðum, æfingabúðir eða aðrar ferðir. Eða bara ef ykkur langar að framlengja keilutímabilið. Fyrir þá sem ekki hafa mætt er keppt klukkan 19:00 og 20:30 í þriggja leikja seríum og keppnin er flokkaskipt.




Fimmtudagur, 8. Maí 2008 kl. 12:08 | SKL
Sigfríður og Steinþór Sjóvá meistarar 2008

Úrslit Sjóvá Bikarsins, bikarkeppni einstaklinga í keilu fóru fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð sunnudaginn 4. maí 2008. Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Steinþór G. Jóhannsson ÍR eru Bikarmeistarar Sjóvá árið 2008. Er þetta annað árið í röð sem Sigfríður vinnur titilinn og fjórða skiptið í allt, en Sigfríður vann áður árin 2004 og 2005. Steinþór vann áður árin 2001 og 2002. Í öðru sæti voru þau Sigurlaug Jakobsdóttir ÍR og Björn Guðgeir Sigurðsson KR.


Meira



Miðvikudagur, 7. Maí 2008 kl. 11:40 | ÞH
Ásgeir Þór og Steinþór Íslandsmeistarar

Steinþór Jóhannsson og Ásgeir Þór Þórðarson úr ÍR urðu í gær Íslandsmeistarar í tvímenningi eftir að hafa haft forystu frá því í þriðja leik.

Í undanúrslitunum í gær sigruðu þeir alla sína leiki, en meðaltal þeirra í undanúrslitunum var 220,6 og meðaltal þeirra úr öllum leikjum í mótinu var 213,9.

Steinþór og Ásgeir mættu þeim Andrési Páli Júlíussyni og Magnúsi Magnússyni úr KR í úrslitunum, en þeir voru einnig mjög sterkir í undanúrslitunum í gær og höfðu að lokum 539 pinna forskot á þriðja sætið.


Meira



Þriðjudagur, 6. Maí 2008 kl. 12:35 | ÞH
Steinþór og Ásgeir Þór efstir

Í gærkvöld hóf Íslandsmót í tvímenningi þegar leikin var forkeppni og milliriðill.  Þeir Magnús Magnússon og Andrés Páll Júlíusson úr KR voru efstir eftir fyrsta og annan leik í forkeppninni, en Steinþór Jóhannsson og Ásgeir Þór Þórðarson úr ÍR tóku þá forystuna og halda henni enn.

Undanúrsilt, þar sem 6 efstu tvímenningarnir leika allir við alla, hefst kl. 19.00 í Keiluhöllinni í kvöld, og að þeim loknum leika tveir efstu tvímenningarnir til úrslita.




Laugardagur, 3. Maí 2008 kl. 21:03 | SKL
Sjóvá Bikarinn 2008

Að lokinni forkeppni í Sjóvá mótinu voru þau Ragna Matthíasdóttir KFR (1.104) og Arnar Sæbergsson ÍR (1.369) efst í mótinu, en Ágústa Þorsteinsdóttir KFR (236) og Steinþór G. Jóhannsson ÍR (267) áttu hæstu leikina.

Í dag laugardag 3. maí fóru fram 24 manna úrslit karla og 16 manna úrslit karla og kvenna og átti Magnús Magnússon KR hæstu seríu dagsins 695.


Meira



Föstudagur, 2. Maí 2008 kl. 13:31 | ÞH
Forkeppnin í Bikarkeppni SJÓVÁ langt komin

Leikið hefur verið í Bikarkeppni Sjóvá þessa vikuna, en fyrir síðasta dag forkeppninnar hefur Ragna Matthíasdóttir spilað best í kvennaflokki 1.104, en Arnar Sæbergsson í karlaflokki 1.369.

 
Alls hafa 10 konur og 18 karlar tekið þátt.
 
Síðasta umferðin fer fram föstudaginn 2. maí kl. 17:30 og útsláttakeppnin hefst svo á laugardag, karlar byrja klukkan 9 en konur klukkan 11. 
 
Skráning er hjá reynirth@postur.is eða í síma 825-1213.
 
 



Föstudagur, 2. Maí 2008 kl. 09:55 | ÁGÓ
Sollumótið 2008

Sollumótinu lauk á laugardag.  Til úrslita léku fyrst Anna Soffía og Magnús Guðmundsson og sigraði Magnús 184 gegn 181.

Síðan léku Magnús og Davíð til úrslita og þar vann Davíð sannfærandi 206 gegn 145.  Hann hampaði því bikarnum 2008.

Þátttaka í mótinu var góð, 30 keppendur og viljum við þakka öllum fyrir gott mót

ÞI




Fimmtudagur, 1. Maí 2008 kl. 19:55 | ÞH
KFR Íslandsmeistarar unglingaliða

Íslandsmóti unglingaliða lauk s.l. fimmtudag með úrslitum í Keiluhöllinni. Það voru unglingarnir úr KFR sem stóðu uppi sem Íslandsmeistarar, en þeir urðu einnig deildarmeistarar.

 
Endanleg röð í mótinu var svona:
  1. KFR 
  2. ÍA-1
  3. ÍR
  4. ÍA-2

Meira



Fimmtudagur, 1. Maí 2008 kl. 19:42 | ÞH
Leikheimildir milli landa

Í kjölfar úrslitakeppnar í Íslandsmóti liða vöknuðu upp spurningar um hvort íslenskur leikmaður sem búsettur er erlendis og keppir með liði þar í landi væri hlutgengur með því liði sem hann er skráður í hér heima.  Í reglum KLÍ eru engin ákvæði sem banna slíkt, en í lögum ÍSÍ kemur fram að íþróttamaður sem dveljist tímabundið erlendis missi ekki réttindi hér heima, en taka skuli tillit til regla þeirra sem alþjóðasambönd setja. Sjá Móta og keppendareglur ÍSÍ


Meira