Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Sun, 5. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga með forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Dagskrá næsta mánuðinn
Fréttasafn: Apríl 2008

Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 kl. 09:32 | ÁGÓ
Kvennalandsliðið

Að lokinni velheppnaðri árshátíð KLÍ viljum við þakka öllum sem áttu með okkur ánægjulegt kvöld og sérstaklega hinum fjölmörgu sem styrktu okkur með kaupum á happdrættismiðum.


Meira



Laugardagur, 26. Apríl 2008 kl. 17:39 | ÞH
Titlarnir varðir í dag

KFR-Valkyrjur urðu í dag Bikarmeistarar kvenna fimmta árið í röð þegar þær lögðu KFR-Afturgöngur af velli.  Mjótt var á munum í fyrsta leik, 675 gegn 635, en Valkyrjurnar sigruðu næstu tvo leiki nokkuð örugglega, 751-639 og 746-650.  Efst hjá Valkyrjum var Theódóra Ólafsdóttir með 580.

Öllu meiri spenna var í karlaleiknum, en þó náðu ÍR-PLS að leggja ÍR-L af velli í þremur leikjum, en þeir fóru 808 gegn 783, 793-745 og 803-737.  Þeir Steinþór og Róbert Dan voru efstir hjá ÍR-PLS, Steinþór með 677 og Róbert Dan 666.  Er þetta annað árið í röð sem ÍR-PLS verða Bikarmeistarar og alls í þriðja skiptið.




Föstudagur, 25. Apríl 2008 kl. 10:36 | ÁGÓ
Sollumót 2008

Fyrstu umferð Sollumótsins lauk í gær og mun mótið síðan klárast á laugardaginn.




Föstudagur, 25. Apríl 2008 kl. 10:32 | ÁGÓ
Valkyrjur sigruðu

Valkyrjur urðu á miðvikudaginn íslandsmeistarar liða í 1. deild kvenna. Þær báru sigur úr bítum eftir harða rimmu gegn ÍR-TT.


Meira



Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 kl. 17:17 | ÁGÓ
Sjóvá mótið

Sjóvá mótið verður haldið dagana 28. apríl til 4. maí. Nánara keppnisfyrirkomulag má sjá í auglýsingu hér að neðan.




Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 kl. 14:25 | ÁGÓ
Úrslitakeppnin.

ÍR-PLS er Íslandsmeistari liða í karlaflokk.  ÍR-PLS hélt áfram þar sem frá var horfið í gærkvöldi og hækkuðu seríuna um 7 pinna (2515) og tóku 18 stig gegn 2.Hjá kvennfókinu var reyndar meiri spenna og eftir tvo leiki í kvöld var jafnt 6 - 6.


Meira



Þriðjudagur, 22. Apríl 2008 kl. 23:46 | ÁHE
Landsliðið fyrir HM í Tælandi valið.
Keilusamband Íslands hefur valið landslið karla sem fer á Heimsmeistaramót karlalandsliða í bænum Nonthaburi í Tælandi 20/8 - 31/8 2008.
 

Meira



Þriðjudagur, 22. Apríl 2008 kl. 09:00 | ÁGÓ
Úrslitakeppnin

Úrslitakeppnin í Íslandsmóti liða hófst í kvöld.  Leikið var í kvöld í Keiluhöllinni og sigruðu heimaliðin í báðum viðureignunum. 


Meira



Mánudagur, 21. Apríl 2008 kl. 17:50 | ÞH
Brautaskipan í úrslitakeppni

 Hér að neðan má sjá brautaskipanina í úrslitakeppninni


Meira



Sunnudagur, 20. Apríl 2008 kl. 13:00 | ÞH
Íslandsmót í tvímenningi

Í maí er að vanda haldið Íslandsmót í tvímenningi, en að þessu sinni fer mótið fram dagana 5. og 6. maí.  Leiknir eru 4 leikir í forkeppni og 4 leikir í milliriðli.  Í undanúrslitum eru það síðan 6 efstu tvímenningarnir sem leika einfalda umferð allir við alla, og leika tveir efstu tvímenningarnir að þeim loknum til úrslita.




Sunnudagur, 20. Apríl 2008 kl. 11:31 | ÞH
Styttist í árshátíð

Árshátíð Keilusambandsins verður haldin næstkomandi laugardag, en hún er að þessu sinni í umsjón kvennalandsliðsins, sem heldur á Evrópumót til Óðinsvéa í sumar.

Þær Silla (sigurlaugj@simnet.is / 863 8850) og Linda (linda@rontgen.is / 694 5032) taka við pöntunum.  Hægt er að leggja inn fyrir miðunum á bankareikning. t. 481298-2969 reikn.: 0515-14-613724




Föstudagur, 18. Apríl 2008 kl. 00:01 | ÁHE
Ungmennalandsliðið valið fyrir HM í Orlando
Keilusamband Íslands hefur valið ungmennalandsliðið sem fer á Heimsmeistaramót ungmennalandsliða (u-23) í Orlando USA 18. - 25. júlí 2008
 
 

Meira



Fimmtudagur, 17. Apríl 2008 kl. 11:37 | ÁGÓ
Úrslitakeppnin hálfnuð

Fyrri helming úrslitakeppnanna í fyrstu deild karla og kvenna lauk á þriðjudaginn.  Lesa má nánar um þetta með því að smella á "meira" hér að neðan


Meira



Fimmtudagur, 17. Apríl 2008 kl. 11:35 | ÁGÓ
AMF world cup 2008

Undankeppni fyrir AMF world cup 2008 var haldin um síðastliðna helgi og verður fulltrúi Íslands í Mexico Jón Ingi Ragnarsson. Hann sigraði Guðmund Sigurðsson í úrslitaleiknum með 464 gegn 341. Nánari Úrslit má svo finna hér að neðan.




Fimmtudagur, 17. Apríl 2008 kl. 11:17 | ÁGÓ
Ísl.mót unglingaliða

Nú er forkeppni í íslandsmóti unglingaliða lokið og verða úrslitin spiluð í keiluhöllinni þann 24. apríl næstkomandi. Hefst keppnin kl.12:00 og hvetjum við alla keilara til að koma og hvetja framtíðarkeilara okkar til dáða.




Þriðjudagur, 15. Apríl 2008 kl. 14:30 | ÁGÓ
Úrslitakeppnin hafin

Úrslitakeppni 1. deildar karla og kvenna hófst í kvöld. Leiknar eru tvær viðureignir, heima og heiman, og kemst liðið sem er með fleiri samanlögð stig áfram.
 

keila.is/ÞI


Meira



Þriðjudagur, 15. Apríl 2008 kl. 09:55 | ÁGÓ
Sollumót 2008

Fimmtudaginn 24. apríl verður Sollumótið haldið.  Einnig verður leikið laugardaginn 26. og svo úrslit eftir það. Nánari keppnisskilmálar eru í meðfylgjandi auglýsingu.




Þriðjudagur, 15. Apríl 2008 kl. 09:50 | ÁGÓ
Hjónamót 2008

Síðasta umferð í Hjónamót KFR og Morandé var leikinn síðasta sunnudag.  Í loka umferðinni voru Lísa og Böddi í fyrsta sæti án forgjafar, Karólína og Dóri í öðru og Laufey og Bjarki í þriðja.  Með forgjöf voru Ragna og Bjarni í fyrsta, Berglind og Sigurbjörn í öðru og Bára og Tóti í þriðja. Að mótinu loknu voru leikin úrslit fyrir veturinn, og þar stóðu Ragna og Bjarni uppi sem sigurvegarar.
 




Mánudagur, 14. Apríl 2008 kl. 16:53 | ÞH
Úrslitakeppnin hefst í kvöld

Í kvöld kl. 19.00 hefjast í Keiluhöllinni undanúrslit í Íslandsmóti liða.  Í undanúrslitum mætast þau lið sem voru í 1. og 4. sæti annarsvegar og 2. og 3. sæti hinsvegar.  Tvær viðureignir eru leiknar, í kvöld og annað kvöld, og er leikið með hefðbundnu sniði, þar sem 20 stig eru í boði í hvorri viðureign.  Þau lið sem hafa fleiri stig samanlagt eftir viðureignirnar halda áfram í úrslitin sem leikin eru í næstu viku.

Eftirtalin lið leika til úrslita:

 

Sæti Kvennaflokkur   Karlaflokkur
1. KFR-Valkyrjur   ÍR-PLS
2. KFR-Afturgöngur   KR-A
3. ÍR-TT   ÍR-KLS
4. KFR-Skutlurnar   KFR-Lærlingar

 

Hér að neðan má sjá hvernig brautaskipan er


Meira



Föstudagur, 11. Apríl 2008 kl. 16:15 | ÁGÓ
Félagakeppni KLÍ

Félagakeppni KLÍ lauk í gærkvöldi og fóru leikar þannig að ÍR sigraði, í öðru sæti varð svo KFR og ÍA í því þriðja.




Fimmtudagur, 10. Apríl 2008 kl. 12:36 | ÁGÓ
AMF world cup 2008

Hægt verður að æfa í AMF olíuburðinum í kvöld, fimmtudag, eftir Félagakeppnina eða 21:30. Keiluhöllin sér um fyrirkomulag á æfingunni og greiðsla fer fram í afgreiðslu Keiluhallarinnar.




Fimmtudagur, 10. Apríl 2008 kl. 11:50 | ÁGÓ
ÍR-PLS deildarmeistarar

ÍR-PLS vann deildina í gær með 15-5 sigri á KFA-ÍA og enduðu því með rúmlega 11 stiga forskot á KR-a. KR-a skaust uppí annað sætið með 17-3 sigri á ÍR-a. KR-a náði hæstu seríu vetrarins 2.533 og KFK-Keiluvinir náðu hæsta leiknum 864.
 

Frétt af keila.is


Meira



Fimmtudagur, 10. Apríl 2008 kl. 10:18 | ÁGÓ
Bikarkeppni KLÍ

Undanúrslitum í bikarkeppni kvenna lauk á þriðjudaginn með leikjum ÍR-TT gegn KFR-Valkyrjum og leik KFR-Afturgangna og ÍR-KK. Leikur TT og Valkyrja fór alla leið í framlengingu og höfðu Valkyrjurnar sigur í bráðabananum, 149-125. Afturgöngurnar fóru hins vegar með sigur af hólmi í 3 leikjum og munu þær því mæta Valkyrjunum í úrslitum.


Meira



Þriðjudagur, 8. Apríl 2008 kl. 13:42 | ÁGÓ
AMF world cup 2008

Um næstu helgi verður spilað um það hver fer fyrir Íslands hönd á AMF world cup sem að haldið verður í Mexico í haust. Hægt verður að spila 4 sinnum í undankeppninni frá föstudegi og fram á sunnudag. Úrslitin verða svo spiluð á sunnudag um hádegisbilið. Olíuburðurinn sem að notaður verður kallast Beaten path og er hann það sem að sérfræðingar frá Kegel sammældust um að væri sem líkastur því sem að notað er í AMF mótunum.




Þriðjudagur, 8. Apríl 2008 kl. 09:38 | ÁGÓ
Meistarakeppni ungmenna

Um helgina lauk meistarakeppni ungmenna. KFA og KFR áttu 3 sigurvegara hvort en ÍR átti sigurvegara í 2 flokkum. Við óskum öllum keppendum til hamingju með árangurinn og þökkum fyrir þáttökuna í vetur.




Mánudagur, 7. Apríl 2008 kl. 15:47 | ÁGÓ
Árshátíð KLÍ

Nú fer senn að líða að árshátíðinni og verður hún haldin þann 26. apríl á veitingastaðnum Rúbín í Öskjuhlíð. Kvennalandsliðið hefur veg og vanda að árshátíðinni þetta árið og verður þetta án nokkurs vafa einn af hápunktum tímabilsins. Heyrst hefur að happdrættið sé einstaklega glæsilegt þetta árið og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og styrkja kvennaliðið okkar til ferðarinnar til Danmerkur í sumar.




Miðvikudagur, 2. Apríl 2008 kl. 21:16 | ÞH
Ársþing KLÍ

 15. ársþing KLÍ mun fara fram í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi þann 14. maí næstkomandi, og hefst þingið klukkan 18.00.

Sjá lög Keilusambandsins

Stjórn KLÍ




Miðvikudagur, 2. Apríl 2008 kl. 14:18 | ÁGÓ
Landsliðsnefnd

Á síðasta fundi stjórnar var Ásgrímur Helgi Einarsson skipaður formaður landsliðsnefndar. Hann tekur við af Braga Má Bragasyni og mun Ásgrímur ganga í að vinna að langtímaáætlunum fyrir öll landslið á vegum KLÍ ásamt öðrum nefndarmönnum. Á meðan að við Þökkum Braga fyrir vel unnin störf í gegn um tíðina þá bjóðum við Ásgrím velkominn til starfa.




Miðvikudagur, 2. Apríl 2008 kl. 10:22 | LS
Kvennalandsliðið valið

Eftir taldar konum / stúlkur hafa verið valdar til að taka þátt fyrir Íslands hönd á Evrópumóti kvenna í keilu sem fer fram í Óðinsvéum,  í Danmörku dagana 6. - 15. júní 2008:

Alda Harðardóttir KFR
Dagný Edda Þórisdóttir KFR
Elín Óskarsdóttir KFR
Guðný Gunnarsdóttir ÍR
Magna Ýr Hjálmtýrsdóttir KFR
Ragna Matthíasdóttir KFR

Heimasíða mótsins er http://www.ewc2008.eu/




Þriðjudagur, 1. Apríl 2008 kl. 09:42 | ÁGÓ
Hjónamót KFR

Lokaumferð hjónamóts KFR og Morandé er sunnudaginn 6. apríl og hefst kl 18, en ekki kl 20 eins og venjulega.
Að lokinni umferðinni verða leikin úrslit.  Taldar er 3 hæstu seríurnar hjá hverju pari og fjögur efstu leika einfalda umferð allir við alla.
Hlökkum til að sjá sem flesta