|
Fréttasafn: Október 2008
Ţriđjudagur, 28. Október 2008 kl. 23:54 | HIJ
Bikarkeppni liðaÍ kvöld var dregið í 32 liða úrslit í bikarkeppni karla, þar sem að það voru bara 18 lið í pottinum þá voru dregin út 4 lið. Og fór þetta svona. KFK-A - JP-Kast. ÍR-A - KR-B. Leikirnir verða spilaðir sunnudaginn 23. Nóv. Klukkan 09:00.
Föstudagur, 24. Október 2008 kl. 15:19 | ŢI
Evrópubikar einstaklingaÞá hafa Dagný og Steinþór lokið keppni hér í Duisburg. Dagný spilaði í morgunn og átti sinn besta dag, endaði með 1530. Hún endaði í 22. sæti með 187,63 í meðaltal. Steinþór spilaði svo eftir hádegi og hann átti einnig sinn besta dag og spilaði 1621. Hann endaði i 20. sæti með 199,5 í meðaltal. Á morgunn leika svo átta efstu til úrslita. Nánar á heimasíðu mótsins. Við biðjum kærlega að heilsa heim. Föstudagur, 24. Október 2008 kl. 07:04 | ŢI
Evrópubikar einstaklingaLeikið var í langri olíu á öðrum degi mótsins í Duisburg. Steinþór spilaði 1582 eða þrem pinnum lægra en á fyrsta degi. Hann er núna í 21. sæti með tæpa 198 í meðaltal og er 196 pinnum frá áttunda sætinu. Dagný spilaði 1479 og er í 24. sæti. Hún er með 185,8 í meðaltal, en vantar 328 pinna í 8. sætið. Leikið er í blandaðri oliu í dag og byrjar Dagný að spila klukkan 9. Nánar á heimasíðu mótsins. Fimmtudagur, 23. Október 2008 kl. 11:44 | ÁGÓ
Félagakeppni KLÍFélagakeppni KLÍ sem að halda átti síðastliðinn mánudag verður haldin næstkomandi fimmtudag, 30 október, í keiluhöllinni Öskjuhlíð klukkan 19:00. Miđvikudagur, 22. Október 2008 kl. 22:00 | ŢI
Evrópubikar einstaklingaÞá hafa Dagný og Steinþór lokið keppni á fyrsta degi mótsins. í dag var leikið í stuttu olíunni. Dagný er í 20. sæti með 186,7 í meðaltal og Steinþór í 16. sæti með 198,1 í meðaltal. Aðstæður eru til fyrirmyndar, nema ef vera skyldi að stikbrautir eru mjög sleipar. Á morgunn keppa þau í langri olíu og vonandi gengur þeim sem best. Staðan og einstaka leikir eru á heimasíðu mótsins www.ecc2008.dbu-bowling.com Miđvikudagur, 22. Október 2008 kl. 08:43 | ŢI
Evrópubikar landsmeistaraKeilusamband Íslands sendi að vanda keppendur til þátttöku á Evrópubikar landsmeistara í keilu, en að þessu sinni verður mótið haldið borginni Duisburg í Þýskalandi dagana 20. október til 26. október 2008. Fulltrúar okkar á mótinu eruÍslandsmeistarar einstaklinga 2008, þau Dagný Edda Þórisdóttir úr KFR og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR. Þjálfari, fararstjóri og fulltrúi KLÍ er Theódóra Ólafsdóttir. Meira Ţriđjudagur, 14. Október 2008 kl. 10:40 | HIJ
Deildarbikar2.umf.BREYTINGVið tilkynnum breytingu á dagsetningu í 2. umferð deildarbikarsins. Umferðin fer fram fimmtudaginn 23. okt. en ekki þriðjudaginn 21. eins og auglýst er. þetta er vegna þess að allt er fullt í Öskjuhlíðinni á þriðjudagskvöld. Mánudagur, 13. Október 2008 kl. 13:22 | HIJ
Reykjavik International GamesKæru keilarar, þar sem við misstum aðal sponsorinn og í ljósi gengis gagnvart ísl. krónu höfum við ákveðið að fella niður keilumótið Reykjavík International Games sem átti að fara fram í Janúar 09 (því miður) Hörður Ingi Föstudagur, 10. Október 2008 kl. 14:20 | ŢI
Staða í deildumTekist hefur að laga villuna í skráningu á skori úr deildum sem hefur verið að plaga okkur síðustu viku. Stefnt er á að innsláttur og staða verði að mestu leiti tilbúin um helgina. Fimmtudagur, 9. Október 2008 kl. 18:33 | ŢI
Íslandsmót í diskókeiluKFK þykir leitt að tilkynna að Íslandsmótið í diskókeilu fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka. Föstudagur, 3. Október 2008 kl. 09:33 | ÁGÓ
Meistarakeppni ungmennaUm síðustu helgi var spiluð fyrsta umferð í meistarakeppni ungmenna. Nánari stöðu eftir fyrstu umferð má sjá hér. Fimmtudagur, 2. Október 2008 kl. 15:59 | ÁGÓ
1. umferð í deildarbikarSíðastliðinn þriðjudag ´var 1. umferð í deildarbikarnum leikin. Stöðuna eftir 1. umferð má svo sjá hér. |