Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Þri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Janúar 2008

Fimmtudagur, 31. Janúar 2008 kl. 10:10 | ÞH
Hjóna og paramót og Pepsi Max mót í febrúar

Hjóna og paramóti KFR í febrúar hefur verið seinkað um viku og verður 10. febrúar.  Vegna þessa færist Pepsi Max mótið sem átti að vera þann 10. fram til 3. febrúar.

 




Þriðjudagur, 29. Janúar 2008 kl. 16:36 | ÞH
Breytingar á stjórn KLÍ

Í síðustu viku sögðu þeir Bragi Már Bragason, varaformaður og Valgeir Guðbjartsson sig úr stjórn KLÍ.  Þá hættir Bragi Már einnig sem formaður landsliðsnefndar.  Valgeir mun áfram starfa í unglinganefnd og landsliðsnefnd og Bragi mun að sinni sjá um innslátt á skori úr Keiluhöllinni á þriðjudögum.

Við sem eftir sitjum í stjórn viljum þakka þeim Braga og Valgeiri kærlega fyrir samstarfið og framlag sitt til keilunnar á Íslandi.

Sæti Valgeirs og Braga í stjórn taka Laufey Sigurðardóttir og Einar Jóel Ingólfsson.




Mánudagur, 28. Janúar 2008 kl. 11:48 | ÞH
Íslandsmót unglinga
Á laugardag hófst keppni í Íslandsmóti unglinga, en leikið var bæði laugardag og sunnudag.  31 keppandi er skráður til leiks úr öllum félögunum, en flestir koma ofan af Akranesi, 14, en leikið er í fjórum aldursflokkup pilta og stúlkna.
 
Í 1. flokki eru efst þau Skúli Freyr Sigurðsson úr KFA og Ástrós Pétursdóttir úr ÍR.  Í 2. flokki eru efst Guðlaugur Valgeirsson úr KFR og Steinunn Inga Guðmundsdóttir úr KFA. Í 3. flokki eru efst Arnar Davíð Jónsson og Alda Ósk Valgeirsdóttir, bæði úr KFR, og í 4. flokki eru efst Guðmundur Ingi Jónsson úr ÍR og Elísabet Bára Sveinsdóttir úr KFA.
 
Keppni heldur áfram næstu helgi, en þá er einnig leikið bæði laugardag og sunnudag, og lýkur með úrslitum á sunnudag.



Sunnudagur, 27. Janúar 2008 kl. 10:33 | ÞH
Nýtt meðaltal

Þá hefur meðaltal eftir desember mánuð litið dagsins ljós.  Meðal þeirra 40 efstu hækka flestir sig á milli mánuða, en þó er aðeins einn þeirra sem hækkar í allsherjarjarmeðaltali, en það er einmitt sá sem vermir 40. sætið.

Að vanda má nálgast meðaltalið undir Tölfræði og Meðaltal.




Laugardagur, 26. Janúar 2008 kl. 15:56 | ÞH
Íslandsmeistarar para 2008

Það voru þau Ragna Matthíasdóttir og Bjarni Sveinbjörnsson úr KFR sem stóðu uppi sem Íslandsmeistarar para síðastliðinn sunudag.

Ragna og Bjarni höfðu forystuna eftir forkeppnina á laugardag, en þau voru með 2.191, eða 10 pinna forskot á undan Sigfríði Sigurðardóttur úr KFR og Magnúsi Magnússyni úr KR.   Guðný Gunnarsdóttir og Arnar Sæbergsson úr ÍR komu þar á eftir með 2.143, og í fjórða sæti voru Karen Rut Sigurðardóttir og Jón Ingi Ragnarsson úr ÍR með 2.078.


Meira



Miðvikudagur, 23. Janúar 2008 kl. 22:15 | ÞH
Íslandsmót einstaklinga með forgjöf

Íslandsmót einstaklinga með forgjö verður haldið dagana 9. - 12. febrúar 2008 í Keiluhöllinni.  Spilaðir eru 4 leikir í forkeppni, og komast 16 efstu karlar og 12 efstu konur áfram í milliriðil þar sem leiknir eru aðrir 4 leikir.  Að honum loknum halda 8 karlar og 6 konur áfram í undanúrslit þar sem leikið er allir við alla.

Skráning fer fram í netfanginu skraning (hjá) kli.is og stendur hún til kl. 22:00 miðvikudaginn 6. febrúar. 




Fimmtudagur, 17. Janúar 2008 kl. 16:57 | ÞH
Íslandsmót para um helgina

Keppni hefst í Íslandsmóti para á laugardag kl. 9:00, en mótið fer fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. 12 pör eru skráð til leiks, og má sjá þau hér að neðan.

Í mótinu verður tekin upp ný aðferð við færslu milli brauta.  Skipt verður eftir um brautir eftir hvern leik, og munu pör færast í sitthvora áttina um ýmist 2 eða 3 sett, og leikur því hvert par einn leik á hverju setti.  Brautaskipan í hverjum leik má sjá í viðhengi. 


Meira



Þriðjudagur, 15. Janúar 2008 kl. 13:32 | ÞH
Íslandsmót unglinga

Íslandsmót unglinga verður haldið dagana 26.-27. janúar og 2.-3. febrúar.




Fimmtudagur, 10. Janúar 2008 kl. 20:24 | LS
Bikarleikjum flýtt um einn dag

Vegna vandræða í Keiluhöllinni í kvöld þarf að flýta bikarkeppni liða.  Leikirnir sem fara áttu fram fimmtudaginn 17. janúar í Keiluhöllinni verða leiknir miðvikudaginn 16. janúar kl 19:00.




Laugardagur, 5. Janúar 2008 kl. 19:35 | ÞH
Styttist í Íslandsmót para

Eins og við minntum á í byrjun Desember mun Íslandsmót para fara fram dagana 19. og 20. janúar í Keiluhöllinni.  Í forkeppni eru leiknir 6 leikir, og halda 8 efstu pörin áfram í milliriðil þar sem aðrir 6 leikir eru leiknir.

Skráning er hafin í mótið á netfanginu skraning (hjá) kli.is.  Verð í forkeppni er kr. 5.500




Laugardagur, 5. Janúar 2008 kl. 19:28 | ÞH
Bikarkeppni - 16 liða úrslit

 Í gær var dregið í 16 liða úrslitum karla í Bikarkeppni KLÍ.  Tvö lið af Akranesi eiga heimaleiki, sem leiknir verða sunnudaginn 13. janúar og laugardaginn 19. janúar, en aðrir leikir fara fram  í Keiluhöllinni fimmtudaginn 17. janúar.

Uppfært: Við fyrstu birtingu víxluðust leikirnir á Akranesi, en það hefur verið leiðrétt.


Meira