|
Fréttasafn: Febrúar 2008
Föstudagur, 29. Febrúar 2008 kl. 09:52 | ÁGÓ
Aðalfundur KFRAðalfundur Keilufélags Reykjavíkur verður haldinn þann 26. mars næstkomandi í húsakynnum ÍSÍ. Nánari dagskrá og tímasetningu má finna í fundarboðinu hér að neðan. Þriðjudagur, 26. Febrúar 2008 kl. 13:54 | ÞH
Íslandsmót um næstu helgiVið viljum biðja þá sem hafa skráð sig til leiks í Íslandsmótið um næstu helgi að kynna sér brautaskipan hér að neðan, og hafa samband ef nafn þeirra er ekki á listanum. Þá minnum við á að greiða þarf með peningum áður en keppni hefst, eða millifæra þátttökugjaldið og senda kvittun með til skraning (hjá) kli.is Mánudagur, 25. Febrúar 2008 kl. 00:37 | ÞH
Fyrri helgi Íslandsmóts einstaklingaÍ morgun hélt keppni áfram í Íslandsmóti einstaklinga. Ástrós Pétursdóttir úr ÍR lék best kvennanna í dag, 1.131, og skaust þannig upp fyrir Rögnu og í 1. sætið. Hjá körlunum var það Steinþór sem aftur lék best, 1.267, og er nú með 127 pinna forskot á Andrés Pál Júlíusson úr KR. Um næstu helgi lýkur forkeppninni, en milliriðlar fara fram mánudaginn 3. mars og undanúrslit og úrslit þriðjudaginn 4. mars.
Laugardagur, 23. Febrúar 2008 kl. 12:03 | ÞH
Íslandsmót einstaklinga hafiðÍslandsmót einstaklinga hófst í morgun með 6 leikjum. Nokkuð mjótt er á munum í efstu sætum, en það eru þau Ragna Matthíasdóttir úr KFR og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR sem eru efst. Þeir 24 sem léku í morgun leika aðra 6 leiki í fyrramálið. Föstudagur, 22. Febrúar 2008 kl. 12:34 | ÁGÓ
8 liða úrslit í Bikarkeppni liða.Í gærkvöldi kláruðust 8 liða úrslit í bikarkeppni liða. Þau lið sem að komust áfram voru ÍR-PLS, KFK-Keiluvinir, ÍR-L og Lærlingar. Í kvennabikarnum komust KFR-Afturgöngur, ÍR-KK, ÍR-TT og KFR-Valkyrjur í undanúrslit. Föstudagur, 22. Febrúar 2008 kl. 11:14 | ÁGÓ
Brautarskipan í Ísl.móti einstaklingaÁ miðvikudagskvöld lauk skráningu í Íslandsmót einstaklinga og eru 29 karlar og 16 konur skráðar til leiks. Keppni hefst klukkan 9:00 báða dagana. Við viljum minna keppendur að greiða keppnisgjald fyrir mót með millifærslu, eða með reiðufé á mótsstað áður en keppni hefst. Sjá nánar í auglýsingu. Fimmtudagur, 21. Febrúar 2008 kl. 08:30 | LS
Viltu aðstoða við íslandsmót einstaklingaKæru keilarar Vel væri þegið ef einhverjir keilara gætu séð af nokkrum tímum til að aðstoða við Íslandsmót einstaklinga núna um helgina og þá næstu. Þeir sem hafa áhuga og tíma hafi samband við mótanefnd á motanefnd(hjá)kli.is Kveðja Laufey
Miðvikudagur, 20. Febrúar 2008 kl. 11:48 | ÁGÓ
Þjálfaranámskeið hjá ÍSÍNú er að hefjast kennsla á 2. stigi þjálfaramenntunar ÍSÍ. Allar nánari upplýsingar veitir sviðsstjóri fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is Einnig má finna uppl. á heimasíðu ÍSÍ. Nánari útlistun á tímasetningum má svo finna hér Þriðjudagur, 19. Febrúar 2008 kl. 21:50 | ÞH
Skráningu í Íslandsmót einstaklinga að ljúkaNú fer hver að verða síðastur til að skrá sig í Íslandsmót einstaklinga án forgjafar. Skráningarfrestur rennur út kl. 22:00 annað kvöld, en forkeppni er leikin næstu tvær helgar. Hér að neðan má sjá hverjir hafa skráð sig og á hvora helgina þeir leika.
Meira Þriðjudagur, 19. Febrúar 2008 kl. 13:54 | ÞH
Deildarbikar í kvöldÍ kvöld fer fram 5. umferð í deildarbikar liða, en í ár eru leiknar 6 umferðir. Þriðjudagur, 19. Febrúar 2008 kl. 10:04 | ÞH
8 liða úrslit í Bikarkeppni KLÍ
Á fimmtudag fór fram fyrsti leikur í 8 liða úrslitum Bikarkeppninnar, þegar KFA-ÍA tóku á móti ÍR-TT. Gestirnir fóru með sigur af hólmi, en þær sigruðu alla þrjá leikina, 633-505, 640-485 og 635-462.
Í karlaflokki fór svo fram leikur ÍA og ÍR-L á sunnudag og var skor eftirfarandi:
ÍA 728 - 714 - 646 - 727 alls 2815
ÍR-L 672 - 748 - 768 - 714 alls 2902
Eftir 4 leiki var jafnt 2-2 og því spilaður bráðabani. ÍR-L vann þar 146 gegn 145 eða með einum pinna.
Föstudagur, 15. Febrúar 2008 kl. 16:40 | ÞH
Keiludeild ÍR fær styrk til þjálfaramenntunarMenntamálaráðherra hefur samþykkt að veita rúmum tuttugu milljónum í styrki til 90 verkefna að tillögu Íþróttanefndar. Alls bárust 158 umsóknir um styrki úr Íþróttasjóði að upphæð 177 milljónir króna vegna ársins 2008. Á meðal þeirra sem fengu styrk er Keiludeild ÍR, sem fær 100.000 krónur til menntunar keiluþjálfara.
Miðvikudagur, 13. Febrúar 2008 kl. 00:15 | ÞH
Íslandsmeistarar með forgjöf báðir úr KFK
Meira Þriðjudagur, 12. Febrúar 2008 kl. 23:33 | ÞH
Hjóna- og paramót KFR Fimmta umferð í hjónamóti KFR og Morandé var leikin á sunnudag og tóku 14 pör þátt í þetta sinn. Án forgjafar voru Dóra og Tóti í fyrsta sæti, Ragna og Bjarni í öðru og Steinunn og Ólafur í þriðja. Með forgjöf voru Bára og Tóti í fyrsta, Ástrós og Palli í öðru og Vilborg og Einar í því þriðja. Næsta umferð verður leikin 2. mars.Þriðjudagur, 12. Febrúar 2008 kl. 00:37 | ÞH
Spenna í milliriðlumEftir milliriðlana sem fram fóru í kvöld trónir Sigrún Huld Hrafnsdóttir úr KFR á toppnum í kvennaflokki með 1.711 eða 213,9 að meðaltali, 107 pinnum á undan Önnu S. Magnúsdóttur úr ÍR. Í þriðja sæti er Anna Kristín Óladóttir úr KFK. Aðeins sex konur halda áfram í undanúrslit og var mikil spenna í kringum fimmta og sjötta sætið, en fjórar konur röðuðu sér í fimmta til átta sæta og skildi aðeins einn pinni eina að frá annarri. Sigurður Björn Bjarkason úr KFKl, sem var í 14. sæti eftir forkeppni, er nú með góða forystu í karlaflokki, 85 pinna. Næstur á eftir honum er Sigurður Guðmundsson úr KFA, og í þriðja sæti Einar Már Björnsson úr KR. Átta karlar leika í undanúrslitum. Undanúrslit og úrslit fara fram annað kvöld, en keppni hefst klukkan 19:00 í Keiluhöllinni.
Sunnudagur, 10. Febrúar 2008 kl. 18:26 | ÞH
Íslandsmót með forgjöf - staðan eftir forkeppniÍ morgun lauk forkeppninni í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf. Í kvennaflokki er staða efstu þriggja óbreytt, en þær sem komast áfram eru Linda Hrönn Magnúsdóttir og Berglind Scheving úr ÍR og Anna Kristin Óladóttir úr KFK. Róbert Dan Sigurðsson úr ÍR lék allra best í morgun, en hann spilaði 878 og stökk þannig beint í fyrsta sæti í karlaflokki. Aðrir komust ekki áfram af þeim sem léku í morgun. Milliriðill fer fram annað kvöld, en keppni hefst kl. 19:00
Sunnudagur, 10. Febrúar 2008 kl. 12:32 | ÞH
Íslandsmót einstaklingaÍslandsmót einstaklinga verður haldið dagana 23. febrúar - 4. mars 2008 í Keiluhöllinni. Spilaðir eru 12 leikir í forkeppni, og komast 16 efstu karlar og 12 efstu konur áfram í milliriðil þar sem leiknir eru 6 leikir. Að honum loknum halda 8 karlar og 6 konur áfram í undanúrslit þar sem leikið er allir við alla.
Skráning fer fram í netfanginu skraning (hjá) kli.is og stendur hún til kl. 22:00 miðvikudaginn 20. febrúar. Laugardagur, 9. Febrúar 2008 kl. 14:30 | ÞH
Staðan eftir fyrsta leikdagÍ morgun hófst keppni í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöf, þegar 17 konur og 27 karlar léku í Keiluhöllinni. Í fyrramálið lýkur forkeppninni, þegar 9 karlar og 6 konur leika. Eftir fyrri leikdag eru ljós að 6 efstu konurnar og 7 efstu karlarnir sem léku í morgun eru örugg áfram í milliriðil. Í kvennaflokki er Ástrós Pétursdóttir úr ÍR efst með 867, næst kemur Sigrún Huld Hrafnsdóttir úr KFR með 846 og í þriðja sæti er Steinunn Inga Guðmundsdóttir úr KFA með 822. Meira Föstudagur, 8. Febrúar 2008 kl. 01:23 | ÞH
Brautaskipan í Íslandsmóti einstaklinga með forgjöfÍ gærkvöld lauk skráningu í Íslandsmót einstaklinga með forgjöf, og eru 36 karlar og 22 konur skráðar til leiks. Mun fleiri völdu að spila forkeppnina á laugardeginum, eða 45, en 13 spila á sunnudag. Keppni hefst klukkan 9:00 báða dagana. Við viljum minna keppendur að greiða keppnisgjald fyrir mót með millifærslu, eða með reiðufé á mótsstað áður en keppni hefst. Sjá nánar í auglýsingu. Fimmtudagur, 7. Febrúar 2008 kl. 12:34 | ÞH
Uppfært meðaltal Meðaltalið má nálgast undir Töfræði og Meðaltal. Þriðjudagur, 5. Febrúar 2008 kl. 23:57 | ÞH
Íslandsmóti unglinga lokiðÁ sunnudag lauk keppni í Íslandsmóti unglinga í Keiluhöllinni. Að þessu sinni komu fjórir Íslandsmeistarar úr röðum KFA, fjórir úr KFR og tveir úr ÍR. Alls tóku 29 unglingar þátt í mótinu; 22 piltar og 7 stúlkur Meira Þriðjudagur, 5. Febrúar 2008 kl. 16:53 | ÞH
Bikarkeppni KLÍ - 8 liða úrslitÞá hafa verið ákveðnir leiktímar þeirra þriggja leikja sem fram fara á Skaganum í 8 liða úrslitum í Bikarkeppninni. Í meðfylgjandi skjali má sjá tímasetningar þeirra, sem og brautaskipan leikjanna í Öskjuhlíð sem fram fara 21. febrúar. Á Skaganum verður leikið 14., 17. og 21. febrúar. Föstudagur, 1. Febrúar 2008 kl. 11:04 | ÁGÓ
Luxembourg OpenÍ gær hófu þeir Arnar Sæbergsson og Ásgeir Þór Þórðarson keppni á Luxembourg Open sem að er hluti af evrópumótaröðinni. Þeir spiluðu sína fyrstu 6 leiki í forkeppninni í gær og gekk Ásgeiri ágætlega og spilaði hann 1274 og er sem stendur í 13. sæti. Arnar spilaði 1176 og er hann í 39. sæti. Þeir munu síðan báðir spila seinni partinn í dag, kl.16 og 21. Bestum árangri til þessa hefur Paul Moor (1390) náð og í öðru sæti er Martin Larsen (1374) frá Svíþjóð sem að ætti að vera flestum íslenskum keilurum vel kunnugur. Fylgjast má með mótinu á heimasíðu mótsins www.luxembourg-open.lu |