|
Fréttasafn: Nóvember 2008
Sunnudagur, 30. Nóvember 2008 kl. 22:42 | ÞI
Reykjavíkurmót einstaklingaÞá er Reykjavíkurmóti einstaklinga lokið. Reykjavíkurmeistara urðu, annað árið í röð, Magna Ýr Hjálmtýsdóttir, KFR og Magnús Magnússon, ÍR. Magna byrjaði að spila við Ástrós og vann 2-1 á meðan Ragna vann Sigurlaugu með sama mun. Síðan vann hún Rögnu 2-0 og Sigurlaug vann Ástrós 2-1. Magnús byrjaði á að spila við Róbert og vann 2-0 á meðan Arnar Davíð og Jón Ingi kepptu. Arnar vann 2-1 og var um hörkuviðureign að ræða. Fyrsti leikur fór 278 - 267 fyrir Arnari. Síðan kepptu Magnús og Arnar og vann Magnús 2-0 og kom nú hæsti leikur mótsins er Magnús spilaði 297 í fyrri leiknum. Róbert vann síðan Jón Inga 2-0 í keppninni um þriðja sætið. Lokastöðuna má sjá hér. Þess má geta að Arnar Davíð Jónsson setti 4 Íslandsmet í morgun, 492 í 2 leikjum, 706 í 3 leikjum, 940 í 4 leikjum og 1171 í 5 leikjum. Laugardagur, 29. Nóvember 2008 kl. 13:06 | ÞI
Reykjavíkurmót einstaklingaFyrri degi Reykjavíkurmóts einstaklinga er lokið, en leiknir hafa verið 6 leikir af 9. Efst eru Magna Ýr og Jón Ingi. Sjá stöðuna hér. Föstudagur, 28. Nóvember 2008 kl. 14:32 | HIJ
Leikur í 2. deildLeik JP-Kast og ÍR-NAS sem fara átti fram þriðjudaginn 02. des. hefur verið flýtt um einn dag og verður hann spilaður mánudaginn 1. des. klukkan 19:00. Kemur þetta til vegna þess að JP-Kast er að spila í bikarnum á þriðjudaginn.
Við minnum einnig á Reykjavíkurmótið um helgina Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008 kl. 16:03 | HIJ
Reykjavíkurmót einstaklingaSkráning er hafin í Reykjavíkurmót einstaklinga sem verður leikið núna um helgina 29.-30. nóv. nánari uppl. hér. Meira Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008 kl. 15:20 | HIJ
300Björn Birgisson KFA-ÍA-W smellti á einn 300 leik í gærkvöldi í Félagakeppninni. TIL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ BJÖSSI Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008 kl. 00:49 | HIJ
Félagakeppni
2. umferð í Félagakeppni KLÍ fór fram í kvöld, og er staðan þannig: ÍR 60 stig KFR 44- ÍA 37- KR 31- KFK 8-
Mánudagur, 24. Nóvember 2008 kl. 21:45 | HIJ
16 liða Bikardrátturí kvöld var dregið í 16 liða bikar og verður leikið þriðjudaginn 02.12 og hefjast leikir kl. 19,00. Liðin sem drógust saman voru: KFK-Keila og ÍR-L. ÍR-G og KR-A. ÍR-A og KFA-ÍA. KFK-K og KFA-ÍA-B. JP-Kast og KFR-Þröstur. ÍR-PLS og KFR-Lærlingar. ÍR-KLS og ÍA-W. KFK-Keiluvinir og KFR-Stormsveitin.
Sunnudagur, 23. Nóvember 2008 kl. 16:54 | HIJ
Bikarkeppni2 leikir í Bikarkeppninni voru leiknir í morgun og fór svo að J P-kast sigraði KFK-A 3-0 og ÍR-A sigraði KR-B einnig 3-0. Á morgun er Félagakeppni KLÍ og hefst kl. 19,00 en á undan verður dregið í bikarkeppninni 16 liða úrslit, mætið því á morgun og verðið vitni af því á móti hverjum þið lendið og sjáið hörku keppni á milli félaganna. Miðvikudagur, 19. Nóvember 2008 kl. 10:30 | HIJ
Bikarkeppni liðaÁ Sunnudaginn 23.11. verða 2 leikir í bikarkeppni liða og hefjast leikir kl. 09.00 Brautarskipan er svohljóðandi: KFK-A. Braut 1. JP-Kast. Braut 2 ÍR-A. Braut 3. KR-B. Braut 4.
Þriðjudagur, 18. Nóvember 2008 kl. 13:57 | HIJ
Reykjavíkurmót unglingaReykjavíkurmót unglinga hefst miðvikudaginn 19,11.(á morgun) kl. 17 (í æfingatíma ÍR) aldur frá f. 1997-1990. Einnig er heil umferð í íslandsmóti liða 1. deild karla í kvöld. Fimmtudagur, 13. Nóvember 2008 kl. 19:48 | HIJ
AMF í Mexico4. keppnisdagur Í gær lauk þáttöku Jóns á þessu móti og í heildina stóð hann sig vel. Í gær lenti jón í ógöngum og átti erfitt uppdráttar, hann spilaði fyrsta leikinn ágætlega en fékk fullt af glennum í öðrum leik og eftir það kastaði ekki nógu vel og því fór sem fór, leikirnir voru þannig: 213-144-229-197-197-187. Hann endar með 200 í meðaltal eftir 24 leiki og er ég bara sáttur með þá útkomu. Nú ætlum við að sleikja sólina svolítið og horfa á úrslitin, við komum heim á mánudagsmorgun og kveðjum við þar til við sjáumst næst. Kveðja frá Mexico Hörður Ingi og Jón Ingi
Þriðjudagur, 11. Nóvember 2008 kl. 23:39 | HIJ
AMF í Mexico3. keppnisdagur. þá er lokið 3 degi og var þetta erfiðara en áður og átti Jón í svolitlu basli og náði engum mjög háum leik, en það er agalegt að vera að kasta vel í mörgum leikjum og fá ekki eins mikið úr boltanum og efni stóð til um, en leikirnir í dag voru þannig: 195-186-213-227-203-178 = 1202 og í heildina er Jón með +41 pinna. Seinna hollið er að fara að keppa núna og við vitum ekki hvað Jón þarf mikið á morgun til að komast inn en við vonum að það þurfi ekki meira en 1300 á morgun til að komast inn. Annars er ekkert sem amar að okkur hér í sólinni, við eigum ekki að spila fyrr en kl. 17 á morgun og ætla ég (Hörður) að liggja soldið í sólinni á morgun en Jón fær aðeins að leggjast í smá tíma og síðan að leggja sig (sofa aðeins)og koma vel stemmdur á morgun. þetta er gott í bili og byðjum kærlega að heilsa öllum Hörður Ingi og Jón Ingi kveðja frá Mexico Mánudagur, 10. Nóvember 2008 kl. 22:48 | ÞI
Breyting á leikdegiVið viljum minna á áður auglýsta breytingu að deildin sem átti að fara fram á morgun, þriðjudag, færist um einn dag og verður leikið kl 19 á miðvikudag. Mánudagur, 10. Nóvember 2008 kl. 22:33 | HIJ
AMF í Mexico2 keppnisdagur: 'i dag byrjaði Jón Ingi mjög vel og átti síðan í smá strögli en hélt nokkuð haus og spilaði í heildina yfir 200. leikirnir voru þannig: 216-232-179-190-200-193 = 1210 og samtalls er hann með 2439 og er 46 pinnum frá köttinu. það eru komnir 2 fullkomnir leikir (300) sá fyrri kom í gær hjá konunum og var það spilari frá Columbiu og í dag kom einn frá körlunum og var það spilari frá Rússlandi. það er enn sama veðrið hér það dregur aldrei fyrir sólu vegna þess að það sjást aldrei nein ský hér. Við höfum það gott og byðjum að heilsa frá Mexico Hörður Ingi og Jón Ingi ps. Árni Geir til hamingju með 300 leikinn Sunnudagur, 9. Nóvember 2008 kl. 18:18 | HIJ
AMF world cup Dagur 1 í keppninni: þá hefur Jón Ingi lokið fyrrsta skoti og spilaði hann fína keilu, 207-212-200-217-192-201 = 1229. þetta er nú bara góð byrjun á mótinu hjá Jóni, hann var að kasta vel en var ekkert sérstaklga heppinn, það datt ekkert af lausum boltum, hann þurfti að setja hann alltaf í vasann. Ég hefði viljað sjá nokkrar fellur í viðbót með smá heppni, hún (heppnin) þarf líka að vera með. það er geggjað veður hér sól og nokkur hiti. Okkur líður mjög vel og sofum vel saman. kveðja frá Mexico Hörður Ingi og Jón Ingi Fimmtudagur, 6. Nóvember 2008 kl. 21:04 | ÁGÓ
Olíuburður
Nú er komið að því að skipta um olíuburð í deildinni. Fært verður yfir í Broadway núna um helgina og verður því hægt að æfa sig í honum á laugardag og sunnudag. Einnig verður hægt að spila í broadway á sunnudagskvöld í Pepsi Max mótinu. Smellið á meira til að sjá svo heildarskipulagið fyrir veturinn.
·
Meira Fimmtudagur, 6. Nóvember 2008 kl. 08:30 | HIJ
AMF world cupí dag fara Jón Ingi Ragnarsson og Hörður Ingi til Hermosillo í Mexico þar sem Jón Ingi mun taka þátt í Heimsbikarmóti einstaklinga. Við leggjum af stað kl. 17 í dag til New York og svo í nótt förum af stað til Phoenix og þaðan til Mexico, við lendum þar kl. 13 að staðartíma sem er kl. 20 að isl. tíma þ. 07.11 síða mótsins er www.qubicaamf.com þaðan farið á news og á þeirri síðu til vinstri sjáið þið bowling world cup 2008 |