|
Fréttasafn: September 2007
Föstudagur, 28. September 2007 kl. 10:35 | ŢH
Tvöfalt hjá KFR
Meira Fimmtudagur, 27. September 2007 kl. 15:43 | BMB
DeildarbikarÍ fréttabréfi sem sent var út þ. 25. september s.l. kom fram að hann verði spilaður í einum riðli. Málið var tekið fyrir á stjórnarfundi í gærkvöldi, og ákveðið spila í tveim 5-liða riðlum. Dregið var í riðla á fundinum. Meira Mánudagur, 24. September 2007 kl. 13:30 | SKL
Keppnistímabilið 2007 - 2008
Deildarkeppni liða hefst svo sunnudaginn 30. september kl. 13:00 með viðureign kvennaliðs KFA-ÍA og nýliðanna í kvennadeildinni KFK-GK og kl. 16:00 hefst síðan viðureign nýliðanna í 2. deild karla KFA-ÍAW og KR-C í Keilsalnum á Akranesi. Mánudaginn 1. október hefst keppni í 1. deild kvenna og 2. deild karla í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð kl. 19:00, en þar mætast í 1. deild kvenna: KFR-Valkyrjur - KFR-Skutlurnar, ÍR-KK - KFR-Afturgöngurnar, ÍR-TT - ÍR-BK. Og í 2. deild karla mætast: ÍR-T - KFA-ÍA-B, ÍR-Blikk - ÍR-Línur, ÍR-NAS - KFK-Keila.is, ÍR-P - KFR-JP-kast, en leikur KFR-Þrastanna og KFK-A fer fram á sama tíma á þriðjudag. Þriðjudaginn 2. október hefst keppni í 1. deild karla í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð kl. 19:00, en þar mætast: KR-A - ÍR-L, ÍR-KLS - KFA-ÍA, ÍR-A - ÍR-PLS, KFR-Stormsveitin - KR-B, KFR-Lærlingar - KFK-Keiluvinir og þá fer einnig fram áðurnefndur leikur í 2. deild karla KFR-Þröstur - KFK-A. Dagskrá fyrstu 5. umferðanna: Dagskráin er birt með fyrirvara um leiðréttingar og breytingar. Meira Laugardagur, 22. September 2007 kl. 07:38 | BMB
ECC, dagur 3.Í gær lauk forkeppni í Evrópumóti landsmeistara. Sigfríður Sigurðardóttir endaði í 24. sæti með samtals 4319 (179,96), en Magnús Magnússon í því 19. með alls 4750 (197,92). Efst í kvennaflokki er Ingunn Oien frá Noregi með 5029 (209,54) og í karlaflokki Marco Reviglio frá Ítalíu með 5357 (223,21). Úrslit verða spiluð í dag. Sjá heimasíðu mótsins. Fimmtudagur, 20. September 2007 kl. 22:30 | BMB
ECC, dagur 2.Nú er 2. keppnisdegi lokið á Evrópumóti landsmeistara. Mads Sandbækken frá Noregi er enn í 1. sæti í karlaflokki með 3567, eða 222,94 í meðaltal, en í kvennaflokki er landsmaður hans Ingunn Oien efst með 3406 eða 213 í meðaltal. Magnús Magnús er í 17. sæti með samtals 3193 eða 199,56 í meðaltal, en Sigfríður Sigurðardóttir er í 22. sæti með 2966 eða 185,38 í meðaltal. Á morgun verður keppt í blandaðri olíu, langri og stuttri, en eftir það komast 8 efstu í hvorum flokki áfram í úrslit. Sjá nánar heimasíðu mótsins: Miđvikudagur, 19. September 2007 kl. 22:00 | BMB
ECC, dagur 1.Nú er fyrsta degi lokið í landsmeistáramótinu, en leiknir voru 8 leikir í stuttri olíu. Sigfríður er i 17. sæti með 1484 alls, eða 185,5 í meðaltal. Efst í kvennaflokki er Therese Forsell frá Svíþjóð með 1559 eða 194.9 í meðaltal. Hjá körlunum er norðmaðurinn Mads Sandbækken efstur með heil 1957, eða 244,6 í meðaltal. Magnús er í 18.sæti með samtals 1559 , eða 194,9 í meðaltal. Keppni heldur áfram á morgun í langri olíu, en á föstudaginn verður leikið í blandaðri, þ.e. langt og stutt til skiptis. Sjá heimasíðu mótsins: Miđvikudagur, 19. September 2007 kl. 11:21 | BMB
Fréttir frá LúxemborgKeppni er hafin í ECC, "European Champions Cup", eða Evrópumót Landsmeistara. Sigfríður Sigurðardóttir er í 8. sæti í sínum riðli eftir 8 leiki með 1484 alls eða 185,4 í meðaltal. Efst í riðlinum er Patricia Klug frá Austurríki með samtals 1750, eða 218,75 í meðaltal. Í riðli 2 byrjar Therese Forsell frá Svíþjóð af krafti, en hún spilaði 264 og 239 í fyrstu tveim leikjunum. Sjá nánar á http://www.champions-cup.lu/site/?page=results&PHPSESSID=9bd993a005edeb6856da5b12708695bb Miđvikudagur, 19. September 2007 kl. 00:43 | BMB
Keppnistímabilið 2007-08Keppnistímabilið 2007-08 hefst á hefðbundinn hátt með Meistaramóti KLÍ, "Meistarar meistaranna", fimmtudaginn 27. september 2007 kl. 19:00 í keiluhöllinni í Öskjuhlíð. Í kvennaflokki keppa Íslands- og bikarmeistararnir KFR-Valkyrjur við ÍR-TT sem urðu í öðru sæti í bikarkeppni liða. Í karlaflokki keppa Íslandsmeistarar KFR-Lærlingar við bikarmeistara ÍR-PLS. Deildarkeppni liða hefst svo sunnudaginn 30. september kl. 16:00 með viðureign KFA-ÍAW og KR c í keilsalnum á Akranesi. Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Miđvikudagur, 19. September 2007 kl. 00:35 | BMB
Evrópumót landsmeistaraMánudaginn 17.september heldu þau Sigfríður Sigurðardóttir og Magnús Magnússon utan til Lúxemborgar að keppa á Evrópumóti landsmeistara, European Champions Cup. Með þeim í för er Theodóra Ólafsdóttir. Keppnin sjálf hefst miðvikudaginn 19. september. og lýkur með úrslitakeppni 22. september. Sjá heimasíðu mótsins: Föstudagur, 7. September 2007 kl. 11:28 | SKL
Utandeild KLÍ 2007 - 2008
Skráningarfrestur er til 15. september og skráning fer fram á netfanginu keila@keila.is Þar þurfa eftirfarandi upplýsingar að koma fram: - Nafn liðs - Nafn fyrirliða ásamt síma og netfangi - Óskir ef einhverjar eru, t.d ef viðkomandi lið vill vera með einhverju öðru í riðli. Utandeildin er tilvalin fyrir fyrirtæki að skora á samkeppnis- eða samstarfsaðila í keilu einu sinni í mánuði eða fyrir fyrirtæki og hópa að fara saman í keilu þar sem áhersla er lögð á afslappað og skemmtilegt andrúmsloft. Ef það eru einhverjar spurningar sem skjóta upp kollinum þá endilega hafið samband í gegnum netfangið keila@keila.is Meira |