|
Fréttasafn: Júlí 2007
Fimmtudagur, 5. Júlí 2007 kl. 10:24 | ŢH
Fleiri Evrópumet í dagFyrri þrímenningur Íslands hóf keppni í morgun, en hann er skipaður þeim Andrési Páli, Stefáni og Árna Geir. Líkt og í tvímenningnum er fyrst leikið í stuttri olíu og síðan þeirri löngu, en aðeins eru leiknir 3 leikir í hvort skipti. Skor var ágætt í morgun, en okkar menn enduðu á 1.719, eða 191 að meðaltali, og var Andrés Páll efstur mð 596. Finnarnir Jari Ratia, Joonas Jehkinen og Kimmo Lehtonen áttu stórleik í morgun og settu tvö Evrópumót, 803 í einum leik og 2.167 í þremur leikjum, en Jari náði fyrsta 300 leik mótsins í síðasta leiknum. Sjá skor í þrímenningnum Skor Íslands frá í morgun má sjá hér að neðan. Þeir halda áfram keppni klukkan 9 í fyrramálið. Björn, Róbert og Hafþór mynda hinn tvímenningin og leika þeir í dag og á morgun, og hefja leik klukkan 16:30 báða dagana. Meira Miđvikudagur, 4. Júlí 2007 kl. 16:23 | ŢH
Evrópumet hjá Svíum
Róbert Dan og Björn spiluðu aðeins lægra í dag en í gær, eða 2.177. Skor má sjá hér að neðan. Meira Miđvikudagur, 4. Júlí 2007 kl. 14:19 | ŢH
Tvímenningur heldur áframÞeir Stefán Claessen og Andrés Páll Júlíus luku í gærkvöld keppni í tvímenningnum, en gengi þeirra var líka og þeirra Hafþórs og Árna Geirs betra í löngum olíuburði en stuttum. Þeir léku samtals 2.198, eða 183,2 í meðaltal. Þeir Róbert og Björn hófu keppni núna klukkan 13:30. Sjá skor. Að neðan má sjá skor þeirra Stefáns og Andrésar. Meira Ţriđjudagur, 3. Júlí 2007 kl. 16:25 | ŢH
Hafþór og Árni Geir bættu sig
Austurríkismennirnir, sem léku best í hóp 1 í gær, endurtóku leikinn nú dag og spiluðu 2.719 eða 226,6 að meðaltali, sem er besta sería tvímennings enn sem komið er. Þeir eru samanlagt með 5.280, eða 220 að meðaltali, sem dugir þeim þó ekki nema í 4. sætið að svo stöddu. Úrslit eru farin að koma fyrr enn á vef mótsins, en við sendum nú leiki okkar manna um leið og þeim lýkur. Meira Ţriđjudagur, 3. Júlí 2007 kl. 12:35 | ŢH
Skor í beinniHér má fylgjast með gengi íslensku strákanna í beinni Meira Ţriđjudagur, 3. Júlí 2007 kl. 11:06 | ŢH
Skor hækkar á Evrópumótinu
Í efsta sæti eru danirnir Jesper Agerbo og Bo Winther Pedersen, sem léku nú í morgun, með 2.713 eða 226 að meðltali. Þar á eftir koma svíarnir Magnus Andersson og Tobias Karlsson sem léku í gærkvöld með 2.682, en Tobias lék manna best í fyrri umferðinni og leiðir því einstaklingskeppnina, en hann spilað 1.458. Í þriðja sæti eru Tobias Gaebler og Achim Grabowski frá Þýskalandi, og því fjórða þeir Robert Andersson og Martin Larsen sem eru okkur Íslendingum vel kunnugir, með 2.632.
Meira Mánudagur, 2. Júlí 2007 kl. 11:38 | ŢH
Tvímenningskeppni hafinÞeir Haþór Harðarson og Árni Geir Ómarsson hófu keppni í tvímenning nú í morgun. Skorið var ekki hátt í stutta olíuburðinum í morgun, en efstir að loknum fyrsta hópnum eru heimamennirnir Thomas Gross og Thomas Tybl með 213,41 í meðaltal. Hafþór og Árni Geir byrjuðu ágætlega en misstu dampinn og enduðu með 1.955, eða 163 í meðaltal. Einhver vandræði eru á tölvukerfinu og því ekki hægt að nálgast skor einstakra leikja á vef mótsins, en unnið ku vera að lagfæringu á því. Leiktímar okkar manna í tvímenningskeppninni eru eftirfarandi:
Sunnudagur, 1. Júlí 2007 kl. 10:55 | ŢH
Tvímenningur hefst á morgun
Tilkynnt hefur verið hvaða tvímenningum verður teflt fram fyrir Íslands hönd, og eru þeir eftirfarandi:
Ekki hefur verið tilkynnt í hvaða hollum hvaða tvímenningar leika. |