Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfrćđi
Keilusalir
Netiđ
66° Norđur
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportiđ.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga međ forgjöf

Sun, 12. september | 20:00
Pepsi mót ÍR

Fim, 16. september | 19:00
Meistarakeppni KLÍ

Lau, 18. september | 09:00
Reykjavíkurmót einstaklinga

Dagskrá nćsta mánuđinn
Fréttasafn: Mars 2008

Mánudagur, 31. Mars 2008 kl. 11:30 | SKL
Bikarkeppni KLÍ - 4 liða úrslit kvenna

Sú breyting hefur verið gerða á dagskrá að undanúrslit í Bikarkeppni kvennaliða fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þriðjudaginn 8. apríl og hefjast kl. 19:00.

Þar mætast
ÍR-KK            -    KFR-Afturgöngurnar
ÍR-TT            -    KFR-Valkyrjur

 




Mánudagur, 31. Mars 2008 kl. 11:29 | ÁGÓ
Meistarakeppni ungmenna

Um helgina var spiluð 4. og næst síðasta umferð í meistarakeppni ungmenna. Staðan er ansi jöfn í nokkrum flokkum og verður spennandi að sjá hvernig síðasta umferðin fer næsta laugardag.  Lokaumferðin hefst kl.9:00 á laugardagsmorgun og hvetjum við alla keilara til að koma og fylgjast með framtíðarkeilurum Íslands takast á í spennandi keppni.




Föstudagur, 28. Mars 2008 kl. 15:13 | SKL
PEPSI-Max mótið um helgina
   
Minnum á PEPSI-MAX mótið sem haldið verður í Keiluhöllinni Öskjuhlíð sunnudagskvöld 30. mars. Hægt er að spila kl. 19:00 og 21:30.
 
Verð á seríu kr. 1.500
 
Tilvalið mót til að æfa sig í nýja olíuburðinum!

 




Fimmtudagur, 20. Mars 2008 kl. 23:13 | BMB
Iceland Open um páskana í boði Stöð 2 Sport

Stöð 2 Sport býður upp á Iceland Open 2008 núna um páskana og hefst fyrsti riðillinn á laugardagsmorgun kl. 9.  Næsti riðill er síðan kl. 11:30 og síðasti riðillinn er á mánudaginn kl. 11. Úrslitin verða síðan kl. 12:30 á mánudag.


Meira



Miđvikudagur, 19. Mars 2008 kl. 11:25 | ŢH
Evrópumót unglinga - dagur 2

Þá er dagur 2 á enda runninn og var hann að mörgu leyti góður, en hann spilaðist þannig að Andri spilaði 1106 með hæsta leik 223, hann byrjaði illa eða á 151 og 139 en náði sér á strik eftir það. Skúli spilaði 1072 með 214 sem hæsta leik, það var svipað með Skúla og Andra nema að Skúli átti 2 góða leiki síðan lélegan og svo 2 góða leiki síðan lélegan. Annars gengur mjög vel og þetta verður skemmtilegra með hverjum deginum. Svíar unnu tvímenning drengja, Danir í 2 sæti og Finnar í 3 Þetta er orðið gott að sinni.

Hörður Ingi skrifar frá Helsinki.




Miđvikudagur, 19. Mars 2008 kl. 11:24 | ŢH
Evrópumót unglinga - dagur 1

Hörður Ingi skrifar frá Helsinki.

Í dag hófst Evrópumót unglinga hér í Helsinki og spiluðu stelpurnar fyrst. Magna spilaði 1166 hæsti leikur 224, Ástrós 1020 hæsti leikur 195 og Karen 1015 hæsti leikur 221. Allar geta spilað betur og ætla þær að skoða stöðuna hjá sér en þær eiga frí á morgun en þá keppa strákarnir. Þetta er flottur salur og hótelið er mjög gott, kalt í veðri, kaldara en heima. Miðað við þennan dag verður þetta skemmtileg ferð því krakkarnir eru til fyrirmyndar.

Kveðja frá Helsinki

Hörður Ing




Föstudagur, 14. Mars 2008 kl. 16:52 | ÁGÓ
Nýr olíuburður

Tækninefnd hittist í hádeginu og ákvað olíuburðinn sem að verður notaður það sem eftir er af þessu tímabili. Burðurinn sem varð fyrir valinu er 40 feta langur og hafa menn ágætis svigrúm til að spila hann allt frá 1. pílu inn að 5. Nánari útlistun á burðinum er í meðfylgjandi skjali og verður hægt að æfa sig í olíuburðinum í fyrramálið og framvegis.




Föstudagur, 14. Mars 2008 kl. 16:35 | ÁGÓ
Árshátíð KLÍ

Árshátíð KLÍ verður haldin laugardaginn 26. apríl 2008.

Árshátíð Keilusambands Íslands verður haldin á Veitingastaðnum Rúbín í Öskjuhlíðinni.
Húsið opnar kl. 19:00
Glæsilegt veisluhlaðborð,  ball, skemmtiatriði, happdrætti ofl
Miðaverð kr. 5.000.-  Nú mæta allir og líka að sjálfsögðu allir í Utandeildinni

Árshátíðin er í umsjón og til styrktar kvennalandsliðinu.

Nánar auglýst síðar.
 




Fimmtudagur, 13. Mars 2008 kl. 14:17 | ÁGÓ
Ný olíuvél

Nú er komið að því að skipt verður um olíuvél í öskjuhlíðinni. Maður frá Kegel mun koma og setja vélina upp í dag og ef að allt gengur að óskum mun vélin verða tekin í notkun á morgun föstudag. Eftir að uppsetningu er lokið á nýju vélinni mun gamla vélin verða tekin í sundur og gerð upp. Tækninefnd mun hitta manninn frá Kegel á hádegi á föstudag og í samráði við hann ákveða nýjan olíuburð sem að verður notaður í framhaldinu. Um leið og nýr olíuburður verður ákveðinn verður hann birtur og hægt verður að æfa sig í honum á föstudeginum og laugards og sunnudagsmorgni.

 




Fimmtudagur, 13. Mars 2008 kl. 10:19 | ÁGÓ
Evrópumót unglinga.

Á morgun heldur íslenska unglingalandsliðið til Finnlands til að taka þátt í í evrópumóti unglinga. Hópurinn sem að var valinn til fararinnar samanstendur af Ástrósu Pétursdóttur, Mögnu Ýr Hjálmtýsdóttur, Karen Rut Sigurðardóttur, Andra Má Ólafssyni og Skúla Frey Sigurðssyni. Keppni hefst á mánudaginn hjá stúlkunum og heldur síðan áfram út vikuna. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótsins. Hörður Ingi Jóhannsson mun stýra liðinu meðan á keppni stendur og óskum við þeim öllum góðs gengis og góðrar ferðar.




Miđvikudagur, 5. Mars 2008 kl. 22:09 | ŢH
Undanúrslit í Bikarkeppni liða

Áður en Utandeildin hófst í Keiluhöllinni s.l. fimmtudag var dregið í undanúrslit í Bikarkeppni liða.

 
Eftirtalin liðs drógust saman í karlaflokki:
ÍR-L            -    KFK-Keiluvinir
KFR-Lærlingar    -    ÍR-PLS
 
Í kvennaflokki drógust saman:
ÍR-KK            -    KFR-Afturgöngur
ÍR-TT            -    KFR-Valkyrjur
 
Allir leikirnir fara fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð.
 

Meira



Miđvikudagur, 5. Mars 2008 kl. 14:07 | ÁGÓ
Dagný og Steinþór Íslandsmeistarar

Íslandsmóti einstaklinga lauk í gær og til úrslita í kvennaflokki léku Dagný og Ástrós en í karlaflokki voru það Steinþór og Halldór Ragnar sem léku til úrslita. Dagný vann fyrstu 3 leikina og sigraði því Ástrósu sem að hafði verið í efsta sæti frá því milliriðlum. Steinþór leiddi hins vegar mótið frá upphafi til enda og hafði sigur í 2 af 4 leikjum sem að spilaðir voru í úrslitunum. Nánari úrslit má síðan sjá í skjölunum hér að neðan.





Mánudagur, 3. Mars 2008 kl. 23:14 | LS
Milliriðlum í Íslandsmóti einstaklinga lokið

Þá er milliriðlum í íslandsmóti einstaklinga lokið og var spilamennskan mjög misjöfn.  Lítil sem engin olía var á efrisettunum en fínir leikir litu dagsins ljós þrátt fyrir olíuskort.




Mánudagur, 3. Mars 2008 kl. 13:16 | ÁGÓ
Lokastaða í undankeppni Ísl.móts einstaklinga

Nú hefur öllum 12 leikjum í forkeppni Íslandsmóts einstaklinga verið lokið og ljóst hverjir komast áfram í milliriðla.  Efst eftir forkeppnina eru þau Linda Hrönn Magnúsdóttir (2.242) og Steinþór Geirdal (2.461). Milliriðill hefst kl. 19:00 í kvöld og munu bæði kynin spila 6 leiki. Efstu 8 karlarnir og efstu 6 konurnar munu síðan halda áfram í undanúrslit og spila þar maður á móti manni.




Mánudagur, 3. Mars 2008 kl. 09:08 | ÁGÓ
Aðalfundur keiludeildar ÍR

Aðalfundur Keiludeildar ÍR mun fara fram miðvikudaginn 26. mars klukkan 20:00 í ÍR-heimilinu Skógarseli 12.




Laugardagur, 1. Mars 2008 kl. 14:44 | ŢH
Íslandsmótið heldur áfram

Í morgun hófu 18 karlar og 4 konur keppni í Íslandsmóti einstaklinga og léku 6 leiki.  Það var Linda Hrönn Magnúsdóttir úr ÍR sem lék best kvenna í morgun og er efst ef miðað er við meðaltal.  Þá náði Jóna Gunnarsdóttir úr KFR þriðja sæti.

Í karlaflokki var það Jörundur Jörundsson úr ÍR sem lék best, en hann náði þó ekki meðaltali Steinþórs frá því um síðustu helgi og er í öðru sæti.  Skammt á eftir Jörundi er Magnús Magnússon úr KR.

Keppni heldur áfram í fyrramálið, þegar þessir 22 aðilar leika sína síðari 6 leiki í forkeppninni.