Mót
Fréttir
  Fréttabréf KLÍ
  Fréttasafn

Dagskrá
Deildir
Upplýsingar
Tölfræði
Keilusalir
Netið
66° Norður
1x2
Lottó
ÍSÍ
ETBF
Keila.is
Sportið.is
RSS

Fréttir
Lau, 11. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 09:00
Íslandsmót einstaklinga

Sun, 12. febrúar | 20:00
Pepsi mót ÍR

Mán, 13. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Þri, 14. febrúar | 19:00
Íslandsmót einstaklinga

Dagskrá næsta mánuðinn

 

Nordic Youth

Singles

Teams

Doubles

Master qualification

Master - boys

Master - girls


 

Fréttasafn: Apríl 2007

Sunnudagur, 29. Apríl 2007 kl. 18:38 | ÞH
Hátt skor í undanúrslitum Íslandsmóts liða
Nú um helgina fóru fram undanúrslit í Íslandsmóti liða, þar sem mættust í karlaflokki lið KFR-Lærlinga og ÍR-A annars vegar, og lið KR-A og ÍR-PLS hinsvegar.  Spilamennska var mjög góð, og mátti sjá einar 9 seríur yfir 690 og féllu nokkur Íslandsmet.
Það eru lið KFR-VAlkyrja og ÍR-TT sem munum mætast í úrslitum í kvennaflokki og lið KFR-Lærlinga og KR-A í karlafokki.
Meira



Föstudagur, 27. Apríl 2007 kl. 10:12 | KLÍ
Deildarbikar - Úrslit

Fimmtudagskvöldið 26. apríl fóru fram í Keiluhöllinni Öskjuhlíð úrslit í deildarbikar liða. Liðin sem kepptu til úrslita voru ÍR-PLS og ÍR-A úr A-riðli, og KR-B og ÍR-KLS úr B-riðli.

ÍR-PLS unnu með 10 stig, enda settu leikmenn liðsins, þeir Steinþór Geirdal og Róbert Dan Sigurðsson, fjögur Íslandsmet þegar þeir spiluðu 567 í einum leik, 1038 í tveimur leikjum, 2367 í fimm leikjum og 2830 í sex leikjum. Í öðru sæti urðu ÍR-KLS með 8 stig, í því þriðja ÍR-A með 4, en KR-B ráku lestina með 2 stig.


Meira



Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 kl. 17:32 | SKL
Íslandsmót liða 2006 - 2007

KFR liðin Valkyrjur og Lærlingar tryggðu sér Deildarmeistaratitlana á Íslandsmóti liða í þegar síðasta umferðin fór fram í vikunni. En úrslitakeppni hefst laugardaginn 28. apríl.


Meira



Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 kl. 17:31 | SKL
100 ára afmælismót ÍR og Icelandair

100 ára afmælismót ÍR og Icelandair verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð 3. - 5. maí n.k. Spilaðir eru 6 leikir í forkeppni þar sem hægt er að velja um 4 riðla og getur hver keppandi spilað eins oft og hann vill og gildir þá hæsta serían.


Meira



Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 kl. 17:31 | SKL
Deildarbikar liða 2006 - 2007
Úrslit í Deildarbikar liða fara fram í Keiluhöllinni fimmtudaginn 26. apríl og hefjast kl.18:30. Til úrslita keppa tvö efstu liðin úr hvorum riðli, ÍR-PLS og ÍR-A úr A-riðli og ÍR-KLS og KR-B úr B-riðli.



Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 kl. 17:29 | SKL
Íslandsmót í tvímenningi 2007

Íslandsmót í tvímenningi 2007 verður haldið í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð mánudaginn 14. og þriðjudaginn 15. maí 2007 og hefst keppni kl. 19:00 báða dagana. Spilaðir eru 4 leikir í forkeppni og komst 10 efstu tvímenningarnir áfram í milliriðil þar sem spilaðir eru 4 leikir. 6 efstu tvímenningarnir spila síðan í undanúrslitum sem spiluð eru allir við alla einföld umferð. Að lokum spila 2 efstu tímenningarnir til úrslita.  Verð fyrir forkeppni er 4.200 kr, 3.500 kr. fyrir milliriðli og 3.500 fyrir undanúrslit. Skráning fer fram á netfanginu skraning (hjá) kli.is og lýkur miðvikudaginn 9. maí kl. 22:00. Sjá nánar í auglýsingu




Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 kl. 17:27 | SKL
Íslandsmót unglingaliða 2006 - 2007
Úrslit í Íslandsmóti unglingaliða fóru fram í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð sunnudaginn 31. mars s.l. Stóð lið ÍR að lokum upp sem sigurvegari eftir að hafa sigrað lið ÍA-1 2 - 0 í úrslitunum. Lið KFR varð í 3. sæti eftir 2 - 0 sigur á liði ÍA-2 sem hafnaði í 4. sæti. Sjá nánar



Þriðjudagur, 24. Apríl 2007 kl. 10:30 | BMB
Árshátíð 2007

Árshátíð Keilusambands Íslands verður haldin í Laugardalshöllinni laugardaginn 5. maí n.k. Húsið opnar kl. 19:00. Miðaverð er 4.900 kr. Forréttarhlaðborð, steikarhlaðborð, kaffi og konfekt. Happdrætti með fjölda glæsilegra vinninga. Hvetjum alla til að mæta. Ágóðinn rennur til karlalandsliðsins vegna þátttöku á Evrópumeistaramóti karla sem haldið verður í Vínarborg 30. júní til 10. júlí n.k.  

Hafþór (s. 694 8888) og Stefán (s 897 7357) verða með miða til sölu gegn reiðufé í Keiluhöllinni þriðjudagskvöld, laugardag, sunnudag og mánudagskvöld.


Meira



Mánudagur, 23. Apríl 2007 kl. 09:16 | BMB
Úrslit í AMF World Cup: Nóa-mótið 2007

Sunnudaginn 23. apríl s.l. fóru fram úrslit í Nóa-mótinu. Tveir 300-leikir voru leiknir af þeim Árna Geir Ómarssyni og Stefáni Claessen, en þess ber einnig að geta að Hafþór Harðason setti Íslandsmet í 5 og 6 leikjum í forkeppninni þegar hann spilaði 1284 og 1540.

Í úrslitunum sigraði svo Hafþór er hann lék 463 í 2 leikjum á móti 430 hjá Steinþóri Geirdal Jóhannssyni.

Sjá skor




Miðvikudagur, 18. Apríl 2007 kl. 16:00 | KLÍ
Árshátíð 2007

Árshátíð KLÍ verður haldin í Laugardalshöllinni þann 5. maí næstkomandi.

Hægt er að kaupa miða hjá Stefáni Claessen, 897 7357, og Hafþóri Harðarsyni, 694 8888

Sjá auglýsingu




Föstudagur, 13. Apríl 2007 kl. 11:39 | ÞH
AMF World Cup: Nóa-mótið 2007

Forkeppni AMF World Cup, Nóamótið verður haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð,19. – 22. apríl, en forkeppni er spiluð með og án forgjafar.  Spilaðir verða 6 leikir í forkeppni, þar sem skipt er um brautarpar eftir hverja 2 leiki. Glæsilegar sælgætiskörfur fyrir 12 hæstu einstaklingana í forkeppninni með forgjöf. Að lokinni forkeppni halda 16 hæstu án forgjafar áfram í milliriðil, þar sem skipt verður í tvo 8 manna riðla. Maður á mann 7 leikir í hvorum riðli með bónusstigum. Stigahæstu menn í hvorum riðli keppa síðan til úrslita 2 leiki samtalsskor.
Sigurvegari úr þessari viðureign verður Nóa-meistari og vinnur sér rétt til að keppa fyrir hönd Íslands á
AMF World Cup 2007 í St. Pétursborg í haust auk farseðils á mótið. 

  • Sjá auglýsingu
  • Skráning hjá Reyni í síma 825-1213 eða á reynirth (hjá) postur.is



Fimmtudagur, 12. Apríl 2007 kl. 11:54 | ÞH
Ársþing KLÍ

14. ársþing KLÍ verður haldið fimmtudaginn 10. maí kl. 18:00 í ÍR heimilinu við Skógarsel.

Fulltrúar á þinginu eru 13 frá ÍBR, 5 frá ÍA og 3 frá UMSK.  Á þinginu hafa fulltrúar einir atkvæðisrétt. Auk þeirra eiga rétt á þingsetu og hafa þar málfrelsi og tillögurétt: Stjórn KLÍ, Framkvæmdastjórn ÍSÍ, Fastráðnir starfsmenn KLÍ og ÍSÍ, Formenn nefnda, Íþróttafulltrúi ríkisins.

Nánar:




Þriðjudagur, 10. Apríl 2007 kl. 14:46 | ÞH
Sollumótið 2007

Sollumótið 2007 verður haldið í Keiluhöllinni laugardaginn 14. apríl og sunnudaginn 15. apríl kl. 9:00 báða dagana. Um er að ræða forgjafarmót (70% af 200) og miðast við síðasta allsherjarmeðaltal. Leiknir verða fjórir leikir hvorn dag, alls 8 leikir. Úrslit verða 3 - 2 - 1. Þátttökugjald er 3.500 krónur og verða heildarverðlaun 45.000.




Mánudagur, 9. Apríl 2007 kl. 16:06 | ÞH
Fréttir frá Thessaloniki

Í gær hófst keppni á Evrópumóti unglinga í Thessaloniki þegar leikinn var tvímenningur stúlkna.  Þær Magna Ýr Hjálmtýsdóttir og Karen Rut Sigurðardóttir léku saman og var spilamennskan ágæt, Magna Ýr með 1.100 og Karen Rut 1.066, samtals 2.166 eða 180,5 að meðaltali og skilaði það þeim 30. sæti.

Tvímenningskeppni pilta fer fram í dag, en fjórir ráshópar leika.  Í þeim fyrsta í morgun léku Jón Ingi Ragnarsson og Hafliði Örn Ólafsson og spilaðu þeir samtals 2.130.  Öllu betur gekk hjá þeim Bjarna Páli Jakobssyni og Andra Má Ólafssyni en þeir spiluðu 2.286 eða 190,5 að meðaltali.  Skúli Freyr Sigurðsson mun svo leika með fjórða riðlinum sem hefst kl. 21:00 að staðartíma eða 19:00 að íslenskum tíma.




Miðvikudagur, 4. Apríl 2007 kl. 08:58 | SKL
Evrópumeistaramót unglinga - EYC 2007

Evrópumeistaramót unglinga 2007 verður haldið í borginni Thessaloniki í Grikklandi dagana 6. til 14. apríl. n.k. Rétt til þátttöku hafa unglingar fæddir eftir 31. ágúst 1988 og fyrir Íslands hönd keppa þar fimm piltar og þrjár stúlkur.

Piltarnir eru: Andri Már Ólafsson KFR, Bjarni Páll Jakobsson KFR, Jón Ingi Ragnarsson KFR, Hafliði Örn Ólafsson ÍR og Skúli Freyr Sigurðsson KFA.  Stúlkurnar eru: Ástrós Pétursdóttir ÍR, Karen Rut Sigurðardóttir ÍR og Magna Ýr Hjálmtýsdóttir KFR. Þjálfarar liðanna og farastjórar eru Hafþór Harðarson og Theódóra Ólafsdóttir. Heldur hópurinn utan á morgun, fimmtudag 5. apríl og hefur keppni á mótinu sunnudaginn 8. apríl. Óskum við þeim góðs gengis á mótinu. Upplýsingar um íslensku þátttakendurna

28 þjóðir taka þátt í Evrópumeistaramóti unglinga að þessu sinni og keppendur eru 260 talsins, 155 piltar og 105 stúlkur. Keppt verður í  tvímenningi þar sem spilaðir verða 6 leikir, þrímenningi þar sem spilaðir verða 6 leikir og liðakeppni  þar sem spilaðir verða 6 leikir. 16 efstu keppendurnir að loknum þessum 18 leikjum komast áfram í úrslit og keppa í Master Event. Heimasíða mótsins




Sunnudagur, 1. Apríl 2007 kl. 14:18 | KLÍ
Bikarmeistarar Sjóvá 2007

Sigfríður Sigurðardóttir KFR og Hafþór Harðarson KFR eru Bikarmeistarar Sjóvá árið 2007. Er þetta annað árið í röð sem Hafþór vinnur titilinn, en Sigfríður vann áður árin 2004 og 2005. Í öðru sæti voru þau Dagný Edda Þórisdóttir KFR og Magnús Reynisson KR. Spilamennskan í dag var mjög góð og flestir leikirnir jafnir og spennandi. 

Leikir í undanúrslitum og úrslitum


Meira