|
Fréttasafn: Maí 2007
Laugardagur, 26. Maí 2007 kl. 23:34 | APJ
Magnús Magnússon sigraði forkeppni Brunswick Aalborg InternationalMagnús Magnússon sigraði forkeppni Brunswick Aalborg International en forkeppni í mótinu lauk núna í kvöld. Magnús spilað stórglæsilega 6 leikja seríu 1514. Annar var Paul Moor frá Bretlandi með 1512 og þriðji var finnski atvinnumaðurinn Mika Koivuniemi með 1499. Þessi árángur Magnúsar tryggir honum sæti í þriðja hluta úrslitakeppni mótsins sem hefst í fyrramálið og lágmark 24. sæti í lokastöðu mótsins. Magnús fékk einnig 1000€ verðlaunafé fyrir sigurinn. Meira Föstudagur, 25. Maí 2007 kl. 19:42 | APJ
Íslendingar á Evróputúrnum
Magnús Magnússon Íslandsmeistarinn úr KR er að vekja mikla eftirtekt í Evrópska keiluheiminum þessa dagana með frábærri spilamennsku í Álaborg. Meira Sunnudagur, 20. Maí 2007 kl. 12:09 | ÞH
Stefán Claessen og Steinþór Geirdal Íslandsmeistarar í tvímenningi
Í úrslitunum mættu því Stefán og Steinþór þeim Jóni Inga og Róbert Dan, og þrátt fyrir góða spilamennsku þeirra síðarnefndu, þá sigruðu Stefán og Steinþór fyrstu tvo leikina, 499 gegn 450 og 546 gegn 445, og hömpuðu því Íslandsmeistaratitlinum. Keilusambandið vill þakka Atlantsolíu, sem gaf verðlaunin í mótið, fyrir stuðninginn. Fimmtudagur, 17. Maí 2007 kl. 15:13 | BMB
Evrópumót karla 2007Evrópumót karla verður haldið í Vín í Austurríki 30. júní - 10 júlí 2007. Eftirtaldir karlar hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd: Andrés Páll Júlíusson, KR Árni Geir Ómarsson, ÍR Björn Birgisson, KR Björn Guðgeir Sigurðsson, KR Hafþór Harðarson, KFR Róbert Dan Sigurðsson, ÍR Þriðjudagur, 15. Maí 2007 kl. 12:41 | ÞH
Arnar og Árni Geir efstir eftir milliriðil
Eftir forkeppni voru þeir Stefán Claessen og Steinþór Geirdal Jóhannsson úr ÍR efstir, en þeir gáfu aðeins eftir í milliriðlinum. Þá voru þeir Andrés Páll Júlíusson og Magnús Magnússon í öðru sæti, en Andrés særðist illa á þumli í fyrsta leik milliriðilsins og neyddist til að leika með aðeins tveimur fingrum. Keppni heldur áfram kl. 19:00 í kvöld, þegar 6 efstu eftir milliriðil leika einfalda umferð, allir við alla. Að þeim loknum leika tveir efstu tvímenningarnir til úrslita. Mánudagur, 14. Maí 2007 kl. 13:51 | ÞH
Íslandsmót í tvímenningi hefst í kvöld
Keppni heldur svo áfram annað kvöld þegar 6 efstu tvímenningarnir eftir milliriðil leika allir við alla í undanúrslitum og eru úrslit leikin strax að þeim loknum. Föstudagur, 11. Maí 2007 kl. 15:59 | ÞH
14. Ársþing KLÍ haldið í gær
Fyrir þinginu lá meðal annars tillaga frá stjórn KLÍ um breytingu á reglugerð um Íslandsmót liða á þann hátt að mæti lið ekki til leiks skuli það lið sem mætir ekki spila leikinn. Nokkrar umræður urðu um hana, en tillagan var felld í atkvæðagreiðslu. Þá samþykkti þingið áskorun til fjölmiðla um að gera jaðaríþróttum betri skil í íþróttafréttum. Meira Föstudagur, 11. Maí 2007 kl. 02:19 | ÞH
KFR-Lærlingar og KFR-Valkyrjur Íslandsmeistarar
Enn var svo jafnt að stigum að loknum tveimur leikjum á miðvikudagskvöld, 26-26, KR-A með 42ja pinna forskot í heildina og 8 stig eftir í pottinum. Þegar kom að 10. rammanum leit allt út fyrir að KR-ingar myndu landa titlinum, en í síðasta skoti sínu náði Freyr fellu og jafnaði þannig leik Andrés mótherja síns, og næstu tveir í röðum KFR-Lærlinga náðu einnig að siga fram úr sínum mótherjum og næla sér þannig í tvö stig til viðbótar. Niðurstaðan varð að þeir voru þegar upp var staðið 28 pinnum hærri í leiknum en KR-A og nældu þér þannig í tvö dýrmæt stig til viðbótar, þótt KR-A hafi verið 14 pinnum hærri í heildina. Lokaniðurstaðan í viðureigninni því 10,5 stig gegn 9,5 stigum KR-A og því 30,5 gegn 29,5 útúr öllum þremur úrslitaviðureignunum, en hefði orðið jafnt að stigum hefðu það verið KR-A sem hefðu sigrað, þar sem þeir voru með mun hærra heildarskor. Meira Miðvikudagur, 9. Maí 2007 kl. 14:07 | ÞH
Úrslitakeppnin í fullum gangiNú stendur úrslitakeppni Íslandsmóts liða sem hæst, en í kvöld fer fram þriðji og síðasti leikurinn þar sem í kvennaflokki berjast lið KFR-Valkyrja og ÍR-TT, en hjá körlunum eru það KR-A og KFR-Lærlingar sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Á mánudag tryggðu KFR-Afturgöngurnar og ÍR-PLS sér 3. sætin. Þriðjudagur, 8. Maí 2007 kl. 20:31 | ÞH
Verðlaunaafhending á Árshátíð KLÍÁ árshátíð KLÍ sem haldin var í Laugardalshöll s.l. laugardagskvöld, voru veitt verðlaun fyrir deildakeppnina, líkt og venja er, en það voru þeir Hörður Ingi Jóhannsson og Valgeir Guðbjartsson formaður KLÍ sem sáu um hana. Þriðjudagur, 8. Maí 2007 kl. 16:34 | ÞH
Arnar sigraði á afmælismóti ÍRArnar Sæbergsson stóð uppi sem sigurvegari á 100 ára afmælismóti ÍR, þegar hann sigraði Steinþór Geirdal Jóhannsson í úrslitum með 484 pinnum gegn 411. Að launum hlaut Arnar meðal annars ferseðla fyrir tvo á einhvern áfangastaða Icelandair. Miðvikudagur, 2. Maí 2007 kl. 09:11 | SKL
100 ára afmælismót ÍR og Icelandair
Vegna fjölda áskorana hefur verið tekin sú ákvörðun að nota ekki deildarolíuburð í mótinu. Þess í stað verður notaður olíuburður nr 6 sem er 40 feta olíuburður. Verið er að vinna í því að fá graf af olíuburðinum. Miðvikudagur, 2. Maí 2007 kl. 00:43 | ÞH
KFR-Valkyrjur og ÍR-PLS Bikarmeistarar
KFR-Valkyrjur tryggðu sér titilinn með hreint út sagt frábærri spilamennsku þegar þær settu Íslandsmet í einum, tveimur og þremur leikjum liða, og unnu þannig ÍR-TT 3-0. Spiluðu þær 922 í fyrsta leik, 1.749 í tveimur og 2.579 í þremur, sem er bæting frá eldra meti um 152 pinna. Það var Sigfríður Sigurðardóttir, sem um helgina setti nýtt Íslandsmet í 3 leikjum kvenna, sem lék þeirra best, 713, og Magna Ýr var næst með 642. Hjá körlunum áttu ÍR-PLS stórleik, en þeir sigurðu einnig 3-0 félaga sína úr ÍR-KLS, en alls spiluðu þeir 2.738 gegn 2.356 hjá ÍR-KLS. Í öðrum leik lék hinn 19 ára gamli Róbert Dan Sigurðsson sinn fyrsta 300 leik, og liðsfélagar hans vou einnig á skotskónum og samtals spiluðu þeir 1.017 í þeim leik.
Meira |